Morgunblaðið - 11.01.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990
Miðstjórnarfiindur ASÍ:
*
Otvíræð niðurstaða að
halda áfram viðræðum
ÞAÐ var ótvíræð niðurstaða mið-
stjórnarfundar Alþýðusambands
íslands i gær að halda skuli
áfram viðræðum við vinnuveit-
endur um kjarasamninga á þeim
grundvelli sem rætt hefiir verið
um til þessá, þar sem höfuð-
Lögbirtingur
og Stjórnar-
tíðindi hækka
ÁSKRIFTARGJALD Stjórnartíð-
inda hefur verið hækkað úr 1.500
krónum í 2.500 krónur fyrir ár-
ganginn. Áskriftagjald Lögbirt-
ingablaðsins hefúr verið hækkað
úr 600 krónum í 1.200 krónur.
Einstök hefti Stjómartíðinda kosta
80 krónur séu þau minna en 50 blaðs-
íður, annars 160 krónur. Þau kostuðu
áður 50 og 100 krónur. Eintak af
Lögbirtingablaðinu kostar 25 krónur
en kostaði 15 krónur.
Eldra verð tók gildi í upphafi árs-
ins 1988.
áhersla verður lögð á að halda
verðbólgu niðri, að sögn Ás-
mundar Stefánssonar, forseta
ASÍ.
Formenn landssambanda Al-
þýðusambandsins komu á mið-
stjómarfundinn þegar kjaramálin
voru tekin til umræðu. Ásmundur
sagði að farið hefði verið yfir stöðu
viðræðnanna í heild og það sem
komið hefði fram í þeim til þessa.
Niðurstaðan hefði ótvírætt verið sú
að reyna þessa leið til þrautar, þó
annarra sjónarmiða hafi einnig
gætt á fundinum.
Ásmundur hefur undanfarna
daga fundað með aðildarfélögum
ASÍ á Norðurlandi og Suðurlandi
og kynnt þeim stöðu samningamál-
anna. Hann átti fund með trúnaðar-
ráði Félags járniðnaðarmanna í gær
og mun á næstu dögum og um
helgina funda með félögum í
Reykjavík og í Hafnarfirði.
Næsti fundur samninganefnda
ASÍ og vinnuveitenda hefur ekki
verið ákveðinn, en starfshópar hafa
verið skipaðir og vinna að afmörk-
uðum þáttum málsins.
ég hins vegar ekki neitt,“ sagði
Sverrir Hermannsson.
Tillaga íþrótta- og tómstundaráðs:
Hreinar rangfærslur hjá
bankaráðsformanninum
- segir Sverrir Hermannsson, bankastjóri
SVERRIR Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, seg-
ist munu gefa út greinargerð í
dag vegna ummæla Eyjólfs K.
Sigurjónssonar, formanns bank-
aráðs Landsbankans, í Morgun-
blaðinu í gær, og því svari hann
sem fæstu nú. „Það var enginn
samningur til — það var enginn
samningur gerður 1. september
síðastliðinn, heldur voru minnis-
punktar settir saman,“ sagði
Sverrir í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Bankaráðið heimilaði okkur að
semja eftir þeim minnispunktum
sem þarna voru settir á blað, með
vísan til þeirra fyrirvara sem þar
voru,“ sagði Sverrir. Sverrir var
spurður hvort hann liti þannig á
að ummæli formanns bankaráðs-
ins jafngiltu stöðumissi fyrir hann:
„Það er bankaráðsins að svara
því, en svo vill til að í svörum
bankaráðsformannsins er um
hreinar rangfærslur að ræða. Um
loforð bankaráðsformannsins , í
sambandi við 60 milljónimar veit
Morgunblaðið/Sverrir
Viðey á ytri höfhinni í
Reyly'avík í ga»rdag. Varðskipið
Ægir í baksýn. Á innfelldu
myndinni er Olafur Örn Jóns-
son, skipstjóri á Viðey, í brúnni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ægir kom með Viðey til hafiiar
VARÐSKIPIÐ Ægir kom með togarann Viðey til hafiiar í
Reykjavík um miðjan dag í gær, en togarinn varð vélarvana suð-
ur af Reykjanesi um hádegisbilið í fyrradag. Ægir var kominn
að togaranum um áttaleytið í fyrrakvöld og gekk í alla staði vel
að koma taug á milli skipanna og draga það til hafiiar, að sögn
Ólafs Arnar Jónssonar, skipstjóra á Viðey.
Ólafur sagði að óveðrið hefði
verið dottið niður og ekki verið
nema um 10 vindstig þegar tvær
sveifaráslegur í aðalvél skipsins
hefðu brotnað og þeir orðið að
láta reka þar til Ægir kom.
Ómögulegt væri að segja hvernig
hefði getað farið ef vélin hefði
bilað þegar veðrið var sem verst.
Hann hefði aldrei lent í svona
vondu veðri þau 20 ár sem hann
hefði verið á sjó og það væri ótrú-
legt að það hefði staðið yfir sam-
fleytt í tíu klukkustundir án þess
að nokkurt lát væri á.
Viðey var búin að vera að veið-
um í tíu daga þegar vélin bilaði
og var komin með 130 tonn af
fiski. Ólafur sagði óvíst hversu
langan tíma viðgerðin tæki, en
hún þyrfti ekki að verða tímafrek.
Húsaleiga íþróttafélaga
verði greidd að öllu leyti
Yrði 70-80 milljónir áþessu ári
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
hefúr lagt til við borgarráð, að
húsaleiga íþróttafélaga í
Reykjavík verði greidd að fúllu.
Hingað til hefiir helmingur
húsaleigu verið greiddur. Áætl-
að er að á þessu ári nemi þessi
styrkur borgarinnar við íþrótta-
félögin 70-80 milljónum króna,
nái tillaga íþrótta- og tóm-
stundaráðs fram að ganga. Júl-
íus Hafstein, formaður ráðsins,
segir að tillagan boði stærsta
framfáraspor í áratugi fyrir
íþróttafélög borgarinnar.
Forsaga málsins er sú, að í febr-
úar á síðasta ári samþykkti borg-
arstjóm að fela íþrótta- og tóm-
Rekstrartap Arnarflugs
yfír 100 milljónir í fyrra
*
Askorun hluthafafimdar afhent samg-önguráðherra
TAP á rekstri Arnarflugs hf. varð meira en 100 milljónir króna
á síðasta ári, að sögn Harðar Einarssonar stjórnarformanns félags-
ins. 70 til 80 milljónir af þeirri upphæð segir Hörður hafa tapast
vegna kyrrsetningar flugvélar, sem ríkið leysti til sín á fyrri hluta
ársins, og þijá síðustu mánuðina varð tapið um 10 miHjónir á
mánuði.
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs gekk í
gær á fund Steingríms J. Sigfús-
sonar samgönguráðherra og af-
henti honum áskorun hluthafa-
fundar félagsins. Þar er skorað á
ráðherrann að hann beiti sér þegar
í stað fyrir mótun flugmálastefnu
þar sem jafnrétti og fijálsræði
verði ríkjandi sjónarmið. Ennfrem-
ur er skorað á ríkisstjómina að
híún gangist án tafar fyrir já-
kvæðri niðurstöðu i skuldaskiptum
milli ríkissjóðs og Amarflugs. Þar
er um að ræða niðurfellingu 150
milljóna króna skuldar félagsins
við ríkissjóð, eða breytingu í
víkjandi lán.
Kristinn segir ráðherra hafa
lýst því að hann væri hlynntur
því, að staðið yrði við samþykkt
ríkisstjórnarinnar um skuldina.
Kristinn sagðist eiga von á að úr
þessu máli rættist á næstu dögum,
enda væri ekki eftir neinu að bíða.
„Þetta er eitt af þeim málum þar
sem vilji er allt sem þarf,“ segir
hann.
Steingrímur J. Sigfússon segir
samþykkt ríkisstjómarinnar
standa óbreytta. „Og þá er hún í
fullu gildi, að mínu mati kemur
ekki annað til greina,“ segir hann.
Steingrímur segir æskilegt og
nauðsynlegt að ganga frá því
máli, einkum þar sem forsendur
fyrir aðstoðinni séu nú fyrir hendi
eftir að búið er að selja þotuna
sem ríkið eignaðist og nota sölu-
andvirðið til að jafna skuldir fé-
lagsins við ríkissjóð.
Sjá frétt af hluthafafúndi Arn-
arflugs á bls. 29.
stundaráði að endurskoða styrkja-
kerfi borgarinnar gagnvart
íþróttafélögunum. Niðurstaðan
varð sú, að á mánudag samþykkti
ráðið að leggja til að húsaleiga
íþróttafélaganna yrði greidd að
fullu. Upphæð styrks fyrir hvert
íþróttafélag er reiknuð út á þann
hátt, að gerð er úttekt á fjölda
þeirra tíma, sem íþróttafélögin
nýta í húsunum í hveijum mán-
uði. Reykjavíkurborg styrkir
íþróttafélögin um þá upphæð sem
tíminn kostar.
Tillaga íþrótta- og tómstunda-
ráðs var rædd í borgarráði á
þriðjudag, en vísað til gerðar fjár-
hagsáætlunar. Fyrri umræða um
fjárhagsáætlun verður 18. janúar
og síðari umræða þann 2. febrúar.
„Með þessari tillögu eram við
að koma til móts við íþróttahreyf-
inguna og ef af verður styrkir
þetta fjárhag hennar mjög,“ sagði
Júlíus Hafstein. „Tillagan á fyrst
og fremst við um íþróttahúsin og
gervigrasvöllinn í Laugardal, en
ýmis félög, svo sem sundfélög og
fijálsíþróttafélög, hafa þegar
ókeypis aðgang að æfingahúsum
og svæðum borgarinnar. Þá sér
Reykjavíkurborg einnig um allan
rekstur á íþróttasvæðum íþrótta-
félaganna, það er að segja knatt-
spyrnuvöllum. Helstu breytingar
aðrar á styrkjakerfinu nú er að
styrkirnir verða greiddir jafnóðum.
Áður hafa þeir ekki komið til
greiðslu fyrr en að ári liðnu og
það.hefur valdið því, að íþróttafé-
lögin háfa verið í skuld við
Reykjavíkurborg."
Júlíus sagði, að næði tillaga
íþrótta- og tómstundaráðs fram
að ganga yrðu settar ákveðnar
reglur um úthlutun styrkjanna og
þess gætt, að menn vannýttu ekki
tíma í íþróttahúsunum.
Ákveðið að
hafa ekki
prófkjör
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík ákvað
með skriflegri atkvæða-
greiðslu á aðalfiindi sínum í
gærkvöldi að viðhafa ekki
prófkjör við val frambjóð-
enda á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í kosn-
ingum til borgarstjórnar 26.
maí í vor.
Baldur Guðlaugsson formað-
ur stjórnar fulltrúaráðsins
mælti fyrir því áliti meirihiuta
stjórnarinnar, að 15 manna
kjörnefnd verði falið að stilla
upp framboðslistanum. TiIIaga
kom frá Árna Sigurðssyni um
opið prófkjör. Að tillögu form-
anns var fyrst gengið til at-
kvæða um hvort prófkjör yrði
viðhaft eða ekki. Atkvæði
greiddu 230 fulltrúar. Prófkjöri
höfnuðu 136, en 90 studdu
það, 4 seðlar voru auðir.
Baldur Guðlaugsson var ein-
róma endurkjörinn formaður
stjómar fulltrúaráðsins.