Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990 45 Þessir hringdu . . . Skíðaskór og bakpoki Berta hringdi og sagði svo frá að sonur hennar hefði farið í Bláfjöll þann 17. apríl og farið heim með síðustu rútunni klukk- an 10.00 um kvöldið. Þegar á leiðarenda var komið kom á daginn að nýir skíðaskór sem voru í grænum bakpoka voru horfnir. Telur hún að gripimir hafi farið úr rútunni þegar hún stoppaði við Vesturberg í Breið- holti og í Arbæ. Skórnir eru gráir og rauðir. Síminn hjá Bertu er 76679. Gleraugu töpuðust Hans Berndsen hringdi og hafði glatað gleraugum sínum. Hálf- gleraugu í brúnum skinnpoka. Hans alítur að gleraugun hafi tapast á svæðinu frá Kirkju- stræti og að Landssímahúsinu er hann fór þá leið á miðviku- dagsmorgun.. Síminn hjá Hans er 71483. Persneskteppi... Gísli Pétursson hafði samband og velti því fyrir sér hvort ein- hver gæti ekki bent honum á hvar hægt væri að fá gert við persneskt teppi sem hann á. Hann sagði að einhveiju sinni hefði verið grein í Morgunblaðinu um slíkan teppaviðgerðarmann, en hann lagði það ekki nánar á sig, en sæi eftir því nú. Síminn hjá Gísla er 44644. Skárri er skít- ur en sprengja! Til Velvakanda. Eru ráðamenn þjóðarinnar að kalla yfir sig — og alla landsmenn — ógæfu sem ekki er unnt að bæta? Forráðamenn þessarar litlu ey- þjóðar eru vísvitandi, ella eru þeir vitgrannir, að kalla yfir sig svívirðu og þjóðina ógæfu. Eða á að draga borgarstjórn Reykjavíkur til ábyrgðar ef eiturský frá Gufunes- verksmiðjunni berst yfir borgina okkar? Reiði mín og sársauki eftir að hafa melt frétt þulanna sem lýstu ástandinu sem skapaðist í Gufunesi á páskadag, á lítil takmörk. Sof- andi rekur okkur að feigðarósi ef ekki verður strax tekið í árar og það hraustlega. Það er vá fyrir dyrum á meðan áburðarverksmiðj- an er í byggð. Það skiptir engu hve öflugar varúðarráðstafanir eru gerðar. Verksmiðjan skal burt! Ef grannt er skoðað eigum við nægan skít til áburðar. Sárreiður þegn 16. leikvika - 21. apríl 1990 Vinningsröðin: 121-111-XX1-XX1 HVERVANN? 3.114.788- kr. 4 voru með 12 rétta - og fær hver: 642.731- kr. á röð. 70 voru með 11 rétta - og fær hver: 7.769- kr. á röð. Allar upplýsingar um getraunir vikunnar: Lukkulínan s. 991002 AFMÆLISBOÐ I ÞRJA DAGA 0, Hamborgara + frönskum + pepsi = Zt&Oivr Á 8 ára afmælisdegi okkar fyrir skömmu héldum við uppteknum hætti og buðum upp á rétti á vildarkjörum. í afmælið komu á þriðja þúsund manns en annar eins fjöldi þurfti frá að hverfa. Nú ætlum við að framlengja boðið um 3 daga og við vonum að allir fari ánægðir heim. Ath. Boðið stendur fram á fimmtudag 26. apríl oc. það er opið alla daga kl. 11.00-23.30. Verið velkomin ©/ Hraðnétta veitingastaður íhjartaborgarinnar Tryggvagötu og Pósthússtrætis Sími 16480 Getaframleitt jógúrt. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. SIEMENS Kæli - og frvstitœki í miklu úrvali! Lítið inn til okkar og skoðið vönduð vestur-þýsk heimilistœki! Hjá SIEMENS eru gœði, ending og fallegt útiit ávallt sett á oddinn! SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 Metsölublað á hverjum degi! iidíJJi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.