Morgunblaðið - 27.05.1990, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.05.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990 C 25 Sigurbjörn A. Haralds- son, Akranesi Fæddur 7. janúar 1919 Dáinn 20. maí 1990 Allt er í heiminum hverfult. Að setjast niður og ætla sér að skrifa minningabrot um elsku frænda minn er mér erfitt, því það er svo margt sem kemur upp í huga minn. Þegar síminn hringdi á sunnudags- morguninn og Lilja, konan hans, segir mér að hann Bjössi væri dá- inn, þá fannst mér ég standa á vegamótum. Vissum kafla í lífí mínu er lokið. Ég var svo heppin að ég náði í endann á baðstofutímabilinu, sem er í minningunni mjög áhugaverður tími, því þar var ekkeri kynslóða- bil. Þar voru allir saman. Það var hlustað á útvarpið við lítið ljós og snarkið í ofninum, eða spjallað sam- an um daginn og veginn, eða bara það sem gerðist þann daginn og þá vorum við börnin virk í umræð- unni. Við systurnar fengum að láta okkar álit í ljós og var tekið mark á okkur. Allavega fundum við ekkj annað og vorum upp með okkur. I baðstofunni átti hver sitt rúm. I Bjössa rúmi þótti mér best að sofa. Hann breiddi svo vel ofan á mig. Svo var svo skrýtinn svipur á hon- um þegar ég var að segja honum sögur, sem voru auðvitað frum- samdar og aldrei settar á blað. Ég held að hann hafi verið að hlæja að mér en það skiptir ekki máli. Hann hlustaði. Er það ekki þessi hlýja og virðing við börn sem vant- ar í dag? Svo fann hann Bjössi sér konu, mjög góða konu, Lilju Guðmunds- dóttur. Mikið var gaman að fylgjast með þegar þau fóru að búa og svo komu auðvitað börnin. Mikið var ég frænkan stolt þegar fallega frænka mín fæddist og að fá að passa hana var mér unun. Lilja og Bjössi bjuggu lengi á Stóru-Býlu í Innri-Akraneshreppi. Þar var þröngt en samt alltaf nóg pláss og alltaf fínt og pússað. Börn- in urðu 5. Eist er Hafdís, þá Guð- rún, Haukur, Guðmundur og Reyn- ir. Barnalán er mikil gjöf og var Bjössi stoltur af barnahópnum sínum. Kynslóðir koma og kynslóð- ir fara. Við eigum þessari eldri kynslóð mikið að þakka. Við sem yngri erum eigum þessari eldri kyn- slóð mikið að þakka því þetta eru þeir sem ruddu brautina og settu svip sinn á bæinn. Sigurbjörn Aðalsteinn Haralds- son var einn þessara manna. Hann mátti muna tímana tvenna, því svo ótal margt hefur breyst á þessum árum. Það er því skylda okkar yngra fólksins að doka við og hugsa, heimta ekki allt og finnast ekki allt sjálfsagt. Við eigum að heiðra minningu þeirra sem tóku þátt í uppeldi okkar og mótuðu á vissan hátt þær persónur sem í okkur eru. Hann Bjössi stundaði fjárbúskap með sinni vinnu því skepnur voru hans líf og yndi og koma í fjárhús- in hans var lærdómur út af fyrir sig, því snyrtimennska og reglusemi var þar á öllum hlutum. Það var honum svo eiginlegt að hafa allt í röð og reglu. Nú vil ég þakka mínum elskulega frænda allt sem hann var mér og mínum og biðja Guð að geyma hann þangað til við hittumst næst. Veri hann kært kvaddur og Guði falinn. Þess biður frænka hans, Elísabet G. Jónsdóttir Klara M. Arnars- dóttír Sárt er að hugsa til þess að elsku- lega móðursystir okkar, Klara M. Arnarsdóttir, sé dáin langt fyrir aldur fram. Okkur systkinin langar til að kveðja Klöru frænku með nokkrum fátæklegum orðum. A)drei er svo bjart yfir öðlingsmanni að eigi geti syrt eins sviplega og nú og aldrei er svo svart yfir sorgarranni að eigi geti birt fyrir eilífa trú. (Matthías Jochumsson) Við vitum öllum hversu sárt það er að missa einhvem nákomin, en við vitum öll að nú líður Klöru frænku vel og er í góðum höndum. Elsku Auðunn, Hjördís, Siggi, Arnar og Eva Hrönn, megi guð styrkja ykkur öll á þessari sorgar- stund. Eva Arna, Hermann Friðlín Björk. Myndlistarmm alhugið Umsóknum um sýningarsal Norræna hússins fyrir árið 1991 skal skilað fyrir 17. júní 1990. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri sýningar sendist Lars-Áke Engblom, forstjóra, Norræna húsinu, 101 Reykjavík. NORR4NA HUSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HU5 TILBOÐ OSKAST i Ford Bronco U-15 2x4 árgerð '84, Ford Ltd Crown Victoria árgerð ’85 og aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 29. maí kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 15.00. Sala varnarliðseigna. HVITASUNNUFERÐ í SÓLINA Á MALLORKA Sérstök vikuferð um hvítasunnuna 29. maí til 5. júní (aðeins 4 vinnudagar). Gistverðurá hinum frábæru rai|altur hótelum. Og verðin ættu ekki að spilla fyrir: 4 í íbúð 27.900* 3 í íbúð 29.600* 2 í íbúð 34.400* 2 í stúdíó 30.600* * *VerS pr mann og miðast við staðgreiðslu. FERÐIRNAR 5., 12., 19. OG 26. JÚNÍ ERU AÐ FYLLAST. Hafðu samband strax ef þú ætlar með! DAGFIUG dTWtVTIK HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580 ■■■MaaaaMMaaaHHaMaaaBu aMmuai FABKC3RT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.