Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 C 11 Var leigjand- inn ekki all- ur sem hann HJÓN nokkur í Kaliforníu hafa höfðað mál á hendur starfsmanni japanska Nissan-bílaframleið- andans og halda því fram, að hann hafi leigt hjá þeim herbergi í þeim tilgangi einum að njósna um þau. Stephen French og Maritza kona hans, sem búa í Costa Meso, segja, að Takashi Morimoto hafi leigt af þeim herbergi um sex vikna skeið til að safna saman upplýsing- um um bandaríska iifnaðarhætti og alveg sérstaklega um afstöðu hinna dæmigerðu, bandarísku hjóna til bílsins. Saka þau hann um svik og pretti, um að háfa ekki virt einka- líf þeirra og um óheiðarlega við- skiptahætti. „Þau era fjúkandi vond og vilja vita hvað hann hefur skrifað um þau í Nissan-skjölin,“ sagði Nancy Kaufman, lögfræðingur þeirra hjóna, sem segja, að Morimoto hafi elt þau á röndum og stöðugt verið að skrifa eitthvað hjá sér. Það gerði hann undir því yfirskini, að hann vildi vera einn af fjölskyldunni og bauðst meðal annars til að fara út með hundinn og þvo bílinn. Forráðamenn Nissans hafa vísað ásökununum á bug sem „fáránleg- um“ og sagði Don Spettner, tals- maður fyrirtækisins, að Morimoto hefði aldrei dregið dul á, að hann ynni fyrir Nissan og vildi kynna sér bandaríska lifnaðarhætti. French-hjónin komust í samband við Morimoto í gegnum auglýsingu frá japansk-bandarísku menningar- félagi en segja nú, að þau hafi ekki áttað sig á honum fyrr en þau lásu grein í blaðinu Los Angeles Times um ýmsar rannsóknarvenjur Jap- ana. Vilja þau með málshöfðuninni einnig koma í veg fyrir, að japönsk stórfyrirtæki haldi áfram að koma fyrir njósnurum á bandarískum heimilum. Sérfræðingar innan bflaiðnaðar- ins segja, að algengt sé að japönsk bílafyrirtæki stundi rannsóknir af þessu tagi. Þegar Toyota-fyrirtækið var að hanna Luxus-gerðina sína leigði það hús á Laguna-strönd í Kaliforníu undir heilan verkfræð- ingahóp, sem hafði það verkefni eitt að kynna sér siði og venjur Bandaríkjamanna og líklegra kaup- enda. -ROBERT SHRIMSLEY Það er ekki tryggt að verkfæri iðnaðarmanna séu notuð á löglegan hátt! En meö nýju IÐNAÐARMANNATRYGGINGUNNI frá SJÓVÁ-ALMENNUM geta iðnaöarmenn tryggt sig eins og best verður á kosiö. IÐNAÐARMANNATRYGGINGUNNI eru allar \w helstu tryggingar sem iönaöarmenn þurfa settar saman á eitt skírteini. Allir góöir fagmenn ættu aö kynna sér þessa langþráðu nýjung strax. SJOVAuíoALMENNAR HEIMSMEISTARA-HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS SkíikIiiiii sanian um landslióid nkkar ÍL m Mestu möguleikar í einu happdrætti að vinna bíl jÆ m<- LOKASPRETTURIiMIM FYRIR HEIMSMEISTARAKEPPNIIMA ÁFRAM ÍSLAND! t'ó i;to »; i..*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.