Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990 tíctmnn Nú, 8.783 krónur er meíra en ég bjóst við, en það er sjálfsagt apparatinu ykkar að þakka eða kenna ... HÖGNI HREKKVÍSI HVERS VEGNA ÁLVER? Til Velvakanda. Við komum stundum saman nokkrir bændur, sumir hættir bú- skap, aðrir að hætta. Okkur blöskr- ar umræðan og áróðurinn fyrir ál- veri hér í Eyjafirði. Finnst okkur hann rekinn á fremur lágu plani og lítið sem ekkert rætt um þá mengunarhættu sem frá því stafar. Hérna í hinu góðviðrissama og gróðursæia héraði passar ekki að staðsetja álver. Við erum ekki andvígir álveri, sé það reist á opnu svæði, þar sem landbúnaður er ekki stundaður í nánasta umhverfi. En því aðeins finnst okkur það rétt að ótvíræður gróði sé af því, en ekki að þjóðarbúið standi nokkrum millj- örðum skuldugra á eftir. Niirnberg á ný? Eins og kunnugt er, voru réttar- höld mikil á vegum Bandamanna eftir lok síðari heimsstyijaldarinn- ar. Þar komu margir nazistaleiðtog- ar fyrir dóm, en ekki þó nærri allir úr þeim hópi. Sumir höfðu svipt sig lífi (t.d. Adolf Hitler og Heinrich Himmler), aðrir fallið (t.d. Reinhard Heydrich), og enn aðrir sluppu. En líflátsdómar voru kveðnir upp yfír ýmsurn í Niirnberg í októbermánuði 1946. í þeim hópi voru m.a. Her- mann Göring, Alfred Jodl, Wilhelm Keitel og Ernst Kaltenbrunner. Nokkrir voru sýknaðir í Núrnberg, t.d. dr. Hjalmar Schacht (1877- 1970), hinn frægi fjármálasnilling- ur Þjóðveija. En því er þetta rifjað upp hér, að nú loks hafa Rússar viðurkennt fjöldamorð á Pólveijum, sem þeir höfðu áður haldið fram um áratuga- skeið, að Þjóðveijar hefðu tekið af lífi. Framkoma kommúnistaleiðtog- anna í Rússlandi var annars hin svívirðilegasta. Rétt fyrir upphaf heimsstyijaldarinnar síðari hétu Rússar Pólveijum hernaðaraðstoð, ef á þá yrði ráðist. Sömdu því næst við Þjóðveija um skiptingu Pól- iands. Réðust síðan fjöldamorð þau eru áður getur. Sagnfræðingar margir halda því raunar fram, að þar séu ekki öll kurl komin til graf- ar. En nú mun margur spyija: Er ekki full þörf nýrra „Núrnberg“- réttarhalda? Sumir munu þó e.t.v. segja, að flestir séu þeir dauðir, sem þarna báru sökina. Ekki eru þó all- ir dauðir, sem þama komu við sögu, og fjölmörg dæmi eru þess, að menn hafi verið dregnir fyrir rétt vegna stríðsglæpa eftir fjöldamörg ár frá verknaðinum, t.d. Adolf Eich- mann o.fl. Guðm. Guðmundsson Við heyrum marga blöskrast út í mengun í Austur-Evrópu og hér var stofnað umhverfisráðuneyti, væntanlega með vænum kostnaði. Til hvers var slíkt gert ef ekki til að sporna við mengun, sem raunar veitir ekki af. Við teljum að halda ætti fræðslufund hér í Eyjafirði og fá hina færustu sérfræðinga á hann. Garðyrkjustjóri _ Akureyrar sagði á fundi í vetur: „í Eyjafirði á Til Velvakanda. í þætti Velvakanda 30. marz biður Jóhann Þórólfsson um útskýringu á orðunum: „leið oss ekki í freistni" — því að eins og hann segir: „Eg trúi því ekki, að Guð leiði nokkurn mann í freistni.“ Má ég reyna að svara? Ég er sammála Jóhanni, að Guð leið- ir oss ekki í freistni, þ.e.a.s. að hann reyni ekki að fá oss til að syndga, því að „Guð vill, að allir menn verði hólpnir" (1. Tím. 2,4). „Hann vill ekki, að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar" (2. Pét. 3,9). „Ætli ég hafi þóknun á dauða hins óguðlega — segir Drottinn — og ekki miklu fremur á því, að hann hverfi frá illri breytni og haldi lífi“ (Es. 18,23). Jesús segir sjálfur: „Ég er ekki kominn til að kaila réttláta, heldur syndara.“ (Mk. 2,17). Um freistni segir Jakob postuli: „Enginn má segja, er hann verður fyrir freistingu: „Guð freistar mín.“ Guð getur ekki orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálf- ur einskis manns. Það er eigin girnd, sem freistar sérhvers manns og dreg- ur hann og tælir.“ (1, 13-14.) Jesús segir sjálfur: „Af hjartanu koma illa hugsanir, manndráp, hórdómur ... (Mt. 15,19.) „Guð er trúr, sem ekki mun leyfa, að þér freistist um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðizt. (1. Kor. 10,13.) „Leið oss ekki í freistni — heldur frelsa oss frá illú.“ Er textinn ekki undarlegur, eins og Guð reyni að fá oss til syndar? Ég er aftur sammála Jóhanni. Hvernig getum vér þá út- skýrt textann? 1) Fyrst og fremst getum vér hugsað til merkingarfræðilegrar hliðstæðu (semantic parallesism), sem við finnum í Orðskviðunum og Sálmunum, þ.e. í bænum gyðing- anna, sem Jesús iðkaði sennilega daglega. Hendingar Sálmanna eru tvískiptar. Hendingin segir með öðr- um orðum tvisvar það sama, en ýmist með jákvæðum eða neikvæðum formerkjum. í þessu tilfelli þýðir það, að orðin „frelsa oss frá illu“ og að stunda matvælaframleiðslu.“ Ja, hér skal stunda matvælaframleiðslu og héðan á að flytja út vatn og hingað á að krefjast þess að ullar- iðnaðurinn komi aftur, því hér er fólk sem kann til verka við þá fram- leiðslu. Munum það sem þjóðskáldið sagði: „Aldrei ég Eyjaljörð elskaði nógu heitt.“ Þeir sem það gera reisa hér ekki álver. Gamall, eyfirskur bóndi. „leið oss ekki í freistni“ segja það sama, en með ólíkum hætti. „Leið oss ekki í freistni" þýðir þá ekki annað en: hjálp oss, svo að vér syndg- um ekki. K.G. Kuhn og T.W. Manson hafa skrifað um samband milli bæna- texta gyðinganna og bænarinnar „Faðir vor“ hjá Jesú. 2) Ef „leið oss ekki í freistni“ þýðir: lát oss ekki syndga, þá má vitna til annarrar útskýringar. Gamla testamentið hjálpar oss. í annarri Mósebók finnum vér oft orðalagið: „Drottinn herti hjarta Faraós." Þýðir það ekki: „lét hann syndga“? Én í 2. Mós. segir líka oft, að „Faraó sjálf- ur herti hjarta sitt“ og „Faraó hélt áfram að syndga og herti hjarta sitt.“ (2. Mós. 9, 34.) Hvernig getum vér samræmt það? Skýringin kann að vera, að gyðingar í G.T. vilji með slíkum setningum láta í ljós yfirráð Guðs yfir öllu, sem maðurinn gerir. í öðrum setningum benda þeir þó á ábyrgð mannsins. á syndum sínum. Vér getum borið þetta saman við innblástur Biblíunnar, orðs Guðs. Guð er sjálfur samkvæmt kenningu kirkjunnar höfundur Biblíunnar, en af því að þeir menn, sem skrifuðu hana, eru mjög misjafnir, þá er fyrir- komulag texta hennar ekki fullkomið sakir ófullkomleika ritara hennar. Þannig er líka synd manna til staðar vegna veikleika og misbeitingar frelsis vors, án þess að það breyti því, að yfirráð Guðs halda áfram. Sr. J. Habets Afsökunarbeiðni Síðastliðinn laugardag birtist í Vel- vakanda Morgunblaðsins bréf um ijúpnaveiðar, undirritað af veiði- manni. Með bréfi þessu birtist mynd af ijúpnaveiðimanni og er hún með öllu óviðkomandi bréfinu. Morgun- blaðið biðst afsökunar á myndbirt- ingu þessari og ítrekar að veiðimað- urinn á myndinni er á engan hátt tengdur bréfi þessu. FAÐIR VOR ... Víkverii skrifar að er dálítið sérkennilegt að fylgjast með því, hvað einstök orð verða algeng í munni þeirra, sem koma reglulega fram í ljós- vakamiðlum eða eiga viðtöl við blöð. Þetta er ákveðinn hópur fólks, sem er alltaf í fjölmiðlum, eins og allir vita, stjórnmálamenn, forystumenn í atvinnulífi og verkalýðshreyfingu, sérfræðingar o.sv. frv. Á síðustu misserum hafa þessir menn komið sér upp nýju orði. Nú er allt ýmist ásættanlegt eða ekki ásættanlegt! Það er alveg sama um hvaða deilumál er að ræða. Þetta orð - ásættanlegt - kemur alltaf við sögu. Geta þeir ekki komið sér upp meiri fjölbreytni í orðanotkun? Nú fyrir helgina mátti sjá í viðtali við einn úr þessum hópi að eitthvað væri ósamþykkjanlegt! Þá er töluvert um það, að fólk í fjölmiðlum tali um, að eitthvað sé komið til að vera. Þetta er hryllileg enska, eins og allir vita. Er ekki hægt að útrýma þessu úr fjölmiðla- máli með sameiginlegu átaki? xxx Víkveiji sér ástæðu til að hafa orð á því, hvað afgreiðslufólk, sem vinnur við kassa í matvöru- verzlun Hagkaups í Kringlunni, er kurteist og lipurt við viðskiptavini. Þetta er yfirleitt ungt fólk, hlýtt í viðmóti, vekur athygli viðskiptavina á því, ef eitthvað er í ólagi með vöru, sem keypt hefur verið, sýnir umburðarlyndi þrátt fyrir mikinn eril, þegar viðskiptavinir hafa gleymt að láta vigta vöru eða þeim orðið á einhver önnur glappaskot. í stuttu máli sagt er þetta fólk fyrir- ’tækinu til sómá. Mikill kostnaður við símtöl til •útlanda hefur verið gerður að umtalsefni í þessum dálkum. Fyrir skömmu gerði Stöð 2 þessu málefni rækileg skil í fréttatíma m.a. með samtali við einn af forr- áðamönnum Pósts og síma. Svör hans voru ekki sannfærandi. Ef rétt er, að stofnunin noti þessi símtöl til þess að greiða niður samt- öl innanlands er það einfaldlega fáránlegt. Við erum þjóð, sem lifum á útflutningi og það skiptir miklu máli, að samskipti við fólk í öðrum löndum geti verið hröð og ódýr. Eins og skýrt var frá í dáikum Víkverja fyrir skömmu hefur brezkt dagblað flett ofan af þeirri okur- starfsemi, sem tíðkast um allan heim í sambandi við alþjóðleg símtöl og fer ekki á milli mála, að Póstur og sími tekur fullan þátt í þeirri einokunarstarfsemi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.