Morgunblaðið - 27.05.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.05.1990, Qupperneq 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990 SLÉTTUÚLFAR SÍÐAN Brimkló leið, hefur enginn tekið upp merki sveitarinnar; að leika íslenska rokk/popptónlist með kántríívafi. A því verður þó breyting-, því framundan er breiðskífa með slíkri tónlist. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Sléttuúlfar Sigurður upptökumaður, Pálmi, J.B. Cole og Björgvin í Sýrlandi. Björgvin Halldórsson leiddi Brimkló á sínum tíma, en hann hefur ekki farið dult með áhuga sinn á bandarískri sveitatónlist. Hann fék til liðs við sig Pálma Gunnarsson, Guðlaug Briem og Gunnar Þórðarson. „Vinnuheiti hljómsveitarinn- ar er Sléttuúlfarnir,“ sagði Björgvin í stuttu spjalli. Hann sagðist hafa verið orð- inn hundleiður á hljóðgervla- tónlist og tölvum og fengið þá hugmynd að taka upp gamaldags hljómsveitarplötu með kátrítónlist. Hann kall- aði því saman félaga sína og þeir æfðu saman áður en farið var í hljóðver að taka upp. Til að gefa plötunni réttan kántriblæ fengu þeir svo til liðs við sig stálgítarleikarann snjalla J.B. Cole, sem lék inn á plötu hjá Brimkló fyrir 13 árum. — Verður þetta einskonar Brimklóarplata? „Nei, nei. Þetta er hrárra, það er meiri gítar og við er- um með harmonikka. Við vildum hafa þetta kántrí/rokkblöndu; einskon- ar tex-mex-tónlist. í fyrstu stóð til að fara til Memphis, en þá hefði kántríandinn líklega orðið of sterkur. Við vildum hafa þetta íslenskt.“ Lögin á plötunni eru eftir Björgvin, Gunnar, Magnús Kjartans, og Magnús Eiríks- son, „allt nýtt, utan eitt gam- alt lag sem mig langaði allt- af að taka upp með kántr- íblæ“. — Hver ræður? „Ég á að heita útsetjari og upptökustjóri, en allar ákvarðanir eru teknar í sam- einingu og við útsettum þetta saman.“ Sléttuúlfarnir eru svo að velta því fyrir sér að fara af stað í sumar og leika þá á einhveijum tónleikum, en platan er væntanleg í haust. HRÓARSKELDU-hátíðin, sem stendur frá 28. júní til 1. júlí, er stærsta rokkhátíð sum- arsins í Evrópu og nú má segja að komin sé lokamynd á dag- skrána. Að þessu koma fram Bob Dylun, The Cure, Midn- ight Öil, Sinéad O’Connor, Ry Cooder, Nic Cave, The The, JeffHealey, Little Feat, The Cramps, Deacon Blue, Salif Keita, Red Hot Chili Peppers, They Might Be Giants, 24-7 Spyz, Gorky Park, Faith no More, Disn- eyland after Dark, De La Soul, Ian McCuIlough og 45 sveitir til viðbótar. GRIPINN GLOÐVOLGUR Jón Símonarson, söngv- ari Bootlegs á Hótel Borg 17. maí. Jón Símonarson vakti fyrst athygli sem söngvari Nabblastrengja, sigursveitar Músíktilrauna Tónabæjar í apríl sl. Sveitarmenn í Boot- legs heyrðu í honum og fengu hann til liðs við sveit- ina og á Hótel Borg, á þriggja ára afmælistónleik- um Bootlegs, kom hann fyrst fram með sveitinni. Jón er með klassíska þungarokks öskurrödd og á eftir að bæta þessa fremstu þungarokk- sveit íslands, enda tvímæla- laust einn efnilegasti rokk- söngvari landsins. DÆGURTONLIST Hvab getúr Fleetwood Mac lifab lengi? Þríggfa úratuga poppstreð F AAR hljómsveitir hafa lifað eins lcngi í sviðsljós- inu og Fleetwood Mac, sveitin sem var í framlinu breska blúsins á sjöunda áratugnum, poppsins á þeim áttunda og níunda og gæti eins átt eftir að balda sínum sess á tiunda áratugnum. Fleetwood Mac sendi ný- verið frá sér sína sext- ándu breiðskífu á tuttugu og þremur árum, sem eru ekki mikil afköst miðað við marga aðra tón- listar- menn. Það eru þó fáir sem seit hafa fleiri plötur og haldíð vin- sældum eins samfellt, þó til þess að gera það mögulegt hafi sveitin þurft að ganga í gegnum sífelldar manna- breytingar. Fleetwood Mac var stofn- uð 1967 og þá sem dæmi- gerð bresk rafblússveit. Stofnendur voru gítarhetjan Peter Green, slidegítarleik- arinn Jeremy Spencer, trymbillinn Mick Fleetwood og bassaleikarinn John McVie. Í dag eru þeir Fleet- wood og McVie eftir, en reyndar er Mick Fleetwood sá eini sem hefur verið í sveitinni alla tíð og það þó hann eigi enn eftir að semja lag. Hann hefur alla tíð haldið sveitinni saman og rekið hana, ef svo má segja. Fyrstu plötur sveitarinn- ar voru blúsplötur með poppívafi og af annarri plöt- unni sló rækilega í gegn lagið Albatross, en annað lag af plötunni sem náði miklum vinsældum og átti eftir að ná enn hærra í flutn- ingi annarra var Black Magic Woman. Peter Green var alla tíð t litlu tilfinninga- legu jafnvægi og svo fór að hann hvarf á tónleikaferð í Þýskalandi og gekk til liðs við kristinn strangtrúar- söfnuð. Upp frá því var mannaskipan sveitarinnar afskaplega fjölbreytt og veraldargengi hennar ekki síður. 1970 gekk í sveitina tón- listarparið Lindsey Buck- ingham og Stevie Nicks. Þau breyttu sveitinni mjög og því viðeigandi að fyrsta platan eftir að þau gengu í sveitina sHyldi vera kölluð Fleetwood Mac, en sú plata seldist í fimm milljónum ein- taka. Næsta plata á eftir, Rumours, sló öll sölumet árið sem hún kom út; seld- ist t yfir tuttugu og fimm milljónum eintaka 1977. Eina plata sem selst hefur eftir Ámo Motthiasson Fleetwood Mac Sífelld endurnýjun. betur er Thriller Michaels Jacksons. Árin sem á.eftir fylgdu voru mikil svall og svínarísár, að sögn Mick Fleetwoods í nýlegu viðtali. Það var ekki auðvelt. að fylgja eftir slíkri plötu og það var ekki fyrr en tveimur plötum stðar sem sveitin náði sér á strik á ný. Manna- breytingar hafa einnig orðið í sveitinni og Lindsey Buck- ingham, sem var einn helsti lagasmiður hennar, er hætt- ur. í hans stað voru ráðnir tveir gítarleikarar og söngv- ara og er mál gagnrýnenda að enn hafí Fleetwood Mac tekist að fóta sig á tónlistar- svellinu og taka skref framávið; sveitinni sé ekk- ert að vanbúnaði að halda haus vel fram á næsta ára- tug. Plota frá Stjórninni HUÓMSVEITIN Stjórnin sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu í vikunni. Sú heitir Eitt lag enn, en plöt- unni eru tíu lög og ellefu á geisladiskinum. Skífan gefur út. Velflest lög plötunnar eru íslensk og eftir ýmsa höfunda. Hörður G. Olafs- son, höfundur títillagsins, á tvö lög til viðbótar. Þijú eru eftir Jóhann G. Jóhannsson. Meðal þeirra er Landslagið 1989, Við eigum samleið. Eitt laganna er eftir Friðrik Karlsson og annað eftir Eyj- ólf Kristjánsson. Tvö lög eru erlend með íslenskum text- um. Aukalagið á geisladisk- inum er I sveiflu eftir Grétar og Karl Örvarssyni. Stjórn upptöku á Einu lagí enn annaðist Jón Kjell Selj- seth. Hann sá um útsetning- ar með Stjórninni, um hljóð- blöndun með Gunnari Smára Helgasyni og lék á hljómborð og annaðist forritun. Gunn- laugur Briem lék á trommur og slagverk og Helga Möller söng raddir. Upptökumenn plötunnar voru Gunnar Smári, Óskar Páll Sveinsson og Sveinn Kjartansson. Eitt lag enn var hljóðrituð í Hljóð- rita í mars og í apríl í ár. Þess má og geta að frammistaða Stjórnarinnar í Evrópusöngvakeppninni vakti á henni mikinn áhuga ytra. Sænska hljómplötuút- gáfan Scranta hefur þegar gefið út tveggja laga plötu staðar á Norðurlöndunum með lögunum One more song á A-hlið og Eitt lag enn á B-hlið. Þá er unnið að því að stóra platan verði gefin út á Norðurlöndunum og víðar um Evrópu síðar í sum- ar og er verið að snúa texum á ensku. Stjómin gerir víðreist um landið í sumar, það er að segja í maí, júní og júlí og leikur á dansleikjum um helgar. í ágúst, strax að lok- inni verslunarmannahelg- inni, heldur hljómsveitin utan til tónleikahalds og fylgir þar með eftir útkomu stóru plöt- unnar annars staðar á Norð- urlöndunum. Þegar er afráð- ið um hljómleikaferðir um Danmörku og Noreg og verið að vinna að frekari ferðalög- um víðar, sem og útgáfu plötunnar utan Norðurland- anna. Þá hefur Stjóminni verið boðið að kom'a fram í norsk- um sjónvarpsþætti, Mom- arkedet, sem gerður er til styrktar Rauða krossinum. Þátturinn er sá viðamesti sem sendur verður út í Nor- egi og er honum dreift um alla Skandinavíu sem og til Danmerkur og Finnlands. Fastagestur þessa þáttar á hveiju ári er sigurvegari evr- ópsku söngvakeppninnar. Þegar hefur verið staðfest að Tina Tumer kemur einnig fram í þættinum sem og margar fleiri stjörnur. Plata vikunnar er tón- leikaplata Marianne Fa- ithfull, Blazing Away. Marianne Faithfull, hef- ur kynnt sér af eigin raun allt hið versta sem fylgt getur popplífinu. Hún sló í gegn sem lagskona Mick Jaggers 1964 með lagið As Tears Go By og hvarf síðan sjónum í dóprugl. Marianne sneri aftur í sviðsljósið með ótrúlega byltingarkennda plötu, Broken English, 1979. Á Blazing Away rekur hún tónlistarsögu sína frá 1964 af miskunnarlausri hrein- skilni og syngur sín helstu lög í bland við ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.