Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
3
Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson
Ungir menn brutust inn í Sjálfstæðishúsið á Siglufirði og unnu þar miklar skemmdir. Þeir brutu meðal annars allar rúður í húsinu.
Sjálfstæðishúsið á Siglufírði stórskemmt:
Skemmdarvargamir gripnir við spil
MIKLAR skemmdir voru unnar á Sjálfstæðishúsinu á Siglufirði
aðfaranótt sunnudagsins. Þegar lögreglan kom á staðinn sátu sex
ungir menn í húsinu og spiluðu á spil. Fjórir þeirra hafa viður-
kennt skemmdarverkin.
Sexmenningarnir, sem eru um
tvítugt, komust inn í húsið með
því að bijóta upp hlera í glugga
við hlið útidyrahurðar. „Eftir að
þeir fóru inn í húsið skemmdu
íjórir þeirra nær allt sem hægt
var, til dæmis allar rúður,“ sagði
Gunnar Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Siglufirði í samtali
við Morgunblaðið. „Það var brotið
og bramlað á skrifstofu, í eld-
húsi, samkomusal á göngum og
salernum.“
Fólk sem býr í nágrenni hússins
varð vart við lætin og kallaði á
lögreglu. Þegar hún kom á staðinn
sátu sexmenningarnir og spiluðu
á spil. Við yfirheyrslur játuðu fjór-
ir þeirra á sig skemmdarverkin.
Mönnunum hefur nú verið sleppt
úr haldi, en Gunnar kvaðst reikna
með að þeir þyrftu að greiða háar
fjárhæðir vegna skemmda á hús-
inu. Skemmdirnar-höfðu ekki ver-
ið metnar þegar Morgunblaðið
talaði við lögregluna, en til stóð
að gera það hið fyrsta.
Klæmdist við
börn og bauð
þeim peninga
Handtekinn á leið
til stefnumóts við
unga stúlku
Rannsóknardeild lögreglunn-
ar í Keflavík hefur haft til rann-
sóknar mál Reykvíkings á fer-
tugsaldri, sem grunaður er um
að hafa hringt í 8 -11 ára börn
á Suðurnesjum, og klæmst við
þau. Maðurinn var handtekinn
í Reykjavík þegar hann kom til
stefhumóts við stúlku sem hann
taldi vera 10 ára og hafði lofað
5 þúsund króna greiðslu fyrir
að gera sér ferð í bæinn og hitta
sig.
Að sögn Johns Hill lögreglufull-
trúa í Keflavík hefur lögreglunni
í borist töluvert af ábendingum
um að hringt sé í börn og klæmst
við þau. í því tilfelli sem leiddi til
handtöku manns þessa svaraði 18
ára stúlka í símann þegar maður-
inn hringdi. Hún áttaði sig á hvað
væri á seyði, breytti rödd sinni og
þóttist vera 10 ára. Samtalinu lauk
með því að hún samþykkti að hitta
manninn í Reykjavík. Hann gaf
henni lýsingu á bíl sínum og sagð-
ist mundu borga henni 5 þúsund
krónur fyrir að koma. Stúlkan
hafði samband við lögregluna, sem
beið mannsins á tilsettum tíma
ásamt Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Við yfirheyrslur játaði hann á
sig þetta eina atvik. Málið hefur
verið sent saksóknara.
Eignarhaldsfélag Verslunarbankans:
Stjómarmenn vilja vita hveij-
ir buðu í hlutafé Stöðvar 2
Akvörðun um afstöðu til tilboðsins frestað á meðan
STJÓRN Eignarhaldsfélags Verslunarbankans fi-estaði því í gær að
taka afstöðu til kauptilboðs á 100 milljóna króna hlutafé félagsins í
Stöð 2. Gísli V. Einarsson stjórnarformaður félagsins segir að stjórn-
armenn hafi viljað fá upplýsingar um hverjir stæðu á bak við tilboðið.
Hreppsnefiid Vatns-
leysustrandarhrepps:
Oheppilegt
sambýli flar-
skiptabúnað-
ar og stóriðju
Vogum.
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps telur að loftnets-
búnaður vegna Qarskipta sé í
óheppilegu sambýli við stóriðju á
Keilisnesi á Vatnsleysuströnd,
enda sé svæðið á staðfestu aðal-
skipulagi fyrir Suðurnes ætlað
undir stóriðju.
Póstur og sími hafa verið með
hugmyndir um að reisa loftnets-
möstur og fleira á Keilisnesi, en á
sömu slóðum eru landkostir taldir
heppilegir fyrir nýtt álver.
I samþykkt hreppsnefndarinnar
segir meðal annars: „Hreppsnefnd
væntir skilnings pósts- og síma-
málastjóra á því sjónarmiði hrepps-
nefndar að óviturlegt sé að leggja
valið landkostasvæði fyrir stóriðju
undir ijarskiptabúnað sem væntan-
lega þarf allt önnur skilyrði til trufl-
analausrar starfrækslu.
Vonast er eftir góðri samvinnu
um lausn á þessu máli sem allir hlut-
aðeigandi geta verið sáttir við.“
- EG
Tilboðið er frá ótilgreindum aðil-
um og barst gegnum Jón Magnús-
son lögmann. Er boðist til að kaupa
allt hlutafé Eignarhaldsfélagsins á
nafnverði gegn staðgreiðslu. Til-
boðið stendur fram á miðvikudag.
Ekki hefur fengist staðfest hveijir
standa að tilboðinu. Sýn hf. og fyrri
aðaleigendur Stöðvar 2 hafa verið
nefndir en bæði Jónas Kristjánsson
stjórnarformaður Sýnar, og Jón
Óttar Ragnarsson fyrrum sjón-
varpsstjóri neituðu því.
Gísli V. Einarsson stjórnarfor-
maður hefur hvatt til þess að tilboð-
inu verði tekið, en aðaleigendur
Stöðvar 2, sem mynda meirihluta í
stjórn Stöðvarinnar með 4 fulltrúa
af 5, hafa mótmælt því.
Jóhann J. Ólafsson stjómarfor-
maður Stöðvar 2 sagði við Morgun-
blaðið að samkvæmt hluthafasamn-
ingi, sem gerður var þann 9. janúar
sl. milli Eignarhaldsfélagsins ann-
ars vegar og aðaleigenda Stöðvar
2 hins vegar, gangi út á samstarf
í stjórn félagsins meðan verið væri
að byggja það upp og koma fyrir-
tækinu á rekspöl, eða til ársins
1992.
„Til að standa við þennan samn-
ing þarf Verslunarbankinn að
tryggja að þessir aðilar haldi stjórn
hlutafélagsins á meðan verið er að
reisa það við. Ef að þeir selja allt
sitt hlutafé geta þeir ekki lengur
staðið við samninginn. Hins vegar
geta þeir selt hluta af hlutafé sínu
i og samt staðið við samninginn við
okkur og mér dettur ekki annað í
hug en að Eignarhaidsfélagið vilji
standa við samninga," sagði Jó-
hann.
Gísli V. Einarsson sagði við
Morgunblaðið, að í ofangreindum
samningi hefði þvert á móti verið
beinlínis gert ráð fyrir því að hvor
aðili um sig gæti selt sinn hlut,
gegn gagnkvæmum 14 daga for-
kaupsrétti. „Við létum lögfræðing
okkar skoða þessa samninga og
hann sagði að við gætum tekið
hvaða tilboði sem er, að því tilskildu
að aðaleigendurnir gætu beitt for-
kaupsrétti sínum,“ sagði Gísli.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins tengjast átökin um sölu
á hlutafé Stöðvar 2, átökum um
stjómarsæti í Eignarhaldsfélaginu,
en helstu hluthafar Verslunarbank-
ans vilja styðja Harald Haraldsson,
sem einnig er hluthafi og stjómar-
maður í Stöð 2, til formennsku í
félaginu í stað Gísla V. Einarsson-
ar. Gísli sagði um þetta, að honum
gengi það eitt til að vinna að hags-
munum Eignarhaldsfélagsins og
Verslunarbankans. Og hann teldi
að þeir hagsmunir væm ekki hafðir
að leiðarljósi, ef stjórn Eignarhalds-
félagsins hafnaði tilboðinu.
Hlutafé í Stöð 2 er nú 505,5
milljónir. Þar af á hópur kaup-
manna, sem stendur að Fjölmiðlun
sf., 250 milljónir króna, fyrri aða-
leigendur þeir Jón Óttar Ragnars-
son, Hans Kristján Árnason og
Ólafur H. Jónsson ásamt fleirum,
eiga fyrir 155,5 milljónir og Eignar-
haldsfélag Verslunarbankans 100
milljónir.
Jón Óttar Ragnarsson sagði við
Morgunblaðið að þetta mál sýndi
enn frekar fram á nauðsyn þess að
opna hlutafélagið um Stöð 2 fyrir
almenning. „Og það að meirihluti
hluthafa hefur ekki skilað inn 85
milljónum króna af hlutaíjárloforð-
um sínum, á sama tíma og okkur
var þröngvað til að standa við okk-
ar loforð, finnst mér sýna að það
er óþolandi misrnunun milli hlut-
hafa,“ sagði Jón Óttar.
Jóhann J. Ólafsson sagðist ekki
kannast við að enn vantaði upp á
innborgun hlutafjár. Allt hlutafé
væri komið inn og búið að greiða
það ýmsum lánardrottnum félags-
ins fyrir löngu.
Jóhann J. Ólafsson vildi ekki
upplýsa hvaða niðurstaða hefði orð-
ið á rekstri Stöðvar 2 á síðasta
ári. Ársreikningum Stöðvar 2 fyrir
síðasta ár hefur ekki verið lokað,
að sögn Jóhanns, þar sem endur-
skoðendur hefðu gert athugasemdir
við ýmsa liði. Morgunblaðið hefur
upplýsingar um að tap á rekstri sé
vel á annað hundrað milljónir króna.
Stöð 2 hefur sagt upp Endur-
skoðun hf. sem endurskoðanda fyr-
irtækisins, og ráðið Símon Gunnars-
son hjá N. Manscher í staðinn. Stað-
festa þarf þá ráðningu á aðalfundi.
Borgaraflokkur ekki í ftamboð
Á stjórnarfundi kjördæmisfélags Borgaraflokksins í Reykjavík í
gærkvöldi var ákveðið að hætta við framboð í Reykjavík á þeim
forsendum að þátttaka Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar alþingismanns
í framboði Nýs vettvangs hefði skaðað svo framboðsmál Borgara-
flokksins að hin mikla samstaða sem um framboðsmál flokksins ríkti
sé nú brostin. Jafnframt var felld tillaga um að styðja framboð Nýs
vettvangs.
Framboðslisti Nýs vettvangs
verður kynntur í dag. Á honum
verða m.a. tveir fyrrverandi ráð-
herrar, þeir Magnús H. Magnússon
og Magnús Torfi Ólafsson. Þá skip-
ar Guðrún Jónsdóttir fyrrverandi
borgarfulltrúi Kvennaframboðsins
heiðurssæti listans.
Röð 8 efstu í prófkjöri er óbreytt.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins skipa eftirfarandi 9-15.
sæti: Pálmi Gestsson leikari, Rut
L. Magnússon tónlistarmaður, Sig-
urlaugur Magnússon hafnarverka-
maður, Ásbjörn Morthens tónlistar-
maður, Vilhjálmur Árnason heim-
spekingur og Helgi Bjömsson leik-
ari.
Til stóð að Auður Jacobsen for-
maður kjördæmisráðs Borgara-
flokksins yrði á listanum, ef flokks-
félagið í Reykjavík samþykkti að
lýsa yfir stuðningi við Nýjan vett-
vang. Auður sagði við Morgunblað-
ið, að þrýst hefði verið á sig að
taka sæti á listanum en hún hefði
hafnað því.