Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 Grafarvogur* Nýtt hverfís- blað í burðar- liðnum NÝLEGA VAR auglýst í Morgun- blaðinu eftir ritstjóra að nýju hverfisblaði í Grafarvogi. Að blað- inu standa öll félagasamtök í hverfínu, að hinum pólitisku und- anskildum. Blaðið mun bera heitið Grafarvogúr og lítur fyrsta tölu- blað þess dagsins ljós seinna í vet- ur. élagasamtökin sem hér um ræðir eru íbúasamtök Grafarvogs, Foreldra og kennarafélag Folda- skóla, Ungmennafélagið Fjölnir, Skátafélagið Vogabúar, félagsmið- stöðin Fjörgyn og sóknamefnd Graf- arvogssóknar. Guðmundur Kristinsson er einn þeirra íbúa í Grafarvogi sem unnið hafa að undirbúningi þessa blaðs. Hann segir markmiðið með blaðinu m.a. vera að koma á framfæri frétt- um og upplýsingum um það sem á döfínni er í hverfínu, þróa áfram hið öfluga æskulýðsstarf sem til staðar er, ná upp hverfisstemmningu, og hafa eitt málgagn fyrir þau samtök sem að blaðinu starfa svo dæmi séu tekin. Guðmundur segir að ætlunin sé að byija smátt en auka síðan útgáf- una þegar fram í sækir. Hann telur blað sem þetta eiga fyllilega rétt á sér en íbúar Grafarvogs eru nú 4-5.000 talsins. í fjölmiðlum ■ ÞETTAer líflegt og skemmtilegt og ég kann vel við mig hér,“ segir Katrín Baldurs- dóttir, sem hefur verið ráðin að dægurmáladeild Katrín. Rásar 2 hjá Ríkisútvarpinu. Katrín hefur starfað við blaðamennsku um árabil og var síðast í föstu starfi sem blaðamaður hjá Frjálsu framtaki. „Ég fór svo í barneignafrí og síðan var ég með þáttagerð fyrir Aðalstöð- ina í lausamennsku. I framhaldi af því var mér svo boðið starf við dæg- urmáladeild Rásar 2,“ segir Katrín um aðdragandann að því að hún hefur nú hafið störf hjá Ríkisútvarp- inu... ■ Búskapurinn á Stöð2ereins og annarbúskapurá íslandi — fram- leiðslan er ágæt en hún stendur bara engan veginn undir sér STOÐ2 Kraftaverkamenn Hugmynd varð að veruleika fyrir augum heillar þjóðar og 5 milljónir urðu mínus 1.200 milljónir. Stöðin hefur staðið fyrir sínu HÉR skal það fullyrt að flest allt gekk upp hjá gömlu eigendum Stöðvar 2 nema bókhaldið. Þeim tókst að skapa ágæta sjón- varpsstöð sem stendur ríkissjónvarpsstöð með yfir tuttugu ára reynslu að baki, fyllilega á sporði. Stöðin er ekki eins — hún er öðruvísi og varla er með neinum haldgóðum rökum hægt að segja að hún sé verri en það sem „best þekkist hér á landi“. Hitt er svo annað mál að þessi árangur kostaði sitt enda er nú svo komið að fyrri eigendur eru hafðir í uppvaski á þessum resturanti viðskipta vegna þess að þeir gátu ekki gert upp reikninga í veislulok. Að hafa náð 48 þúsund áskrif- endum á þremur árum svar- ar í raun því hvort tilraunin Stöð 2, sem stóð í rúm þrjú ár og var undir stjóm dr. Jóns Óttars Ragnarssonar, hafí tekist. Ekk- ert annað áskriftarsjónvarp í veröldinni nær til yfír 70% þeirrar þjóðar sem það reynir að höfða til. Stærsti sigur fyrrum stjóm- endum fyrirtækisins verður þó að teljast sá að hafa náð slíkum árangri við áskriftasöfnun án þess að slá af kröfum um gæði, þar sem því má ekki gleyma að Stöðin átti og á enn kost á að verða þriðja flokks myndbanda- BAKSVID eftir Ásgeir Fribgeirsson leiga með heimsendingarþjón- ustu. Fréttastofa Stöðvarinnar, sem tvímælalaust hefur verið flagg- skip hennar, hóf samkeppni við fréttastofu Sjónvarps á sömu forsendum og keppinauturinn. ________________ Hún gerir svipaðar kröf- ur til áreiðan- leika og notar sömu viðmið við val frétta en er þó tals- vert áræðnari en ríkisfréttastof- an. Vart er hægt að gera upp á milli fréttastofanna og víst er að samkeppni ríkir á milli þeirra um leið og starfsmennirnir bera virðingu hver fyrir öðrum, með eðlilegum undantekningum þó eins og gerist og gengur. Sam- keppnin, sem hefur haft ólík áhrif á íslenskt sjónvarp, hefur því miður nær einvörðungu tengst fréttaöflun og áherslum en ekki úrvinnslu, hvort hvað varðar texta né myndir — en á þeim sviðum eru íslensku frétta- stofumar helst eftirbátar er- lendra stöðva. Önnur innlend framleiðsla hefur verið brösótt. Megin ein- kenni hennar er að farið hefur verið af stað með ýmislegt sem síðan aldrei náði þroska. Spurn- inga- og gamanþættir, hringiður og annað í þeim dúr hefur ekki náð að skjóta rótum þó svo for- múlurnar hafí gengið í áraraðir erlendis. Þó svo Stöðin hafí fram- leitt vandaða þætti, eins og Áfanga og þáttinn um Halldór Laxness, þá virðist nú svo að samkeppni stöðvanna sé því mið- ur bundin við magn fremur en gæði. Dýpstu sporin sem Stöðin hef- ur markað eru þau að með til- komu hennar tvöfaldaðist ekki fjöldi útsendingarstunda hér á landi heldur margfaldaðist. Stöð- in bauð mun lengri dagskrá en ríkissjónvarpið, sem varð til þess að það lengdi sína dagskrá. Sjón- varpslausir fímmtudagar, sem útlendingum þóttu lygilegri en miðnætursólin, hurfu í djúp for- tíðar. Stór hluti dagskrár Stöðv- arinnar er kvikmyndir, barnaefni og íþróttir og víst er að vegna tilkomu hennar hefur ríkissjón- varpið bætt þjónustu sína við áhugafólk um þessa hluti. Það fer ekkert á milli mála að það er samkeppni stöðvanna á þess- um sviðum sem sett hefur mest- an svip á þróun sjónvarpsmála á íslandi á síðustu þremur árum. Hann er ekki kominn í forskóla sá krakki sem fæddist þegar Stundin okkar var allt það barna- efni sem í boði var, íþróttir voru hálftími á mánudagskvöldum og eitthvað á laugardögum og þegar á dagskrá voru tvær kvikmyndir á viku. Urskurðurinn yfír þeirri stöð sem þremenniugamir skópu hlýtur því að verða sá að hún leiddi til aukinnar fjölbreytni án þess að það kæmi almennt niður á gæðum þess sem fólki var boðið upp á. Þeir sem fengu full- nægju af því sem í boði var vor- ið ’86 hljóta að fá hana áfram, en líklegt verður að teljast að þeim hafi eitthvað fjölgað sem telja að íslenskt sjónvarp sé full- nægjandi. Afstaða fólks til Stöðvar 2 og starfa þremenning- anna mun hins vegar alltaf ráð- ast af hvort því fínnist afþreying- ar- og menningarsjónvarp af hinu góða eða illa. Sullukollamir meðal vor fjölmiðlaúttektinni hér í opnunni um daginn, sem meðal annars forsætis- ráðherra vor var svo vænn að taka þátt í, furðaði hann sig á því hve sumir þeirra fréttamanna sem þættust eiga við hann erindi væru slælega undirbúnir. Orðrétt sagði forsætisráðherra vor: „Stundum fínnst mér frétta- maðurinn ekki hafa minnstu hugmynd um það sem hann er spyija um ...“ Maður kann að vísu slatta af dæmum úr fyrndinni um miður heppilegar spurningar kolleganna að ekki sé meira sagt, svosem einsog þegar nýbakaðan stúdentinn fýsti allt í einu að vita uppúr eins manns hljóði hver sjálfur þremillinn þessi hrogn væru eiginlega sem menn væru að tala um. En þóað sú dúndr- andi þögn sem þá sló á við- stadda hafí fylgt manni æ síðan, þá ætla ég að það hafi verið með fjölmiðiabylt- ingunni sem svo er kölluð sem snillingar af þessari stærðargráðu byrjuðu að láta að sér kveða í alvöru. Ég reyndi þetta enda á sjálfum mér snemma í vetur. Onefndur garpur á „fijálsri" útvaipsstöð einsog það skal stundum heita, sem gerði mér boð um að slá á þráðinn til sín, gat í fyrstu hvorki komið fyrir sig manninum né tiiefninu þegar ég varð við bón hans. Að lokum kvik.naði samt á perunni, og kom þá á daginn að hann vildi ólmur fá mig í rabb- þáttinn sem hann var með og hvar hann hugðist eiga við mig dálítið spjall um greinarkorn nokkurt sem ég hafði þá nýverið skrifað. Aftur á móti heyrðist mér hinn snjalli útvarpsmaður verða hálf svona hvumsa þegar ég gerðist svo djarfur að hryggbijóta hann. Lái mér hver sem vill, en mér fannst maðurinn ekki beinlínis traustvekjandi. Samt voru það ekki hremm- ingarnar einar saman sem þegar hefur verið lýst sem riðu baggamuninn þannig séð. Mér fannst mælirinn gerast ískyggilega fullur og fór jafnvel að efast um geð- heilsu mannskrattans þegar það rann upp fyrir mér að hann hafði raunar ekki enn haft fyrir því að lesa þetta skrif mitt sem þó átti að heita kveikjan að öllu saman. Það hann vissi um innihaldið, einsog hann upplýsti án þess að blikna eða blána, hafði hann frá starfsbróður sínum ef ég skildi hann rétt. Maður á ekki að alhæfa, satt er það, en síbyljugarp- arnir sem nú ganga ljósum logum í fjölmiðlaheiminum sýnast á stundum öllu klár- ari í talandanum en í kollin- um. Það er allavega stórum meiri völlur á þeim en í þá góðu gömlu daga þegar Helgi Hjörvar var hálf dag- skráin og Jón Eyþórsson veð- urfræðingur með Daginn sinn og veginn hinn helming- urinn. En um okkur blaða- og útvarpsmenn gildir eflaust sama lögmálið og sendibílastjóra til dæmis; nefnilega að því fjölmennari sem stéttin verði því fleiri labbakútar hafni við lítinn orðstrír ýmist inni í húsa- görðum eða utanum ljósa- straura. Málfarslegar hundakúnst- ir af þessu tagi sem eru fjöl- miðlafólki til lítils sóma voru tilefni fundamefnu þar sem ég var mættur fyrir skemmstu til þess að beija mér stundarkorn í návist nokkurra starfssystkina útaf óhæfuverkum stéttarinnar. Ég hafði hripað hjá mér fá- ein dæmi sem ýmist mátti tekja til kæruleysis og/eða tómlætis eða þá einfaldlega vanþekkingar. í einu þessara dæma — og sem hafði þar að auki séð dagsins ljós sem stóreflis fyrirsögn — var vitni ekki vefengt heldur „dregið í efa“. í öðru höfðu strák- pjakkar verið staðnir að því „að versla ódýrt áfengi". I því þriðja hafði nafngreindur þjálfari svo og svo marga leikmenn „innan vébanda sinna“. Og útgerðarmaður nokkur lét bátana sína ekki einasta sigla með aflann heldur „sigla með aflann er- lendis“, eða með öðrum orð- um að hringsóla með hann þarna ytra og þá vísast til eilífðar einsog hveijir aðrir heijans fljúgandi Hollend- ingar. Við sátum þama með níðþungan vandlætingarsvip og hörmuðum örlög tung- unnar okkar. Eldur brann í augum vorum þar sem vér fussuðum og sveiuðum hvert uppí annað af ótrúlegri inn- lifun. Einn viðstaddra hafði að vísu lýst yfír í upphafi að í hans augum væru fundir af þessu tagi eintóm tíma- sóun, en ég reiknaði dæmið þannig að hann væri annað- hvort svona hrikalega beisk- ur í svipinn ellegar með svona hrikalegar innantökur. Að lokum hvatti ég menn til þess að þrástagast ekki á sömu orðunum í fréttaskrif- um sínum einsog langtum of oft vill brenna við og las þeim til viðvörunar eftirfar- andi hrollvekju frá liðnu sumri: „Einar Vilhjálmsson varð sigurvegari í spjótkasti á sterku alþjóðlegu móti, sem fór fram í Tókyó um helgina. Einar kastaði spjótinu 83,86 m. Einar var í miklu formi á mótinu og fékk Einar sér- staka viðurkenningu fyrir að ná besta afreki mótsins." Ég var sæll og glaður þeg- ar ég skoppaði mína leið, bókstaflega tindilfættur af stolti og bjartsýni. Stöku sinnum, hugsaði ég hreyk- inn, er maður þó til einhvers gagns. Þegar ég opnaði blaðið daginn eftir hófst fyrsta fréttin sem ég barði augum á þessum orðum: „Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra segir að ekki sé einhlítt að frumvarp fjár- málaráðherra, um að orku- fyrirtæki greiði tekjuskatt, sé annmarkalaust. Hann vill láta endurskoða frumvarpið og yfirfara rækilega í með- förum Alþingis og segist hafa sett af stað athugun á áhrifum frumvarpsins á orkufyrirtækin. Forsvars- menn orkufyrirtækja telja frumvarpið meingallað . . .“ Gísli J. Ástþórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.