Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
91.tbl. 78. árg.__________________ '________________ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Olíuhreinsimarstöd-
inni í Litháen lokað
Vilnius. Reuter.
BYRJAÐ var að loka einu olíu-
hreinsunarstöð Litháens vegna
skorts á hráolíu í gærmorgun,
fimm dögum eftir að sovésk
Króatía;
Þjóðernis-
sinnar búast
við stórsigri
Zagreb. Reuter.
ÞJÓÐERNISSINNAR virtust
í gær ætla að binda enda á
45 ára alræði kommúnista í
júgóslavneska lýðveldinu
Króatíu með stórsigri í þing-
kosningunum sem fóru þar
fram á sunnudag.
Fyrstu tölur bentu til þess að
Króatíska lýðræðissambandið,
flokkur þjóðernissinnaðra
hægrimanna, fengi meirihluta
þingsæta. „Eg er viss um að
70 af hundraði frambjóðenda
okkar bera sigur úr býtum í
fyrri umferð kosninganna. Við
erum þegar farnir að huga að
myndun stjórnar án samstarfs
við aðra flokka,“ sagði Jusig
Manolic, varaformaður flokks-
ins.
Leiðtogi flokksins, Franjo
■ Tudjman, hefur lofað að beita
sér fyrir aukinni sjálfstjórn Kró-
atíu og jafnvel aðskilnaði frá
Júgóslavíu. Hann hefur krafist
landsvæða af nágrannalýðveld-
inu Bosníu-Herzegovínu og átt
í deilum við leiðtoga Serbíu,
stærsta lýðveldisins, sem vilja
halda í miðstýringu frá Belgrað.
Umbótasinninn Milan Kucan,
frambjóðandi kommúnista, var
kjörinn forseti nágrannalýðveld-
isins Slóveníu í kosningum á
sunnudag. Embættið er valda-
lítið en kosningabandalag
hægri- og miðflokka bar sigur
úr býtum í þingkosningum í lýð-
veldinu fyrir tveimur vikum.
stjórnvöld stöðvuðu olíuflutninga
til hennar.
Bílaumferð hefur minnkað veru-
lega í Litháen frá því sovésk stjórn-
völd gripu til efnahagsþvingana
gegn Litháum. Tekin hefur verið
upp skömmtun á bensíni og fær
hver bílstjóri aðeins 30 lítra á mán-
uði. Talið er að fleiri verksmiðjum
verði lokað á næstu dögum vegna
hráefnisskorts og verður þá starfs-
mönnum þeirra að öllum líkindum
sagt upp.
Arkadíj Maslenníkov, talsmaður
Míkhaíls Gorbatsjovs, sagði að sov-
ésk stjórnvöld væru ekki að reyna
að knésetja Litháa og myndu ekki
fara fram á að þeir drægju sjálf-
stæðisyfirlýsinguna frá 11. mars til
baka. Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, fagnaði þessari
yfirlýsingu og sagði að tekið yrði
tillit til hennar þegar Bandaríkja-
stjórn tæki ákvörðun um hvernig
bregðast skyldi við efnahagsþving-
unum Sovétmanna. Clayton Yeutt-
er, landbúnaðarráðherra Banda-
ríkjanna, útilokaði í gær að bann
yrði lagt við kornsölu til Sovétríkj-
anna.
Sjá: „Greinum ekki á milli ...“
á bls. 22.
Þýsku ríkin;
Keuter
Skálmöld íNepal
fjórir menn biðu bana í Kathmandu, höfuðborg Nepals, í gær er lögregla hóf skothríð á reiða mótmælend-
ur, sem höfðu ráðist á tugi lögreglumanna og orðið að minnsta kosti tveimur þeirra að bana. Á myndinni
sjást mótmælendur sparka í lögreglumenn en þeir voru sakaðir um að hafa reynt að grafa undan bráða-
birgðastjórninni, sem tók við völdum í landinu fyrir fimm dögum. Mótmælendur gengu berserksgang um
götur borgarinnar í um átta klukkustundir. Útgöngubann var sett í höfuðborginni vegna óeirðanna og var
lögreglunni heimilað að skjóta á þá sem virtu það að vettugi.
Mörkín lögð aðjöfiiu
gagnvart almenningí
Bonn. Keutcr.
VESTUR-þýska stjórnin lét í gær
undan kröfúm Austur-Þjóðveija
og samþykkti að breyta launum,
ellilífeyri og að hluta næstum
verðlausu, austur-þýsku sparifé í
vestur-þýsk mörk á genginu einn
á móti einum. Austur-þýska
stjórnin hefúr fagnað þessari
ákvörðun en vestur-þýski seðla-
bankinn hefúr varað við vaxandi
verðbólgu í kjölfar hennar.
„Ákvörðun stjórnarinnar er til
marks um, að hún telur sig ábyrga
fyrir efnahagslegri og félagslegri
þróun í báðum hlutum Þýskalands
og stöðugleika marksins," sagði
Dieter Vogel, talsmaður vestur-
þýsku stjórnarinnar, en þegar tíðind-
Hamborgarar á
afinæli Leníns
Moskvu. Frá Páli Þórliallssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„VIÐ stóðum i þrjá klukkutíma í biðröðinni eftir hamborgaranum
en það var þess virði,“ sagði kona um fertugt er hún kom út af
McDonalds-hamborgarastaðnum við Púshkín-torg í miðborg
Moskvu um kvöldmatarleytið á sunnudag ásamt dóttur sinni og
móður. Það er sagt að eftir að McDonalds-staðurinn var opnaður
hafi biðröðin við grafhýsi byltingarleiðtogans Vladímírs Leníns á
Rauða torginu styst. Það kom einnig í þ'ós á sunnudag er haldið
var hátíðlegt að 120 ár voru liðin írá fæðingu Leníns að biðröðin
við hamborgarastaðinn var lengri en við grafhýsið.
Biðröðin á Púshkíntorgi var á
að giska 500 metra löng á þessum
hátíðisdegi. Það má því nærri geta
að bitinn hafi verið vel þeginn og
mátti sjá marga rogast út með
hamborgara og annað góðgæti í
stórum bréfpokum. „Þetta mætti
nú vera aðeins ódýrara," sagði
konan. „Ég borgaði 36 rúblur fyr-
ir okkur þijár sem er þriggja daga
kaup.“
Þótt ásóknin í vestræna skyndi-
bitann vekti athygli aðkomu-
mannsins kom ekki síður á óvart
hversu mikið var gert úr afmæii
Leníns. Víða á opinberum bygging-
um voru stórar myndir af leiðtog-
Frá McDonalds-hamborgarastaðnum í Moskvu.
Reuter
anum og dagblöðin undirlögð af
minningarorðum um hann. Þó
sagði fréttamaður sovéska sjón-
varpsins að í fyrsta skipti í manna
minnum hefði ekkert minnismerki
verið afhjúpað á afmælisdegi
Leníns. „1 dag heldur hver maður
upp á þennan dag eins og samvisk-
an býður honum," bætti frétta-
maðurinn við. Hann lét þess og
getið að Lettar hefðu fremur kosið
að halda upp á Dag jarðarinnar í
stað þess að helga hann minning-
unni um Lenín.
in spurðust féll gengi marksins
nokkuð og verð á vestur-þýskum
hlutabréfum lækkaði einnig.
Seðlabankinn vestur-þýski vildi,
að goldið yrði eitt vestur-þýskt mark
fyrir tvö austur-þýsk að undanskil-
inni takmarkaðri sparifjárupphæð
en Bonnstjórnin ákvað að kaupa allt
sparifé upp að 4.000 mörkum á
nafnverði. Volker Rúhe, fram-
kvæmdastjóri Kristilega demókrata-
flokksins, CDU, flokks Kohls kansl-
ara, sagði í gær, að samkvæmt þessu
gætu hjón með tvö börn breytt
16.000 austur-þýskum mörkum (um
580.000 ísl. kr.) í jafn mörg vestur-
þýsk og fengju eitt fyrir tvö að auki.
Ríkisstjórn de Maizieres hefur
einnig farið fram á, að launa- og
eftirlaunagreiðslur til Austur-Þjóð-
veija verði hækkaðar til að vega upp
á móti minni niðurgreiðslum en
Bonnstjórnin er treg til þess. Óttast
hún, að það gæti riðið austur-þýsk-
um fyrirtækjum að fullu. Launatekj-
ur Vestur-Þjóðveija eru nú þrisvar
sinnum meiri en bræðra þeirra í
austurhlutanum jafnvel þótt mörkin
séu lögð að jöfnu.
Skuldum austur-þýskra fyrir-
tækja verður breytt á genginu eitt
mark á móti tveimur en þar sem þau
eru flest skuldum vafin væri það í
raun þeirra hagur, að raunverulegt
gengi, um eitt á móti fimm, fengi
að ráða.