Morgunblaðið - 11.01.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANUAR 1990
17
er í garðstofustíl. Þarna er næsta
víst að fyrir er að finna vingjarn-
legt fólk sem býður upp á þjónustu
af látlausri lipurð. Hvað skyldi svo
vera á boðstólum? Það er nóg til
þess að hver meðalmaður á að géta
fengið eitthvað við sitt hæfi. Hrepp-
stjórinn hefur aðeins einu sinni
þurft að sinna embættiserindum í
Brekku. Það er eðlilegt að hann
væri húfulaus í það eina skipti
vegna þess að hann einfaldlega
hefur aldrei þurft að ríota húfuna.
Allur fjöldinn ber Brekku gott
vitni og fólkinu sem þar starfar.
Hríseyingar vita það. Lítill hópur
er hins vegar ákveðinn í að vera
ekki ánægður og við því verður
ekkert gert. Einstaka geta verið
óheppnir og við það virðist venju-
legt þjónustufólk heldur ekki ráða.
Þessi atriði bæði eiga alls staðar
við. Hins vegar er ljóst að þeir sem
ætla að vera óánægðir beita því
frekar í dreifbýli en á stærri stöðum.
Nú förum við að skilja við kunn-
ingja okkar sem kom í dag til að
kynnast Hrísey. Hann gengur niður
að höfn þar sem Hríseyjarfeijan er
tilbúin til brottfarar. Hann veit að
hún er stundvís og að vera bara
aðeins of seinn þýðir að missa af
henni. Hann hleraði nefnilega ein-
hvers staðar að það væri nákvæm-
ara að stilla klukkuna sína eftir
Hríseyjarfeijunni en útvarpsklukk-
unni. Þegar nú ferjan siglir fyrir
„bryggjuhausinn“ eins og Hrísey-
ingar segja gjarnan, lítur hann yfir
staðinn. Þar sem hann er næmur í
eðli sínu gerir hann sér grein fyrir
því að á þessum stað er fólk sem
hefur mótað samfélag. Þetta sam-
félag er í svo mörgu líkt öðrum
samfélögum og líf fólksins svipað.
Það er líka að sumu leyti öðru vísi.
Hríseyingar eru ekki reiðubúnir að
viðurkenna sig skrítna, en þeir eru
reiðubúnir að viðurkenna að þeir
hafi sín „sérkenni", sem betur fer.
Hötundur er sveitarstjóri í Hrísey.
reknir af sveitarstjórnum eru marg-
ir til fyrirmyndar. Þar fer víða fram
ágætt uppeldisstarf og umönnun
barna. Þeir eru ekki geymslur fyrir
börn með félagsleg vandamál held-
ur uppeldisstofnanir. Það vill þann-
ig til að uppeldismál eru liður í fé-
lagsþjónustu og virk félagsþjónusta
stendur ekki undir nafni nema hún
sinni þessum þætti. Lögin um vernd
barna og ungmenna eru lög sem
kveða á um uppeldi og aðbúnað
barna. Þau lög ná til allra barna
og enginn getur séð fyrír hvort eða
hvenær á þau lög muni reyna í lífi
barns. Hins vegar verður ekki deilt
um það hér hvort dagvistir
barna/leikskólar falli undir mennta-
mála- eða félagsmálaráðuneyti.
Kjarni málsins er að börnum verði
boðin þroskavænleg uppeldisskil-
yrði og að einhver heildarsýn sé til
staðar í málefnum þeirra hjá þjóð-
inni.
Það er von okkar að hægt verði
að líta á málefni barna og ung-
menna í tengslum við almenna vel-
ferð einstaklinga og fjölskyldna og
er það mat okkar að frumvarp tii
laga um félagsþjónustu sveitarfé-
laga komi til með að tryggja meiri
jöfnuð og bæta lífsskilyrði þeirra
sem við erfiðastar aðstæður búa.
Það er kaldhæðnislegt til þess að
hugsa að fhimvarp sem leggur
áherslu á bætt uppeldisskilyrði
barna og skýrir heildarmynd í mál-
efnum þeirra skuli ekki fá verðuga
umfjöllun vegna deilna um það
hvort dagvistarmál skuli teljast
menntamál eða félagsmál.
Við skorum því á ráðamenn að
beina umræðu um frumvarpið inn
á málefnalegar brautir og láta ekki
blindast af þeim hroka sem fram
hefur komið í garð félagsþjón-
ustunnar undanfarið í málflutningi
uppeldismenntaðs fólks varðandi
þetta frumvarp.
Höfundar: Ingibjörg
Broddadóttur er deildarfulltrúi
fjölskyldudeildar
Félagsmálastofnunar Kópavogs.
Regína Ásvaldsdóttir er
félagsráðgjafi og starfar i
fjölskyldudeild
Félagsmálastothunar
Reykjavíkur.
__________Brids_____________
Arnór Ragnarsson
Stórafinælismót Bridsfélags
Breiðfirðinga
Stórafmælismót Bridsfélags
Breiðfirðinga í tilefni 40 ára af-
mælis félagsins verður haldið helg-
ina 3.-4. febrúar nk. í Sigtúni 9.
Spilaður verður barómeter með
glæsilegum peningaverðlaunum.
Einnig verður spilað um silfurstig.
Skráning .er þegar hafin í keppni
þessa og skráningarsíminn er sími
Bridssambandsins, 689360. Mönn-
um er bent á að skrá sig sem fyrst
ef þeir hafa áhuga á að taka þátt
áður en mótið fyllist.
Stefnt er að því að byija barómet-
ertvímenning Bridsfélags Breið-
firðinga 18. janúar nk. og er skrán-
ing þegar hafin. Undanfarin ár
hefur þetta verið með vinsælli
tvímenningum á Reykjavíkursvæð-
inu og þátttakan undanfarin 3 ár
verið í kringum 60 pör. Skráning-
arsími fyrir þessa keppni er 689360
(ísak).
Bóksala BSÍ
Bridssamband íslands getur um
þessar mundir boðið upp á töluvert
af bridsbókum eftir þekkta höf-
unda. Fyrir aðila úti á landsbyggð-
inni sem áhuga kynnu að hafa á
einhvetjum bókum, er einfalt mál
að panta bækurnar til sín í póst-
kröfu í gegnum síma Bridssam-
bandsins, 689360. Til eru bækur
eftir höfunda eins og H.W. Kelsey,
Mike Lawrence, Terence Reese,
Edwin Kanter, Eric Jannersten,
Fi’ed Karpin, Brian Senior, Kit
Woolsey, Victor Mollo, Eric Crow-
hurst o.fl.
Bridshátíð
Bridshátíð, stórmót Bridssam-
bandsins og Flugleiða, verður hald-
in.dagana 9,—12. febrúar nk. á
Hótel Loftleiðum. Verðlaun í keppni
þessa hafa verið hækkuð um helm-
ing. Þátttökugjald í tvímenning
Bridshátíðar verður kr. 10 þús. á
par og 16 þús. í sveitakeppnina.
Skráning er þegar hafin í báðar
keppnir. Sveitakeppnin er öllum
opin en þátttaka í tvímenningnum
ræðst af áunnum stigum umsækj-
enda síðastliðin 5 ár.
Gestir á bridshátíð verða senni-
lega sterk sveit frá Svíþjóð auk
þess sem blönduð sveit skipuð Mike
Polowan (sem var gestur á Brids-
hátíð 1986) frá USA, Mike Robson
frá Bretlandi, Mike Molson frá
Kanada sem oftsinnis hefur verið
gestur á Bridshátíð og Lynn Deas,
tvöföldum heimsmeistara í kvenna-
flokki frá Bandaríkjunum. Þriðja
sveitin sem kemur á Bridshátíð
verður undir forystu José Damiani,
forseta Evrópusambandsins, en
hann þykir mjög snjall bridsspilari.
Spilafélagi hans verður líklega
Ió-akkinn Christian Mari, fyrrum
Ólympíumeistari og margfaldur
landsliðsspilari. Hugsanlega verða
með þeim í för Danirnir þekktu
Jens Auken og Denis Koch. Skrán-
ing í keppnir Bridshátíðar er í síma
BSÍ, 689360.
vs km
Færslubók
og leiðbeiningarrit
um vírðisaukaskatt
Færslubók
A
lllir þeir sem eru skattskyldir
samkvæmt lögum um virðisaukaskatt en eru ekki
\ bókhaldsskyldir eiga að færa upplýsingar um
kaup og sölu í færslubók sem RSK gefur út og
hefur verið send til viðkomandi aðila. Sama gildir
um þá sem eru bókhaldsskyldir en undanþegnir
skyldu til að halda tvíhliða bókhald (einyrkjar).
Þessir aðilar eiga að færa sérstaklega
sérhverja sölu eða afhendingu skattskyldrar vöru
eða þjónustu í færslubókina. Einnig ber að færa
sérhver kaup á skattskyldri vöru og þjónustu til
nota í rekstrinum.
Þeir sem eiga að halda tvíhliða bókhald
vegna starfsemi sinnar geta notað færslubókina
sem undirbók í fjárhagsbókhaldi sínu.
Færslubókin fæst hjá skattstjórum um land allt.
Leiðbeiningarrit
Jtarlegt leiðbeiningarrit um
virðisaukaskatt hefur verið sent út til skattaðila.
Þeim sem einhverra hluta vegna hafa ekki fengið
ritið er bent á að hafa samband við skattstjóra eða
gjaldadeild RSK.
Upplýsingasími RSK
vegna virðisaukaskatts er
91-624422
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI