Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 C 29 Emil Ág-ústsson Ástralíu með nærveru sinni. „Ég er að fara að vinna á netaverk- stæði í sex mánuði en það hefur tekið mig heilt ár að fá vinn- una.“ Fyrir nokkrum árum dvaldist Halldór meðal Nýsjá- lendinga í fjóra mánuði og kveð- ur útgerð þar og veiðafæratækni fremur frumstæða miðað við ástand mála hér á landi. „Ég fer með alla fjölskylduna, konu og þrjú börn. Það yngsta er tíu mánaða en það elsta níu ára. Þetta er bara ævintýramennska. Hvað eru nokkrir mánuðir á heilli mannsævi?“ Grindvíkingurinn Emil Ágústsson er að bíða eftir flugi til Egilsstaða en hann er sjómað- I ur á bát sem gerður er út frá Eskifirði. Vélin á að fara eftir tvo tíma þannig að nægur tími gefst til að drekka kaffið og lesa blöðin. „Ég fæ að meðaltali fjóra frídaga í mánuði og þá kem ég suður og hitti fjölskylduna. Ég byijaði í vor sem leið á Hamra- borginni. Hún er mikið aflaskip. Ég var nú raunar búinn að vera tíu ár á Hamraborginni þegar hún var gerð út frá Hafnarfirði þannig að það má segja að ég hafí flutt mig með skipinu! Tekj- umar eru betri fyrir austan og nú er stutt á loðnumiðin." Kapallinn er ekki enn genginn upp hjá Halldóri en tíminn er nægur því það á að athuga með flug vestur klukkan rúmlega fimm. Gangi það ekki er ekki annað hægt en að taka leigubíl - inn í bæ og reyna aftur á morg- un. Hvers vegna er bannað að flytjá inn hákarlalýsi? Til Velvakanda Fyrir stuttu hringdi ég, sem þessar línur rita, í eina af þeim verslunum sem hafa á boð- stólum ýmis fæðubótarefni og spurði hvort þar fengist hákarla- lýsi. Vingjamleg stúlkurödd svar- aði: „Nei, það er bannað að flytja það inn.“ „Ha? Hvað segirðu?“ hváði ég. Stúlkan endurtók: „Það er bannað að flytja það inn, en spurðu manninn sem hefur reynt að fá innflutningsleyfi ef þú hefur áhuga,“ bætti hún við og gaf mér upp nafn og símanúmer mannsins sem við var átt. Daginn eftir hafði ég svo samband við umræddan mann og spurði hann hvort það væri rétt, að honum hefði verið synjað um innflutningsleyfi fyrir hákarlalýsi. „Já, það er rétt,“ svar- aði hann. „Ég hefí barist fyrir því að fá innflutningsleyfi fyrir lýsinu en verið neitað um það.“ „Á hvaða forsendum?" spurði ég. „Jú,“ sagði viðmælandi minn, „það dó kona úti í Svíþjóð fyrir ári af blóðtappa, hún hafði tekið hákarlalýsi og var lýsinu kennt um dauða hennar. Þessi kona hafði margsinnis áður fengið blóðtappa, líkurnar fyrir því að blóðtappi yrði hennar banamein voru því yfirgnæfandi, þrátt fyrir töku lýsisins." Hann bætti því við að þetta hefði verið „blásið út“ og af því tilefni hefðu Finnar stöðvað innflutning á þessu margumrædda lýsi I einn mánuð, að þeim tíma liðnum sáu heilbrigðisyfirvöld þar í landi ekki ástæðu til annars en leyfa það á ný. „Getur það verið að heilbrigðisráðherra viti um þetta?“ spurði ég. „Já, honum er kunnugt um þetta,“ var svarið. „Ég hefi sjálfur farið á hans fund og skýrt honum frá málinu. Hann fór undan í flæmingi, kvað erfitt að fást við „kerfíð“ ekki víst að hann gæti nokkuð gert, en bað um skriflega greinargerð sam hann hefur nú fengið.“_ Ég varð hrein- lega agndofa. Ótal spurningar komu fram í hugann. Hvað er hér eiginlega á seyði? Hversvegna mega íslenskir neytendur ekki fá þessa sérstöku tegund af iýsi? Er eitthvað gruggugt við þetta inn- flutningsbann? Þetta er lýsi, en ÞRÖNGSÝNI Til Velvakanda. Fyrir skömmu var verið að skrifa í Velvakandi um hundahald hér í borginni og agnúast út í þá fáu hunda sem enn eru eftir. Aldrei hef ég haldið hund og mest fyrir það hve umburðarlyndi fólks er Iítil þegar þeir eru annars vegar. En mér þykja þetta skemmtilegar skepnur og eftirsjá af þeim en það heyrir nú til undantekninga að maður sjái hundi bregða fyrir hér í borg. Sumir vilja banna kettina líka og þá væri fokið í flest skjól hjá dýravinum. Þá værum við orðin ein eftir á malbikinu og eigum kannski ekki betra skilið. En allt er þetta fyrir þröngsýni og smámunasemi held ég. Við för- um mikils á mis og börnin okkar líka er við útilokum dýrin frá sam- félagi okkar. Homo sapiens („hinn skynsami maður“) sem svo kallar sig er nefnilega ekki ávallt til fyrir- myndar — það sjáum við eftir hveija helgi þegar tíunduð er hegð- un' fólks í Miðbænum og víðar. Ekki eru hundar eða kettir þar á ferð að valda vandræðum. Lási ekki nein vafasöm efnablanda. Mér er kunnugt um að margir hafa spurst fyrir um hvort hákarlalýsi væri fáanlegt hér í verslunum, en fengið sömu svör og ég: Bannað af heilbrigðisyfirvöldum að flytja það inn. Þó er það fáanlegt á fijáls- um markaði á öllum hinum Norður- löndunum. Getur nokkur maður með fullu viti ímyndað sér, að þeir sem sitja í heilbrigðiseftirliti eða heilbrigðisstjórnum þessara landa séu svo miklir bjánar, eða svo kærulausir, að þeir leyfðu fijálsa sölu á lýsi, sem gæti reynst al- menningi hættulegt? Hversvegna þegja forsvarsmenn Náttúrulækn- ingafélagsins? Hversvegna þegja Heilsuhringsmenn? Vita þeir ekk- ert um niðurstöður tilrauna og rannsókna á hákarlalýsi sem staðið hafa yfir í sjúkrahúsi í Solna í Svíþjóð undir stjórn dr. Astrid Brouhult og yfirlækna sjúkrahúss- ins í meira en 30 ár samfellt? Hafa forvígismenn fyrrnefndra samtaka enga hugmynd um að frá þessum rannsóknum sænsku lækn- anna og niðurstöðum þeirra var skýrt opinberlega á læknaþingi sem haldið var í Osló fyrir fáum árum? Treystir sá, eða þeir, sem hafa tekið sér það vald, eða rétt- ara sagt misnota vald sitt til að banna innflutning á hákarlalýsi, til þess að halda því fram að lækn- ar og vísindamenn í Sovétríkjun- um, Japan, Þýzkalandi og víðar séu þeir fáráðlingar að fá áhuga á rannsóknum á hákarlalýsi ef þeir álitu niðurstöður sænsku lækn- anna markleysu? Hvaða myrkra- völd eru það, sem koma í veg fyr- ir að ég og aðrir sem óska eftir því og telja sig hafa heilsufarslega þörf fyrir, geti fengið heilsubót með því að bæta því við daglega fæðu? Ekki myndi lýsið verða nið- urgreitt af ríkinu, svo ekki þarf að banna það í spamaðarskyni. Hafí hákarlalýsi bætt heilsu og jafnvel bjargað mannslífum í Svíþjóð, eins og rannsóknir Svíanna hafa sýnt, hversvegna má það ekki hjálpa okkur íslending- um? Eitt er deginum ljósara: Það er ekki ai' umhyggju fyrir almenn- •ingi þetta innflutningsbann. Það er skýlaus krafa mín og allra þeirra sem þess óska, að þessu fáránlega innflutningsbanni verði tafarlaust aflétt, því það er til háðungar þeim sem því hafa ráðið. Elínborg Brynjólfsdóttir Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins ytan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Þ.ÞQRGRÍMSSON&CQ ARMA f PLAST ÁRMÚLA 1 6 OG 29. S. 38640 Ég undirritaður þakka öllum þeim, er glöddu mig á 50 ára afmœlisdegi mínum 21. janúar sl. Sérstakar þakkir til KR-félaga minna, sem gerðu mér daginn óg/eymanlegan. Þórólfur Beck. Djasstónleikar sunnudag kl. 21.30 Ómar Einarsson og tríó Ómar, gítar- Guðmundur Ingólfsson, píanó, ásamt gestum. Heiti potturinn Fischersundí * Utsalan byrjar á morgun, mánudag Verslunin Hornió Kársnesbraut 84, Kópavogi 'ifandi tónlist í kvöld Dansaðtil kl. 1 Munið Þorramatinn ávallt úrvalsréttir á matseðlinum RESTAURANT S í M I 1 7 75 9 ATH: Úr skinni með innleggi Litir: Blár, beige, hvítur Verð kr. 495.- 5% staðgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægurs TOPPÍ KRINGWN KBIHeNM S. 689212 sEtffi nií VELTUSUNDI 1 21212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.