Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 C 23 HVERS ER AÐ VÆNTA? KVIKMYNDIR—- Hvab er til rctbafyrir íslenska kuikmyndagerb ? ■ BRESKI leikarínn Daniel Day-Lewis hefur fengið sérlega góða dóma gagnrýnenda fyrir leik sinn í myndinni „My Left Foot“, um Christy Brown, fjöl- fatlaðan mann frá Dublin, og festir sig enn í sessi sem einn af fremstu leikurum Bretlands. ■ „EFönnurmynd verður gerð,“ er haft eftir Tim Burton, leikstjóra Bat- mans, um væntanlega fram- haldsmynd, „er hægt að leggja miklu meiri áherslu á persónu Batmans". Gleði- fréttir fyrir ykkur Batfrík. „Það er það sem mér myndi fínnast mest spennandi," segir Burton, „að setja hann meira í fókus." Veitir ekki af, Timmi. Hvar er Mia? - Midler leikur eigin- konu Woody Allens í Mazursky-mynd. Woody Allen leikur á móti Bette Midler Woody Allen ætlar að leika í bíómynd án þess að Ieik- stýra, framleiða eða skrifa hana sjálfur, nokkuð sem hann hefur ekki gert síðan hann lékí „The Front“ árið 1976. Og hlutverkið er ekki af verri endanum. Hann leikur eiginmann Bette Midl- er undir leikstjórn Paul Maz- urskys, en myndin, sem tök- ur hefjast á seinna á árinu, er gerð af Disney-félaginu Touchstone og kemur til rheð að heita „Scenes From a Mall“ eða Þættir úr Kringl- unni. Þetta er nokkuð Berg- manískur titill en eins og fólk rekur kannski minni til gerði Bergman eitt sinn mynd sem hét Þættir úr hjónabandi („Scener ur ett Áktenskap"). Mazursky tek- ur samlíkingunni fálega og segir: „Hún gerist í verslun- armiðstöð og í henni eru margir þættir úr hjóna- bandi.“ Allen mun halda talsvert uppá Mazursky eftir því sem umbinn hans, Jack Rollins, segir og honum fannst kom- inn tími til að leika eftir ann- arra manna handritum. Allen leikur lögfræðing en Midler sálfræðing, þau hafa verið gift í 16 ár og um jólaleytið halda þau kvöldverðarboð fyrir alla fráskildu vinina sína. Bíómyndirnar 1990 EFTIRTALDAR MYNDIR verða sýndar í kvikmyndahús- unum í Reykjavík á árinu. Sýningartíminn, sem fylgir flestum myndunum, er byggður á áætlun sem getur rask- ast og að sjálfsögðu er þetta langt í frá tæmandi listi yfír bíoárið. LAUGARÁSBÍÓ Do The Right Thing e. Spike Lee (feb.), Uncle Buck e. John Hughes (mars), Born on the Fourth of July með Tom Cruise e. Oliver Stone (mars), Always með Dreyf- uss e. Steven Spielberg (apríl), Dad með Jack Lemmon (maí), Heart Condition með Bob Hoskins og Denzel Washington (júní), Aftur til fram- tíðar III (okt.) REGNBOGINN Nightgame með Roy Scheider (feb.), FuII Moon on Blue Water með Gene Hackman, Lock Up með Silv- ester Stallone, They Live e. John Carpenter (mars), Skin Deep e. Blake Edwards, Ski Patrole. gerð af framleiðend- um Police Academy, Week- end at Bernie’s e. Ted Kotch- ef, Dealers með Rebecca DeMornay, Scenes From the Class Struggle in Beverly Hills e. Paul Bartel, Millenn- ium með Kris Kristoferson, Men at Work e. Emilio Estevez. When Harry Met Sally e. Rob Reiner (feb.), sex, lies and videotape e. Steven Sod- erbergh (feb.), War of the Roses e. Danny De Vito (feb./mars), Erik the Viking með Tim Robbins (mars), Tango and Cash með Stall- one og Russell (mars), Blaze með Paul Newman (apríl), A Dry White Season með Suth- erland og Brando (apríl), In Country með Willis e. Norm- an Jewison (apríl), Music Box é. Costa-Gavras (apríl), Mountains cf the Moon e. Bob Rafaelson (maí), Q and A með Nolte e. Sidney Lum- et (maí), The Handmaid’s- Tale e. Volker Schlöndorff (maí), Stanley and Iris með Fonda og De Niro (júlí), Tot- al Recall með -Schwarzen- egger e. Paul Verhoven (júlí), Air America með Gibson e. Roger Spottiswoode (sept), Gremlins II (ág.-sept.), Jak- ob’s Ladder e. Adrian Lyne (sept.), Presumed Innocent með Harrison Ford e. Alan Pacula (okt.), Dick Tracy með Beatty og Madonnu (nóv.), Die Hard II með Bruce Willis (okt.), Memphis Bell framleidd af David Puttnam (nóv.), Roger And Me (okt.), Óvinir — Ástar- saga e. Paul Mazursky (okt.), The Never Ending Story II (des.). HÁSKÓLABÍÓ Pet Semantarj' e. sögu Stephen King (feb.), She- Devil með Streep og Rose- anne Barr (mars), Let it Ride með Richard Dreyfuss (apríl), Cinema Paradiso með Philippe Noiret (apríl), Harl- em Nights e. Eddie Murphy (maí), The Fabulous Baker Boys með Jeff og Beau Bridges (maí), Fat Man And The Little Boy með Paul Newman (nóv.), Henry V e. Kenneth Branagh, Kron- vittnet e. Jon Lindström, RoboCop II e. Irwin Kershn- er, The Two Jakes e. Jack Nicholson, Guðfaðirinn III e. Coppola, My Left Foot með Daniel Day-Lewis, We’re No Angels' með Sean Penn og De Niro. STJÖRNUBÍÓ Casualties of War með Michael J. Fox e. Brian De Palma (feb.), True Belivers með James Woods e. Joseph Ruben (feb.), Blind Fury með Rutger Hauer (mars), Look Who’s Talking með Travolta (apríl), Steel Magnolias með með Matthew Broderick (maí), Intimate Family með Glenn Close (júní), Driving Miss Daisy með Jessica Tandy og Morgan Freeman (júní), The Freshman með Matthew Broderick og Marl- on Brando (ágúst), I Love You To Death með Kevin Kline og Tracy Ullman (sept.), Postcards From the Edge með Meryl Streep og Richard Dreyfuss. ✓ fóyí ■ ROBERTÐe Niro leik- ur í hveiTÍ myndinni á fætur annarri þessa dagana. Hann ætlar að leika í fyrstu mynd- inni sem framleiðandinn Ir- win Winkler leikstýrir og heitir Fear No Evil, en hún segir frá leikstjóra í Holly- wood og fjölskyldu hans á meðan kommúnistaveiðar sjötta áratugarins stóðu sem hæst. ■ ARA Kristins- syni kvikmyndagerð- armanni voru afhent „Þrautseigjuverð- laun“ Félags kvik- myndagerðarmanna á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af 10 ára afmæli íslenska kvikmynda- vorsins. Verðlaunin skýra sigsjálf. ■ NÝJASTA Peter Weir-myndin er með Gér- ard Depardieu í aðalhlut- verki. Hún heitir Græna kortið (Green Card), en Depardieu leikur franskan tónlistarmann í New York í leit að atvinnuleyfi. Weir skrifaði einnig handritið. ÍBÍÓ Laugarásbíó byijaði á því að búa til sérstaka bíó- daga úr þriðjudögum með afslætti á hina heilögu bíó- þrenningu: miðann, kókið og poppið. Síðan hafa önnur bíó tekið upp þennan sið til að laða að áhorfendur á róleg- um tímuin og er sjálfsagt að fólk noti sér afsláttinn. Og sú er raunin. Grétar Hjaríarson í Laugarásbíói segir að aðsóknin á þriðju- dögum hafi fjórfaldast mið- að við það sem var. Þriðjudagsbíó virðist gott dæmi um samkeppni sem allir græða á. Ein íslensk kvikmynd frumsýnd 1990; frá upptökum á Verkstæðinu. þess í tíu liðum til að rétta við íslenska kvikmyndagerð sem ráðamenn eru mjög sammála um að sé hin mikil- vægasta. Atriðin eru þessi: 1. Úthlutunarreglum yrði breytt þannig að úthlutað yrði tvisvar á ári í stað einu sinni nú (til hvers, ef ekki eru peningar til að út- hluta?). 2. Rekstur Kvik- myndasjóðs og stofnunar yrði kostaður af ríkinu en ekki tekinn af sjóðnum (varla byltingarkennt og löngu tímabært). 3.-Samein- ing Kvikmyndasjóðs og Kvikmyndasafns í eina Kvikmyndastofnun (einfalt skipulagsatriði sem litlu breytir fyrir kvikmynda- gerðarmenn). 4. Fyrir hveija krónu sem fyrirtæki og einstaklingar legðu í gerð íslenskra kvikmynda mætti draga tvær krónur frá skatti (mjög gott dæmi ef tekst að laða fjármagn úr atvinnulífinu í kvikmynd- ir). 5. Kvikmyndasjóður geti gengið í ábyrgð fyrir lánum til kvikmyndagerðar (góður bakhjarl). 6. Gefinn yrði kostur á fjárhagslegri ráð- gjöf (kannski tímabært). 7. Tekið til athugunar að ríkið stofni kvikmyndafyrirtæki með kvikmyndagerðar- mönnum (ekkert slæm hug- mynd). 8. íslendingar verði aðilar að norræna kvik- mynda- og sjónvarpssjóðn- um (fá sem mest útúr hon- um). 9. Líka Evrópska kvik- myndasjóðnum (þar liggja peningarnir). 10. Einstakir framleiðendur geti sótt styrki í Menningarsjóð út- varpsstöðva. Þetta em hugmyndirnar til bjargar íslenskri kvik- myndagerð. Raunar kom ein önnur fram á ráðstefn- unni um að 20-40 krónur yrðu teknar af hverri brennivínsflösku, sem seld er í Ríkinu, og sett í kvik- myndasjóð. Er ljóst að þá mundi aldrei skorta neitt fmmar. Tútleiðir til úrbóta í RÆÐU sem Svavar Gestsson menntamálaráðherra hélt á ráðstefnu Félags kvikmyndagerðarmanna, í til- efhi af 10 ára afmæli hins svokallaða kvikmyndavors þann 26. janúar sl., kom fram að ef ætti að styrkja alla þá sem sækja um til Kvikmyndasjóðs í ár þyrfti sjóðurinn 400 milljónir í stað þeirrar 71 milljónar, sem hann ræður yfir. Það er aðeins minni (járhæð en sú sem sjóðurinn hefúr haft úr að spila samanlagt allan áratuginn. Áhuginn hefur því gi'eini- lega ekki farið minnkandi á áratugnum, aðeins fram- leiðslan. Aldrei hefur áður verið sótt jafnmikið um styrki til sjóðsins, en árið 1990 verður þó aðeins ein íslensk kvikmynd frumsýnd miðað við þijár árið 1980. Þróunin er í engu samræmi við vilja og áhuga kvik- myndagerðarmanna og valdhafa en samt er sífellt verið að skerða framlög til Kvikmyndasjóðs. Hvað er til ráða? Á ráðstefnunni var kynnt frumvarp til laga um kvik- myndastofnun og efnisatriði Fjöldi umsóknanna sýnir fyrst og fremst grósku og gríðarlegan áhuga manna á að gera íslenskar kvikmyndir. Alls sóttu 30 aðilar um undirbún- ingsstyrki en sjö sóttu um styrk til að hefja fram- leiðslu á bíómynd- um í fullri lengd uppá sam- tals 172 milljónir. Fullt kostnaðarverð þeirra yrði, eftir því sem ráðherrann sagði, 525 milljónir. eftir Arnald Indriðoson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.