Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
5
Skagaströnd:
Minkur í andabúi
Skagaströnd.
ÞAÐ var Ijót aðkoman hjá Þresti
Árnasyni þegar hann kom í anda-
kofann sinn til að gefa á skírdag.
Minkur hafði komist í kofann og
var búinn að gera þar mikinn usla.
Þröstur, sem er 15 ára, átti 13
endur í kofanum og voru þær nýbyr-
Festi hönd
í netaspili
SJÓMAÐUR frá Siglufirði slasað-
ist nokkuð á laugardag, þegar
önnur hönd hans festist í neta-
spili. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri.
Maðurinn var við annan mann á
trillu sinni þegar óhappið varð. Hann
fór úr axlarlið, sinar slitnuðu og það
flísaðist upp úr olnboganum. Félagi
hans kom með hann að bryggju á
Siglufirði um klukkan 13.30 á laug-
ardag og þaðan var hann fluttur til
Akureyrar, þar sem gert var að
meiðslum hans.
jaðar að verpa þegar minkurinn
komst þar inn og drap 9 þeirra.
Þegar Þröstur kom í kofann um
morguninn var minkurinn búinn að
drepa 8 endur. Þröstur hljóp þá heim
til sín og fékk pabba sinn með sér
og höfðu þeir með sér gildru og
byssu. Þegar þeir feðgar komu í
kofann innan við klukkutíma síðar
var minkurinn búinn að að drepa
eina önd til viðbótar.
Græðgi minksins var slík, að hann
skeytti engu þó þeir feðgar lægju
fyrir honum. Árni Björn, faðir Þrast-
ar, skaut svo minkinn inni í kofanum
þar sem hann var að búa sig undir
að stökkva á eina öndina til viðbótar.
Tjón Þrastar er umtalsvert þar
sem endurnar voru nýlega farnar að
verpa en hann var búinn að ala þær
á dýru fuglafóðri i allan vetur.
Því má svo bæta við að óvenju
mikið hefur sést af mink nú seinni
hluta vetrar. Er það sennilega vegna
þess hve snjóþungt er að minkurinn
leitar meira til sjávar og kemur nær
byggð.
- OB.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Þröstur Árnason með minkinn og hluta af dauðu öndunum.
Eldri hjón
slösuðust
í árekstri
FULLORÐIN hjón slösuðust
nokkuð, þó ekki alvarlega, þeg-
ar vörubifreið var ekið aftan á
fólksbifreið þeirra í gærmorg-
un. Bifreið þeirra er ónýt eftir
áreksturinn.
Slysið varð á mótum Bæjarháls
og Stuðlaháls um klukkan 9.15.
Stórri vörubifreið var ekið aftan á
kyrrstæða bifreið hjónanna, sem
við höggið kastaðist á næsta bíl
fyrir framan. Bifreið hjónanna
lagðist saman og er talin ónýt.
Þau voru flutt á slysadeild, en
meiðsli þeirra eru ekki talin alvar-
leg.
Áskriftarsiminn er 83033
Pað er fátt sem aftrar þeim hjón-
um frá því að láta gamla drauma
rætast. Einn slíkur rættist um
daginn, þegar þau komu á
Péturstorgið í Róm.
Þau eru ákveðin í því að nota
tímann vel og kynnast helstu
stórborgum heimsins á næstu
árum, búa á bestu hótelunum og
njóta þess sem hugurinn gimist.
Samt eru þau ekki hátekjufólk.
Pau eru hins vegar í viðskiptum
við Fjárfestingarfélag íslands.
Pað gerir gæfumuninn.*
*Finnur erfði litla íbúð foreldra sinna fyrir
10 árum og treysti sér ekki til þess að halda
henni við og leigja hana út. Hann þóttist
hins vegar vita að fasteign væri það eina sem
héldi verðgildi sínu í þessu landi. Þess vegna
þorði hann ekki að selja. Ekki fyrren hann
ákvað að leita ráða hjá sérfræðingunum hjá
Fjárfestingarfélaginu:
Finnur seldi íbúðina fyrir 20.000.000
krónur, eða 200.000 nýkrónur í júní 1979
og keypti spariskírteini ríkissjóðs.
Arið 1985 voru þau orðin 2.721.000 kr.
Fyrir þessa upphæð kaupir hann Kjarabréf
og þegar þetta er ritað em þau orðin
10.052.000 kr.
Sigurbjörg og Finnur fá nú u.þ.b. eina mill-
jón á ári í hreinar tekjur af Kjarabréfunum.
Höfuðstólinn snerta þau ekki ennþá. Hann
er varasjóðurinn þeirra.
Það má bæta því við að íbúð, svipuð og sú
sem Finnur seldi, er um þessar mundir met-
in á u.þ.b. 5.500.000 kr. en það er u.þ.b.
helmingur þess sem hann á nú með aðstoð
Fj árfestingarfélagsins.
Þessar tölur eru raunverulegar, en nöfnin
ekki.
Hafðu samband, athugaðu hvort við gctum
aðstoðað þig.
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉIAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI KRINGLUNNI AKUREYRI
28566 689700 11100