Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
Pétur Sig’urdsson
kaupmaður - Minning
Fæddur 23. júní 1918
Dáinn 13. apríl 1990
Elskulegur vinur okkar er látinn,
Pétur Sigurðsson, kaupmaður og
fyrrverandi eigandi Herradeildar
P&Ó. Hann lést í Landspítalanum
j)rettánda þessa mánaðar eftir
stutta legu, sjötíu og eins árs. Pét-
ur var yndislegur maður, hann var
giæsilegur, hann hafði allt það sem
prýða má einn mann. Góður, trygg-
ur og vinur vina sinna. Við hjónin
ásamt Pétri og Diddu réðumst í það
að byggja hús saman á Hagamel
33. Bjuggum við saman í um það
bil 20 ár, við á fyrstu hæð en þau
á annarri hæð. Það var mikill sam-
gangur á milli okkar og kærleikur
í ríkum mæli. Öll þessi ár var sam-
komulagið svo gott að aldrei bar
skugga á. Það var oft glatt á hjalla
hjá okkur og okkur oft boðið upp
í gleðskap. Þá var sameignarmaður
Péturs, Oli, og mágkona mín þar
einnig. Óli spilaði á píanóið og við
tókum lagið. Pétur var sérstakiega
músíkalskur maður og hafði góða
og fallega söngrödd. Einnig hafði
hann mikið yndi af ljóðum og kunni
mörg þeirra utan að. Það var unun
að hlusta á hann fara með kvæði,
röddin djúp og falleg og framburð-
urinn skýr svo að maður naut þess
að hlusta á hann.
Pétur var sérstaklega barngóður
og börnin okkar hændust mjög að
honum og þóttu vænt um hann.
Það er mikil eftirsjá í slíkum manni
og mestur er söknuðurinn hjá hans
góðu konu, börnum, tengdabörnum
og bamabörnum. Eg bið Guð að
blessa minningu Péturs Sigurðsson-
ar og votta ástvinum hans öllum
samúð mína.
Anna Linnet
FRÍSPORT
oúncM,
íafísiít
Amerískir körfuboltabolir,
aldrci meira úrval, ný módel.
• Boston Celtics
Verð kr. t400,-
• Barkley
• NBA (All Star) 1990
• Dominique Wilkins
• Chicago Bulls
• Magic Johnson
• Detroit
• Isiah Thomas
• Los Angeles Lakers
• Joe Montana úr ameríska
fótboltanum.
Húfur, verð kr. 1.050,-
(Jordan, Magic, Isiah Thom-
as, Dominique Wilkins).
Veifur, verð kr. 370,-
(Jordan, Magic, Isiah
Thomas)
Límmiðar, verð kr. 150,-
(Jordan, Isiah Thomas,
Dominique Wilkins, Larry
Bird, Charles Barkley)
Maður aprílmánaðar:
Magic Johnson
All Star leikmaöur 1990
Allar Magic Johnson
vörurmeð 10% afslætti.
Amerískir íþróttagallar
fyrir börnin, framtíðarleik-
mennina.
íþróttagallar frá 6 mánaða.
Mikið úrval, gott verð.
Gott úrval affótboltum.
Verð frá kr. 950.-
Ég minnist látins vinar og læri-
meistara, Péturs Sigurðssonar
kaupmanns.
Það var í desembermánuði 1973,
að ég réði mig til starfa hjá þeim
félögum Pétri og Óla í Herradeild
P & Ó. Það var þá, að okkar fyrstu
kynni hófust, kynni er áttu eftir að
móta lífsleið mínk.
Það voru einstakar móttökur sem
19 ára síðhærður menntaskólapiltur
fékk á jafn virðulegum stað. Ég
fann það fljótt, að ég var velkominn
ekki eingöngu sem starfsmaður
heldur einnig sem félagi.
Án þess að vita það þá, hófst
þarna nýr þáttur í lífi mínu. Nýr
þáttur í mennt minni til lífs og
þroska. Þáttur sem átti einnig eftir
að móta lífsskoðanir mínar og per-
sónu.
Pétur lét mann glöggt finna, að
það voru engin 36 ár, sém skildu
okkur að. Hann hafði áhuga á öllu
því, er að mér og okkur strákunum
í búðinni sneri. Hann var okkur sem
félagi og jafningi en samt sem leið-
togi og við bárum virðingu fyrir
honum. Hann var sem faðir og
uppfræðari.
Allir þeir menn sem störfuðu
undir handleiðslu Pétur, mótuðust
af hans sterka persónuleika og hlýja
viðmóti. Margir þeirra hafa valið
sér verslunarstörf sem lífsstarf líkt
og hann.
Pétur var búinn öllum þeim
mannkostum, sem sérhver maður
getur óskað sér. Dyggðir á við hátt-
prýði, ráðvendni, hógværð, ein-
lægni, góðsemi og heiður voru til
dæmis nokkur af aðalsmerkjum
hans. Hann var rómaður af öllum
þeim sem umgengust hann og fág-
aðri og betri framkomu getur vart
hugsast hjá nokkrum manni og mun
seint gleymast.
Pétur var frumheiji í mótun
herratísku á íslandi, bæði með þeirri
vöru, sem hann valdi til sölu í versl-
un sinni og einnig og ekki síður
með smekkvísi sinni í klæðaburði.
Hann var fyrirmynd margra á þann
hátt.
eftirLars Erik
Johansson
Að undanförnu hafa nokkrir
íslenskir fjölmiðlar íjallað um sætu-
efnið aspartam (NutraSweet).
Ástæða er til að ætla að fullyrðingar
sem settar hafa verið fram um eigin-
leika sætuefnisins og aukaverkanir
valdi hinum almenna neytanda
áhyggjum og sérstaklega þeim sem
neyta matar og drykkjar sem sættur
er með aspartam. í þessari grein
verður því leitast við að tilgreina
nokkrar staðreyndir sem sýna að
aspartam er skaðlaust og án auka-
verkana.
Fyrst öiTá orð um hvað aspartam
er. Aspartam (vöruheiti Nutra-
Sweet) er sett saman af tveim gerð-
um amínósýra — asparagínsýru og
fenýlalaníni. Amínósýrurnar eru
tveir af byggingarþáttum í venjulegu
eggjahvítuefni og finnast frá nátt-
úrunnar hendi í kjöti, kornmat og
mjólkurafurðum. í meltingunni
brotnar aspartam niður í byggingar-
þætti sína og fer út í blóðið.
Aspartam er mjög sætt. Það er
um 200 sinnum sætara en sykur og
því þarf aðeins hverfandi magn af
því til að ná sama sætustyrk og
i þegar sykur er notaður. Aspartam
j er því svo gott sem hitaeininga-
I laust. Þegar það brotnar niður í
! meltingunni myndast örlítið magn
af metanóli, en það magn er mun
minna en er til dæmis í ávaxta- og
grænmetissafa.
Meira en 250 milljónir manna í
80 löndum neyta aspartams. Þar á
meðal eru Bandaríkin, Kanada, Jap-
an, Ástralía, Evrópubandalagslöndin
og Norðurlönd. Aspartam var fundið
upp árið 1965 og áður en það var
viðurkennt til neyslu var það rann-
Ég er þakklátur fyrir að hafa
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að kynnast svo góðum manni og
miklum persónuleika. Hann átti
sinn stóra þátt í að móta mig sem
einstakling, var mér hjálpfús og
minn lærimeistari í skóla lífsins og
leikreglum þess. Ég er honum ævin-
lega þakklátur og minnist hans með
hlýhug og söknuði.
Ég óska honum veifarnaðar á
þeirri leið, sem hann hefur nú lagt
út á. Megi hinn hæsti höfuðsmiður
himins og jarðar varðveita hann og
blessa að eilífu. Eiginkonu hans
Diddu, börnum, barnabörnum,
tengdafólki og vinum votta ég mína
dýpstu samúð.
Megi minning hans lifa að eilífu.
Guðmundur Blöudal
Pétur Sigurðsson, vinur minn og
starfsfélagi, er látinn. Hann varð
tæplega 72 ára að aldri.
Það var árið 1932 sem fundum
okkar bar saman. Ég, ellefu ára
drengur, var ráðinn sem sumar-
sendill hjá verslun Haraldar Árna-
sonar í Reykjavík. Drengurinn var
svolítið kvíðinn, að fara á svo virtan
vinnustað, smeykur við hið óþekkta.
Fleiri sendlar voru fyrir á staðnum,
en einn þeirra skar sig úr.
„Ég heiti Pétur“, sagði hann og
bauð mig velkominn með hlýju
handtaki vináttunnar. — Sú vinátta
brást aldrei. Einhvern veginn finnst
mér nú að örlagadísir hafi frá þeirri
stundu byijað að spinna okkur vef.
Vef vináttu og starfs sem entist í
58 ár.
í minningunni er Haraldarbúð,
eins og hún var kölluð síðar, í sér-
flokki sem vinnustaður, átti sér fáa
líka. Þetta var samfélag fólks, sem
lagði sig allt fram til að verslunin
mætti dafna og blómgast. Allt frá
sendisveini og til húsbóndans sjálfs
var náið samband trausts og vin-
áttu.
„Garðurinn var vel ræktaður",
upp úr þessum garði spruttum við
Pétur. Nú er þessi „garður" að
mestu fallinn í gleymsku og þær
sterku stoðir að falla frá sem studdu
okkur á þroskabrautinni. Einn af
þeim kvaddi okkur nýlega, það var
vinur okkar, Sveinbjörn Árnason.
Pétur er sprottinn upp af stórri
fjölskyldu, einn af fímmtán systkin-
sakað í hartnær tvo áratugi í 100
mismunandi vísindarannsóknum.
Ekkert eitt efni fæðunnar hefur
gengist undir jafn viðamiklar rann-
sóknir áður en eftirlitsskyldir aðilar
hafa heimilað það.
Öryggi aspartams er staðfest af
mörgum óháðum vísindalegum
stofnunum og aðilum og er, svo
dæmi séu tekin, viðurkennt af eftir-
litsaðilum í öllum ríkjum Norður-
landa, vísindanefnd Évrópubanda-
lagsins um matvæli, sérfræðinga-
nefnd Alþjóða heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (WHO) um
aukefni og af bandarísku matvæla-
stofnuninni (FDA).
Ovefengjanlegar niðurstöður
Rannsóknirnar sem gerðar hafa
verið á aspartam eru með öðrum
orðum svo margar og svo viðamikl-
ar að niðurstöðurnar sem staðfesta
öryggi þess verða ekki dregnar í
efa. Samt sem áður gerist það
stundum að einstaka aðilar
vefengja að það se skaðlaust. Það
hefur einmitt gerst á íslandi á
síðustu vikum.
ísland er hvorki eina né fyrsta
landið þar sem örj'ggi aspartams
hefur verið dregið í efa. í Banda-
ríkjunum, Danmörku og Svíþjóð,
svo nokkur dæmi séu nefnd, hefur
umræða af þessum toga komið upp
áður. Það er mörgum neytendum
keppikefli að eiga völ á mat og
drykk sem sættur er með hitaein-
ingasnauðum sætuefnum og því er
Iíklegt að þessi umræða valdi ein-
hveijum þeirra — ónauðsynlegum —
áhyggjum.
Einstakir vísindamenn — alls
ekki margir og aðallega banda-
rískir — hafa sem sagt gagnrýnt
aspartam. Margir Ijölmiðlar, einnig
um. Auðlegð þessara stóru fjöl-
skyldu var ekki í veraldlegum auði,
fjölskyldan sjálf var þeirra auður.
Hús þeirra var byggt á bjargi.
Hús staðfestu, kærleika og reglu-
semi. Einn dýran arf kom Pétur
með frá föðurhúsum, að kunna að
meta góða list, list ljóðsins, list
söngsins. Hann elskaði fagrar listir,
fínna andardrátt ljóðsins, voldugan
tón söngsins, boðskap leikverksins
og ekki síst fegurð og tign mynd-
verksins.
Án þessara þátta hefði honum
þótt lífið fátækt og snautt. Það
hefði vantað lífsfyllinguna.
Söngrödd hafði Pétur góða, hlýj-
an baritón. Einna best naut hann
sín í faðmi náttúrunnar, eftir góðan
gleðiríkan útiverudag. Kvöld-
stemmning í veiðihúsi, við fagra
veiðiá eða í fjallakofa upp við jökul-
rætur.
Árið 1956 byggðum við nokkrir
ferðafélagar fjallaskála upp undir
Tindfjallajökli, Tindfjallasel. Þang-
að fórum við, þessi hópur ferða-
langa, á hveijum páskum í mörg
ár. Skáli þessi stendur enn og er nú
í umsjá Flugbjörgunarsveitarinnar.
Bjartur og fallegur dagur er lið-
inn, við erum allir komnir heim í
selið okkar. Tunglskinsbjört nóttin
fyrir utan, inni hlýtt og gott — eitt
kertaljós á borði — við sitjum í
rökkrinu. Það suðar í prímusi, vind-
urinn gnauðar á þekjunni, gluggar
hrímloðnir. Það er páskadagskvöld,
helgistundin tekur okkur alla, ljóð
lesin, sálmar sungnir. „Hærra minn
Guð til þín“ hljómar út í hrímkalda
nóttina. Rödd Péturs bar af.
Félagslíf var ríkur þáttur í starfi
„Opinberar eftirlits-
stofnanir og óháðar
vísindastofnanir hafa
rannsakað aspartam
niður í kjölinn. Allar
stofiianirnar hafa kom-
ist að jákvæðri niður-
stöðu. í þessu samhengi
er fróðlegt að vitna í
nýlegar yfirlýsingar
eftirlitsstofnana í Dan-
mörku og Svíþjóð um
aspartam.“
evrópskir, hafa hent fullyrðingar
þeirra á lofti. Oft hafa þessar full-
yrðingar verið settar fram sem al-
mennar vísindalegar staðreyndir.
Ekkert er Ijær sannleikanum.
Opinberar eftirlitsstofnanir og
óháðar vísindastofnanir hafa rann-
sakað aspartam niður í kjölinn. All-
ar stofnanirnar hafa komist að já-
kvæðri niðurstöðu. I þessu sam-
hengi er fróðlegt að vitna í nýlegar
yfiriýsingar eftirlitsstofnana í Dan-
mörku og Svfþjóð um aspartam.
Engin áhætta
Öryggi aspartam var til umræðu
á árinu 1987 í Danmörku. Hollustu-
vernd danska ríkisins (Levneds-
middelstyrelsen) fór þá á ný ofan
í saumana á vísindalegum rann-
sóknum á aspartam. Niðurstaða
stofnunarinnar var að „notkun as-
partams sem aukefnis í fæðunni er
hættulaus með öllu“. Skýrslan birt-
ist í heild í fréttaefni dönsku holl-
ustuverndarinnar, Publikation nr.
Sætuefiii eru skaðlaus
-
Péturs. Hann starfaði innan
Frímúrarareglunnar á íslandi, var
félagi í Rotaryklúbbi Reykjavíkur,
einn af stofnendum Lionsklúbbsins
Ægis og um nokkurt skeið formað-
ur kaupmannasamtakanna. í trún-
aðarstörf var hann skipaður eins
og meðdómari í sjó- og verslunar-
rétti. Varaformaður verslunarráðs-
ins var hann um tveggja ára skeið.
Árið 1959 stofnuðum við Pétur
Herradeild P&Ó, í Austurstræti 14.
P og Ó stóðu fyrir upphafsstafi í
nöfnum okkar, herradeild er arfur
frá Haraldarbúð. Við störfuðum
lengst af við afgreiðslustörf í herra-
deild Haraldarbúðar. Þetta var á
þeim árum sem innflutningur var
að verða fijáls, höftin afnumin.
Gróskumikill tími framundan fyrir
verslun eins og okkar. Okkur var
mjög vel tekið og eignuðumst við
marga góða vini í gegnum starfið.
Við rákum verslunina í 27 ár og
var allur sá tími góður og gjöfull.
1986 seldum við verslunina og er
hún rekin áfram undir sama nafni.
Árið 1945 giftist Pétur eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Soffíu S.Ó.
Axelsdóttur. Börnin urðu tvö, þau
Pétur Axel og Þuríður Elísabet.
Barnabörnin orðin sex.
Eins og áður hefur komið fram
urðu samverustundirnar 58 ár. Efst
í huga mínum er þakklæti. Þakk-
læti fyrir það, að við hjónin skildum
fá að hafa þau Pétur og Diddu að
vinum, í svo mörg ár, vináttu sem
aldrei bar skugga á.
Margar góðar og gleðiríkar
stundir höfum við átt á þeirra fal-
lega heimili.
Pétur var barn sumarins, barn
birtunar. Hann fæddist 23. júní
1918, Jónsmessubarn.
Didda mín, við Gulla erum með
ykkur í sorginni, Guð styrki ykkur.
Dagsverkinu er lokið, megi hið
skærasta ljós lýsa honum vegferð-
Það er með örfáum orðum, sem
mig langar til að minnast tengda-
föður míns. Kynni okkar hófust
árið 1974, er ég kynntist og síðar
giftist syni hans, Pétri Axel. Ég
mun ekki rekja ættir tengdaföður
míns né störf, það munu mér fróð-
ari menn gera.
Pétur Sigurðsson var drengur
144, Juni 1987.
Hliðstæð eftirlitsstofnun í
Svíþjóð er Statens Livsmedelsverk.
Hún gefur út tímaritið Vár Föda
(Fæðan okkar). í sjötta tölublaði
1988 er svar við spurningunni: „Er
eitthvert sannleikskorn í fullyrðing-
um um að sætuefnið aspartam geti
haft blindu og aðrar skaðiegar
aukaverkanir í för með sér?“ Sömu
fullyrðingu var einmitt nýlega varp-
að fram í íslenskum fjölmiðlum.
Sænska hollustuverndin segir í
svari sínu meðal annars að „sam-
kvæmt því sem vitað er um það
magn af maurasýru*) sem þarf að
vera til staðar í blóðinu til að hætta
á sjóntruflunum skapist er það al-
veg fráleitt að þetta magn geti safn-
ast í blóðið við neyslu á aspartam
sem aukefnis í fæðunni. Annars er
metanól frá náttúrunnar hendi í
ferskum ávöxtum og grænmeti.
Sumir ávaxtasafar innihalda meira
laust og „bundið" metanól en finnst
í drykkjarvörum sættum með as-
partam, svo dæmi sé tekið“.
Að síðustu segir sænska holl-
ustuverndin í svari sínu: „Sam-
kvæmt mati hollustuverndarinnar
er heilsunni engin hætta búin við
eðlilega neyslu á matvælum sættuin
með aspartam.“
Eftirlitsskyldir aðilar á vegum
hins opinbera í öllum löndum gæta
þess að fylgjast náið með vísinda-
legum rannsóknum sem gerðar eru
á aukefnum í mat. Ekki er ólíklegt
að umræðan um aspartam leiði til
þess að yfirvöld séu nákvæmari en
ella þegar þau kynna sér vísindaleg-
ar rannsóknir og niðurstöður þeirra.
Því má telja fullsannað að aspart-
am sé öruggt og hættulaust til
neyslu.
Ilöfundur starfar hjá Alþjóða
sætuefnasambnndinu
Inlernational Sweeteners
Association, Stokkhólmi.
>
)
)
i
)
)
)
)
\
)
)
I