Morgunblaðið - 10.01.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUK 10. JANÚAfi 1990
J7
HAGNAÐARVONIN
Berlínar-
múrinn
til sölu
128 ár var Berlínarmúrinn fleygnr
í gegnum hjarta þýsku þjóðarinn-
ar. Núna ætla austur-þýsk yfirvöld
að hefja sölu á þeim hlutum múrs-
ins sem búið er að rífa niður. Við-
miðunarverð er 500.000 vestur-
þýsk mörk (15 milljónir íslenskra
króna) fyrir stykki sem er 3,60 m
á hæð og 1,20 m á breidd. En jafn-
vel er talið líklegt að enn hærra
verð fáist fyrir múrinn. Hagnaðinn
á m.a. að nota til að fjármagna
bætta heilsugæslu.
Austur-þýska fyrirtækið VEB
Limex hefur tekið að sér að koma
múrnum í verð. Að sögn Helge
Möbius, talsmanns fyrirtækisins,
hafa Japanir, Bandaríkjamenn og
Vestur-Þjóðveijar einkum sýnt
kaupunum áhuga. Möbius hefur
einnig fengið mótmælabréf frá
austur-þýskum borgurum. „Ótrú-
legt. Múrinn er löðraður blóði og
tárum og núna á að fara að græða
á honurn," skrifaði einn. Möbius
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
Hvert þessara stykkja úr Berlín-
armúrnum á að seljast fyrir sem
svarar 15 milljónum islenskra
króna. Þau eru geymd í garði í
Austur-Berlín nærri landamæra-
stöðinni Púshkín-Allee. Hvert
stykki er stimplað með skjaldar-
merki Berlínar og númeri til að
kaupandinn geti verið viss um
hvað hann er að borga fyrir.
segir að menn hafi mikið velt fyrir
sér siðferðilegri hlið málsins og
ákveðið að selja ekki þá hluta múrs-
ins sem eru bókstaflega blóði drifn-
ir.
Smetek leiddur brott af lögreglumönnum.
ÓÞÆGINDI
Justine Bateman ofsótt
af æstum „aðdáanda“
Leikkonan Justin Bateman, sem
lék í þáttaröðinni „Vaxtarverkir“
vonar nú að raunir hennar séu á
enda, en hún lenti í þeirri martröð,
að vanheill aðdáandi ofsótti hana,
skrifaði henni bréf, hringdi og síðast
en ekki síst, tók sér stöðu fyrir utan
hús og híbýli þar sem Bateman kom.
Sást hann þar fara höndum um
skammbyssu. í bréfum kappans og
símhringingum kom fram að hann
elskaði leikkonuna út af lífinu. Ef
henni væri annt um líf sitt ætti hún
að varpa öllu frá sér og ganga að
altarinu með honum.
Þegar mælirinn var fullur, sneri
Justine sér til lögreglunnar sem varð
sér úti um húsleitar- og handtöku-
heimild. I vistarverum hans voru
myndir af Justine uppi um alla veggi.
í íbúðinni voru einnig haglabyssa og
skammbyssa. Kappinn var snarlega
handtekinn. Reyndist hann heita
John Thomas Smetek, iðjuleysingi
frá Texas. Snögg viðbrögð lögregl-
unnar vöktu nokkra athygli, en þau
mátti að nokkru rekja til þess að að
ekki er ýkja langt síðan að annar
svipaður kóni skaut leikkonuna
Rebecku Schefer til bana á götu úti
í Hollywood. Hafði hann hrellt
Rebecku með sams konar hætti og
Smetek angraði Justine. Þá óttuðust
menn að það myndi ýta undir ofsókn-
Gæði oö ending
Miele
heimilistækianna
eru í rauninni
stórkostleg verðlækkun
Justine Bateman í hlutverki
hryggbrotskonunnar.
ar- og afbrýðisæði Smeteks að Just-
ine hefur að undanförnu leikið hlut-
verk glæsikvendis í leikriti sem fjall-
ar að öðrum þræði um þann fræga
morðingja Kobba kviðristu. í leikrit-
inu vefur Justine vonbiðlum um fing-
ur sér, hryggbrýtur þá alla, en er
siðan myrt af nefndum Kobba.
S JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavik - Sfmi 688 588
tx
e
VERNDUM VINNU - VEUUM fSLENSKT