Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MEIMNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 ■ RISA EÐLAN huk í vik- unni við upptökur á sinni fyrstu breiðskífu sem Smekkleysa gefur út hér á landi, One Little Indian í Bretlandi og Rougli Trade í Bandaríkjunum. Sveitin hóf vinnu við plötuna seint á síðasta ári en barneignir Dóru „ Wonder“ söngkonu sveitarinnar og saxófónleik- ara og jóiahald komu í veg fyrir að það tækist að ljúka gerð hennar fyrir áramót. Upptökustjóri var Ken Thomas, sá hinn sami og sat við stjórnborðið hjá Bubba Morthens og félögum þegar Nóttin langa var tekin upp. Platan kemur út í apríl og fer sveitin í tónleikaferð til Bandaríkjanna til að kynna útgáfunaíjúní. Smekkleysa kynnir... SMEKKLEYSA ER umsvifamikið fyrirtæki á íslenskan mælikvarða og hefiir á sínum snærum nokkrar fram- sæknar rokk/poppsveitir. Fyrirtækið hefur haslað sér völl meðal annars í Bandarikjunum, þó í litlum mæli sé, og er meðal annars með opna skrifstoíu í Los Ange- les. I vændum er mikil sókn inn á Bandaríkjamarkað og í tilefni af því var stödd hér á landi umsjónarmaður skrifstofunnar þar, Jo Cavanagh, og hélt Smekkleysa þriggja hljómsveita kynningarkvöld í Hressó henni til heiðurs. Hljómsveitirnar sem Smekkleysa hefur á sínum snærum eru Risaeðl- an, Bless, Bootlegs, Ham og Langi Seli og Skuggarn- ir, en í Hressó léku Bless, Bootlegs og Ham. Staðurinn var þéttskipað- ur þegar Bless hóf tónleik- ana og þegar Ham lék síðust sveita hermdu menn að á þriðja hundrað manns væri statt innan dyra. Bless náði vel til áheyrenda og áheyr- endur slepptu sveitinni ekki fyrr en hún hafði leikið nokkur aukalög. Eftirminni- legt var þegar Gunnar söngvari og gítarleikari brá sér frá vegna slitins gítar- strengs og Ari bassaleikari söng Hrognin eru að koma við annan mann. Bootlegs voru þéttir að vanda en í miðju kafi gafst annar gítar sveitarinnar upp, sem setti strik í reikn- inginn. Áheyrendur voru þó ekki að láta það mikið á sig fá og viðstaddir gripu í hljóðfærin á meðan skipt var um gítar og meðal ann- ars söng Bjarni „móhíkani" Lollypop, sem hann fiutti eftirminnilega með Sjálfs- fróun á sínum tíma. Ef marka mátti viðbrögð áheyrenda voru flestir að bfða eftir Ham og líklega hélt sveitin sína bestu tón- leika til þessa þarna í Hressó, með Óttarr Proppé sem fremstan meðal jafn- ingja. Strákapör SAMKVÆMT formúlunni ættu hljómsveitir skipaðar unglingum helst til unglinga, en meira þarf til. I seinni tíð hafa margar unglingastjörnur verið til kallaðar í Bandaríkjunum, en fáar útvaldar og þær sem náð hafa að slá í gegn hafa gert það á hæfileikum, ekki síður en aldrinum. Debbie Gibson lagði bandaríska poppheiminn að fótum sér með liprum lagasmíðum og einlægni og nýjasta dæmið er kvintettinn New Kids on the Block. Drengirnir fimm í New Kids on the Block, Donnie Wahlberg, Danny Wood, Jordan Knight, Jon Knight og Joe Mclntyre, voru kallaðir saman af lagsmiðn- um Maurice Starr, sem hafði hug á að koma saman sveit sem skipuð væri piltum sem gætu dansað og rappað samtímis. 1984 eyddi hann sex mánuðum í að setja sam- an flokkinn og í janúar 1986 gerðu félagamir samning við Columbia. Fyrsta breiðskíf- an, sem var popp af léttustu gerð, var að öllu hugarfóstur Maurice Starr, en þegar vinna hófst við plötu númer tvö tóku piltamir meiri þátt í lagasmíðum og útsetning- um og við poppið bættist rokkkeimur og meira rapp. Platan, sem heitir Hangin’ Tough, kom út fyrir hálfu öðru ári. Hún fór vel af stað og er enn á bandaríska breiðskífulistanum (á upp- leið, enn og aftur, fyrir skémmstu). Af plötunni kom- ust þrjú lög inn á topp tíu í Bandaríkjunum, sem er afar sjaldgæft, og þegar hafa selst af skífunni vel á sjöundu milljón eintaka í Banda- ríkjunum einum, en jólaplata sveitarinnar, sem gefin var út fyrir síðustu jól hefur selst í á þriðju milljón eintaka. Það má því ljóst vera að fimm- menningarnir og stjóri þeirra hafa eitthvað til brunns að bera. Til viðbótar við það að raka saman fé á plötusölu og tónleikahaldi hafa piltarn- ir verið virkir vel í baráttu gegn götuofbeldi og fíkni- efnaneyslu. Þeir erp allir ut- an einn aldir upp á götunni og í einu af úthverfum Bost- on og höfðu því fyrir augun- um það sem þeir eru að beij ast gegn. Gipsy Kings: Hægri hendin er fyrir flamenco, en sú vinstri fyrir alla aðra tónlist. Sígaunakonungar MÞRÍR þekktir breskir popparar hafa snúið bökum saman og gefið út smáskífu undir nafninu Electronic. Það eru þeir Bernard Summer úr New Order, Johnny Marr, fyrrum Smiths-meðlimur og nú í The The, ogNeil Tennant úr Pet Shop Boys. Sá síð- astefndi syngur smellinn „Gettingaway with it“en mun þó ekki vera fuligildur félagi Electronic. Þeir félag- ar munu ekki iáta staðar numið og eru upptökur á stórri plötu langt komnar. Tanita Tikaram. Fátt skemmtílegra en tónieika- haid. DÆGURTONLIST /Hver er Tanita Tikaram? Kvennapopp KONUR SEM leggja stund á popptónlist eru fáar og þeim virðist ekki fjölga að marki, hvorki hér á landi né ytra. Ein hinna nýrri er enska söngkonan Tánita . Tikaram sem kom fram á sjónarsviðið með miklum hamagangi 1988 með plötu sinni Acient Heart. í lið- inni viku kom út ný plata frá Tanitu. Fáir tónlistarmenn hafa átt eins greiða ieið upp á stjörnuhimininn og Tan- ita Tikaram. Hún hélt sína fyrstu tónleika átján ára mm—mmmh og ári síðar sendí hún frá sér sína fyrstu plötu, sem seldist í hálfri fjórðu eftir Ama Matthíasson milljón eintaka. Tanita, sem er að mala ysku og fijísku bergi brot in, fæddist í ágúst 1969 V-Þýskalandi. Hún ólst þar upp, en fluttist til Engiands tólf ára. Við komuna þang- að hafði hún takmarkaðan áhuga á tónlist, en þeim mun meiri áhuga á bók- menntum og ljóðagerð. Bókmenntakennari sann- færði hana um að hún hefði ekki hæfileika á því sviði og taldi hana á að semja lög og texta að hætti Rickie Lee Jones. Það var svo í hálfgerðu bríaríi að hún sendi kassettu með nokkr- um lögum til eiganda tón- leikaklúbbsins Mean Fiddl- er í Lundúnum. Hann hreifst af og fékk hana til að troða upp. Ekki drógu þeir tónleikar úr áhuganum og eftir að BBC sýndi myndbút þar sem hún flutti lag sitt Poor Cow, fóru stórfyrirtækin bresku á stúfana að gera við hana samning. Tanita kunni fót- um sínum forráð og gerði hagstæðan samning við WEA og eins og áður sagði seldist fyrsta breiðskífan í vel á fjórðu milijón eintaka, þar af í um 700.000 eintök- um í Bretlandi. Tanita hóf vinnu við nýju plötuna þegar og tónleika- ferðinni vegna Acient He- art iauk snemma á síðasta ári. Önnur plata hljóm- sveita sem ná langt með þeirri fyrri er orft erfið, en ekki vafðist plötugerðin fyrir Tanitu, því upptökur tóku ekki nema átta vikur, sem verður að teljast harla gott. Þó eru útsetningar á nýju plötunni fjölbreyttari en á þeirri fyrri og meira lagt í lagasmíðar og texta, enda seglst Tanita hafa þroskast mikið sem laga- og textasmiður á síðustu tveimur árum, sem vonlegt er. Platan heitir Sweet Keeper, sem einhverjum finnst eflaust tilgerðarlegt, en Tanita segir það tvíeggj- að, „sweet keeper er ein- hver sem hefur margt gott að gefa en sem hefur einn- ig vald yfir þér, til góðs eða ills“, enda fyalla mörg lög plötunnar um það. Þó undarlegt inegi virð- ast þá finnst Tanitu fátt skemmtilegra en að vera á tónleikaferð, „mér fínnst ég ekki vera að vinna og finnst ég vera einskis verð ef ég er ekki í tónleika- ferð“. Hún segir einnig það skipta hana miklu að þróa lagasmíðar sinar og -flutn- ing á tónleikum. Það eru því framundan miklir gleð- itímar hjá Tanitu, því í fe- brúar hefst þrettán mán- aða tónleikaferð hennar um heim allan til að kynna Sweet Keepér. Ha«n FYRIR stuttu sýndi Sjón- varpið frá tónleikum sígaunasveitarinnar Gipsy Kings, sem vinsældir henn- ar aukast dag frá degi. Sígaunakonungarnir eru sígaunar og eyddu æsk- unni á ferð um Suður-Frakk- land. Þrír eru synir flamen- cotóniistarmannsins Jose Reyes og hinir eru frændur þeirra og mágar. Sveitin var stofnuð 1979 og vakti fljótt athygli fyrir tónlist sína sem var blanda af flamenco og suður-amerískum áhrifum skreytt frösum úr öllum átt- um. Sagan hermir að sveitin hafi leikið fyrir Chaplin skömmu áður en hann lést og hann tárfellt af hrifningu. Fyrir stuttu sendi sveitin frá sér nýja plötu, Mosaique. Þar eru menn við sama hey- garðshornið í tónlist, en hafa bætt í blönduna rai frá Alsír, enda segir talsmaður sveitar- innar: „Við viljum ekki vera bundnir af sigaunatóniist. Við hlustum á sígaunatónlist fyrst og fremst, en líka á Prince og Jimi Hendrix. Hægi’i hendin er fyrir flam- enco; sú vinstri fyrir alla aðra tóniist. “

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.