Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 20
20 C MÖRGUNBLAÐIÐ MYIMDASOGUR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Dreifðu kröftunum ekki um of. Þú ert ef til vill með of mörg járn í eldinum þegar. Kvöldið verður ánægjulegt í hópi vina. Naut (20. apríl - 20. maí) Þeir sem eru á ferðalagi gætu orðið að taka á sig aukaútgjöld. Þér býðst gott tækifæri í starfí, en þú ættir ekki að taka neinar mikilsverðar ákvarðanir í fjár- málum. Láttu menninguna sitja í fyrirrúmi. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 5» Góður dagur til viðskiptavið- ræðna og fjármálaákvarðana. Sýndu varfæmi og fyrirhyggju- semi. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Stundum ber ímyndunarafiið þig ofurliði. Gerðu ekki úlfalda úr mýflugu og grafðu ekki und- an sjálfsáliti þínu. Ræddu þín innstu mál við ástvini þína. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Verk sem þú hefur með höndum gæti tekið lengri tíma en þú hefur gert ráð fyrir og þú verð- ur ef til vill að fresta einhveijum áætlunum. Kvöldið getur þó orðið notalegt. Meyja (23. ágúst - 22. september) SBC Reyndu ekki að blanda saman starfí og skemmtan; þá gæti dýrmætur tími farið forgörðum. Gagnkvæmur skilningur næst á milli þfn og barnsins þíns. Ást- vinir hafa margt að segja hver öðrum. V°8 - (23. sept. - 22. október) Þú verður að leysa vandamál heima fyrir áður en þú getur notið þess sem eftir lifir dags- ins. Sinntu áhugamálunum í kvöld. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) 9KjS Sýndu varfæmi þegarþú skrifar undir skjöl. Láttu hugðarefni þín hafa algeran forgang og vertu heima í kvöld. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) m Hjón eru ekki alltaf einhuga þegar taka þarf ákvarðanir. Málamiðlun er einatt góður kostur þegar þannig stendur á. Helgaðu ástvini þínum kvöldið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það gengur ekki of vel í byijun hjá þeim sem ákváðu að vinna í dag, en svo rætist úr áður en dagurinn er allur. Það kemur sér vel fyrir þig að geta hrifið annað fólk. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þér hættir til að misskilja eitt- hvað í dag. Láttu efagirnina ekki ráða ferðinni, heldur skyn- semina og hjartað í sameiningu. Sinntu áhugamálunum í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Gefðu þér tíma til að vera einn með fjölskyldunni og gerðu ráð- stafanir til að hitta vini þína. AFMÆLISBARNIÐ hefur til að bera meiri sjálfsaga en al- mennt gerist hjá fólki í þessu stjömumerki. Það er vinnu- þjarkur og hefur meðfædda hæfiieika til að taka þátt í hóp- starfi. Það er hugvitssamt og fellur þó vel inn í hvers kyns skipulagða starfsemi. Það gæti fundið sér starfsvettvang innan opinberrar stjómsýsiu, við kennslu, í vísindum eða listum. Þó að það sé sjálfstætt í hugsun hefur það sterka þörf fyrir fjöl- skyldu og er fúst að axla ábyrgð fyrir aðra. Stjörnusþána á aó lesa sem dœgradvöl. Sfiár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. GARPUR GRETTIR TOMMI OG JENNI ( BÍ&PO V/ð! þVOÐU þETTflJFþéRf yj/zt \6jFV/n þÉR SfrPUSffEN/ i'MIS<S#JPO/rtJ LJOSKA i FOLK SEGIR HRÆ'ÐI - LEGA HLUTl U/M JÚLl'US V /V£> þETTA Ef? ' VÆST XIL O0JA TEKIP FERDINAND SMAFOLK I G0T0NE OFTME NEU) ''L0WGERLA5TING" P-MINU5E5 Ah! enn einn „D mínus“ Þetta er jafnvel ennþá verra. Ég fékk einn af þessum nýju „lang- varandi" D mínusum. Brids Arnór Ragnarsson Bridsfélag Kópavogs Sveitakeppnin er nú tæplega hálfnuð og eru línur að byrja að skýrast í toppbaráttunni. Staðan eftir 6 umferðir af 13: HelgiVíborg 127 Ragnar Jónsson 126 Bernódus Kristinsson 111 Magnús Torfason 111 Grímur Thorarensen 95 Spilaðir eru tveir leikir á kvöldi og verður næst spilað nk. fimmtu- dagskvöld kl. 19,45 í Þinghól. Bridsdeild Húnvetningafélagsins Ijokið er átta umferðum af 13 í aðalsveitakeppninni og er hörku- barátta um efstu sætin. Staðan: Magnús Sverrisson 157 Kári Siguijónsson 154 Þórarinn Arnason 149 Valdimar Jóhannsson 147 Hermann Jónsson 147 JónÓlafsson 141 Næstu tvær umferðir verða spilaðar á miðvikudagskvöld kl. 19,30 í Skeifunni 17. Sveit Magnúsar Torfasonar Reykjanesmeistari Reykjanesmótið í sveitakeppni sem jafnframt var undankeppni íslandsmóts var spilað um sl. helgi. Sveit Magnúsar Torfasonar sigraði nokkuð örugglega, hlaut 185 stig. Sveit Þórarins Andrews- sonar úr Hafnarfirði varð í öðru sæti með 160 stig, sveit Ragnars Jónssonar úr Kópavogi þriðja með 157 stig og sveit Friðþjófs Einars- sonar úr Hafnarfirði fjórða með 151 stig. Spilað var í Iðnskólanum í Hafnarflrði og tóku 9 sveitir þátt í mótinu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á Skákþingi Reykjavíkur 1990, sem nú á að vera lokið, kom þessi staða upp í skák þeirra Inga Fjal- ars Magnússonar (1.705) og Hannesar Hlífars Stefánssonar (2.420), sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 33. Hdcl og hótar að létta á stöðunni með 34. Hc8. Hannes gaf honum ekki tima til þess: 33. - Rxg2!, 34. Kxg2? (Mun betri vörn var fólgin í 34. Rxg2 - Bh2+i, 35. Khl - H2g6i, 36. Hxg8+ — Hxg8, 37. Kxh2 — Rg3, 38. Bfl - Rxfl+, 39. Hxfl — Dg5 og svartur vinnur, en þetta er ekki þvingað.) 34. — Dh4, 35. Kfl - Bxf2, 35. Dxl2 - Rg3+ og hvítur gafst upp. Þessi skák var einnig athyglisverð fyrir þá sök að,fyrstu 25 leikirnir voru í samræmi við rannsóknir fræði- manna á skák Hollendingsins Pik- et við Gary Kasparov í Tilburg í haust, sem hinn síðarnefndi vann. Hver segir svo að unglingar nenni ekki að læra heima! Þegar einni skák var ólokið á mótinu var Þröstur Þórhallsson sigurstrang- legastur með 9 v. og betri bið- skák, en Hannes Hlífar hafði 9 'Av. og Þröstur Árnason var þriðji með 8 'Av.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.