Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990 Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Tunnurnar með efnaúrgangi grafiiar upp á lóð Steinullarverksmiðjunnar. Framkvæmdasljóri verk- smiðjunnar hefiir gagnrýnt yfirvöld fyrir það hvernig að uppgreftrinum var staðið. Bæjarsljórn heimilaði Steinullarverksmiðjunni að urða; Alltaf farið eftir reglum varðandi úrgangseftii - segir Einar Einarsson framkvæmdastjóri Sauðárkróki. LJÓST er að bæjaryfirvöld á Sauðárkróki ásamt Hollustuvernd gáfti á sinum tíma heimild til urðunar úrgangsefiia á lóð Steinull- arverksmiðjunnar á Sauðárkróki. í samtali við Einar Einarsson, framkvæmdasljóra verksmiðjunnar, kom fram að hann telur að alltaf hafi verið farið í fyllsta máta eftir þeim reglum sem settar hafa verið hverju sinni varðandi úrgang og annað það sem frá verksmiðjunni kemur. Einar sagði að það hlyti hins vegar að orka tvímælis og væri nánast með ólíkindum hvemig að því hafí verið staðið að kanna hvað lægi að baki þeirri fullyrð- ingu að hættuleg úrgangsefni væru grafin innan lóðamarka verksmiðjunnar. Taldi Einar að eðlileg viðbrögð við fréttum um málið hefðu verið að leita svara við því hjá réttum aðilum hvort þær væru tilhæfu- lausar eða hefði við rök að styðj- ast. Síðan hefði mátt, í ljósi þeirra svara, meta það hvort ástæða væri til svo róttækra aðgerða að grafa upp lóð verksmiðjunnar með þeim stórvirku tækjum sem notuð voru. Að öðru leyti vildi Einar ekki tjá sig um þessi mál og taldi eðlilegt að aðilar ræddu saman á fundi, sem fyrirhugaður er í dag kl. 15. Sagðist Einar vonast til þess að þar mættu fulltrúar frá Holl- ustuvemd, lögregluyfirvöldum svo og heilbrigðisfulltrúi ásamt fulltrúum Sauðárkrókskaupstaðar og stjómar Steinullarverksmiðj- unnar. Eftir þann fund ættu mál væntanlega að hafa skýrst svo að hægt væri að gera sér grein fyrir framvindu málsins. BB Sambandið: Reglugerð um almannavarnir ekki íramfylgt: Viðvörunarkerfi eru aðeins í þrem- ur byggðarlögum Vesturhluti Grafarvogs og Ártúnsholt í Reykjavík án almannavarnaflautu Almannavarnaflautur er aðeins að finna í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnarnesi, þrátt fyrir að i reglugerð samkvæmt almannavarna- lögum, sem ríkisstjórnin gaf út 1969, eigi að vera hljóðviðvörunarkerfi í öllum bæjum með yfir 2.000 íbúa. Að sögn Guðjóns Petersen, fram- kvæmdastjóra Almannavarna ríkisins, hefur fjárveitingavaldið ekki samþykkt tillögur Almannavarna um frekari útbreiðslu viðvörunar- kerfisins. „Hljóðviðvörunarkerfið á höfuð- borgarsvæðinu er að stofni til frá áttunda áratugnum. Það má segja að engin þróun hafi verið í uppbygg- ingu viðvörunarkerfis frá 1980, eða í 10 ár,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið í gær. „Árið 1985 skilaði þingkjörin nefnd áliti um efl- ingu almannavama, og í því nefndaráliti var meðal annars kveðið á um markvissa uppbyggingu við- vörunarkerfa í landinu. Við höfum í fjárlagatillögum okkar á öllu þessu tímabili lagt til að þessum tillögum væri fylgt, en því hefur ávallt verið hafnað." Guðjón sagði að áætlun Almannavarna um að þétta kerfið í Reykjavík og bæta við flautum í Garðabæ og Hafnarfirði væri talin kosta um 12 milljónir króna. Að sögn Guðjóns er enn ekkert viðvörunarkerfi í nýja hverfinu á Ártúnsholti í Reykjavík, og ekkert í vestari hluta Grafarvogshverfis. Að auki eru ýmis svæði í borginni, þar sem illa heyrist í flautunum. í Hóla- hverfi í Breiðholti og eldri hluta Grafarvogs eru flautur af nýrri gerð, sem verið er að gera tilraunir með. „Við höfum þessar flautur að láni og höfum ekki einu sinni haft pen- inga til að kaupa þær,“ sagði Guð- jón. „Þetta er kerfi, sem er alveg nýtt á markaðnum, og við höfum hug á að byggja upp ef fáum heim- ild til. Þessar flautur hafa þá eigin- leika, að við getum flautað þeim og talað til íbúanna í gegn um þær líka. Það er mjög heppilegt til dæmis í alls konar mengunarslysum og stað- bundnum áföllum." — Hefðu íbúar í Grafarvogi ekki allir heyrt í almannavamaflautum, þótt ákveðið hefði að senda út við- vörun vegna óhappsins í Áburðar- verksmiðjunni? „Það hefði ekki mátt treysta því. Þegar flautað er á svona stóru svæði í þeim veðurskilyrðum hefðu allir sem voru utan dyra heyrt það, en ekki þeir sem voru inni í vestari hluta hverfisins. Það var stillt veður á þessum tíma, þannig að hljóðdreifing hefði átt að geta verið nokkuð góð. En það er náttúrulega alveg undir hælinn lagt. Það var tilviljun að veð- ur var gott,“ sagði Guðjón. Sjá frásögn af borgarafiindi í Grafarvogi, bls. 18. Arnarflug: Samkomu- lag tekist um greiðslu flug- vallarskatts ARNARFLUG hefur samið um greiðslu innheimts flugvallar- skatts, en félagið hafði fengið lokafrest til 30. apríl til að greiða skattinn. Að sögn Kristins Sig- tryggssonar hefur hluti flugvall- arskattsins þegar verið greiddur, en hann nam samtals um þrem milljónum króna. Rætt um að brjota rekstur- inn upp í sjálfctæð hlutafélög SKIPULAGSBREYTINGAR hjá Sambandi íslenskra samvinnufé- laga eru á nýjan leik til umræðu meðal forsvarsmanna Sambands- ins, í þá veru að breyta deildum Sambandsins í hlutafélög. Þannig mætti ná inn auknu Qármagni í reksturinn, að mati Ólafs Sverris- sonar, formanns Sambandsstjómar. „Við erum að ræða allsheijar- skipulagsbreytingar á Sambandinu,“ sagði Ólafur. „Eg er afskap- lega hlynntur því að skoða hugmyndir að skipulagsbreytingum," sagði Guðjón B. Ólafsson forstjóri. Guðjón kvaðst ekki geta tjáð sig efnislega úm þær hugmyndir sem nú væru til umræðu enda yrðu þær ekki formlega kynntar stjórn Sambandsins fyrr en á fiindi hennar 11. maí nk. til sín nýtt fjármagn, sem er fullt tilefni til þess að skoða þetta mál af fyllstu alvöru. Hvort þetta gæti leyst allan okkar vanda, eða nægi- lega stóran hluta hans, er svo eft- ir að sjá.“ Tæknimaður frá Arnarflugi er nú í Kanada að fylgjast með skoðun á Boeing 373-200-vél í eigu bandarísks flugfélags, sem Arnar- flug hefur tekið á leigu til tveggja ára frá og með næstu mánaðamót- um, en vélin hefur undanfarið verið í verkefnum í Kanada. Leigusamn- ingur Arnarflugs við bandaríska flugfélagið Carnival Airlines rennur út um mánaðamótin, og sagði Krist- inn að allur ágreiningur um greiðslu- fyrirkomulag vegna samningsins hefði nú verið leystur. Aðalfundur Verslunarbankans: Tillögur um nýja menn í sljóm og margfeldiskj ör Á aðalfundi Eignarhaldsfélags Verslunarbankans á laugardag munu formenn samtaka verslunarinnar leggja til að Einar Sveinsson fram- kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra, Haraldur Haraldsson formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, og Þorvaldur Guðmundsson forsljóri taki sæti í stjórn félagsins. Jóhann J. Ólafsson formaður Verslunarráðs stað- festi þetta við Morgunblaðið í gær. Ólafur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að ef af svona skipulagsbreytingum yrði, þyrfti að fjalla um þær á tveimur aðal- fundum Sambandsins. „Fyrri um- ræðan gæti því farið fram á aðal- fundi Sambandsins í byijun júní,“ sagði Ólafur. Rætt er um að breyta skipa- deild Sambandsins í hlutafélag, svo og sjávarafurðadeild, búvöru- deild og jafnvel verslunardeild. Ólafur sagði að ekki væri farið að ræða það enn, hvort hlutabréf yrðu boðin á almennum markaði. En ef til þess kæmi, t.d. varðandi hlutabréf í sjávarafurðadeild, sætu þeir fyrir, sem væru í viðskiptum við deildina:.................... Aðspurður hvaða vanda hann teldi að slík skipulagsbreyting leysti fyrir Sambandið svaraði Ólafur: „Þetta er í raun og veru framhald þeirra skipulagstillagna sem voru til meðferðar í fyrra, nema hvað nú er fremur rætt um hlutafélagsfyrirkomulagið en sam- vinnufélagsformið. Það má því segja að þessar nýju hugmyndir gangi ívið lengra en þær gömlu. Hlutafélagsformið opnar mögu- leika á því að ná nýju fjármagni inn í reksturinn. Mönnum er veitt- ur ákveðinn frádráttur frá skatti við það að kaupa hluti í hlutafélög- um, en ekki er sömu sögu að segja um eign í samvinnufélagi. Hlutafé- lagsfonnið getur því fremur laðað Úr stjórninni eiga að ganga Gísli V. Einarsson núverandi stjórnar- formaður Eignarhaldsfélagsins, Þorvarður Elíasson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og Þorvaldur Guðmunds- son. Orri Vigfússon forstjóri og Guðmundur H. Garðarsson alþing- ismaður eiga eftir eitt ár. ■ Gísli • V. Einarsson sækist eftir endurkjöri í stjórn Eignarhaldsfé- lagsins og mun því væntanlega koma til kosninga á aðalfundinum. Á stjórnarfundi félagsins í gær var lagt fram bréf frá eigendum 97 milljóna króna hlutafjár í Verslun- arbanka, þar sem óskað var eftir að viðhöfð yrði margfeldiskosning, komi til stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins næstkomandi laugardag. Hlutafé þetta nemur um 17% af heildarhlutafé bankans. Samkvæmt lögum, sem samþykkt voru á Al- þingi í vetur, geta 10% hluthafa farið fram á margfeldiskosningu en áður þurfti 20% hluthafa til að fara fram á slíkt. Margfeldiskosning þýðir, að ef kosið er til dæmis í þrjú sæti, og tilnefningar koma um fleiri, geta þeir sem ráða yfir ákveðnum fjölda atkvæða, dreift þeim að vild, og látið þau öll falla á einn mann eða skipt þeim á fleiri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.