Morgunblaðið - 27.05.1990, Page 6

Morgunblaðið - 27.05.1990, Page 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAI 1990 ALLT TIL ANDSKOTANS A MORGUN! eftir Arna Johnsen Hann tók á móti mér á járnbrautarstöðinni í Birkerud, einum af útbæjum Kaupmanna- hafnar, og lífsgleðin frá hans bjarta brosi stakk í stúf við hrímþokuna sem hafði kögrað bæinn þennan vetrarmorgun. A greinum trjánna í skógi bæjarins höfðu sprottið fram frostblóm, hrímkögur — svo virtist sem trjá- gróðurinn væri í fúllum skrúða í Nivá þar sem Böðvar býr ásamt konu sinni, Evu Rode, sem er ritstjóri Orðabókar Árnastofnunar. Böðvar Guðmundsson skáld hcilsaði með hinni stóísku ró sveitamannsins en öruggu fasi heimsborgarans. Böðvar hefúr um sinn verið búsettur í Danmörku og sinnir ritstörfúm sem í flestu tengjast íslandi. Frá jámbrautarstöð- inni héidum við að heimili hans og tylltum okkur niður við eldhúsborðið. Eg spurði hann hvort það væri ekki hætta á því að þjóðin færi á mis við skáld sitt ef það væri lengi að skælast i útlöndum. Eg held ekki,“ svaraði Böðvar, „ég hef miklu betri möguleika og tíma til þess að skrifa af viti eins og nú háttar hjá mér, en ég finn þó að maður fjarlægist það sem er að gerast heima, tapar tengslum við rifrildismálin, menningartilþrifin og pólitíkina og maður tekur því öðruv- ísi þegar tilefnin koma upp. Þá segir maður við sjálfan sig: Æ, er nú enn- þá verið að rífast um þetta. í staðinn fær maður hins vegar ennþá meira næði til verka. Það er þó slæmt að það fer framhjá manni þegar nýjar bækur eru að koma út heima og þarf að vera svolítið harður við sjálf- an sig að lesa bókaskrárnar og pikka út það sem er fýsilegt. En það er alltaf jafn gott þegar maður er á landinu að finna takt íslenska sam- félagsins." Það eina sem dugði á helvítis beinin Eg vék talinu að skrifum Böðvars í bókmenntasögu Máls og menning- ar, þriggja binda verk sem ekki er lokið við, en margir höfundar skrifa í það og Böðvar hefur unnið við lær- dómsöldina eftir siðaskiptin og fram að 1730. „Okkar ágæta þjóð gerir allt í hjá- verkum og ósjaldan ber það við að menn skila seint verkefnum, en þetta tímabil sem ég skrifa um er mjög skemmtilegt og það er mikið fjallað um sálma og margs konar kveðskap. Þetta er einmitt tímabilið þegar fjandinn er nálægur, á næsta bæ, og galdrar og særingar eru daglegt brauð í bland við fjandafælur, Tyrkjafælur og voðalegar bölbænir. Af þessu er til mikið magn og það var það eina sem dugði á helvítis beinin, þá sukku þeir. Það hefur ver- ið skemmtilegt að lesa það út úr þessu tímabili að íslendingar eru á þessum árum með ríka bókmennta- hneigð miðað við Dani, Normenn og . Svía. Hnignunin á íslandi kemur miklu síðar. Það er á 18. öld sem íslendingar fara að dragast aftur úr og þá kemur bakslagið. Það mynduð- ust engar borgir á íslandi, en hér syðra urðu borgimar miðstöðvar fyr- ir menntasetur og listir, háskóla og annað slíkt sem gaf ákveðinn grunn og möguleika í þessum efnum. Borg- arleg menning kom ekki upp á Is- landi fyrr en á 20. öld og svo var þetta andskotans harðræði á 18. öld, Morgunblaðið/Ámi Johnsen Böóvar Guómundsson skáld er sestur aó i Danmörku og horf ir þaóan á rif rildismálin heimafyrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.