Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ MANIMLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 FASTEIGN Á SPÁNI Verð frá ísl. kr. 1.450.000,- Aðeins 30% útborgun - Einstök afborgunarkjör. Ódýrar ferðir fyrir húseigendur 9 mánuði ársins. Sérstakur kynningarfundur með myndbandasýningu á Laugavegi 18 í dag, sunnudag 4. febrúar frá kl. 14.00-17.00, sími91-617045. Komið í kaffisopa og kynnið ykkur málin. ORLOFSHÚS SF. AMSTRAD PC512 erfullkomlega PC samhæfð tölva með 8086 örgjörva með möguleika fyrir 8087 örgjörva. Vinnsluhraði er 8 mhz vinnsluminni er 512k stækkan- legt í 640k. Rauntímaklukka, mús, hliðartengi, raðtengi og tvisvar sinnum 5 1 /4 drif. Tengi fyrir stýripinna og hátalari með hljóðstilli. CGA litaskjár með stillanlegum veltifæti. 3 lausartengiraufar. Stýrikerfi MSDOS 3.2 og DOS PLUS fylgir. Fylgihlutir: GEM stýriforrit ásamt teikniforriti og basic 2 stjórnað með mús. ABILiTY forritin samanstanda af ritvinnslu, reikni- vangi, súlu og kökuriti, gagnasafni og samskiptaforriti. 4 leikir fylgja með í kaupbæti. Einnig fylgir bókhaldskerfið Heimiliskorn. Fjárhags- heimiliskorn er viðskiptamannabókhald, bæði fyrir heimilið og atvinnureksturinn. Allt þetfa færðu fyrir adeins kr. 96.000,- Verð miðast við staðgr. og gengi 1. janúar 1990. Góð greiðslukjör TÖUfULAND - LAUGAVEG 116 105 REYKJAVÍK SIMI 621122 LFEKNISTIXÆÐI/Kemur ekki bóluefni brábum? MÝRAKALDA MALARÍ A SEM á okkar tungu heitir mýrakalda er einn algeng- asti og mannskæðasti smitsjúkdómur sem fólk í heitum og rökum heimshlutum á yfir höfði sér. Sóttkveikjan er hvorki baktería né veira heldur sníkill úr þeirri fylkingu lífvera sem nefnd er frumdýr og berst hann milli manna með ákveðinni mýflugnategund. Flugan sýgur blóð sér til matar og ef manneskjan sem hún stingur er sýkt af mýra- köldu sest sníkill- inn að í maga flugunnar og fjölgar sér þar. Þegar hann hefur þroska til flyst hann upp í munn- vatnskirtla hennar og kemst þaðan inn í líkama þess sem næst verður fyrir flugubiti. Nú hreiðra sníklarnir um sig í nokkra daga í lifur fórnarlambsins en leggja svo af stað út í blóðrás- ina og bora sér inn í rauð blóð- korn. Þar fjölgar þeim ótæpilega og eftir einn eða fleiri daga sprengja þeir utan af sér hýði blóð- kornsins, dengja sér í strenginn og hver og einn velur sér blóðkorn til búsetu og þannig koll af kolli, eins og sést á mynd A. Einkenni mýraköldusjúklings fyrstu dagana eftir smitun láta venjulega ekki mikið yfir sér: Hita- slæðingur, höfuðverkur, slen og ógleði. En þegar á þessu hefur gengið í viku eða svo verður skyndileg breyting; hann fær kuldahroll, jafnvel skjálftakast sem varir í nokkrar mínútur eða allt upp í tvo tíma; hann kastar upp, hefur óþolandi höfuðverk og líkamshitinn rýkur upp úr öliu valdi. Að nokkurri stundu liðinni fer hitinn að lækka, líðan sjúkl- ingsins skánar og svitinn bogar af honum. Síðan ber fátt til tíðinda í einn eða tvo eða þijá daga en þá kemur skjálftakast að nýju og sagan endurtekur sig (sjá mynd B). Hvað margir dagar líða milli kasta fer eftir því hvaða sníkilsaf- brigði er á ferðinni en þau eru þó nokkur til. Spánverjar fluttu forðum daga börk kínatrés frá Perú heim með sér því að vel hafði gefist í hita- sóttum að naga hann. Úr berkin- MYNDB HAGFRÆÐI/7Vœgja patentlausnir? Enti tímamótasamningar ÍSLENSK efiiahagsstjórn einkennist af patentlausnum. Gripið er til aðgerða með reglulegum fresti, en látið reka á reiðanum þess á milli. Gott dæmi um þetta eru aðgerðirnar í maí 1983, sem óneitanlega hefðu fært varanlegan árangur með traustari sljórn. Það eru jafht stjórnmálamenn sem „aðilar“ vinnumarkaðarins, sem haldnir eru ofsa- trú á patentlausnunum og er þar skemmst að minnast niðurfærsluhug- myndarinnar sem rætt var um haustið 1988. Samskipti ríkisvaldsins og „aðila" vinnumarkaðarins hafa verið óvenju skrautleg á íslandi um ára- tugaskeið. Annars vegar háfa ríkis- stjórnir ósjaldan gripið inn í gildandi kjarasamninga, einkum meðan vísitölubinding var við lýði. Hins vegar hafa „aðilarnir“ oftsinnis gert kröf- ur til ríkisvaldsins um ýmsar aðgerðir til að liðka fyrir gerð kjarasamn- inga. Þessi samskipti hafa einkennst af tortryggni, eins og komið hefur í ljós á síðustu mánuðum er stjórn- völd og „aðilar" deildu um hvort ríkið hefði staðið við þau loforð sem gefin voru við gerð kjarasamninga á sl. vori. „Aðilar“ vinnumarkaðarins (hefur nokkur heyrt talað um aðila vöru- markaðarins?) hafa puttana víða og ætti í raun að setja ákvæði um þá í stjórnarskrá. Um þverbak keyrði þegar „aðilarnir" eru skipaðir í dóm- nefnd um bókmenntaverk. Það er ekkert lýðræðislegt nema „aðilarnir" eigi aðild að. Með reglulegu millibili hafa „aðil- ar“ vinnumarkaðarins tekið ríkis- stjórnir í gíslingu og lagt fram háa reikninga til að greiða fyrir hófsöm- um kjarasamningum. Þessir kjara- samningar eru auðvitað allir tíma- mótasamningar, samningar sem munu kveða verðbólguna niður í eitt skipti fyrir öll. Lausnargjaldið fyrir ríkisstjórnina er verðbólgan sjálf, segja „aðilarnir“, og gíslinn verður að greiða. Þessi leikur hefur verið leikinn ótrúlega oft og auðvitað er svo komið að mikillar tortryggni gætir milli „aðilanna" og ríkisstjórn- arinnar. Ríkisstjórnir segja, að samningar eigi að vera á ábyrgð „aðilanna“ og þessi ríkisstjórn ætl- aði að vera upp í stúku. Fjármálaráð- herrar segja þegar þeir leggja fram fjárlögin: „Þetta er ramminn, veskú, þetta er til skiptanna.“ En fjárlaga- valdið er ekki lengur hjá fl'ármála- ráðherra og ekki heldur hjá fjárveit- ingavaldinu, heldur hjá „aðilunum". Alþingi afgreiddi fjárlög með 3-4 milljarða halla. Viðbótin vegna þess- ara tímamótasamninga er á bilinu 1-1,5 milljarðar króna, þannig að verði ekkert að gert eykst halli ríkis- sjóðs um nálægt 50%. Þessi halli og íjármögnun hans hefur áhrif á allar lykilstærðir hagkerfisins, einkum á vexti og viðskiptajöfnuð. Þenslan sem af þessu hlýst, gæti þannig leitt til aukinnar spennu á vinnumarkaði sem að sínu leyti gæti spennt upp verðbólguna. Það var þetta m.m. sem gerði tímamótasamningana í desember 1986 að engu. Þeim samn- ingi var ætlað kveða niður verð- bólguna og bæta kjör hinna lægst- launuðu. Þegar upp var staðið voru áhrifn til verðbólguhjöðnunar lítil. Upphafs góðærisins fræga 1987 var ekki síst að leita til verulegs við- skiptakjarabata. Þensluna (því þjóð- arútgjöld hækkuðu langt umfram tekjur) mátti m.a. rekja til upp- sveiflu í sjávarútvegi, tilslakana í skattamálum og fastgengis án ann- ars aðhalds. Sporin frá 1987 hræða. Þá eins og nú var kosningaár, en þau bjóða einatt heim hættu á slakri efnahagsstjórn (m.ö.o. kosninga- víxlar). Skilyrði til að ná árangri nú eru um margt betri en verið hefur um langt skeið. Jafnvægi í efnahagslíf- inu er þannig betra en verið hefur í nokkurn tíma. Hæst ber, að vinnu- markaður er nær eðlilegu jafnvægi nú, með atvinnuleysi í kringum 1,5-2%. Útgjöld þjóðarinnar eru nær tekjum en oft áður. Þetta jafnvægi hefur skapast vegna kaupmáttar- rýrnunar og ekki síður vegna hárra raunvaxta. Hins vegar er rétt að minna á að þessar aðstæður geta auðveldlega breyst, ekki síst ef gefið verður eftir með vexti. Margt bendir til að hagvöxtur muni glæðast á þessu ári, fiskverð fer hækkandi og staða útfíutningsframleiðslunnar er þokkaleg. Jafnvægið getur því auð- veldlega raskast. En um hvert er þá inntakið í þeim kjarasamningum sem gerðir voru? í fyrsta lagi kveða þeir á um 5% launa- eftir Siguró Snævorr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.