Morgunblaðið - 24.04.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKlPn/AIVlNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
29
SAMNINGUR —Frá undirritun samningsins milli Kaup-
mannasamtaka íslands og Vátryggingafélags íslands. Aftari röð f.v.
Hilmar Pálsson, framkvæmdatjóri vátryggingasviðs VÍS, Guðni Þor-
geirsson, skrifstofustjóri K.Í., Héðinn Emilsson, deildarstjóri á markaðs-
sviði VÍS, Sigurður Sigurz tryggingaráðgjafi á markaðassviði VÍS og
Örn Gústafsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs VÍS. í fremri röð frá
vinstri eru Guðjón Oddsson, formaður K.Í., Axel Gíslason, forstjóri
VÍS og Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri K.í.
Auglýsingar
Ennfremur segir að sameigin-
legt kynningarstarf sé þegar hafíð.
Unnið sé að kynningarbæklingi
fyrir félagsmenn KÍ, þar sem
kynntar verði allar greinar trygg-
inga, sem VÍS bjóði verslunum,
einstaklingum og heimilum.
Tryggingarráðgjafar VÍS munu
taka þátt í fundum Kaupmanna-
samtakanna og kynna samninginn.
Var samningurinn kynntur á aðal-
fundi Kaupmannasamtakanna í
Eyjafirði 31. mars sl.
Sjávarútvegur
MAREL hf. og Hugtak hf. hafa
um nokkurt skeið unnið að því
að auðvelda störf fiskmats-
manna, sem hingað til hefur
fylgt mikil vinna, sem felst m.a.
í því að handreikna hefur þurft
allar matsnótur, að því er segir
í frétt lrá fyrirtækjunum. Hefur
Marel útbúið sérstaka vog, Hrá-
efhisvog, þar sem matsmaður
vigtar og skráir beint inn allt
mat og stærðardreifingu á aflan-
um. Hugbúnaður frá Hugtaki
hf. vinnur síðan úr öllum skrán-
ingum frá voginni. Eru niður-
stöðurnar því næst sendar inn í
Torfa, aflaupgjör fiskiskipa.
Er markmiðið að koma upplýs-
ingum um afla og meðalþyngd til
skila á tölvutæku formi með bein-
tengingu voga og hugbúnaðar. í
fréttinni segir einnig að með þessu
vinnufyrirkomulagi auðveldist
starf matsmanna og í mörgum til-
vikum geti sparast mannskapur
við vigtun og mat. Beinn flutning-
ur á niðurstöðum frá vog í aflaupp-
gjörsforrit leiði til þess að öll með-
höndlun á pappír sé úr sögunni og
innsláttur á gögnum á öðrum stöð-
um verði ekki nauðsynlegur, sem
leiði til þess að minni líkur verði á
villum við útreikninga og inns-
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
lætti. Þannig liggi gögn s.s. vigtar-
skýrslur, reikningar, uppgjör VSK,
uppgjör veiðiferðar o.fl. fyrir um
leið og upplýsingar hafi verið unn-
ar í móttöku.
Frekara samstarf Marels og
Hugtaks er í gangi og vinna fyrir-
tækin að margvíslegum verkefn-
um, sem öll snúa að frekari teng-
ingum vél- og hubúnaðar. Segir í
fréttatilkynningu, að markmiðið sé
að gera allar skráningar sjálfvirkar
og búa til heilsteypt upplýhsinga-
net fyrir fiskvinnslu.
Halldór Guðmundsson formaður SÍA
HALLDÓR Guðmundsson, framkvæmdastjóri auglýsingastofúnnar
Hvíta hússins, var endurkjörinn formaður Sambands íslenskra auglýs-
ingastofa á árlegum aðalfúndi SÍA fyrir nokkru. Á fundinum var rætt
um fagleg vinnubrögð á auglýsingastofum og ímynd stofanna út á við
Ölafur Ingi Ölafsson á íslensku
auglýsingastofunni var kosinn vara-
formaður og Hallur Baldursson á
Yddu gjaldkerk Meðstjórnendur voru
valin þau Ottó Ólafsson á Sameinuðu
auglýsingastofunni go Valgerður
Sigurðardíottir á P&Ö.
Að loknum hefðbundnum aðal-
fundarstörfum ræddu fundarmenn
ímynd auglýsingastofa og fagleg
vinnubrögð. Halldór Guðmundsson
segir að meðal annars hafi verið
rætt um meintan hugmyndastuld í
auglýsingum. „Við teljum að ef eitt-
hvað er reyni menn að forðast að^
líkja eftir öðrum við gerð auglýs-
inga. Þegar sagt er að auglýsingar
séu líkar eða beinlínis stolnar, býr
oft mikil vanþekking að baki.“ Hall-
dór segir að ekki sé óeðlilegt að
teiknarar eða hönnuðir komist að
svipuðum niðurstöðum án _þess að
vita hver af öðrum. Akveðnir
straumar séu ráðandi á hveijum tíma
og stuðli að þessu.
Tryggingar
Samstarfssamningur Kaup-
mannasamtakanna og VIS
UNDIRRITAÐUR hefur verið samstarfssamningur milli Kaup-
mannasamtaka Islands og Vátryggingafélags Islands. Megin mark-
mið samningsins er að bæta tryggingavernd og kjör félagsmanna
KÍ á sviði vátrygginga. Segir í frétt frá VIS að þessu markmiðið
ætli samningsaðilar að ná m.a. með því að efla forvarnir fyrirtækj-
anna með nútíma hátæknibúnaði.
Hagræðing vegna
starfa Sskmatsmanna
Samvinnuverkefni Hugtaks og Marels
f i) ii m, ii it n ?
Ævintýraleg sumardvöl
fyrir 6-12 ára börn
að sumardvalarheimilinu
Kjarnholtum í Biskupstungum
Á sjötta starfsári okkar bjóöum viö upp á
fjölbreytta og vandaða dagskrá: Reiðnámskeið,
íþróttir, leiki, sveitastörf, siglingar, ferðalög,
sund, kvöldvökuro.fl.
V E R
1 vika 15.800 kr., 2 vikur 29.800 kr.
Staðfestingargjald fyrir 1 viku 5.800 kr., 2 vikur 9.800 kr.
Systkinaafsláttur: 1 vika 1.200 kr., 2 vikur 2.400 kr.
I I VI A B I L :
27.maí - 2.júní (1 vika)
3.júní — 9.júní (1 vika)
10-júní - 16.júní (1 vika)
17. júní - 23. júní (1 vika)
24. júní - 6. júlí (2vikur)
8. júlí - 14.júlí (1 vika)
15.júlí — 21.júlí (1 vika)
22. júlí - 3. ágúst (2 vikur)
6. ágúst - 12. ágúst (1 vika)
12.ágúst - 18.ágúst (1 vika)
Innritun fer fram á skrifstofu
SH verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði
Sími 65 22 21
TENTE
VACNHJOL OG
HÚSGAGNAHJÓL
Úrvals vestur-þýsk hjól frá
fíngérðustu húsgagnahjólum og
til burðarmestu iðnaðarhjóla.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670