Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 C 7 Varla þarf að spyija að því hvort skriðdrekar verða síðasta úrræðið. Litháar telja sjálfir að það væri óraunhæf leið eins og nú er ástatt. Við höfum nokkur fordæmi og gerum okkur grein fyrir að menn leysa ekki svona vandamál með skriðdrekum. Það getur stundum borið árangur, en síðan koma í ljós miklir ókostir, sem ekki er unnt að bæta á nokkurn hátt. Um þetta eru mörg dæmi í sögunni og hafi menn ekki dregið lærdóm af því ættu þeir ekki að fást við stjórnmál. Sovétríkin eru nú eina aðildarland Varsjárbandalagsins, sem vill við- halda forystuhlutverki flokksins eins og kveðið er á um í lögum. Að því er mér skilst eruð þér persónulega enginn stuðningsmaður þess að valdaeinokun f lokksins verði afnum- in. En hve lengi getur flokkurinn staðið gegn þrýstingnum án þess að bijóta gegn hinum nýju, lýðræðislegu meginreglum? Eins og nú er ástatt er það bjarg- föst sannfæring mín að við verðum að varðveita einsflokkskerfið. Við eigum við svo mörg f lókin vandamál að stríða, sérstaklega vegna ágrein- ings þjóðarbrotanna, að fjölflokka kerfi mundi aðeins splundra þjóð okkar. Eruð þér sammála því að árið 1989 hafi greinilega leitt í ljós árekstrana í sovézkum stjórnmálum milli tveggja andstæðra póla — hinna róttæku og íhaldsmanna — í f lokkn- um.? Eg veit ekki í hreinskilni sagt hvað þetta allt þýðir — vinstri rót- tæklingar, hægri róttæklingar, íhaldsmenn og vinstri íhaldsmenn. Höfuðvandinn er að styrkja hug- sjónagrundvöllinn og liðskjarna flokksins. Það er engin tilviljun að Míkhaíl Gorbatsjov sagði í skýrslu sinni að „örlög perestrojkunnar\ægju í einingu flokksins“. Yfirgnæfandi meirihluti er hlynntur perestrojku. Hins vegar eru nokkrir í flokknum, sem bæði taka þátt í og stjórna starfi hópa, sem eru þjóðernissinnað- ir, aðhyllast aðskilnaðarstefnu og eru andsovézkir. Menn geta ekki bæði verið kommúnistar og aðskilnaðar- sinnar. í því efni verður að taka ákvörðun. Þér hafið sjálfir mörgum sinnum gefið í skyn að umræður geti farið fram um einstök mál í stjórnmálaráð- inu og að menn geti orðið ósammála um þau. Getið þér sagt nokkuð um það hvaða mál það eru sem geta orðið tilefni slíkra umræðna? Athyglisvert að þið blaðamenn frá Vesturlöndum skulið hafa svona mik- inn áhuga á því um hvaða mál ríki ágreiningur. Hvers vegna hafið þið ekki áhuga á því sem eining er um? í herfræðilegum málum erum við sammála, annars ættum við ekkert erindi í þessa stofnun. Ólík sjónarmið koma öðru hveiju fram í einstökum málum. Það kom til dæmis fyrir þegar við fjölluðum um samvinnuhreyfinguna og síðan endurskoðuðu fulltrúarnir í Æðsta ráðinu starfsemina með því að láta hana taka til einstakra félaga. Þetta gerðist einnig í umræðum um hvort fyrstu ritarar samtaka flokksins í einstökum héruðum og lýðveldum skyldu stjórna ráðstjómum hver á sínum stað. Forystan á ekki aðeins að sýna vizku sína með því að taka ákvarðanir, hún verður einnig að gera sér grein fyrir því hvaða af leið- ingar ákvarðanirnar geta haft. Stundum eru lausnirnar frábærar, en einstaka sinnum hafa ákvarðan- irnar ekki áhrif. Er það rétt að stjómmálaráðið komi miklu sjaldnar saman en áður, jafnvel ekki einu sinni í viku? Við hittumst næstum því í hverri viku, eins oft og nauðsynlegt er. Stundum kemur fyrir að við birtum engar tilkynningar um fundi. Okkur ber ekki skylda til að halda ákveðinn fjölda funda í stjórnmálaráðinu. i/í herfræóilegum málum rikir enginn ágreiningur i stjórn- málaráóinu." NEMENDAMÓTSNEFND VERZLVNARSKÓLANS KYNNIR Á HÓTEL ÍSLANDI: Hótel Örk SPARTOAGAR í MIÐRIVIKU Sérstakt kynningarverð Hótel Arkar í miðri viku frá 1. febrúar til 30. apríl 1990. DYOLIEINN TIL FJORA DAGA Innifalin er: Gisting, morgunverður og kvöldverður. 1 nótt kr. 2.500,- per. mann 2 nætUr kr. 4.500,- per. mann 3 nætur kr. 6.500,- per. mann (2ja m. herbergi) DAGSKRA Hótel Örk býður um leið upp á þá nýbreytni að hafa öðru hverju dagskrá fyrir dvalargesti sína í miðri viku og er hún þá innif alin í kynn- ingarverðinu. HERMANN RAGNAR STEFANSSON HOTEI. tglAND- Miðasala við innganginn. pluriwP 2 Blaðið sem þú vaknar við! HOTEL OO ára Kaffihladbord, rjúkandi pönnukökur ogsúkkulaði með rjóma. Nýr matseðill frá kl. 18.00. Sænsk list Ulla Hosford í andyrinu áHótel Borg. Hefurðu reynt „Fondu“? Boröapantanir í síma 11440. Húsið opnað kl. 21.00 Vertu með, láttu einn góðan fjúka ogfáðu dómnefnd til að brosa. verður fyrsti gestgjafi hótelsins í miðri viku, dagana 19. til 22. febrúar með fjölbreytta dag- skrá, meðal annars með smáferðir, bingó og spilað á daginn, skemmtun og dans að kvöldi. ■ ~“sssusr- "rsssussr Barbour Klæðstu Barbour í baráttunni við veðrið. Hentugur fatnaður innanbæjar sem utan. 5 Símar: 16760 og 14800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.