Morgunblaðið - 24.04.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
að því stóðu. Ráku þær mæðgur,
Þóra, Hildur og Valgerður, verzlun-
ina á Akureyri til ársins 1947 en
þá fluttust þær fyrrnefndu suður á
eftir Valgerði.
Héldu þær Guðrún og Hildur þar
heimili með móður sinni til dánar-
dags hennar 31. maí 1970, er hana
vantaði 2 daga í 91 árs aldur. Þær
systur, Guðrún og Hildur, höfðu átt
saman mikið menningarheimili í 43
ár, lengst af á Drápuhlíð 32, þegar
Guðrún lést. Valgerður giftist
Steingrími Þorsteinssyni prófessor
1942 og áttu þau 3 dætur. Létu
þær Guðrún og Hildur sér afar
annt um þær allar.
Guðrún sigldi 1929 til Berlínar.
Þar stundaði hún söng- og tónlist-
arnám næstu 3 árin. En hún hafði
þegið í vöggugjöf ákaflega góða
mezzosópranrödd ásamt svo miklu
músíkeyra að mig gat undrað stór-
lega. Líklega hefur hún haft það
sem stundum er kallað absólut
músíkeyra, en það er að geta sung-
ið alla tóna rétt án hljóðfæris. Eg
minnist þess að hlusta á Gúsí spila
á píanóið flóknar nótur en syngja
jafnframt síbreytilegar raddir við.
Eftir 1 árs dvöl heima hélt hún
til Svíþjóðar, þar sem hún stundaði
söngnám næstu 2 ár. Heimkomin
tók hún kennarapróf frá Kennara-
skólanum 1940. Voru söngkennsla
og almenn kennsla hennar lífsstarf
eftir það, fyrst á Akureyri 1940-
1943, síðan í Austurbæjarskóla í
Reykjavík, Laugarnesskóla og
Hlíðaskóla eftir það. Veit ég dæmi
þess, að Guðrún náði meiri árangri
í kennsiu en margir aðrir. í Hlíða-
skóla æfði hún upp víðfrægan
barnakór, sem söng opinberlega og
einnig á hljómplötu. Var þetta starf
með börnunum henni mjög hugleik-
ið.
Guðrún stundaði einnig söng-
kennslu í einkatímum og tók virkan
þátt í tónlistarlífi landsmanna. Hún
söng í óperunum Rigoletto, Caval-
eria Rusticana og Sígaunabarónin-
um. Hún söng einnig einsöng í
Messíasi Hándels og Jóhannesar-
passíu Bachs. Hún söng opinberlega
við mörg önnur tækifæri svo sem
oft í útvarpinu. Hun hafði leikhæfi-
leika og lék oft með Leikielagi
Reykjavíkur, til dæmis Ástu í
Skugga-Sveini á 100 ára afmæli
afa síns 1935. Hún var einnig mjög
bókhneigð, víðlesin tungumála-
manneskja og margfróð.
Guðrún andaðist hinn 14. apríl
1990 eftir nokkurra mánaða þunga
legu og mætti örlögum sínum af
sönnum hetjuskap.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
minnar fjölskyldu þakka Gúsí fyrir
áratuga hlýju og vináttu við okkur
öll. Hún var frænka eins og þær
gerast bestar.
Halldór Jónsson verkfr.
Öll mín uppvaxtarár átti ég tvö
heimili. Annað í húsi foreldra
minna, hitt hjá Gúsí frænku og
Hildi í Drápuhlíð. Þessar tvær kon-
ur, listamaðurinn Guðrún og kaup-
maðurinn Hildur, svo andstæðar um
margt, voru sem ein sál þegar um
var að ræða kærleika og umhyggju
í garð okkar systurdætra sinna. Við
fráfall Gúsíar er sem verði þátta-
skil í lífi okkar. Fyrri hluta er lok-
ið, sá seinni tekinn við.
Gúsí frænka var ekki hversdags-
leg manneskja. Heitar tilfmningar
og viðkvæm lund mörkuðu líf þess-
arar gáfuðu konu. Hún var lista-
kona að eðli og menntun, húmoristi
sem geislaði af glettni þegar sá
gállinn var á henni. En hún gat líka
örvænt, og þær stundir voru fleiri
þegar vonbrigði og sársauki þess
sem ekki gat orðið hvíldu yfir
henni. Jafnaðargeðið var aldrei
hennar lund.
Gúsí bar lotningu fyrir listinni.
Óvandaður flutningur fagurra
verka var henni nánast guðlast, en
hún var líka hrifnust allra þegar
listagyðjunni var vel þjónað. Við
deildum stundum svolítið um þessi
mál, og þá sérstaklega um þörfína
fyrir fullkomnun í listinni. En henni
varð ekki haggað, hún þráði hinn
eina, sanna og hreina tón.
Ég kveð látna frænku mína með
virðingu og þakklæti.
Laufey Steingrímsdóttir
Minning:
Hulda Sigurðardóttir
Fædd 19. nóvember 1934
Dáin 8. apríl 1990
Andlát góðvinar kemur alltaf á
óvart, jafnvel þótt þeir hafi átt við
vanheilsu að stíða um langa hríð
og sjúkdómurinn banvænn. Við
stöndum hljóð andspænis því óum-
breytanlega sem ekkert fær hnikað,
og söknum þess sem áður var.
Hún Hulda vinkona mín var fædd
á Ólafsfirði en flutti með foreldrum
sínum Þórönnu Guðmundsdóttur og
Sigurði Sigurpálssyni til Siglufjarð-
ar ung að árum. Við Hulda vorum
sytkinadætur, en leiðir okkar lágu
fyrst saman í Keflavík, en þangað
fórum við í atvinnuleit á yngri árum.
Með okkur tókst góð vinátta sem
ekki hefur rofnað í öll þessi ár. í
Keflavík kynntist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum Guðbrandi Sör-
enssyni og eignaðist með honum
þrjú börn, en þau eru Sigurður, Jón
og Vigdís.
Við stofnuðum heimili á svipuð-
um tíma, og deildum með okkur
íbúð um nokkurt skeið, þá var oft
glatt á hjalla og aldrei bar nokkurn
skugga þar á, og margar ánægju^
stundir áttum við með þeim hjónum
í gegn um árin.
En leiðir skildu er ég flutti í ann-
að byggðarlag og samfundir urðu
færri, en eitt var þó ákveðið og það
var að halda hvor annarri veislu
einu sinni á ári, hvað sem á gengi
og við það var staðið allt fram til
hins síðasta. Hulda var einstaklega
myndarleg húsmóðir og höfðingi
heim að sækja, hún bjó sér og sínum
fallegt heimili enda var oft gest-
kvæmt á heimili þeirra hjóna.
Handavinnukona var hún mikil og
eftir hana liggja mörg falleg verk,
því alltaf var hún með eitthvað á
pijónunum, eins og sagt er. Börnum
sínum og barnabörnum hafði hún
mikið yndi af og fannst gott að
vita af þeim í nálægð og veitti fjöl-
skyldan henni mikinn styrk í erfið-
um_ veikindum.
Ég mun sakna góðrar vinkonu
og vottum við hjónin Guðbrandi
eiginmanni hennar og ijölskyldu
þeirra okkar innilegustu samúð.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
V. Briem
Hrönn Albertsdóttir
t
Móðir mín og tengdamóðir,
EYVÖR GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist á sjúkradeild Hvítabandsins 21. apríl.
Arndfs Þorvaldsdóttir, Haukur Benediktsson.
t
Elsku litla dóttir okkar og systir,
UNNUR LIUA ÓLAFSDÓTTIR,
Vindási 2,
lést á sjúkrahúsi í Stokkhólmi þann 12. apríl.
Guðrún K. Sigurbjörnsdóttir.Ólafur K. Jónsson,
fris Ósk Ólafsdóttir.
t
Faðir okkar
PÉTUR FINNBOGASON
frá Hjöllum,
Tangagötu 19a,
Isafirði,
lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar sunnudaginn 22. apríl.
Börnin.
t
Móðir mín og fóstursystir,
KRISTJANA HILARI'USDÓTTIR,
Miðtúni 1,
Reykjavík,
lést í Hvítabandinu 18. apríl. Jarðarförin auglýst síðar.
Hrafnhildur Björnsdóttir,
Vigdís Hansen
og fjölskylda.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN EYJÓLFSDÓTTIR,
Hátúni 4,
lést þann 8. apríl á heimili sínu.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Ólafsson, Lek Ólafsson,
Þórstína Ólafsdóttir, Jóhann Karlsson,
Eyrún Ólafsdóttir, Reynir Georgsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞORBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Dalbraut 25,
áður til heimilis í Álftamýri 12,
lést í Landakotsspítala 22. apríl.
Pétur Guðbjartsson,
Geir V. Guðnason, Ásbjörg Húnfjörð,
Sigurður Fannar Guðnason, Óla Helga Sigfinnsdóttir,
Gunnar Gunnarsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði 22. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 28.
apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Pálsson,
Guðný Pálsdóttir,
Júlíana Pálsdóttir
Sigurða Pálsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SÓLBORG INGIBJÖRG ÞORLÁKSDÓTTIR,
Stigahlíð 12,
lést 7. apríl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Bertel Erlingsson,
Sigríður Bertelsdóttir, Jón Friðþjófsson,
Erlingur Bertelsson, MargaThome,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
LEIFUR HALLDÓRSSON
frummótasmiður,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 22. apríl.
Árný Ingvaldsdóttir,
Jóna Leifsdóttir, Birgir Guðmannsson,
Svanhildur Leifsdóttir, Þorvaldur Hallgrímsson,
Kristján Leifsson, Margrét Björnsdóttir,
Halldór Leifsson, Anna Rósa Sigurgeirsdóttir,
Ásta Leifsdóttir, Gestur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Bróðir minn, mágur og vinur,
JÓHANN ÁSGRÍMUR GUÐJÓNSSON
sjómaður,
Hjarðarhaga 56,
lést í Landspítalanum 21. apríl.
Salóme Guðjónsdóttir,
Áslaug Jóhannsdóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir.
t
Systir okkar,
KRISTRÚN SVEINSDÓTTIR,
frá Gyllastöðum,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 21. apríl.
Júlíana Sveinsdóttir,
Jensína Sveinsdóttir,
Sveinn Sveinsson,
Ólafur Sveinsson.
t
Móðir okkar,
SOFFt'A PÉTURSDÓTTIR LÍNDAL,
Holtastöðum,
verður jarðsett frá Holtastaðakirkju miðvikudaginn 25. apríl kl. 14.
Haraldur Holti Líndal
Kristín Hjördís Líndal