Morgunblaðið - 27.05.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1S90
C 19
Drukknir blaðamenn
heilaþvo alþýðuna
Af furðufréttunum í bandarísku
fréttatímaritunum
eftir Huga Olafsson
Hefur þú heyrt um fallhlífarstökkvarann sem leystist upp í loftinu
yfir Akranesi? Eðaþjálfara íslenska kvennalandsliðsins í kriatt-
spyrnu sem barnaði allar ellefu á sama tíma? „Ég elskaði þær allar
og gat ómögulega gert upp á milli þeirra,“ var haft eftir honum.
Hvorug þessara frétta birtist í
íslenskum fjölmiðlum, heldur
í bandarískum „fréttatímaritum"
sem eru einkum seld í stórmörkuð-
um. Spurningin er hvort þessi
tímarit séu naskari á að finna
góðar fréttir en aðrir, eða hvort
íslenskir blaðamenn séu alveg
lausir við fréttanef eða slái þagn-
armúr um þvílík stórtíðindi.
Það eru þó ekki bara íslensk
blöð sem missa af „skúbbum“ eins
og „Stytta af Elvis finnst á mars!“
og „Köttur flæmir innbrotsþjóf á
brott á hringir á lögguna!“ Eg les
New York Times upp á hvern dag
mér til ánægju og upplýsingar, en
þar á bæ taka menn sig svo alvar-
lega að þeir birta ekki einu-sinni
myndasögur, hvað þá stjörnuspár
og á forsiðunni eru smáletraðar
fyrirsagnir eins og „Cheney hafnar
tillögum Sovétmanna um niður-
skurð á langdrægum flaugum í
hafninu" og „Mikil hækkun á
sjúkratryggingum aldraðra“.
En sama dag og Times taldi
þetta helstu viðburði dagsins var
hægt að lesa eftirfarandi fyrirsögn
í blaðinu National Examiner.
„2.500 ára gamalt lík finnst graf-
ið með vasadiskó." Blaðið Weekly
World News var jafnvel með enn
stærri tíðindi úr heimi vísindanna:
„Vísindamenn bora gat á helvíti!“
Við skulum grípa aðeins niður í
þá frétt — sem er send af fréttarit-
ara blaðsins í Helsinki — þó ekki
væri til annars en að vara Jarðbor-
anir ríkisins við áð færast of mik-
ið í fang: „Visindamenn sem bor-
uðu níu mílna holu til að rannsaka
hreyfingar fleka undir yfirborði
jarðar segjast hafa uppgötvað
helvíti. Þessar upplýsingar koma
frá hinu virta finnska blaði „Amm-
enusastia“, sem hefur eftir sov-
éska jarðfræðingnum Dmitri Az-
zacov að hryllileg vængjuð vera
hafi flogið upp úr holunni rétt
áður en hljóðnemum var slakað
ofan í hana, þar sem þeir tóku upp
kvalaöskur hinna fordæmdu:
„Sem kommúnisti trúi ég ekki á
himnaríki eða Biblíuna, en sem
vísindamaður trúi ég nú á helvíti,“
sagði dr. Azzacov.“
Útbreiðsla þessara blaða er
töluverð. Upplag National Exam-
iner er 1,1 milljón og Weekly
World News selst í tæpri einni
milljón eintaka.
Hverslags fólk les þessi blöð?
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
(Rúnadeild)
Þessi stálverkamaður lætur sig
ekki muna um að labba á rúnuðu
rörinu í rúmlega 200 metra hæð.
Myndatexti í DV.
Annars vegar gæti það verið fólk
sem hefur gaman af fjörugu
ímyndunarafli, eins og ýmsir höfðu
gaman af sögum vellygna Bjarna
i denntíð. Hins vegar gæti það
verið fólk sem er venju fremur
auðtrúa. Það segir kannski sína
sögu að „dulræni iðnaðurinn“ á
dtjúgan hluta af auglýsingum í
blöðunum, þar sem hann selur
jafnsjálfsögð hjálpartæki sálarlífs-
ins og stjörnukort og segulkrist-
alla.
Hvernig vinnubrögð eru viðhöfð
á þessum blöðum? Eg fór á stúf-
ana og rannsakaði málið og hef.
komist að eftirfarandi staðreynd-
um. Umsækjendur um blaða-
mannastöðu eru tengdir við lyga-
mæli og spurðir um hæfni og
reynslu. Enginn er ráðinn nema
hann eða hún sprengi öryggið í
mælinum og helst taki rafmagnið
af hverfinu. Kvöldið áður en blað-
ið fer í prentun setjast blaðamenn
í kringum hringborð þar sem hlað-
ið er fimmtíu kippum af bjór. Síðan
er segulband látið ganga hringinn
þar sem menn stinga upp á hug-
myndum og bæta við staðreyndum
og heimildarmönnum eftir því sem
við á. Morguninn eftir tekur rit-
stjórinn segulbandið undan hrúgu
af tómum dósum og lætur prenta
sögurnar orðrétt.
Þetta er hreinasatt. Þetta er að
minnsta kosti ekki ótrúlegra en
„Bijóstahaldari springur utan af
barmmikilli konu — ellefu særðir!"
Og gæti nokkur allsgáður maður
upphugsað fyrirsögn eins og
„Maður fastur í fjórtán daga und-
ir líki 300 punda konu sinnar!“
(Hún fékk aðsvif í stiganum og
rúllaði ofan á vesalings manninn,
sem var frekar óburðugur til að
byija með og var orðinn mjög
hætt kominn þegar honum var
loksins bjargað.)
Nu kynni einhver að spyija
hvort það sé fallegt að hafa fá-
fræði fólks að féþúfu á þennan
hátt, og hvort ekki eigi hrejnlega
að banna svona blaðaútgáfu. Það
virðist hins vegar ekki hafa gefið
góða raun að sjálfskipaðir gáfu-
menn hafi vit fyrir alþýðunni. Ég
las það í áreiðanlegu tímariti að
málgagn austur-þýska kommúni-
staflokksins sáluga, Neues
Deutschland, hafi í fyrravor slegið
eigið met í fyrirsagnagerð með því
að slá í sexdálk yfir þvera fors-
íðuna: „Hin bróðurlegu tengsl
pólskrar og austur-þýskrar æsku
undirstrikuð á þingi ungkomm-
únista." Má ég þá biðja um:
„Langsvelt kona í megrunarkúr
reynir að gleypa dverg!“ Ef verið
er að skrökva að fólki á annað
borð er lágmarkskrafa að það
hafi skemmtanagildi.
Við hin sem þykjumst kunna
fótum okkar forráð í fjölmiðla-
heiminum getum haldið áfram að
glugga í New York Times og
Hagtölur mánaðarins okkur til
yndisauka.
Cobra AN-8530 símsvarinn gefur- og tekur d móti skilabobum ‘Allar abgeröir eru framkvæmdar meö einum hnappi »Hægt er
aö kveikja d símsvaranum meö því aö hringja úr öörum síma *Biö eöa tafir koma ekki inn ó símsvarann •Hraöspólun fram og
til baka •Gaumljós sýnir fjölda símsvarana og ýmsir fleiri möguleikar. -j a Áqa
____________________________________________________________«Veröaöeins 11.990,-kr. eöa lU>7yVJ;"stgr.
Cobra AN-8532 símsvarinn gefur- og tekur d móti skilaboöum *AHar aögeröir eru framkvæmdar meö einum hnappi ‘Hægt er
aö kveikja ó símsvaranum meö því ab hringja úr öbrum síma »Biö eöa tafir koma ekki inn ó símsvarann •Hrabspólun fram og
til baka ‘Gaumljós sýnir fjölda símsvarana *Hægt er ab heyra skilabob meö því aö hringja í símsvarann og sld inn
leyninúmer og ýmsir fleiri möguleikar i -t aqa
____________________________________________________________*Verö aðeins 12,990,- kr. eóa 11 i//U| ~ stgr.
Cobra AN-8531 símsvarinn gefur- og tekur ó móti skilaboöum *Allar aögeröir eru framkvæmdar meö einum hnappi *Hægt er
aö kveikja ó símsvaranum meö því að hringja úr öörum síma *Biö eöa tafir koma ekki inn ó símsvarann *Hraöspólun fram og
til baka •Gaumljós sýnir fjölda símsvarana ‘Hægt er ab heyra skilaboö meb því aö hringja í símsvarann og sld inn leyninúmer
•Tími og dags. kemur sjólfvirkt inn ú viö hver skilaboö og ýmsir fleiri möguleikar 1 /I /1 C A
____________________________________________________________»Verö aöeins 15.560,- kr. eöa ItGTJUj" stgr.
Cobra AN-8516Í símsvarinn gefur- og tekur d móti skilaboðum ‘Allar aöqeröir eru framkvæmdar meö einum hnappi *Hægt er ab
Trki
kveikja ó símsvaranum meöþví aö hrinqja úr öörum síma ‘Bib eba tafir koma ekki inn ó símsvarann •Hraöspólun fram og til baka
•Hægt er ab heyra skilaboö eða breyta tilkynningunni meb því aö hringja í símsvarann og sló inn leyninúmer *Tími og dags. kemur
sjdlmrkt inn ó viö hver skilaboö ‘Þú talar inn ó örtölvukubb, þannig aö snældan er eingöngu notuö fyrir upptekin skilaboo 'Skjór
sem sýnir tíma og fjölda skilaboba *Hægt er ab taka upp samtöl og ymsir fleiri möguleikar j ^ 99Q
Það er þœgileg tilfínning
flð hflfo einhvern til flð taka á móti
skilaboðumi, þurfí maður að skreppa frá!
•Verö aöeins 22.280,- kr. eba
Við tökum vel
á móti þér !
stgr.
f E ■unocAno Æ7
V/SA
■■■■■ Samkort
greiðslukjör til allt að 12 mán.
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
Eftirtaldir umbobsabilar selja Cobra-símsvarana:
Kf. Borgfirhinga, Boraarn. Nýja flltnuhúsib, Akureyri
Verslunin Fell, GrundarF. Radíónuusí, Akureyri
Blómsturvellir,. Hellissundi Kf. Þingeyinga, Húsavík
Straumur hf., ísafiröi Sel, Mývatssveit
Verslunin Hegri, Sauöórkr. Stúdíó Keflavík, Keflavík
Bókabúöin Urö, Ruufarhöfn Vöruhús K.Á., Selfossi
Rafin.versl. Sv. G., Lgilsst. Mosfell sf., Hellu
Stúlbúöin hf., Seyöisfíröi Kf. Skaftfellinga, Vík
Tónspil, Neskuupstoö Kjarni sf., Vestm.eyium
Versl. Hvammur, Höfn