Morgunblaðið - 11.01.1990, Síða 48
MORGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990
„Það er kominn nýr kokkur — notaðu bara mikið
af tómatsósu.“
á
f
*
Ast er...
. . .vín og rósir.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgnnkaffinu
þér í vinnuna bara ein-
hvern þeirra?
Tossar í skóla lífsins
Lifi Lenín
Qg hinn rauði her.
Lifi Stalín
og hinn rauði her.
Til Velvakanda.
Nú eru hljóðnaðar þær raddir
er sungu kommúnismanum lof og
dýrð. Textar á borð við Sortavala
eru horfnir úr vasasöngbókum.
Það tókst ekki að láta þjóðfélög
endast í öld, grundvölluð á lygi
og hryðjuverkum. Islenzkir nazist-
ar er góð bók og eiga þeir heiður
skilinn er gáfu hana út. Hvernig
embættismannalyddur komu fram
við gyðingaflóttamenn mun varð-
veitast í sögunni á meðan menn
byggja þetta land.
Illa kom það við mig og fleiri
að íslenskur ráðherra skyldi heiðra
sérstaka vini Ceausescu, alræmd-
an hrotta og landræningja, á með-
an Rúmenar voru að losa sig við
ógnarstjórnina og vopnlaust fólk
skýldi börnum fyrir vélbyssukúlum
með líkama sínum.
Eigi er þetta fyrsta sinni er ég
roðna af skömm yfir framkomu
einstakra stjórnmálamanna. Mun
Týndur köttur
Kötturinn okkar, sem heitir Jó-
hann, er 9 ára gamall fressköttur
í Hvassaleitinu og hvarf að heiman
8. janúar. Það er, eins og gefur að
skiljá, mikil sorg á heimilinu, því
eftir 9 ár er kötturinn orðinn einn
af fjölskyldunni.
Jói er orðinn gamall og þreyttur
og fer yfirleitt aldrei út. Við erum
líka nýlega flutt í þetta hverfi svo
hann ratar ekkert. Hann er stór og
mikill, svartur og hvítur, algerlega
meinlaus. Ef einhver hefur séð til
hans yrðum við þakklát fyrir að
heyra frá viðkomandi. Síminn hjá
okkur er 678441.
Ásborg Arnþórsdóttir
ekki Pol Pot njóta enn óbeinnar
viðurkenningar íslenskra stjórn-
valda?
Það dregur óðum að því að
heimurinn minnist „fundar“
Ameríku og „endurfundar“ nokkr-
um öldum síðar.
Ritningarígildi: La Casas biskup
á eynni Hispaniolu og síðar á
Espana de nueva, Guð einn veit
hve mörg indíánalíf auður þessi
hefur kostað — en einhvern tímann
kemur dagur reikningsskilanna.
Skógareyðing, uppblástur jarð-
vegs, útrýming dýrategunda og
einstakra þjóða var hafin í „gamla
heiminum" árið eitt. Borgir Róma-
veldis höfðu öll grundvallarein-
kenni nútíma borga, kauplausir
þrælar komu í véla stað. Á ár-
þúsundum ótal endurfæðinga
lærði hvítur Evrópumaður eða
þeir er stældu hann ekki nokkurn
skapaðan hlut í skóla lífsins, sem
skiptir máli, er upp verður staðið.
Hann kynnti sig sem sjúkdóm
á blárri plánetu Móður Jörð, þá
er hann „fann“ Ameríku og Eyja-
álfu, eins og hann hafði áður gjört
heima fyrir. Hann tók ekki hið
minnsta mark á gildis- og verð-
mætamati Jesú Krists og því er
hann sagði að úmgangast skyldi
náunga sinn. í stað þess bjuggu
menn til nýjan Jesúm ólíkan þeim
er Guðspjöllin segja frá og hlóðu
hann skrumi og smjaðri.
Þegar skóli lífsins (jörðin)
leggst af við hrun lífríkja er næsta
ólíklegt að „eilífðarstúdentum og
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvað-
eina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10
og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að
skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða-
skiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að
höfundur óski nafnleyndar.
, Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.
Nikolai Ceausescu
fallkandidötum“ verði boðinn ann-
ar til frekara náms.
Næstum án undntekninga mun
maður evrópsks verðmætamats og
samskipta hljóta sín laun við
„skólaslit".
Útslokknun einstaklingsvitund-
ar fyrir fullt og allt.
Bjarni Valdimarsson
Heiðu aftur
Til Velvakanda.
Ég er sjö ára stelpa í Vesturbæn-
um. Ég vil skora á sjónvapið að
hefja sýningar á Heiðu aftur. Mér
finnst hún vera svo skemmtileg.
Sem sagt: Heiðu aftur í sjónvarpið!
Helga Þóra Jónasdóttir
HÖGNI HREKKVtSI
Víkveiji skrifar
Landsliðið í handkriattleik hefur
undanfamar vikur undirbúið sig
fyrir heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik, sem haldin verður í Tékkó-
slóvakíu í næsta mánuði. Víst er að
miklar vonir eru bundnar við árangur
íslendinganna i þessari keppni og lið-
ið hefur alla burði til að ná góðum
árangri. Leikreynsla þessa íslenzka
liðs er gífurleg og hefur ísland aldrei
áður teflt fram eins reyndu liði og
fer til Tékkóslóvakíu.
í Morgunblaðinu á þriðjúdag var
greint frá landsleikjum við Tékkó-
slóvakíu sem fram fóru um helgina
og þar sagði meðal annars: „Júlíus
Jónasson og Guðmundur Hrafnkels-
son, tveir af lítt reyndan landsliðs-
mönnunum, tiyggðu Islendingum
sigur á Tékkum." Það sem vekur
athygli f þessari klausu er að þessir
tveir „af lítt reyndari landsliðsmönn-
unum" hafa leikið um 100 landsleiki
hvor, en í landsliði Bogdans teljast
þeir vera meðal þeirra lítt reyndari.
Nokkrir af fastamönnunum í lands-
liðinu hafa leikið yfir 200 landsleiki
og enginn f leiri en fyrirliðinn Þorgils
Óttar Mathiesen, sem leikið hefur
230 landsleiki. Einhvers virði hlýtur
allur þessi leikjafjöldi að vera.
xxx
Bogdan þjálfari sagði eftir leikina
gegn Tékkum að árangur án
æfinga væri íslenzk hugmynd, sem
margir virtust trúa en ætti sér enga
stoð í raunveruleikanum. Vel orðað
hjá Bogdan, sem benti á í þessu sam-
tali að handknattleikur hefði verið
æfður hér á landi í 60 ár, en aðeins
síðastliðin sjö ár hefði íslenzka lands-
liðið verið á heimsmælikvarða. Það
er ekki nýtt að Bogdan, sem tók við
landsliðinu fyrir tæpum sjö árum, sé
kröfuharður og vilji hafa sína menn
vikum og helst mánuðum saman fyr-
ir stór verkefni og árangurinn talar
fyrir pólska þjálfarann. Eðlilega á
hann líka að fá góðan tíma með
landsliðið, en það má þó ekki verða
til þess að eyðileggja með-öllu deilda-
keppnina hér á landi, því án hennar
yrði varla nokkuit landslið.
XXX
Athyglisvert er að sjá hvað Þor-
bergur Aðalsteinsson, ein af
hetjum Víkings og landsiiðsins til
margra ára, segir í DV á þriðjudag.
Þar kemur fram að Þorbergur telur
fá lið fái meiri tækifæri til að undir-
búa sig fyrir keppnina í Tékkóslóv-
akíu heldur en það íslenzka.
Þorbergur leikur nú í Svíþjóð, jafn-
framt því sem hann stundar háskóla-
nám, og lið hans, SAAB, vann fræk-
inn sigur í sænsku bikarkeppninni
um helgina og það vantar ekki orð
þegar fjallað er um íþróttir. Þannig
vitnar Morgunblaðið á þriðjudag í
forystugrein blaðs í Gautaborg og
þar segir m.a. að Þorbergur sé einn
af vitringunum þremur sem hafi
komið Saab á efsta stall og í viðtali
við Morgunblaðið segir Þorbergur
„maður er nánast í guðatölu“. Nema
hvað.