Morgunblaðið - 10.01.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
43
KNATTSPYRNA
Liverpool skoraði átta
sinnum gegn Swansea
lan Rush með þrennu í síðari hálfleik
Liverpool, sem er efst
í ensku 1. deildinni,
burstaði 3. deildarlið
Swansea 8:0 á Anfield í
3. umferð ensku bikar-
keppninnar í gærkvöldi.
Liverpool, sem náði að-
eins markalausu jafntefli
gegn Swansea á laugar-
daginn, heldur áfram í
4. umferð og mætir þar
Exeter City eða Norwich
sem leika í kvöld.
Rush skoraði þrennu í
síðari hálfleik eftir að
Barnes (2 mörk) og
Ronnie Whelan höfðu
komið Liverpool í 3:0 fyr-
ir hlé. Hin mörkin tvö
lan Rush.
gerðu Peter Beardsley og
Steve Nicol.
Millwall og Manchest-
er City skildu jöfn, 1:1,
eftir framlengdan leik og
þurfa að mætast aftur
næsta mánudag. Jimmy
Carter kom Millwall yfir
á 17. mínútu, en Colin
Hendry jafnaði fyrir City
tíu mínútum fyrir lok
venjulegs leiktíma. Hvor-
ugu liðinu tókst að skora
í framlengingunni.
Cambridge United,
sem leikur í 4. deild, sigr-
aði Darlington 3:1 og
leikur gegn Millwall eða
Manchester City í 4. um-
ferð.
KNATTSPYRNA
Þorvaldur Örlygsson.
Þorvaldur
skoraði í
Frakklandi
Þorvaldur Örlygsson skoraði sitt fyrsta mark
fyrir Nottingham Forest er liðið gerði jafn-
tefli, 2:2, við franska liðið Auxerre í vináttuleik
í gær. Leikurinn fór fram í Auxerre í Frakklandi
og gerði Þorvaldur fyrsta mark leiksins með
skalla. Eftir baming á miðjunni barst boltinn út
á kant, gefið var fyrir mark franska liðsins og
þar var Þorvaldur, sem nikkaði snyrtilega yfir
Bruno Martini, landsliðsmarkvörð Frakka.
Þorvaldur, sem lék sinn sjötta leik með Forest
í gær, skoraði eftir aðeins þrjár mínútur. Pascal
Vahirua jafnaði fyrir Auxerre á 19. mínútu og
þannig var staðan í hálfleik. Des Walker kóm
enska liðinu aftur yfír í upphafi síðari hálfleiks,
en Guy Dutuel jafnaði sjö mínútum síðar. Leikur-
inn var sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi í
Frakklandi.
ÚRSLIT
UMFIM — KR 85 : 91
íþróttahúsið f Njarðvík, íslandsmótið í körfu-
knattleik, þriðjudaginn 9. janúar 1990.
Gangur leiksins: 3:0, 4:4, 13:6, 22:12, 24:19,
30:30, 38:36, 43:41, 48:41, 54:44, 58:57,
66:60, 70:76, 72:84, 80:89, 85:89, 85:91.
Stig UMFN: Patrick Releford 29, Teitur Örl-
ygsson 21, ísak Tómasson 14, Friðrik Rúna-
rsson 7, Jóhannes Kristbjömsson 6, Friðrik
Ragnarsson 6, Kristinn Einarsson 2.
Stig KR: Anatolíj Kovtoúm 21, Páll Kolbeins-
son 15, Birgir Mikaelsson 15, Axel Nikulásson
14, Matthías Einarsson 13, Guðni Guðnason
10, Böðvar Guðjónsson 2, Hörður Gautí Gunn-
arsson 1.
Áhorfendun Um 200.
Dómarar: Beigur Steingrímsson og Helgi
Bragason.
ÍR — Gríndavlk 72 : 76
Seljaskóli, úrvalsdeildin í körfuknattleik, þriðju-
daginn 9. janúar 1990.
Gangur leiksins: 4:0, 10:10, 14:22, 19:26,
30:29, 32:37, 36:39, 42:41, 44:49, 55:55,
60:61, 60:68, 65:69, 67:74, 70:74, 72:76.
Stig ÍR: Thomas Lee 25, Jóhannes Sveinsson
14, Bjöm Bollason 13, Bjöm Leósson 8, Bjöm
Stephensen 4, Sigurður Einarsson 4, Kristján
Einarsson 2, Máms Amarsson 2.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 24, Stein-
þór Helgason 16, Ron Davis 10, Hjálmar
Hallgrimsson 8, Rúnar Ámason 5, Ólafur Jó-
hannsson 5, Marel Guðlaugsson 3, Eyjólfur
Guðlaugsson 3, Guðlaugur Jónsson 2.
Áhorfendun 76.
Dómarar-. Jón Otti Ólafsson og Jón Bender.
Vom alltof flautugiaðir.
Valur —ÍBK 82 : 90
Hlíðarendi, Úrvalsdeildin í körfuknattleik,
þriðjudaginn 9. janúar 1990.
Gangur leiksins: 0:3,8:5,18:11,18:22,22:22,
38:35, 48:35, 51:37, 55:46, 59:50, 62:54,
68:62, 70:66, 72:72, 76:76, 82:80, 82:90.
Stig Vals: Magnús Matthíasson 35, Chris
Behrends 17, Svali Bjötgvinsson 10, Matthías
Matthíasson 8, Bjöm Zoega 6, Ari Gunnars-
son 3. Ragnar Jónsson 2, Einar Ólafsson 1.
Stig IBK: Guðjón Skúlason 24, Sandy Ander-
son 21, Magnús Guðfinnsson 14, Falur Harðar-
son 13, Einar Einarsson 8, Nökkvi Jónsson
6, Sigurður Ingimundarson 4.
Áhorfendur: Um 50.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur Garð-
arsson. Dæmdu vel.
Anatolij Kovtoúm, KR. Magnús Matthíasson,
Val.
Patrick Releford,_ UMFN.
Thomas Lee, ÍR Guðmundur Bragason,
UMFG. Chris Behrends, Val.
Bjöm Bollason, ÍR Steinþór Helgason,
Grindavík. SvaJi Björgvinsson, Val. Falur
Harðarson, Sandy Ánderson, Magnús Guð-
finnsson og Guðjón Skúlason, ÍBK. Axel Niku-
lásson, Páll Kolbeinsson og Matthfas Einars-
son, KR. Teitur Örlygsson og ísak Tómasson,
UMFN.
Bikarkeppni KKÍ
ÍA-UMFL...........................81:86
■UMFL leikur við KR f 16-liða úrslitum.
Handknattlelkur
2. deild kurla:
fyam — Breiðablik.................23:21
Armann - Valur b..................24:31
3. deild:
Víkingur b - ÍS...................32:22
Knattspyrna
Enska bikarkeppnin, 3. umferð:
Láverpool — Swansea.................8:0
Darlington - Cambridge..............1:3
Millwall — Manchester City..........1:1
Skoska úrvaisdeildin
Motherwell - Hibemian...............0:2
KR-ingar á topp B-riðils
- ííyrsta skipti ívetur eftir annan sigur á Njarðvíkingum, nú í „Ljónagryfjunni"
VESTURBÆJARLIÐ KR kom sá
og sigraði í Ljónagryfjunni í
Njarðvík í gærkvöldi. KR-ingar
sigruðu með 6 stiga mun, 91:85
og hafa þeir nú sigrað
Njarðvíkinga ítvígang. Lengi
vel stefndi í sigur heimamanna,
en þeim fataðist flugið illilega
í sfðari hálfleik og KR-ingar
náðu að tryggja sér sigurinn
með góðum leik. Sovéski leik-
maðurinn Anatolíj Kovtoúm
átti stórleik f liði KR, hann tók
25 fráköst og skoraði 21 stig.
í hálfleik var staðan 48:41 fyrir
UMFN.
Njarðvíkingar byrjuðu betur,
þeir höfðu forystuna nær allan
fyrri hálfleikinn og í þeim síðari
voru þeir komnir með 10 stiga for-
skot 54:44. En þá
Björn datt botninn úr leik
Blöndal þeirra og KR-ingum
skrífar tókst að j afna metin.
Þá varð Axel Niku-
lásson sem hafði verið einn aðal-
maðurinn hjá KR að hverfa af velli
með 5 villur og útlitið var allt ann-
að en gott hjá vesturbæingum. En
þeir tvíefldust og skoruðu 16 stig
gegn aðeins 2 stigum Njarðvíkinga
og breyttu stöðunni úr 70:68 í 72:84
og gerðu með því út um leikinn.
Njarðvíkingar reyndu örvæntinga-
fulla pressu undir lokin og tókst
þá aðeins að minka muninn, en
tíminn var og skammur og sigur
KR-inga var verðskuldaður.
Leikur Njarðvíkinga var ákaf-
lega brokkgengur að þessu sinni
svo ekki sé meira sagt. Þeir léku á
köflum eins og meistarar, en þess
á milli datt allur botn úr leik liðsins
og leikmenn gerðu sig seku um
ótrúlegustu mistök. KR- ingar áttu
á brattan að sækja nærri allan leik-
inn, en þeir gáfust ekki upp og
uppskáru í lokin í samræmi við það
sem þeir gáfu í leikinn.
Stórleikur Magnúsar dugði
Valsmönnum ekki
Valsmenn voru í gær nálægt því
að endurtaka afrekið frá því
15. október í haust, að leggja ís-
landsmeistara ÍBK að velli á Hlíða-
renda. Þeir voru yfír
Skapti lungann úr leiknum,
Hallgrímsson en meistararnir yfir-
gáfu höfuðborgina
með tvö stig í poka-
horninu. Keflvíkingar höfðu þrisvar
forystu í leiknum; komust yfir 9:8
Morgunblaðið/Einar Falur
Magnús Matthíasson lék frábær-
lega með Valsmönnum í gær og sömu
sögu er að segja af Sovétmanninum
Kovtoúm í liði KR. Báðir fá þijú M
fyrir leikina. Sá sovéski hefur betur í
viðureign við Teit Örlygsson Njarðvík-
ing á myndinni hér að ofan og til hlið-
ar beijast þeir í gærkvöldi, Matthías
og Sandy Anderson, leikmaður ÍBK.
og síðan 20:18 í fyrri hálfleik og
loks 83:82 er tvær mínútur og
hálfri betur voru eftir af leiknum.
Þeir skoruðu 12 síðustu stigin.
Valsmenn voru greinilega stað-
ráðnir í að selja sig dýrt, eftir tapið
gegn Reyni í Sandgerði um helg-
ina. Barátta Hlíðarendastrákanna
var geysileg, viljastyrkurinn mikill.
Þeir gáfu hvergi eftir með Magnús
og Behrends sem bestu menn, nýttu
sér að vörn ÍBK var óvenju slök
fyrir hlé og höfðu örugga forystu.
Munurinn minnkaði nokkuð eftir
hlé en Keflvíkingar náðu þó ekki
að jafna fyrr en sjö mín. voru eftir,
72:72. Heimamenn héldu forystu
enn um stund en góður kafli
Keflvíkinga síðustu tvær og hálfa
mínútuna var of mikið fyrir Vals-
ara; gestirnir gerðu síðustu 12 stig-
in, þar af Guðjón Skúlason síðustu
sjö. Guðjón lauk leiknum eins og
hann hafði byijað hann; með glæsi-
legri þriggja stiga körfu.
Það var sárt fyrir Valsmenn að
tapa þessum leik; þeir voru betri,
baráttuvilji þeirra var meiri en
Keflvfkinga, en það sem gerði út-
slagið var að breiddin er meiri hjá
Suðurnesjamönnum. Behrends og
Magnús voru áberandi bestir hjá
Val og Svali var einnig góður.
Magnús var sérlega sterkur undir
körfunni bæði í vörn og sókn; skor-
aði 35 stig og tók 15 fráköst.
Keflvíkingar réðu nánast ekkert við
hann. Lið meistaranna var mun
jafnara, enginn skaraði virkilega
fram úr en breiddin í hóp þeirra
var meiri og það skipti sköpum.
Slakt í Seljaskóla
Leikur ÍR-inga og Grindvíkinga
í Seljaskóla var spennandi frá
upphafí til enda. Suðurnesjamenn
voru sterkari á endasprettinum og
sigruðu 76:72. Leik-
Höröur urinn var illa spilað-
Magnússon Ur, sérstaklega eiga
skrífar Grindvíkingar að
geta gert betur. Ron
Davis, Bandaríkjamaðurinn í liði
UMFG, komst fljótlega í villuvand-
ræði og virtist það setja gestina út
af laginu. Grindvíkingar voru þó
yfír í leikhléi, 39:36.
Sami bamingur hélst í síðari
hálfleik, en vindipunktur leiksins
kom er staðan var 57:57. Þá fékk
Thomas Lee sína fimmtu villu og í
sömu sókninni Björn Bollason, en
báðir höfðu þeir verið mjög sterkir
fyrir ÍR-inga. Upp úr þessu náðu
gestimir góðu forskoti sem ÍR-
ingum tókst ekki að brúa þrátt fyr-
ir hetjulega baráttu.
I liði IR-inga var Thomas Lee
allt í öllu og var nánast einráður
undir körfunni á meðan hans naut
við. Þá er hinn ungi Bjöm Bollason
mikið efni. Guðmundur Bragason
var dijúgur i liði Grindvíkinga og
Steinþór Helgason skoraði mikil-
vægar þriggja stiga körfur. Ron
Davis hafði sig lítið í frammi, enda
í miklum villuvandræðum.
.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN