Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I IHi'ÍMifJ^bÁGUR 11. JANÚAR 1990
v
50
HANDKNATTLEIKUR
Breytt lid hjá Svíum
ÁTTA breytingar hafa verið
gerðar á sænska landsliðinu í
handknattleik frá því á
Ólympíuleikunum íSeoul.
IMokkrir leikmenn hafa ekki
gefið kost á sér í landsliðið
fyrir HM i'Tékkóslóvakíu.
Síðast þeir Sten Sjögren og
Per-Ola Wislander. Það hefur
orðið til þess að Bengt Johans-
son, þjálfari landsliðsins, hefur
kallað á Per Carlsson frá Red-
bergslid.
IttíMR
FOLK
■ LOU Macari, framkvæmda-
stjóri West Ham, hefur verið
ákærður fyrir ólögleg veðmál er
áttu sér stað er hann var fram-
kvæmdastjóri Swin-
don. Macari veðjaði
fúlgu á leik Swin-
don og Newcastle
og það merkilega
var að hann veðjaði á sigur New-
castle! Hann hagnaðist vel á veð-
málinu því Newcastle sigraði 5:0.
Framkvæmdastjórum í Englandi
er bannað að taka þátt í veðmálum
og þess er skemmst að minnast að
bandaríska goðsögnin í hafnabolt-
anum, Pete Rose, var dæmdur í
langt bann fyrir að hafa veðjað,
þrátt fyrir að hann hafi veðjað á
j. sigur sinna manna.
■ ASA Harford, sem lék lengi
með Everton og Manchester City,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Shrewsbury í 3. deild.
FráBob .
Hennessy
í Engtandi
Sænska landsliðinu hefur geng-
ið vel í fjögurra landa móti,
sigrað Alsíringa og Tékka. Sigurinn
gegn Tékkum var athygliverður.
Svíar komust í 7:0 og 12:4 en í
leikhléi var staðan 12:11. Svíar
gátu svo þakkað dönskum heima-
dómurum fyrir sigurinn, 22:20.
Danir unnu Tékka 23:17 og mæta
Svíum í úrslitaleik í kvöld.
Sænski landsliðshópurinn sem
tekur þátt í undirbúningnum fyrir
HM, er þannig skipaður:
Markverðir: Mats Olsen, Teka,
Mats Franson, Irsta og Tomas
Svensson, Guif.
Aðrir leikmenn: Jonas Persson,
Lugi, Magnus Wislander, Red-
bergslid, Johan Eklund, Red-
bergslid, Ola Lindgren, Drott, Per
Carlén, Atletico Madrid, Erik Haj-
as, Maritim Puerto Cruz, Magnus
Cato, Redbergslid, Björn Jilsen,
Basel, Pierre Thorsson, Saab, Ro-
bert Heldin, Ystad, Staffan Olsson,
Húttenberg, Magnus Anderson,
Drott og Per Carlsson, Redbergslid.
KAPPAKSTUR
Senna meinuð
þátttakaíHM?
FYRRUM heimsmeistara,
Brasilíumanninum Ayrton
Senna, verður ekki leyft að
taka þátt í heimsmeistara-
keppninni í kappakstri á
Formula 1 bflum á þessu ári,
nema hann dragi til baka
ummæli sem hann lét falla á
síðasta ári. Eftir að Frakkinn
Alain Prost varð heimsmeist-
ari hélt Senna þvífram að
forystumenn í alþjóðasam-
bandi akstursíþrótta (FISA)
hafi viljað að úrslitin yrðu á
þann veg og unnið að því.
Jean-Marie Balestre, forseti
FISA sagði í gær að Senna
yrði ekki á meðal keppenda þetta
árið nema hann bæðist opinber-
lega afsökunar á ummælum sem
fréttamenn höfðu eftir honum.
Þess má geta að Senna hefur stað-
fest að rétt var eftir honum haft.
Senna var dæmdur úr leik í
japanska kappakstrinum og sagði
eftir það að forystumenn FISA,
þar á meðal Frakkinn Balestre,
hefðu haldið með Prost í keppn-
inni um heimsmeistaratitilinn.
Þeir Senna og Prost óku báðir
fyrir McLaren í fyrra, en voru
engir perluvinir þrátt fyrir það;
töluðust ekki við á árinu frá því
í maí og háðu hatrammt einvígi
á ökubrautunum. Eftir keppn-
istímabilið gekk Prost svo til liðs
við Ferrari.
Balestre sagði í gær að Senna
hefði frest til 15. febrúar til að
sækja um keppnisleyfi í HM, en
óskir hans þar um yrðu að engu
hafðar fyrr en hann hann hefði
dregið ummæli sín til baka.
BANDARIKIN
Sagt...
Bandaríska íþróttablaðið
Sports Illustrated hélt nýlega
upp á 35 ára afmæli sitt. í blað-
inu sem gefið var út af þessu til-
efni eru rifjuð upp athygliverðustu
ummæli síðustu 35 ára og hér á
eftir fara nokkur gullkorn.
„Þetta verður ekki löng töf.
Við þurfum aðeins að skipta
um eitt kerti og 42 skyrtur."
Don Drysdale, leikmaður hafna-
boltaliðsins Dodgers eftir að flug-
vél með liðið hafði nauðlent. 1960.
„Þegar þú sigrar þá sefúr
þú vel, borðar vel og bjórinn
þinn verður betri. Og konan þín
lítur út eins og Gina Lollo-
brigida."
Johnny Pesky, þjálfari Boston Red
Sox, 1963.
„Hér er maður, 2,20 á hæð,
í íþróttaskóm og konan spyr
um atvinnu."
Jack McMahon, þjálfari Cincinn-
ati, eftir að hafa farið með Nate
Bowman á spítala með snúinn
ökkla. 1968.
„Ég vildi ekki skemma allan
daginn ef það hefði ekki geng-
ið upp.“
Paul Hornung, leikmaður Packer,
spurður af hverju hann hafi gift
sig kl. 11. 1969.
„í Los Angeles búa um
800.000 Kanadamenn og nú
veit ég af hverju þeir fluttu frá
Kanada. Þeir þola ekki
íshokký."
Jack Kent Cooke, þjálfari íshok-
kýliðsins Los Angeles Kings, um
slæma aðsókn að leikjum liðsins.
„Nítíu prósent ætla ég að
nota í vín, dans og konur. Ætli
afgangurinn fari ekki bara í
vitleysu."
Tug McGraw, hafnaboltamaður
með Philadelphiu, spurður hvern-
ig hann ætli að eyða 75.000 doll-
ara árslaunum sínum árið 1975.
„Kansas hefúr ekki unnið tit-
Manute Bol.
il í 40 ár og ef liðið gerir það
ekki næstu 40 ár þá hætti ég.“
Jim Dickey, þjálfari Kansas Wild-
cats í fótbolta árið 1978.
„Að svara viðtölum blaða-
manna. Efltir leiki er gott að
hvíla hugann.“
Bobby Knight, þjálfari Indiana í
körfuknattleik 1983, um hvaða
hluta þjálfunarinnar hann kynni
best að meta.
„Það er eins og hann hafi
farið í blóðbanka og gleymt að
segja til.“
Pat Williams, körfuknattleiks-
maður með Philadelphia, um Man-
ute Bol, stærsta leikmann deildar-
innar.
„Við fengum mörg viður-
nefiii: Tannlaus, Ljótur og
Svarti. Og það voru bara nöfti-
in á klappstýrunum."
Frank Layden, þjálfari Utah Jazz,
um skólalið sitt í Brooklyn.
„Það var gott að Brian var
þriðja barn. Annars hefði hann
orðið einkabarn."
Kathy Bosworth, móðir Brian
Bosworth, fótboltamanns með
Seahawks.
BADMINTON / UNGLINGAMOTTBR
Þijú unnu þrefalt
Unglingameistaramót TBR
1990 fór fram um helgina í
húsi TBR við Gnoðavog. Keppendur
í þessu móti eru 18 ára og yngri
og var yngsti keppandinn 10 ára.
Þátttaka var góð og fjöldi keppenda
var 85. Þeir voru frá TBR, KR,
Víkingi og TBA. Oft hefur þetta
verið eitt af fjölmennustu mótunum
en að þessu sinni sendu Akurnes-
ingar ekki lið og var þetta því fá-
mennara mót en ella.
4T
Ieinliðaleik, piltaflokki (16-18
ára), sigraði Konráð Þorsteins-
son TBA Andra Stefánsson Víkingi
15-11 og 18-17. Þeir spiluðu svo
saman í tvíliðaleik á móti Siguijóni
Þórhallssyni TBR og Ragnari Jóns-
syni TBR. TBR-ingar unnu 15-5
og 15-3.
Ekki var keppt í flokki stúlkna
(16-18 ára) og þ.aJ- ekki spilaður
tvenndarleikur.
í einliðaleik, drengjaflokki (14-16
ára), sigraði Gunnar Petersen TBR,
en hann sigraði þrefalt, Kristján
Daníelsson TBR 15-9 og 15-0. Þeir
spiluðu svo saman í tvíliðaleik á
móti Einari Sigurðssyni TBR og
Skúla Sigurðssyni TBR. Þeir fyrr-
nefndu sigruðu 15-2 og 15-2.
Keppni í telpnaflokki (14-16 ára)
var gífurlega jöfn og spennandi.
Þar sigraði í einliðaleik Elsa Níels-
sen TBR Önnu Steinsen TBR. Anna
vann fyrstu lotuna 12-10 en Elsa
næstu 12-9. í úrslitalotunni var
Anna komin yfir 11-9 en Elsa sigr-
aði að lokum 12-11. Anna bætti
þetta upp og vann bæði tvíliðaleik
og tvenndarleik. í tvíliðaleik spilaði
hún með Áslaugu Jónsdóttur TBR
og sigruðu þær Elsu Níelsen TBR
og Aðalheiði Pálsdóttur TBR 15-12
og 15-10. í tvenndarleik sigruðu
Gunnar Petersen TBR og Anna
Steinssen TBR þau Kristján Daní-
elsson TBR og Elsu Níelsen TBR.
í einliðaleik, sveinaflokki (12-14
Haraldur Guðmundsson og Brynja Steinsen sigruðu í tvenndarleik.
Verðlaunahafar í tvíliðaleik í telpnaflokki. Frá vinstri: sigurvegararnir Anna Steinsen og Áslaug Jónsdóttir, sem
Aðalheiði Pálsdóttur.
sigruðu Elsu Níelsen og
ára), sigraði Haraldur Guðmunds-
son TBR Orra Árnason TBR 11-0
og 11-5. í tvíliðaleik sigruðu Grímur
Axelsson Víking og Orri Árnason
TBR þá Sigurð Hjaltalín TBR og
Ingva Jóhannesson TBR 15-8 og
15-6.
í einliðaleik, meyjaflokki (12-14
ára), sigraði Brynja Steinsen TBR
Valdísi Jónsdóttur Víkingi 11-7 og
11-2. Brynja sigraði þrefalt í þessu
móti og í tvíliðaleik með Haraldi
Guðmundssyni TBR á móti Grími
Axelssyni Víkingi og Valdísi Jóns-
dóttur Víkingi 15-11 og 15-11. Þær
spiluðu svo saman í tvíliðaleik og
sigruðu þær Elísabetu Júlíusdóttur
og_ Ester Ottesen 15-2 og 15-2.
í einliðaleik, hnokkaflokki (undir
12 ára), sigraði Sveinn Sölvason
TBR Hans Hjartarson TBR 11-4
og 11-2. Þeir spiluðu svo samán í
tvíliðaleik og sigruðu þá Björn
Hrafnkelsson TBR og Jón Gunnar
Margeirsson TBR 15-5 og 15-8.
í einliðaleik, tátuflokkijundir 12
ára), sigraði Ágústa Árnadóttir
TBR Guðrúnu Ónnu Pálsdóttur
Víkingi 11-2 og 11-6. Ágústa vann
þrefalt. í tvíliðaleik með Hildi Otte-
sen TBR á móti Ingibjörgu Þor-
valdsdóttur TBR og Guðrúnu Páls-
dóttur Víkingi 12-15, 15-9 og
15-11. í tvenndarleik sigruðu
Ágústa Árnadóttir og Hans Hjart-
arson TBR þau Björn Hrafnkelsson
TBR og Ingibjörgu Þorvaldsdóttur
TBR 15-6 og 15-8.
Mótsstjórn var í höndum ungl-
ingaráðs TBR og tókst vel.
Gunnar Petersen (t.v.) sigraði þrefalt. Hann sigraði Kristján Daníelsson
(t.h.) í einliðaleik en í tvíliðaleik sneru þeir saman bökum og sigruðu.