Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANUAR 1990
25
Rúmenía:
Forsetadóttur lýst sem ver-
gjörmim áfengissj úklingi
Búkarest. Reuter.
DÓTTIR Nicolae heitins Ceaucescus Rúmeníuforseta lifði lífinu hátt,
naut ásta með hverjum manninum á fætur öðrum, ferðaðist tíðum
utanlands og var sjaldan allsgáð. Kom þetta fram í rúmensku dag-
blaði í gær.
Zoia Ceausescu, sem er sögð
vera eitthvað innan við fertugt, var
handtekin nokkrum klukkustund-
um áður en foreldrar hennar voru
teknir af lífi og hún og Nicu, glaum-
gosinn bróðir hennar, bíða þess nú
að vera leidd fyrir rétt. Til fóstur-
bróður þeirra Valentins hefur hins
vegar ekkert spurst.
I dagblaðinu Tineretul Liber
(Fijálsri æsku) sagði í gær, að Zogi
hefði skipt um elskhuga eins og
aðrir um föt og ailir verið gjald-
gengir, ráðherrar jafnt sem bar-
þjónar. „Sæi hún laglegan mann
var hún ekki í rónni fyrr en hún
gat krækt í hann,“ sagði í blaðinu
og þar kom fram, að Zoia hefði oft
drukkið ástmennina undir borð og
síðan sparkað þeim út þegar þeir
gátu ekki sinnt henni. Sjálf hefur
Zoe tvisvar farið í áfengismeðferð
með óvissum árangri.
Blaðið sagði, að Zoia hefði verið
mjög veik fyrir mönnum, sem áttu
vafasama fortíð að baki. Stæðu
þeir sig aftur á móti vel sem elsk-
hugar hefðu þeir umsvifalaust verið
skipaðir í háar stöður í atvinnulíf-
inu. Henni líkaði hins vegar ekki
við liðsmenn öryggissveitanna, sem
en Elena, móðir hennar, tók ekki í
mál, að hún giftist einhveijum
„skottulækni" og krafðist þess, að
hún gengi að eiga mann af aðals-
ættum.
Zoia, sem að nafninu til var yfir-
maður stærðfræðideildar tækni-
stofnunar í Búkarest og stundum
titluð „doktor", fór oft utan, til
dæmis til Parísar eða Madridar, en,
eins og sagði í blaðinu, „ekki til að
skoða Louvre- eða Prado-safnið,
heldur til að njóta hins ljúfa lífs“.
BÍLDSHÖFDI8 (Bifreiðaeftirlitið)
I leigu húsnæðið, sem Bifreiðaeftirlitið var í, sem e
10 herbergi, þar af 7 lítil og 3 stór.
Stór afgreiðslusalur
200-400 fm lagerhúsnæði á jarðhæð.
Allt laust í næsta mánuði.
Nánari upplýsingar í síma 91-17678
milli kl. 16 ng 20 næstu daga.
Zoia Ceausescu. Myndin var tek-
in eftir að hún var handtekin.
reyndu jafnan að fylgjast með
henni, og margir máttu sætta sig
við að vera fluttir burt til af-
skekktra .héraða að hennar kröfu.
Sagði í Tineretul Liber, að Zoia
hefði verið farin að láta mikið á sjá
vegna lifnaðarins, kinnfiskasogin,
hrukkótt og með dökka bauga und-
ir augum.
Sagt var, að Zoia hefði verið
ástfangin áf lækni í borginni Cluj
ÆVINTYRALEG
• •
Flórída:
Frostskemmdir fyrir
60 milljarða króna
Tjónið hækkar ávaxtaverð um allan heim
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
UPPSKERUTJÓN ávaxtabænda í Flórída vegna frosts á aðfanga-
og jóladag nemur um einum milljarði dollara. Þetta uppskerutjón
gæti orðið enn meira en áætlað er nú, ef frostið veldur miklum trjá-
dauða, en slíkur skaði kemur ekki í ljós fyrr en síðar.
Opinberir aðilar meta tjón af næsta árs verður því sennilega mun
völdum lauffalls tijánna, ásamt
tjóni á uppskeru grænmetis, sykur-
reyrs og sítrusaldina á 600 milljón-
ir dollara og að heildartjónið nemi
1,09 milljarði dollara ef tillit er tek-
ið til tekna og ágóða af vinnslu
uppskerunnar.
„Jólafrostið" í Flórída hefur þeg-
ar stórhækkað verð á sítrusaldinum
og alls kyns grænmeti. Þessar af-
urðir kosta nú a.m.k. helmingi
meira en áður og mun þetta háa
grænmetisverð haldast að minnsta
kosti fram í apríl, þegar ný upp-
skera kemur á markaðinn. Verðið
á sítrusaldinunum verður hátt allt
þetta ár og næsta haust kemur í
ljós hve mikið af tijám hefur orðið
fyrir varanlegum skaða. Uppskera
minni en vanalega.
Sítrusávaxtaframleiðslan er svo
mikil í Flórída að umtalsvert upp-
skerutjón þar, eins og nú hefur orð-
ið, hefur veruleg áhrif á heims-
markaðsverðið. Reynt var að bjarga
því sem bjargað varð með því að
vinna dag og nótt á ökrunum og
nýta appelsínurnar til safafram-
leiðslu.
í ,jólafrostunum“ varð verulégt
tjón í öllum húsagörðum, lauffall
og kal á tijám, öll blóm frusu og
féllu og græni liturinri hvarf af
grasflötunum. Frostið stóð aðeins
í tvo sólarhringa og nú er aftur
hlýtt, yfir 25 stig á C á daginn og
hiti fer vart niður fyrir 15 gráður
C að næturlagi.
HLOMPLOTUUTSALA
ALLTAD
90% AFSLÁTTUR!
Hljómplötuútsala Geisla á Snorrabraut 29, við Laugaveg,
eflist með degi hverjum. í dag bætast við nýjar og eldri
plötur, sem margar hverjar hafa verið ófáanlegar hingað til.
Úrvalið spannar allt litróf tónlistarheimsins og verðið er
hreintótrúlegt.
Líttu við og láttu sannfærast!
Sendum í póstkröfu samdægurs!
Póstkröfusíminn er 62 60 29
GEISLI
HLJÓMPLÖTUR
SNORRABRAUT 29(VIÐ LAUGAVEG)
SÍMi 626029
Til Búdapest fyrir aðeins
Til Istanbul fyrir aðeins
Til Rómar fyrir aðeins f 30.720,
Til Kairó fyrir aðeins
Til Vínar fyrir aðeins (27.460,-;
Hafðu samband við
ferðaskrifstofuna þína
S4S
Laugavegi 3, sfmi 62 22 11