Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 21

Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990 21 Hvað segja þau um námskeiðið: I Skrifstofutækni Allir gömlu sjóvarnar- garðarnir fóru mjög illa „VIÐ erum ánægðir með hvernig þeir garðar sem hafa verið byggðir upp undanfarin þrjú ár stóðust flóðið. En allir gömlu garðarnir fóru mjög illa og sýnir það hvernig veðrið var því sumir þeirra hafa staðið af sér flóð alla þessa öld,“ sagði Jón Leví Hilmarsson, forstöðumaður tæknideildar Halhamálastofhunar, þegar rætt var við hann um sjóvarn- argarða á Eyrarbakka og Stokkseyri. Jón Leví sagði að starfsmenn Hafhamálastofnunar myndu í framhaldi af stormfióðunum í vikunni gera nýja áætiun um uppbyggingu sjóvarnárgarða á þessu svæði. Hafnamálastofnun hefur undan- farin þrjú ár byggt nýja sjóvarnar- garða á Eyrarbakka og Stokkseyri. A Stokkseyri er búið að byggja upp rúman kílómetra og 400 metra á Eyrarbakka. Taldi Jón að kostnaður væri um 10 milljónir. Unnið hefur verið í samræmi við skýrsiu sem verkfræðiskrifstofan Fjarhönnun vann fyrir Hafnamálastofnun um landbrots- og flóðavarnir við Stokks- eyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og Selvog og skilað var í ágúst 1984. í skýrslu .Fjarkönnunar kemur fram að framkvæmdir við gerð sjó- varnargarða eru áætlaðar kosta 45 milljónir kr. á verðlagi þá (140 millj- ónir á verðlagi nú) og eru aðgerðirn- ar um 30. Heildarlengd áætlaðra sjó- varnargarða í þessum fjórum sveitar- félögum er um 8 km og í skýrslunni er sett fram tillaga um forgangsröð- un framkvæmda. Kostnaður við rúm-- lega 4,1 km langa garða á Stokks- eyri og við Hraunsárós var áætlaður rúmar 20 milljónir kr. og svipaður kostnaður var áætlaður við rúmlega 2,2 km garða á Eyrarbakka. A verð- lagi í dag samsvarar þetta 63-64 milljónum í hvoru sveitarfélagi, eða alls rúmum 125 milljónum kr. á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hluti þeirra sjógarða, sem taldir voru mjög brýnir í skýrslu Fjarkönnunar, hefur verið byggður upp á síðastliðnum þre'mur árum. Jón Leví sagði að starfsmenn Hafríamálastofnunar myndu í fram- haldi af stormflóðunum í vikunni mæla upp alla garðana og ganga í að gera nýja áætlun um uppbyggingu sjóvarnargarða á þessu svæði. Vegna flóðsins nú þyrfti að meta hlutina alveg upp á nýtt þar sem nú þyrfti að endurbyggja garða sem áður hefðu verið taldir viðunandi. Ekki Morgunblaðið/RAX Mikill sjór er í Flóanum eftir stormflóðið við suðurströndina aðfaranótt þriðjudags. Mikið vatn er til dæmis við bæina austan við Stokkseyri, þar sem þessi loftmynd var tekin í gær. í fjarska sést til Stokkseyrar. Tjón á varnargörðum og vegum ekki bætt VIÐL AGATRY GGING Islands hef- ur ekki metið hve háar bóta- greiðslur falla á hana vegna tj’ons- ins sem varð um suðvestanvert landið í stormflóðinu aðfaranótt þriðjudags. Geir Zoega fram- kvæmdastjóri Viðlagatryggingar Islands, sem fór um tjónasvæðið í gær, segir þó harla ólíklegt að það verði umfram eigin áhættu Við- lagatryggingar samkvæmt endur- tryggingasamningum en hún mið- ast við 8 milljónir bandaríkjadala, eða um 480 milljónir króna. Viðiagatrygging mun hvorki bæta tjón sem varð á brimvarnargörðum né þjóðvegum á Stokkseyri og Eyrar- bakka en Geir sagði ekki fullljóst hvort hún næði til tjóns á hafnar- mannvirkjum í Grindavík. Hann kvaðst telja að endanlegt mat gæti legið fyrir eftir tvær til þrjár vikur. Viðiagatrygging nær til tjóna af völdum eldgosa, landskjálfta, snjó- flóða, skriðufaila og vatnsflóða í sjó og ám. Bætt er tjón á fasteignum og lausafé sem skylt er að bruna- tryggja eða keypt hefur verið bruna- trygging fyrir. Rennur þá hluti ið- gjalds til Viðlagatryggingar íslands. Tjón á lóðum og landi er einnig bætt miðað við fasteignamat. Þá eru einnig í viðlagatryggingu samkvæmt beinum samningum sveitarfélaga eða stofnana við Viðlagatryggingu íslands ýmis opinber mannvirki, svo sem brýr, hafnar- og veitumann- virki. Sjóvarnargarðar hafa ekki við- lagatryggingu en hins vegar hefur Viðlagatrygging íslands tekið þátt í kostnaði við gerð varnargarða vegna flóðahættu við eldgos við Múlakvísl og Skeiðará. Tjón sem tryggingar á almennum markaði bæta, svo sem tjón sem húftrygging ökutækja eða foktrygging nær til, fást ekki bætt hjá viðlagatryggingu. Viðlagatrygging Islands er trygg- ingafélag og standa iðgjöld undir rekstri og bótagreiðslum. Eigið fé félagsins er á þriðja milljarð króna. Um 200 milljón króna rekstraraf- gangur varð árið 1988 en þá voru meðal annars greiddar bætur vegna skriðufalla a Ólafsfirði. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Börnin tóku til hendinni á lóð Barnaskóla Eyrarbakka enda var þar mikið verk að vinna. vildi hann áætla kostnaðinn við nýja uppbyggingu en sagði að búast mætti við mun hærri tölum en nefnd- ar voru í skýrslunni frá 1984. Samkvæmt fjárlögum yfirstand- andi árs á að veija 40 milljónum kr. til sjóvarna um allt land, þar af er áætlað að rúmar 5 milljónir fari til framkvæmda á Eyrarbakka og Stokkseyri. © -^TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28, sími 687590 Innritun hafin Opnar þér nýjar leiðir Skrifstofutæknin er markvisst nám þar sem þú lærir tölvugreinar, viðskiptagreinar og tungumál í skemmti- legum félagsskap. Sérstök áhersla er lögð á notkun tölva í atvinnulífinu. Námið tekur 3 mánuði og að því loknu útskrifast nemendur sem skrifstofutæknar. í náminu eru kenndar m.a. eftiifarandi greinar: Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagnagrunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og verðútreikningur, almenn skrifstofutækni, grunn- atriði við stjórnun, útfylling eyðublaða, verslunarreikn- ingur, víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska. Yfir 700 ánægðir skrifstofutæknar eru okkar besta auglýsing. Innritun og nánari upplýsingar eru veittar í síma 687590. Hringdu strax og fáðu sendan bækling. Guðfínna Halldórsdóttir: Ég rek eigið fyrirtæki með manninum mln- um og hefur námið verið mér mjög gagn- legt í fyrirtækinu, hvort sem er tölvu- eða viðskiptagrein- arnar. Skólinn var mjög skemmtilegur og ég var ánægð með kennarana sem voru færir og mjög hjálp- legir. ITildur Aðalsteinsdóttir: I kennaraverkfallinu síðastliðið vor dreif ég mig í skrifstofu- tækninámið. Að nárni loknu hefur sjálfstaust mitt aukist til muna og ég á auð- veldara með að taka ákvarðanir. Það sem hefur komið sór best er það að ég fókk 12 einingar motnar til stúdentsprófs í menntaskólanum sem ég stunda nám við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.