Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990
Reisugildi í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag
Fulltrúi Kvennalistans ekki viðstaddur
í TILEFNI þess að þakviðir
Ráðhúss Reykjavíkur hafa ver-
ið reistir, heldur Davíð Oddsson
borgarstjóri reisugildi í dag, 1.
júní. Hófið hefst kl. 16.20 og
er til þess boðið borgarstjórn,
embættismönnum borgarinnar,
starfsmönnum sem hafa unnið
við byggingu hússins og því
starfsfólki borgarstjórnar sem
kemur til með að starfa í Ráð-
húsinu. Gestirnir munu skoða
húsið og þiggja veitingar í Odd-
fellowhúsinu að því loknu.
Kvennalistinn hefur til-
kynnnt að fulltúi hans muni
ekki verða meðal gesta í reisu-
gildinu vegna andstöðu listans
við byggingu Ráðhússins.
Framkvæmdir eru í fullum
gangi við ráðhúsið. Lokið er við
að leggja álklæðningu á syðri
hluta hússins og undirbúningur
vel á veg kominn með norðurhlu-
tann. Endanlegum frágangi þaks-
ins lýkur í haust og á svipuðum
tíma verður lokið við að setja gler
í alla glugga hússins og vinnupall-
ar teknir niður. Þegar er farið að
móta fyrir tjörninni sem verður
við gafl norðurhluta byggingar-
innar.
Myndin hér að neðan af Ráð-
húsi Reykjavíkur er gerð eins
og horft sé að inngangi Ráð-
hússins á horni Vonarstrætis
og Tjarnargötu. Lítil tjörn
verður fyrir framan innganginn
og við hana mosavaxinn veggur
og mun vatn renna niður hann
í sífellu. Vinstra megin sjást
útlínur verðlaunateikningar
Alþingishúss. Hægra megin eru
útlínur hússins við Tjarnargötu
10.
A Ijósmyndinni hér til hliðar
sést er lokið er við að reisa
þakviði Ráðhúss Reykjavíkur.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Veöurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR f DAG, 1. JÚNl'
YFIRLIT í GÆR: Um 400 km suður af Ingólfshöfða er 995 mb
lægð sem þokast norðaustur og grynnist, en víðáttumikil 970 mb
lægð um 1.000 km suðvestur af Hvarfi þokast norðnorðaustur.
SPÁ: Fremur hæg norðaustlæg átt. Rigning eða súld við austur-
ströndina, þokubakkar á annesjum norðanlands, en þurrt og víðast
bjart veður í öðrum landshlutum. Fer að þykkna upp vestanlands
annað kvöld. Hiti 8-14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt. Víða bjart veður, en
þó hætt við síðdegisskúrum á Suður- og Suðausturlandi. Hiti 10
til 17 stig að deginum.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hægviðri og skýjað með köflum. Hætt
við skúrum víða um land. Áfram fremur hlýtt í veðri.
TÁKN:
Heiðskírt
'^ꎃI
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
A Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
r r r / Rigning
r r r
jQ Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V
El
= Þoka
= Þokumóða
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* # *
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[~F Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hitl veóur
Akureyri 8 súld
Reykjavík 12 skýjað
Bergen 11 skýjað
Helsinki 15 skýjað
Kaupmannahöfn 18 alskýjað
Narssarssuaq 5 skýjað
Nuuk 1 skýjað
Ósló 17 skýjað
Stokkhólmur 19 hálfskýjað
Þórshöfn 9 þoka
Algarve 25 skýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 19 léttskýjað
Chicago 11 heiðskírt
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 22 hálfskýjað
Glasgow 15 rigning
Hamborg 21 hálfskýjað
Las Palmas 23 skýjað
London 22 skýjað
Los Angeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 21 hálfskýjað
Madríd 26 léttskýjað
Malaga 24 skýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 11 skýjað
New York 13 léttskýjað
Orlando 24 heiðskirt
París 23 léttskýjað
Róm vantar
Vín 17 skúr
Washington 16 skýjað
Winnipeg 16 skýjað
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í Kópavogi:
Drög að málefiiasamn-
ingi verða kynnt fiill-
trúaráðum kl. 18 í dag
Meirihluti A- og F-lista á Siglufirði
FUNDI sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Kópavogi í gær-
kvöldi lyktaði þannig, að ákveðið var að Ieggja drög að málefha-
samningi um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn fyrir fulltrúaráð
flokkanna klukkan 18 í dag. Gunnar Birgisson oddviti sjálfstæðis-
manna sagði í gærkvöldi að ekki væri tímabært að greina frá
innihladi samningsins fyrr en fulltrúaráðin hefðu fjallað um liann.
Samþykki fundir fulltrúaráðanna drögin, verður myndaður meiri-
hluti þessara flokka í bæjarstjórn Kópavogs.
Meirihluti Alþýðuflokks og
óháðra var myndaður í bæjarstjórn
Sigluíjarðar í gær. Kristján L.
Möller af A-lista verður forseti
bæjarstjórnar og Björn Valdimars-
son af F-lista verður bæjarstjóri.
Skrifað var undir málefnasamn-
inginn klukkan 15.30 í gær, en
enn eiga félagsfundir listanna eft-
ir að samþykkja hann.
Á Akranesi var „rífandi gang-
ur“ í viðræðum A- og B-lista í
gærkvöldi, að sögn Gísla S. Ein-
arssonar, A-lista. Næsti fundur
aðila er boðaður á þriðjudag.
í.gærkvöldi ákváðu sjálfstæðis-
menn í Borgarnesi að hætta við-
ræðum við framsóknarmenn og
hefja viðræður við alþýðuflokks-
menn um myndun meirihluta í
bæjárstjórn. A- og D-listi hafa
ekki áður myndað meirihluta í
Borgarnesi og segir Sigrún Símon-
ardóttir, efsti maður D-listans,
reynt að mynda þennan meirihluta
vegna þrýstings stuðningsmanna
beggja listanna.
I Ólafsvík eru viðræður sjálf-
stæðis-, framsóknar- og alþýðu-
bandalagsmanna „á réttri leið,“
að sögn Björns Arnaldssonar, D-
lista. Búist er við niðurstöðu eftir
helgina.
I Grundarfirði taka menn meiri-
hlutamyndunina rólega, að sögn
Friðgeirs Hjaltalín, B-lista. Að ósk
G-listans hefjast viðræður fram-
sóknar- og alþýðubandalags-
manna í dag. Friðgeir segir að
ekki sé búið að útiloka neinn
möguleika á meirihlutamyndun af
hálfu framsóknarmanna.
Á ísafirði var enn í gærkvöldi
unnið að gerð málefnasamnings
D- og A-lista. í-listinn hafði sent
bréf til D-listans og boðið viðræð-
ur án skilýrða, en áður hafði slitn-
að upp úr viðræðum þeirra vegna
ágreinings um bæjarstjóraemb-
ætti sem í-listinn gerði kröfu um.
Sjálfstæðismenn svöruðu bréfi I-
listans á þann veg, að viðræður
stæðu við A-listann og væri ekki
rætt við aðra á meðan.
Á Akureyri stóðu viðræður
sjálfstæðis- og alþýðubandalags-
manna enn um miðnætti. Fundar-
menn bjuggust við að halda áfram
fram eftir nóttu og halda fundum
síðan áfram í dag.
Á Húsavík var í gærkvöldi langt
komið með drög að málefnasamn-
ingi B- og D-lista, að sögn Þor-
valdar Vestmanns Magnússonar,
D-lista. Hann sagði það skýrast í
dag hvort af samkomulagi verður
og þá munu félagsfundir fjalla um
samkomulagsdrögin.
Á Eskifirði verður fundur í dag
með alþýðubandalags- og fram-
sóknarmönnum og hafa þeir boðið
alþýðuflokksmönnum að eiga aðild
að meirihlutaviðræðum. Alþýðu-
flokksmenn hafa þegið boðið.
Samkomulag er um meirihluta-
samstarf D- og K-lista á Selfossi,
en eftir er að ganga frá málefna-
samningi. Gengið verður frá drög-
um að samningi í dag og er gert
ráð fyrii' að hann verði lagður fyr-
ir fundi listanna á þriðjudag.
Ákveðið var að bjóða Karli Björns-
syni bæjarstjóra að gegna því
starfi áfram.
Framsóknarmenn í Keflavík
ákváðu í gærkvöldi að ræða við
sjálfstæðismenn um meirihluta í
bæjarstjórn og hefjast viðræður í
dag.
I Njarðví ræðast sjálfstæðis-
menn og félagshyggjumenn af
N-lista við og eru aðilar vongóðir
um að ná saman. Búist er við nið-
urstöðu eftir helgina.