Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
Viðlagatrygging bæt-
ir tjónið eftir að aur-
skriða féll í Aðalstræti
Lyf vegna dýralækninga að verðmæti um
400 þúsund eyðilögðust í aurskriðunni
VIÐLAGATRYGGING mun bæta það tjón sem varð er öflug aur-
skriða féll á húsið við Aðalstræti 18 síðla fóstudags. Húsið gjör-
eyðilagðist og var það rifið á laugardag. Hættuástandi sem lýst
var yfir í kjölfar þess að aurskriðan féll var aflýst um miðjan dag
á laugardag, en fólk í næstu húsum dvaldi ekki á heimilum sínum
nóttina eftir að skriðan féll. Tveir verkfræðingar frá Verkft-æði-
stofu Sigurðar Thoroddsen könnuðu aðstæður á föstudagskvöldið
að beiðni framkvæmdastjóra Almannavarna á Akureyri og skiluðu
þeir umsögn sinn um atburðinn í gær.
Haraldur Sveinbjö'rnsson, verk-
fræðingur, annar þeirra sem könn-
uðu aðstæður eftir að skriðan féll,
sagði að mikill snjór væri í brekk-
unni ofan Innbæjarins, mun meiri
en venja er til. Neðan til í brekk-
unni er brún þar sem frost var í
jörðu. Vatn, sem bráðnað hefur í
brekkunni fyrir ofan, hefur runnið
niður brekkuna og einnig rann
vatn fram af brúninni við kirkju-
garðinn. Vatnið hefur komist niður
{ gegnum moldarlagið, þar sem
þítt var, fyrirstaða myndast þar
sem frostið var í jörðu og vatns-
þrýstingurinn sprengt sér leið út
með þeim afleiðingum að skriðan
fór af stað. Umsögn verkfræðing-
anna var skilað inn til fram-
kvæmdastjóra Almannavarna Ak-
ureyrar í gær, en í umsögninni er
lagt til að sérfróðir menn á sviði
jarðvegsfræða verði fengnir til að
kanna aðstæður í brekkunni ofan
Innbæjarins.
Fulltrúar frá Viðlagatryggingu
koma til Akureyrar í dag til að
meta tjónið sem varð er skriðan
féll, en Viðlagatrygging mun bæta
tjónið þar sem um náttúruhamfar-
ir er að ræða. Húsið, sem byggt
var árið 1895, var rifið á laugar-
dag. Elfa Ágústsdóttir, dýralækn-
ir, eigandi hússins sagði að bruna-
bótamat hússins hafi verið á bilinu
5-6 milljónir króna. Auk persónu-
legra muna voru. í húsinu tæki til
dýralækninga og stór lager af lyíj-
um. „Ég var nýbúin að fá stóra
pöntun af lyfjum, en þau geymdi
ég í smá útihúsi vestan við húsið.
Þar féll skriðan fyrst og öll
lyfjaglösin fóru í mask. Ég gerði
heiðarlega tilraun til að leita að
þeim í rústunum, en árangurinn
var ekki mikill," sagði Elfa. Hún
áætlaði að verðmæti Iyíjanna hafi
verið um ijögur hundruð þúsund
krónur. Auk þeirra voru svo til öll
hennar tæki til dýralækninga í
húsinu er skriðan fyllti það aur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Aldrei hefur jafti mikill fjöldi fólks verið saman komin í HlíðarQalli og sumardaginn fyrsta, en
áætlað er að tæplega 3.500 manns hafi verið í fjallinu. Sól, logn og gott veður og færið eins og
best verður á kosið, „ekta póstkortaveður," eins og ívar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða
orðaði það.
Metdagur í Hlíðarflalli
AÐSÓKNARMET var sett i Hlíðarfjalli við Akureyri á sumardag-
inn fyrsta, fimmtudag í síðustu viku, en þá er áætlað að um 3.500
manns hafi verið í Qailinu. Veðrið lék við skíðaunnendur, „Hér
var ekta póstkortaveður," eins og Ivar Sigmundsson forstöðumað-
ur Skíðastaða orðaði það.
„Við erum ánægð með þennan
dag, þetta er ansi góður puntur
yfir vertíðina," sagði ívar. Andr-
ésar andarleikarnir, fjölmennasta
skíðamót sem haldið er á landinu,
stóð sem hæst er aðsóknarmetið
var sett og á það stærstan þátt í
hversu margt manna var saman
komið í Hlíðarfjalli.
Stefnt er að því að hafa lyftur
opnar fram til 6. maí næstkom-
andi. ívar sagði að skíðavertíðin
í ár hefði farið seint af stað, en
þegar loks fór að snjóa var
skammturinn ríflegur. „Það hefur
gengið ágætlega hjá okkur í vet-
ur, svona í heildina, en veðrið
hefur ekki leikið beint við okkur.
Ég held ég megi fullyrða að við
höfum aldrei fengið heila góða
helgi, veðrið hefur ævinlega
brugðist annan daginn.“
Píanódeild
með tónleika
PÍANÓDEILD Tónlistarskól-
ans á Akureyri heldur sína
3. tónleika á þessu starfsári
annað kvöld, miðvikudags-
kvöld 25. apríl, kl. 20.30 á
sal skólans.
Margir nemendur koma fram
á tónleikunum og er efnisskráin
fjölbreytt að vanda. Á annað
hundrað nemendur hafa stund-
að píanónám í vetur. Deildin
hefur alltaf notið vinsælda og
nemendum fjölgað ár frá ári.
Sex planókennarar starfa við
skólann og sjá þeir um undir-
búning tónleikanna.
ÚTIHURÐIR
Mikið úrval. Sýningarhurðir á staðnum.
Tré-x búðin, Smiðjuvegi 30, s. 670777,
Brúnás, Ármúla 17, Rvík, s. 84585 og
84461, Tré-x, löavöllum 6, Keflavík, s.
92-14700, Trésmiðjan Börkur, Frosta-
götu 2, Akureyri, s. 96-21909.
91,5 mílljóna króna hagnað-
ur af rekstri IJA á síðasta ári
Starfsmenn fá orlofsuppbót að upphæð 10 milljónir króna
HAGNAÐUR varð af rekstri Útgerðarfélags AJtureyringa á síðasta
ári og nam hann 91,5 milljónum króna. Aðalfundur ÚA var haldinn
í gærkvöldi þar sem þetta kom firam. Sljórn félagsins lagði til að aðal-
fundur tæki ákvörðun um aukningu hlutítflár, sem stjórninni yrði síðan
falið að annast framkvæmd á. Fjármögnun á þann máta yki svigrúm
félagsins til athaftia og hefði jákvæð áhrif á veltufjárhlutfall. Þá lagði
stjórnin til á fundinum að greidd yrði orlofsuppbót til starfsmanna,
að upphæð 10 milljónir vegna viðunandi afkomu. Einnig var lögð fram
tillaga frá stjórninni um að greiða 3% arð til hluthafa.
Pétur Bjarnason formaður stjórn- flutti skýrslu stjórnar á aðalfundin-
ar Útgerðarfélags Akureyringa
Leikfélag
Menntaskólans
á Akureyri
sýnir
Draum a
Jðnsmessunött
eltir William Shakespeare
í Samkomuhúsinu.
Frumsýning
miðvikudag 25/4 kt. 20.30.
2. sýning
fimmtudag 26/4 kl. 20.30.
3. sýning
mónudag 30/4 kl. 20.30.
Ath.: Aðeins þessar þrjár sýningar.
Miðapantanir í síma 24073.
um og sagði hann afkomu félagsins
viðunandi og efnahagsstöðuna
trausta. Ef frá væri taldar rýrar
aflaheimildir virtust horfur fram-
undan þokkalega. Kvóti félagsins
minnkaði um 1.625 tonn á milli ár-
anna 1988 og ’89, þar af um 887
tonn af þorski. Þeirri skerðingu
mætti félagið með kaupum á kvóta
og aðkeyptum afla, þannig að heild-
arafli unnin hjá ÚÁ á síðasta ári var
svipaður og á árinu á undan.
í skýrslu Péturs kom fram að á
síðasta ári var fjárfest fyrir 99,4
milljónir króna, stærsti hluti fjárfest-
ingarinnar, eða rúmlega 70 milljónir
króna var vegna kaupa á bátum og
stærðarflokkara í móttöku frysti-
húss.
Stjóm félagsins lagði fram tvær
tillögur fyrir fundinn, í fyrsta lagi
að greiða orlofsuppbót til starfs-
manna að upphæð kr. 10 milljónir.
Með þeim hætti vill stjórn félagsins
veita starfsfólki viðurkenningu fyrir
gott starf í þágu félagsins. Hver
starfsmaður félagsins í fullu starfi
fær því um 27 þúsund krónur. Þá
lagði stjórnin einnig til að greiddur
yrði 3% arður til hluthafa, en arð-
greiðslur nema þá samtals 9,9 millj-
ónum króna.
Pétur sagði á aðalfundinum í
gærkvöld að miklar breytingar hefðu
orðið á hlutabréfamarkaði á íslandi
og hlutabréf í vaxandi mæli orðið
raunverulegur valkostur þeirra sem
vilja fjárfesta eða binda sparifé sitt
um tíma. Stjórnvöld hefðu rýmkað
skattaívilnanir til þeirra sem fjár-
festa í atvinnufyrirtækjum og áhugi
þannig aukist mjög á meðal almenn-
ings á hlutabréfakaupum. Akur-
eyringar ættu sem stendur ekki kost
á því að kaupa hlutabréf með
skattaívilnunum í fyrirtækjum á
svæðinu.
„Það er skoðun stjórnar félagsins
að Útgerðarfélagið eigi að nýta sér
þá möguleika til fjármögnunar, sem
aukinn áhugi almennings á hluta-
bréfum gefur,“ sagði Pétur, en
stjórnin lagði fram þá tillögu til
fundarins að tekin yrði ákvörðun um
aukningu hlutafjár og stjórn falið
að annast framkvæmdina. „Fjár-
mögnun á þennan máta eykur svig-
rúm félagsins til athafna og hefur
jákvæð áhrif á veltuhlutfall, sem
segja má að sé helsti veikleiki í fjár-
málum félagsins. Þá telur stjórnin
vel koma til greina að skrá félagið
á hlutabréfamörkuðum til þess að
kanna markaðsverð þeirra og auka
álit félagsins út á við,“ sagði Pétur
Bjarnason formaður stjórnar ÚA.
N ýaldar hr ey fing-
in og kristin trú
KRISTILEGT félag hcilbrigðis-
stétta heldur fund á morgun, 25.
apríl, í safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju og hefst hann kl.
20.30. Efni fundarins verður „Ný-
aldarhreyfingin og kristin trú“.
Félagið mun einnig halda fund á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sama dag kl. 15.00 og er hann fyrir
starfsfólk sjúkrahússins. Yfirskrift
fundarins er „Óhefðbundnar iækn-
ingaaðferðir og kristin trú“. Fram-
sögumaður á báðum fundunum verð-
ur séra Magnús Björnsson, en áð
loknu erindi lians verða fyrirspurnir
og umræður.
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
(KFH) er alþjóðleg þverkirkjuleg
samtök kristinna einstaklinga.
Markmið þeirra er að biðja fyrir
sjúklingum, starfsfólki og starfsemi
heilbrigðisstofnana og vekja athygii
á boðskap Jesú Krists á þessum
vettvangi.
Séra Magnús var áður prestur á
Seyðisfirði, en er nú starfsmaður
KFH. Allir eru velkomnir á fundinn
í. safnaðarheimilinu.
(Úr fréttatilkynningu)