Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ' FIMMTUDAGUR 11. JANUAR 1990
NEYTENDAMAL
Nauðsynlegt að kartöfl-
uniar verði rannsakaðar
í eina öld og gott betur hafa kartöflur verið ein af undirstöðu
fæðutegundum okkar Islendinga eins og reyndar fleiri Norður-
Evrópuþjóða. Þó undarlegt megi virðast tók talsverðan tíma að
kenna landanum að meta ágætið. Kartöflur eru lremur auðræktað-
ar hér, þær eru næringarríkar og hafa löngum reynst góð búbót.
Saga kartöfluræktunar
Kartöflur koma upphaflega frá
Perú. Kartöfluræktun var orðin
vel þróuð bæði í Perú og í Equa-
tor þegar Spánveijar komu fyrst
til Ameríku, en þeir f luttu kartöfl-
ur til Evrópu á árunum 1580-
1585. Talið er að það hafi Sir
Francis Drake einnig gert nokkr-
um árum síðar.
Kartöflur urðu þó ekki mikil-
vægar í mataræði Evrópubúa fyrr
en eftir árið 1750, nema á írlandi
þar sem þær urðu ein aðal fæðu-
tegund landsmanna. Talið er að
kartaflan hafi átt ríkan þátt í
mikilli fólksfjölgun á írlandi, en
hún átti einnig þátt í geysilegri
fækkun þjóðarinnar. Á árinu 1740
eru írar taldir vera um 2.000.000
og árið 1841 eru þeir orðnir rúm-
ar 8.000.000. Á því tímabili kemur
upp sýking í kartöflum á írlandi
sem veldur mikilli hungursneyð í
landinu og á næstu áttatíu árum
fækkar Irum um rheira en
4.000.000. Orsakirnar voru hung-
urdauði og mikill fólksf lótti, aðal-
lega til Bandaríkjanna.
Kartöfluræktun á íslandi
Hér á landi er fyrst getið um
kartöfluræktun er þýsk-sænskur
barón, Hastfer að nafni, flutti
,jarðepli“ til landsins og „tekst
dável ræktun þeirra á Bessastöð-
um“, eins og segir í „Öldinni okk-
ar“. Hluti af uppskerunni var
sendur merkum ræktunarmanni,
séra Bimi í Sauðlauksdal, til rækt-
unar. Hastfer þessi var einnig
nefndur „hrútbaróninn" vegna
kynbótahrútanna sem hann flutti
til landsins til að auka gæði og
verðmæti íslensku ullarinnar, en
með hrútum þessum kom fjárpest
sem olli ómældum skaða bæði á
fé og mönnum.
Jarðeplin, eins og kartöflurnar
voru kallaðar, benda til þess að
Hastfer hafi flutt þær hingað frá
Þýskalandi, en þar í landi var kart-
öflurækt mjög algeng eftir 1750
og nefndu bændur þar í landi kart-
öflurnar „Erdapfel“ eða jarðepli.
Annars hafa kartöflur fengið
mörg nöfn og sum fyrir misskiln-
ing, að sagt er. í Perú kallast
kartöflurnar papas, það var fyrir
rugling að þeim var blandað sam-
an við sætar kartöflur sem þar í
landi nefnast batatas. í enskumæl-
andi löndum kallast kartöf lur pot-
atoes, á Spáni patatas, á ítölsku
heita þær taratoufli, á þýsku kart-
offeln og þaðan mun kartöfluhei-
tið vera komið.
Kartöflur hafa verið nokkuð til
umræðu hér í fjölmiðlum að und-
anförnu og þá sérstaklega vegna
tiabendazols, efnis sem úðað er á
kartöflurnar eftir upptöku, en ís-
land virðist vera eitt fárra landa
sem leyfa notkun á þessu efni á
sína kartöfluframleiðslu. Þar sem
margt er ójjóst um efni þetta og
önnur efni sem er að finna í kart-
öflum hér á landi, leituðum við til
prófessors Þorkels Jóhannessonar
forstöðumanns Rannsóknastofu í
lyfjafræði. Þorkell er helsti sér-
fræðingur íslendinga í eiturefna-
fræðum. Hann var fyrst spurður
hverskonar efni tiabendazol væri,
um skaðleg áhrif þess á neytendur
og hvaða ákvæði væru um notkun
efnisins.
Tíabenazol er sveppalyf
„Tiabendazol," sagði Þorkell,
„er efni eða lyf úr vel þekktum
flokki efnasambanda, benzimidaz-
ol-sambanda. Þessi efni eru notuð
til lækninga, þau hafa áhrif á
innyflaorma hjá mönnum og dýr-
um og virka einnig á ýmsa sveppi.
í landbúnaði og í garðyrkju er
efnið notað til að halda niðri svepp-
um. Skyld lyf hafa verið aðal or-
malyf in sem notuð hafa verið fram
Þorkell Jóhannesson
til þessa í sauðfé og eins fyrir
hesta.“
-- Hver er ástæðan fyrir því
að ekki leyft að nota þetta efni á
kartöflur erlendis?
„Danir hafa aðeins leyft notkun
þess efnis á útsæðiskartöflur,"
sagði Þorkell. „Við fengum loðin
svör hjá Dönum þegar þeir voru
spurðir hversvegna þeir leyfðu
aðeins notkun efnisins á útsæðis-
kartöflur. í Noregi er notkun þess
alfarið bönnuð, en þar í landi hafa
verið veittar undanþágur. Hér var
það ósk kartöflubænda að fá að
nota þetta efni til að veija kartöfl-
ur skemmdum í geymslum. Okkur
sýndist að það væri innan skyn-
samlegra marka að leyfa notkun
þess, með tiltölulega ströngum
fyrirmælum um eftirlit." Þorkell
sagðist þó óttast að eftirlitið hafi
verið í lágmarki.
„Samkvæmt reglugerð mega
víst vera allt að 5 míkrógrömm
af efninu í grammi af kartöflum
og er magnið miðað við heilar og
óflysjaðar markaðskartöflur að
undangengnum þvotti eða skolun
með vatni. Markgildi þetta tekur
einnig til innf luttra kartaf lna sem
ætlaðar eru til manneldis."
— Hverskonar skaða geta of
stórir skammtar af tiabendazoli
valdið neytendum?
Þorkell sagði þetta efni hafa
litla skaðlega verkun, það væri
eitt af elstu efnum íþessum f lokki,
en því væri ekki að neita, að þetta
sérstaka efni væri fremur lítið
rannsakað.
— Er tiabendazol notað til að
koma í veg fyrir spírun kartaf lna?
„Nei,“ sagði Þorkell, „tía-
bendazol hefur engin áhrif á
spírun, til þess er notað ákveðið
spírunarstýriefni. “
— Eru notuð stýriefni á kart-
öflur? Hverskonar efni eru það?
Þorkell sagði að samkvæmt list-
anum, yfir efni sem nota má hér
við ræktun, væru skráð 5 stýri-
efni, þar á meðal eru Alar og
spírunarstýriefni F. Alar 85 inni-
heldur virkt efni sem nefnist di-
metas. Hann sagðist þvi miður
ekki hafa hér tiltækar upplýsingar
um þetta efni.
Hvað varðar spírunarstýriefni F
þá nefnist það klórprófan og er
úr flokki karbamata. Það eru vel
þekkt efni, meðal þeirra efna eru
m.a. sveppalyf. Hann sagði að
klórprófan hefði alltaf verið talið
lítt eitrað efni og það hefði aldrei
sannast að efnið ylli frumu-
skemmdum í dýratilraunum, sem
gæti verið undanfari illkynja
frumubreytinga. „Heildarupplýs-
ingar um klórprófan eru nokkuð
í brotum,“ sagði Þorkell, „en stýri-
efni þetta var þó skráð hér á landi
með tilliti til þessa tvenns, að það
er virkt og hefur ekki verið tengt
krabbameinsmyndun.“
Sólanin varasamt efiii
í kartöflum
í kartöflum getur myndast efni
sem nefnist sólanin bæði í ræktun
og ef þær eru ekki meðhöndlaðar
rétt. Efni þetta getur myndast í
kartöflunum m.a. fyrir tilverkun
sólar, við hnjask eða af skemmd-
um í meðferð eins ogt.d. í flokkun-
ai-vél eða við upptöku. Þorkell
sagði að aðalorsök sólanins í kart-
öf lun væri sólarljósið og þá senni-
lega helst útfjólubláir geislar.
— Hverskonar efni er sólanin?
„Sólanin er efni sem er fjar-
skylt ýmsum hjartalyfjum (eins
og digitalis). Efnið getur valdið
niðurgangi í mönnum, en í miklu
magni getur það valdið einkennum
frá miðtaugakerfinu. Erfitt hefur
reynst að staðfesta hversu mikið
magn þarf til að menn fái í mag-
ann. Mörkin sem gefin hafa verið
eiga að koma í veg fyrir að slíkt
eigi sér stað.“
Meðhöndlun kartaflna hefur oft
verið ábótavant á seinni árum. Það
hefur ekki verið óalgengt að sjá í
hér verslunum „grænar" kartöfl-
ur. Bökunarkartöflur eru látnar
liggja í borði óvarðar fyrir ljósi
dögum saman enda breyta þær lit
og verða grænar. Venjulegar mat-
arkartöflur í pokum eru oft komn-
ar með grænan lit og bragðbreyt-
ingu þegar þær eru komnar í hend-
ur neytandans. Beiska bragðið,
sem oft er af þessum kartöflum,
bendir til að í þeim sé óeðlilega
mikið sólanin.
„Menn telja sig hafa komist að
því,“ sagði Þorkell, „að lítið magn
af sólanini þarf til að gefa kartöfl-
um rétt bragð", sagði Þokell í
spaugi, en bætir við. „Sólanin gef-
ur bragð, en magnið á ekki að
fara yfir 100 milligömm í kíló og
það er ekki mikið magn.“
Fjölmennur fundur um at-
vinnumál og fólksflótta
Flateyri:
Flateyri.
ALMENNUR fundur um atvinnumál og íbúaþróun var haldinn í
félagsheimilinu á Flateyri 7. janúar síðastliðinn. Mikill fjöldi fólks
mætti á fiindinn og höfðu menn orð á að ekki hefði verið svo
mikil fundarsókn í áraraðir. Greinilegt er því að fólk hefur veruleg-
ar áhyggjur af þróuninni.
Fundurinn samþykkti tillögu
sem er svohljóðandi: _Almennur
fundur um íbúaþróun og atvinnu-
mál haldin þann 7. janúar 1990 á
Flateyri samþykkir að óska eftir
því við hreppsnefnd Flateyrar-
hrepps að hún tilnefni fjóra full-
trúa og verkalýðsfélagið Skjöldur
tilnefni tvo fulltrúa í nefnd sem
vinni að ef lingu atvinnulífs á Flat-
eyri. Hlutverk nefndarinnar verði
meðal annars að vinna að stofnun
hlutafélags til eflingar atvinnulífs
á Flateyri. Þá kanni nefndin einn-
ig möguleika á fjármögnun og
stofnun hlutafjár. Að þessu loknu
boði nefndin til almenns atvinnu-
málafundar. Nefndin hraði störf-
um eins og kostur er.
Fundurinn stóð í um þijár
klukkustundir. Margir tóku til
máls og var fólk sammála um að
kvótakerfið á stóran þátt í ástand-
inu. Þegar laun og vinna minnka
verulega fer fólk að hugsa sér til
hreyfings.
Togarinn Gyllir hefur legið við
bryggju frá því um miðjan október
kvótalaus og það eitt kemur illa
við ekki stærra sveitarfélag. Fram
komu á fundinum ýmsar tillögur
í atvinnumálum en flestir voru
sammála því að á Flateyri verður
sjávarútvegur aðalatvinnugreinin
og kaup á annaðhvort frystiskipi
eða öðrum sambærilegum togara
og Gyllir er, væri það sem gæti
aukið atvinnu og um leið myndi
fólki fjölga.
Á Flateyri er ekki atvinnuleysi
og hefur ekki verið síðan 1984 en
full ástæða er til að auka atvinnu-
tækifæri sem leitt gætu til fólks-
fjölgunar.
Fram kom á fundinum að níu
íbúðir innan félagslega kerfisins
við Hjallaveg eru óseldar og auðar
þannig að ekki er um húsnæðis-
vandamál að stríða.
- Magnea