Morgunblaðið - 11.01.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 11.01.1990, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990 Gylfi Jónsson ræðir við Ágúst Hákansson (nær) og Reyni Guðmunds- son fyrir fiugið. Flugleiðaflugmenn í nýjum flughermi hjá Braathens: Nálgast sífellt raunverulegl flug -Þessi verkfæri eru orðin miklu fullkomnari en þau voru fyrst, seg- ir Gylfi Jónsson eftirlitsflugstjóri sem er gamalreyndur í fluginu. -Menn hafa náð ótrúlegum tökum á að gera útsýnið sem raunveruleg- ast og yfirleitt er það svo að flug- menn gleyma sér í kassanum og upplifa þetta sem eðlilega f lugferð. Tölvubúnaðurinn er líka að verða sífellt fullkomnari fyrir okkur sem þjálfum því nú getum við bara pantað bilanir og veður eins og okkur lystir á einfaldan og f Ijótleg- an hátt og látið f lugmennina glíma við hvers kyns vanda. Það voru orð að sönnu því Reyn- ir Guðmundsson flugstjóri og Ágúst Hákansson flugmaður fengu að reyna eitt og annað, þrumuveður, hálku á flugbraut, sprunginn hjólbarða í lendingu, hreyfilmissi í flugtaki og þannig mætti lengi telja. Raunveruleikinn felst ekki síst í því líka að áður Gunnar Karlsen hjá Braathens. að hægt er að frysta kassann. Þá stöðvar kennarinn flugið og.getur rætt við flugmennina í miðju kafi en síðan halda menn áfram. Að þessu sinni áttu þeir Reynir og Ágúst að fljúga með okkur frá Osló til Stokkhólms. Áður en farið var í kassann ræddi Gylfi við þá um ýmis atriði til upprifjunar og ferðin var skipulögð. Þeir fengu veður, hleðslu og urðu að kanna hvort brautin leyfði flugtak við þessi skilyrði en frost var, þrumu- veður í nágrenninu og brautin hál. Það þurfti því að reikna út hleðsl- una og spurning var hvort hægt yrði að taka með alla frakt. Æfing- in er ekki síst í því fólgin að hugsa fyrir öllum þessum atriðum og reikna út eins og eðlilegt f lug stæði fyrir dyrum. Bilanir eftir pöntun í kassanum undirbjuggu flug- Þegar nýjar flugvélategundir eru teknar í notkun er að mörgu að hyggja, 'ekki síst í sambandi við þjálfún flugliða og kennslu í viðhaldi og meðferð. Nú stend- ur einmitt yfir hjá Flugleiðum tímabil þjálfúnar flugmanna og fiugvirkja áður en Boeing 757-200 þoturnar verða teknar í notkun næsta vor. Fyrsti hópur þeirra er þegar búinn með nám- skeiðslotu vestan hafs og sá næsti á forum. Og nú í haust þegar dísirnar, nýju 737-400 þoturnar, höfðu verið í notkun í hálft ár þurfti að senda flug- menn þeirra í reglubundna próf- un sem fi’am fer tvisvar á ári. Einnig þar þarf að setja sig í nýjar stellingar og leita að flug- hermi fyrir 737-400. Hann fannst hjá norska flugfélaginu Braathens SAFE sem hefúr tek- ið í notkun 737-400 þotur. Blaða- maður Morgunblaðsins fylgdist með tveimur flugmönnum Flug- leiða sem voru í kassanum eins og þeir kalla það nú rétt fyrir áramótin en nú stendur einmitt yfir þar þjálfún nýrra flug- manna sem flytjast eiga yfir á 737-400 vélarnar. Jón R. Steindórsson yfirflug- stjóri og Gylfi Jónsson eftirlits- flugstjóri stjórna þessum málum og taka flugmenn sína í gegn í kassanum. Fyrst röbbum við lítil- lega við Gunnar Karlsen hjá Braat- hens en hann hefur umsjón með rekstri á flughermum félagsins: Öryggisatriði -Við ákváðum fljótlega að fjár- festa í flughermi fyrir Boeing 737-400 þoturnar okkar og erum þessar vikurnar að taka hann í notkun. Flugleiðamenn fengu að koma strax með sína menn í fyrstu tékkun en í raun verður þessi f lug- hermir tekinn formlega í notkun í janúar. Nokkur önnur félög hafa einnig samið við okkur um að fá þjálfun hér. Ástæðan fyrir því að við réð- umst í þessa fjárfestingu var sú að fáir flughermar fyrir 737-400 eru komnir í gagnið en við þurftum að koma langflestum flugmönnum okkar, sem eru alls 232, í þjálfun á tiltölulega stuttum tíma. Við endumýjum flugflotann á rúmum þremur árum og nýtum flug- herminn því yfir 60% á móti öðrum félögum nú í byrjun. Hann kostaði um 65 milljónir norskra króna og á móti kemur sparnaður við ferðir og uppihald manna. Aðalatriðið er þó það öryggi sem við teljum okk- ur fá við að hafa eigin flughermi. Hér getum fengið alla nauðsynlega þjálfun og tökum til þess góðan tima. Gunnar Karlsen segist bóka dagskrá um hálft ár fram í tímann og ásamt Flugleiðum er hjá honum þýskt flugfélag, Linjef lyg i Svíþjóð og Maersk Air frá Danmörku. Flughermirinn er nýttur frá kl. 6 að morgni til 2 eftir miðnætti næstum óslitið en einn og einn tími er skilinn eftir inn á milli til eftir- lits. -Það var gaman að hitta íslenska flugmenn aftur. Ég byrj- aði hjá Braathens fyrir 27 árum og var þá í Stavanger. Þá áttum við mikil samskipti við Loftleiða- menn og ég sé hér enn nokkur sömu andlitin og við bendum hveij- ir á aðra og segjum: Ert þú hér? Flughermir Braathens er frá kanadíska fyrirtækinu CAE en það fyrirtæki sérhæfir sig í ýmsum rafeindabúnaði fyrir flugið - ekki síst flughermum og tölvubúnaði fyrir flugið. Flughermir er í raun nákvæm eftirlíking af stjórnklefa flugvélar og hafa þessar eftirlík- ingar sífellt verið að nálgast raun- veruleikann á seinni árum. Undir- stöður hans eru vökvatjakkar sem hreyfa kassann á alla kanta eftir fyrirsögn tölvubúnaðarins - eftir því hvert flogið er og við hvaða skilyrði. Búnaðurinn skiptist í tvo hluta. Annars vegar er allt er lýtur að kassanum sjálfum og flugi hans sem kemur frá CEA og hins vegar það er lýtur að útsýni, veðri, hljóð- um og flugvöllum en sá búnaður kemur frá MacDonnel Douglas Electronics. Og þar eru framfarirn- ar ekki minnstar. Verða sífellt fúllkomnari | k u i i rmi Reynir situr í flugstjórasætinu vinstra megin og Ágúst hægra megin Gylfi potar á skjáinn og fær þannig fram ýmsar bilanir og vandamál. - komnir á leiðarenda eftir ýmsar þrautir. en farið er í kassann er ferðin undirbúin, flugleiðin ákveðin og síðan er hún flogin á eðlilegum tíma. Reyndar er lika hægt að tvö- falda hraðann þegar fljúga skal langa leggi. Það §em má teljast óraunverulegt er að miðflóttaaflið vantar í beyjunum og í hröðun og hemlun í flugtaki og lendingu og Flughermirinn er stór kassi á þessum vökvatjökkum sem geta hreyft hann á alla enda og kanta. mennirnir flugið og Gylfi sat við tölvu rétt aftan við þá. Þeir töluðu saman gegnum radíóið og Gylfi var flugumferðarstjóri. Gylfi fór yfir skjámyndirnar en hver mynd gefur möguleika á bilun í hjólabún- aði, hreyflum, rafkerfi og síðan veðurstjórn og á hverri mynd eru nokkrir möguleikar. -Viltu sjá þrumuveðrið? spurði Gylfi og glotti enda hafa kennararnir áreiðanlega lúmskt gaman af þvi að hrekkja félaga sína með þessum bilunum. Hann ýtti á þrumuveðursrofann. Um leið tóku eldingar að leiftra og þrumur drundu. -Er þetta að færast nær okkur? spurðu flug- mennirnir frammí, -við ættum þá að reyna að koma okkur sem fyrst af stað. Gylfi fór þá í rafkerfið og skellti inn rafalbilun. Hún biitist hjá flug- mönnunum sem ljós í mælaborði en þeir héldu bara áfram góða stund að undirbúa flugtakið áður en þeir tóku eftir því. Loks var allt tilbúið fyrir flugtak en þá var Gylfi búinn að fletta upp skjámynd með möguleika á hreyfilbilunum. í miðju flugtaksbruninu drapst á öðrum hreyfli, vélin tók að snúast og samstundis hrópaði Ágúst hvað gerst hafði og Reynir hætti við flugtak. Erfitt var að hemja vélina á hálli brautinni en það tókst þó að lokum og hægt var að bytja aftur. Þegar gangsetja átti annan hreyfilinn gegndi hann engu því hann var of heitur. Eftir nokkra bið og viðeigandi ráðstafanir flug- mannanna var hægt að reyna aftur og þá fór allt í gang. Síðan fengu þeir að fara í loftið án bilana hjá Gylfa. -Þessi reglubundna þjálfun tvisvar á ári er tvenns konar, seg-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.