Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 10

Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Sigurður Markússon: Viðskiptasam- bönd ekki í hættu FRAMLEIÐSLA á frystum þorski á vegum Sjávarafurðadeildar Sam- bandsins er heldur meiri það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna minnkaði framleiðslan, eins og fram kom í Morgunblaðinu s.l. miðvikudag, og sagði Friðrik Pálsson forsljóri að erfitt væri orðið að sinna viðskiptasamböndum fyrirtækis- ins á æskilegan hátt. Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri Sjávaraf- urðadeildarinnar, telur að viðskiptasambönd séu ekki í hættu hjá fyrir- tækinu vegna þess að samdráttur hafi ekki orðið í þorskframleiðslu á vegum þess auk þess sem það sé ekki bundið af neinum stórum fyrirframsamningum. Framleiðsla á frystum þorski á vegum Sjávarafurðadeildarinnar hefur aukist um 1% þar sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra, framleiðslan í ár er 7.400 tonn á móti 7.300 tonnum í fyrra. Út- flutningur hefur aukist meira þannig að birgðir eru mjög litlar, eða innan við eitt þúsund tonn af þorski, sem er með því minnsta sem verið hefur hjá fyrirtækinu. Sigurður Markús- son segir að mikil spenna sé á mark- aðnum þar sem framboðið sé minna en eftirspumin og hafi afurðaverðið verið að hækka. Heildarframleiðsla á vegum Sjáv- arafurðadeildarinnar er 18.000 tonn það sem af er árinu en var 19.400 tonn í fyrra. Samdrátturinn er ein- göngu vegna lítillar grálúðufram- leiðslu. Ef grálúðan er undanskilin er um 15% aukning í frystingu hjá deildinni, að sögn Sigurðar. 911 91 970 LARUS ^ VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJORI m I I V v'k I 0 / U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasali Til sölu er að koma meðal annarra eigna: Með útsýni yfir borgina og nágrenni Mjög góð 2ja herb. íb. á 1. hæð 57,7 fm auk geymslu og sameignar í lyftuh. við Dúfnahóla. Ágæt sameign. Geymsla í kj. Verð aðeins kr. 4,3 millj. Nokkrar íbúðir lausar strax Nokkrar góðar 3ja og 4ra herb. íb. í borginni. Ennfremur góð 4ra herb. íb. i vesturborginni. Húsnæðisl. kr. 2,1 millj. Sumarhús á Hellu Endurbyggt timburh. 60,2 fm nettó. Hitaveita, rafmagn, sími. Gott lán. Margskonar eignaskipti. Góð kjör. Sjómaður á aflaskipi óskar eftir 3ja-4ra lierb. ib. í Hafnarfjrði. Má vera lítið einbýli. Góð útborgun. í borginni óskast gott skrifstofuhúsn. 100-300 fm. Til eigin nota. • • • Opið á laugardaginn. Kynnið ykkur laugardags- auglýsinguna. AIMENNA FASTEIGWASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Edda Jónsdóttir ásamt nokkrum verka sinna. Sýning á verkum Eddu Jónsdóttur: Yörður á Listahátíð VÖRÐUR, er yfirskrift sýningar á verkum Eddu Jónsdóttur, sem hefst í Gallerí Sævars Karls við Bankastræti í dag. Þrettán vatns- litamyndir og fimm skúlptúrar eru á sýningunni, öll unnin á þessu og síðasta ári. Þetta er tiunda einkasýning Eddu en auk þess hefiir hún tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin er haldin í tengslum við Listahátíð og stendur til 29. júní. „Ég hef reynt að halda nálægð- inni við myndefnið. Þetta eru frek- ar „hljóðar" myndir, ekki neinar Wagner óperur eða hetjumálverk á veggjum. Þessi sýning er meira í ætt við kammermúsík eða Ijóð,“ segir Edda um verkin á sýning- unni. En hvers vegna vörður? „Vörður hafa lengi verið mér hug- leiknar. Um nokkurra ára skeið gekk ég af og til með gönguklúbb á Reykjanesinu og fór þá að taka eftir þessum fallegu vegvísum sem eru um allt land. Með vörðun- um finnst mér ég vera komin með kjarna í hendurnar sem ég ætla að vinna áfram úr. Ég tengi vörð- urnar við ýmislegt sem ég hef verið að hugsa um; til dæmis þörf- ina fyrir að fara og geta komið aftur. Ég hef sterka þrá til að upplifa og finna nýja lykt, liti, fólk, lönd. Mér finnst gott að fara og heimsækja annan menningar- heim en þann sem ég bý við og það geri ég eins oft og ég get,“ segir Edda en hú er á förum til Grikklands, þar sem hún ætlar að dvelja í mánuð; velta fyrir sér formum og skissa. Á döfinni er þátttaka í norrænni samssýningu í Danmörku auk þess sem Edda hefur nýlokið við grafíkmyndröð sem hún sendi inn í samkeppni í Þýskalandi. Edda er kunnust fyrir grafík- verk en að þessu sinni sýnir hún vatnslitamyndir og skúlptúra úr steini og gleri. Hún segir þá frek- ar í ætt við drög að skúlptúrum en það gæti vel farið svo að hún sneri sér í ríkari mæli að þeim. „Verkin á sýningunni eru í beinu framhaldi af því sem ég hef verið að gera. Hjálma hef ég notað þónokkuð sem myndefni. Form þierra er ekki langt frá vörðunni, þó þeir hafi frekar verið til skjóls en til að vísa veginn í myndum mínum. Þá hef ég einnig tilhneig- ingu til að vinna myndraðir frem- ur en einstakar rnyndir." Sýningin er fremur smá í snið- um en Edda segist ekki óttast að hún hverfí í öllu því umstangi sem óneitanlega fylgi Listahátíð. „Ég er ekki í samkeppni við einn né neinn, ég hef gaman af að sjá myndirnar mínar í þessu rými. Þetta er ltið, fallegt gallerí, eitt hið fallegasta hérlendis. Mér fínnst það virðingarvert framtak af Sævari Karli að reka galleríið í tengslum við verslunina, það hefur hýst margar fallegar sýn- ingar. Ég gleðst yfír því að fá að sýna hér, því hér er ekkert truflar sýningargestinn." c Mes 1. Sætaferöir tii Kefiavíkurflugvallar, kr. 2000 pr. sæti. Sækjum farþega heim og ökum til Leifsstöðvar og öfugt. 2. Fyrir brúökaup og önnur hátíöieg tækifæri. 3. Sendum bíla í feröir hvert á land sem er gegn fyirfram umsömdu veröi. 4. Gerum tilboö í allan akstur okkar út um allt land fyrir 5-9 farþega. Bílstjorarnir tala ensku, þýsku og Norðurlandamál. Símar í öllum bílum. Kynniö ykkur hagkvæma greiðsluskilmála. Kreditkortaþjónusta. Opiö frá kl. 7-23.00. B.P. Malarhöfða 2, sími 674040

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.