Morgunblaðið - 04.02.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990
C 19
i@MI
Vonbrigði - sorglegt hvernig
Fræðsluvarpið fór, segir Sigrún
Stefánsdóttir.
ÞORP í Norður-Yorkshire á
Norður-Englandi hefur bannað
„diska“ til að taka við sjónvarps-
sendingum frá gei’vihnöttum á
þeirri forsendu að þeir setji ljótan
blett á umhverfið. Fjórir móttöku-
diskar, sem þegar hefur verið kom-
ið fyrir, verða fjarlægðir úr þorp-
inu, sem heitir New Earswick og
er skammt frá York.
íbúar New Earswick eru 2.500.
„Súkkulaðikóngurinn" Joseph
Rowntree kom þorpinu á laggirnar
um aldamótin til að gefa fátæku
og öldruðu fólki kost á að eignast
hús á viðunandi verði í fögru, vina-
legu og heilnæmu umhverfi.
Sigrún veitti forstöðu svonefndu
Fræðsluvarpi á vegum mennta-
málaráðuneytisins og kvaðst hún
hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum
með hvernig þau mál enduðu. „Eins
og fólk veit fengust ekki nægar
ijárveitingar í Fræðsluvarpið og það
hefur verið lagt niður í þeirri mynd
sem það var í. Mér finnst hálf sorg-
legt að hugsa til þess hvernig þetta
fór, og kannski sérstaklega að
Fræðsluvarpið fékk aldrei tækifæri
til að vaxa úr grasi. Þegar svona
starfsemi leggst einu sinni niður
er erfitt að bytja aftur og það þætti
mér mjög miður því svona Fræðslu-
varp á vissulega rétt á sér og getur
orðið að miklu gagni ef rétt er hald-
ið á málum. Eg er sannfærð um
að það hefði mátt gera þarna góða
hluti, en dagskrárefni í útvarp og
sjónvarp verður ekki til á áhuganum
einum. Þetta er dýr miðill. En ein-
hvern veginn fékkst ekki nægur
skilningur á mikilvægi þessa starfs
og því fór sem fór.“
Síðastliðið haust annaðist Sigrún
ráðgjöf fyrir nýstofnaðan Fjölmiðla-
skóla íslands, en hún kvaðst nú
hafa slitið öllu samstarfi við
skólann. „Þeir komu að máli við
mig í nóvember og báðu mig um
að koma með hugmyndir að nám-
skeiðum fyrir skólann, sem ég
gerði. í framhaldi af því var ég
Eins og ég hafí aldrei farið
- segir Sigrún Stefánsdóttir, sem er aftur komin til
starfa á fréttastofii Sjónvarpsins eftir tveggja ára fjarveru
Þorpsbúar
banna diska
SKIUÐ SKATTFRAMTAU
„ÞEGAR ég kom inn á fréttastofuna um helgina fannst mér eins og
ég hefði aldrei farið. Þetta var svona eins og að koma aftur úr helg-
arfríi," sagði dr. Sigrún Stefánsdóttir, sem hefúr nú hafið störf á
fréttastofu Sjónvarpsins eftir að hafa verið fjarri fréttamennsku í
rúm tvö ár. Sigrún kvaðst hafa verið ráðin í stað Helga H. Jónsson-
ar, sem er í fríi fram á vor, en óráðið væri hvort hún yrði áfram á
fréttastofunni eftir að Helgi kemur aftur til starfa.
ég fór til útlanda og þegar ég kom
aftur sá ég stórar og miklar auglýs-
ingar þar sem ég er kynnt sem
forstöðumaður skólans. Mér fannst
þetta misnotkun á nafni mínu enda
rangtúlkun á mínu hlutverki þarna
þar sem ég var með þessu gerð
ábyrg fyrir þessum skóla. Ég gat
engan veginn fellt mig við þetta
og ákvað því að slíta öllu sambandi
við skólann, en ég óska honum hins
vegar alls hins besta í framtíðinni,"
sagði Sigrún Stefánsdóttir.
Sigrún lauk doktorsprófi í fjöl-
miðlafræði frá háskólanum í
Minnesota árið 1987. Á undanförn-
um árum hefur hún meðal annars
annast kennslu á sérstökum nám-
skeiðum á vegum Félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands í hagnýtri
fjölmiðlun. Hún kvaðst binda vonir
við að í félagsvísindadeild væri
kominn vísir að sérstakri fjölmiðla-
deild við háskólann enda teldi hún
eðlilegast að nám í þessu fagi þró-
aðist innan Háskóla íslands.
beðin að taka að mér stjórn skólans.
Ég hafnaði því boði en féllst á að
vera þeim innan handar með þróun
þessa verkefnis, með ráðgjöf og
þess háttar. Síðan gerðist það að
FOLK
í fjölmiðlum
■ HELGI
H. Jónsson,
varafréttastjóri
á Sjónvarpinu,
hefur tekið sér
tímabundið frí
frá störfum á
fréttastofunni á
meðan hann
vinnur að gerð
sjónvarpsþátta
Helgi E.
Helgason
um hernámsárin á íslandi. Áætlað
er að sýningar hefjist á sjálfan
hernámsdaginn, 10. maí næst-
komandi. Gunnar Kvaran frétta-
maður mun gegna störfum Helga
á meðan þar eð Helgi E. Helga-
son, sem lengstan starfsaldur hef-
ur á fréttastofu Sjónvarpsins,
verður önnum kafinn við undir-
búning og framkvæmd kosninga-
sjónvarpsins vegna bæjar- og
sveitarstjórnarkosninganna í vor.
ITÆKATIÐ
Skattframtali 1990 vegna tekna 1989 og eigna í árslok á að skiia í síðasta
lagilO.febrúar.
Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá
skattstjórum sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseðla áfram eftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á ^
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launurn?
SIDASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ER10 FEBRÚAR.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjöl-
miðlafræðingur mun hins vegar
koma til starfa á fréttastofunni
sem fréttamaður um óákveðinn
tíma eins og fram kemur í viðtali
við hana hér á síðunni...
RSK
RÍKISSKATTSTJÖRI