Morgunblaðið - 11.01.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990
15
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Brahms-tónleikar
eftir Rafn Jónsson
Áttundu og síðustu áskriftartón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar íslands
á fyrra misseri verða í Háskólabíói
í kvöld og hefjast klukkan 20.30
og verða svo endurteknir í íþrótta-
húsinu á Akranesi föstudaginn 12.
janúar, einnig klukkan 20.30.
Á efnisskránni verða eingöngu
verk eftir Johannes Bramhs:
Tragíski forleikurinn, Konsert fyrir
fiðlu, selló og hljómsveit að lokum
Sinfónía nr. 2. Einleikarar verða
þau Gyðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Gunnar Kvaran sellóleik-
ari. Hljómsveitarstjóri verður Petri
Sakari, aðalstjórnandi hljómsveitar-
innar.
Tónskáldið
Jóhannes Brahms var einn af
hinum stóru B-um: Bach — Beet-
hoven — Brahms. Brahms fæddist
í Hamborg 1833 og lést úr krabba-
meini í Vínarborg 1897, 63 ára að
aldri. Aðeins tíu ára kom hann fyrst
fram sem píanóleikari á kammer-
tónleikum og í framhaldi af því
hélt hann til náms í tónlist. Hann
framfleytti sér með hljóðfæraleik á
veitingastöðum og krám á námsár-
um sínurn. Verk Brahms voru fyrst
og fremst klassísk að formi til en
þrungin rómantík 19. aldar. Tónlist-
in var honum allt; hann leit ekki á
hana sem meið af bókmenntum eða
myndlist, heidur algerlega sjáif-
stætt tjáningarformi. Hann kynnt-
ist snemma Schumann og tókst með
þeim vinátta sem entist til æviloka
Schumanns 1856. Schumann sá
hvílíkur snillingur Brahms var og
skrifaði um hann að þetta unga
tónskáld hefði sprottið upp alskapað
eins og Mínerva spratt alsköpuð og
í fullum herklæðum út úr höfði
Júpíters.
Árið 1869 settist Brahms að í
höfuðborg tónlistarinnar, Vín, og
bjó þar einsamall til dauðadags.
Þótt hann hlyti margháttaða viður-
kenningu og auðgaðist vel, bjó hann
í fremur fábrotnu húsnæði, leigði
aila tíð á gistiheimili. Sagt var að
sérhver dagur hjá honum hefði haf-
ist klukkan fimm með lútsterku
kaffi sem hann treysti engum nema
sjálfum sér til að laga og álíka
sterkum vindli. Síðan settist hann
við skriftir og vann skipulegá að
tónsmíðum sínum og reykti vindl-
ana.
Öll verkin á tónleikunum eru
samin á tíu ára tímabili, á árunum
1877-1887. Sinfónía nr. 2 op. 73
var frumflutt í Vín í árslok 1877
og er ein fjögurra sinfónía, sem
hann samdi, en það var eftir honum
haft, að form sinfóníunnar ætti
ekki alls kostar við hann. Ti-agíski
forleikurinn var einnig frumfluttur
í Vínarborg á jóladag 1880 og
Tvíkonsertinn fyrir fiðlu og selló
Þ.ÞOBGRÍMSSON&CO
E30EJQQH0.
gólfflísar - kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
var frumflutt í Köln í Þýskalandi í
október 1887.
Einleikararnir
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari, konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, og Gunnar Kvaran
sellóleikari, standa í fremstu röð
íslenskra tónlistarmanna. Þau hafa
hvort um sig haldið fjölmarga sjálf-
stæða tónleika sem og í samvinnu
við aðra tónlistarmenn á sviði stofu-
tónlistar, auk þess að koma fram
sem einleikarar með Sinfóníuhljóm-
sveitinni.
Á undanförnum árum hafa þau
víða komið fram sem dúo. Auk tón-
leikaferða um ísland hafa þau leik-
ið í Danmörku, Bandaríkjunum og
Kanada. Sl. sumar voru þau gestir
íslendingadagsins í Gimli, Maní-
toba. Fyrirhuguð er tónleikaferð í
apríl nk. þar sem þau koma m.a.
fram í Minneapolis, Dallas og Bos-
ton. Næsta sumar munu þau eins
og nokkur undanfarin sumur starfa
Einleikararnir Guðný Guð-
mundsdóttir og Gunnar Kvaran.
við tónleikahald og kennslu við
Mancester Music Festival í Verm-
ont-fylki í Bandaríkjunum. Þau
Guðný og Gunnar stofnuðu Tríó
Reykjavíkur ásamt Halldóri Har-
aldssyni píanóleikara, árið 1988.
Hljómsveitarstjórinn
Hljómsveitarstjórinn á tónleikun-
um verður Petri Sakari, aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Hann er frá Tampere í Finn-
landi, þar sem hann nam fiðluleik.
Síðar hélt hann til Helsinki og lærði
hljómsveitarstjórn hjá-Jorma Pan-
ula í Síbelíusar-akademíunni í Hels-
inki -en Panula mun stjórna á tón-
leikum hljómsveitarinnar í maíbyij-
un á þessu ári.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Sinfóníuhljómsveitar Islanda.
VERÐBREFASJOÐIR ÞEIR SEM VIB REKUR STÆKKUÐU
MIKIÐ ÁÁRINU 1989. UM ÁRAMÓTIN VAR SAMANLÖGÐ
STÆRÐ ÞEIRRA RÚMIR 2,3 MILLJARÐAR.
VERÐBRÉFASJÓÐIR -
ð. janúar Avöxtun l.jsnúar umfram
veróbóigu sJAuatu: {%)
SötugsnQl 3mán. 6 mén. 12mén.
FJárfestingarfélag i.landa hf.
Kiarabrél 4,520 6.0 7.5 8.5
MarKbréf 2.401 8.4 8.6 9.4
Tekjubréf 1.885 7.3 7.7 8,6
Skyndibréf 1.364 6.0 6,2 7.1
Gengisbréf Kaupping hf. 2.022 ~ ~
Einingabréf 1 4.553 8.1 8.2 9.5
Einmgabréf 2 2.506 6,0 6.6 6.6
Einingabréf 3 2,994 9.4 9.9 10,7
Lifeynsbréf 2.289 8.1 8,2 9,5
Skammtimabréf 1,556 6,0 6.6 7,&
Verftbréfam. íslandsbanka
Sjóðsbréfdl 2,200 9.3 9,2 9.7
Sjóðsbrét 2 1,679 9.6 9.7 10,3
Sjóðsbréf 3 1.543 7.7 7,8 8.3
Sióðsbréf 4 1,297 9.1 9.5 —
Vaxtarsjóðsbréf 1.5520 9.0 9.2 9.9
Ávöxtun verðbréfasjóða,
Morgunblaðid 9. janúar 1990
L 10%
E.6%
Sjódur 1
Sjóður 3
Valbréf
I. n
Sjódur 2
Sjóður 4
Vaxtarbréf
D. 12%
A. Ríki, B. Sveitarfélög, C. Bankar ogSparisjóðir, D. Traust Fyrirtæki, E. Veðskuldabréf fyrirtækja og aðrar ábyrgðir,
F. Veðskuldabréf, G. Hlutabréf, H. Bankar ogBæjarsjóðir, I. Skuldabréf með Sjálfskuldarábyrgð
Sjóður 1 var 705 milljániríupphafi
þessa árs. Hann ereinkum ætlaihir
þeim sem vilja Jjárfesta í öruggum
verðbréfum til lengri tíma.
Sjóður 2 var 1 lOmilljóniriuþþhafi
þessa árs. Hann er œllaður þeim
sem vilja hafa reglulegar tekjur af
sparifé sínu.
Sjóður 3 var 734 milljóniriupphafi
þessa árs. Hann ereinkum tetlaður
þeim sem vilja geyma fé sitt i stuttan
tíma, 2-10 mánuði.
Sjóður 4 eryngstisjóðurinn. Hann
var 95 milljónir í upphafi þessa árs.
Hann er einkum cetlaðurþeim sem
vilja spara til lengri líma og njóta
góðrar ávöxtunar af hlutabréfum.
Vaxtarbréf og Valbréf: VIB sér um rekstur Vaxtarsjóðsins hf og Valsjóðsins hf.
Eigendur Vaxtarbréfa og Valbréfa geta því framvegis keypt og selt stn bréf í
afgreiðslu VIB að Armúla 7 þar sem þeir hitta m.a. fyrir fyrrum starfsmenn
Verðbréfamarkaðs Útvegsbankans. Helsta einkenni Vaxtarbréfanna erað þau má
innleysa án kostnaðar 2 og 3 dag hvers mánaðar. Valbréf má hins vegar innleysa
fyrstu fimm daga hvers mánaðarán innlausnargjalds. Þannig blandast t báðum
tilfellum kostir langtíma og skammtíma verðbréfasjóða. Vaxtarsjóðurinn var 604
milljónir nú um áramótin, en Valsjóðurinn 85 miUjónir. Fjárfestingarstefna
sjóðanna verður að mestu óbreytt áfram.
Velkomin í VIB
Nú um áramótin sameinuðust
verðbréfamarkaðir Iðnaðarbankans,
Alþýðubankans og Utvegsbankans og
urðu Verðbréfamarkaður Islands-
banka.
Verðbréfamarkaður íslandsbanka tók
þá við umsjón verðbréfasjóða verð-
bréfamarkaðanna þriggja og innlausn
hlutdeildarbréfa þeirra. Jafnframt tók
VÍB að sér alla þjónustu á öðrum
sviðumsemverðbréfamarkaðirnir þrír
höfðu áður boðið.
Verðbréfasjóðir þeir sem VIB rekur
stækkuðu mikið á árinu 1989. Um ára-
mótin var Samanlögð stærð þeirra um
2,3 milljarðar. Áframverðurfylgtsömu
fjárfestingarstefnu og áður, þ.e. að
fjárfesta í öruggum verðbréfum ríkis,
sveitarfélaga, banka og fyrirtækja.
Við hjá VÍB bjóðum alla fyrri
viðskiptavini VAL, VUB og VIB sem og
nýja viðskiptavini velkomna til okkar í
Ármúla 7.
Við leggjum áherslu á örugg verðbréf,
góða ávöxtun og vandaða þjónustu.
Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30