Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990
11
Allir í hnapp í Moskvu
___________Skák______________
Margeir Pétursson
LAJOS Portisch, hinn gamal-
reyndi 53ja ára gamli ungverski
stórmeistari, komst upp í efsta
sætið í sjöundu umferð lokaúr-
tökumóts heimsbikarkeppninnar
í Moskvu. Hann vann landa sinn
Sax og náði þar með Sovétmann-
inum Bareev að vinningum. En
það verður mjótt á mununum í
siðustu flórum umferðunum,
drjúgur helmingur þátttakenda
á ennþá möguleika á að hreppa
eitt af þeim tólf sætum sem gefa
þátttökurétt í næstu heimsbikar-
keppni. Þeirra á meðal eru bæði
Jón L. Arnason og Jóhann Hjart-
arson, sem láta engan bilbug á
sér finna þrátt fyrir harðvítuga
mótspymu.
Föstudag, laugardag og sunnu-
dag verða 8.-10. umferðir mótsins
tefldar, frí er á mánudaginn, en
lokaumferðin, sú sem öllu máli mun
skipta, verður á þriðjudaginn. Við
skulum líta á stöðuna á mótinu.
Það skiptir sköpum við skoðun
hennar að aðeins fimm efstu Sovét-
mennirnir komast áfram en hin sjö
sætin munu falla í skaut annarra
þáttta'kenda. Jón L. Árnason er nú
í hópi þeirra sjö:
1.-2. Bareev og Portisch 5 v. af 7
mögulegum,
3.-6. Speelman (Englandi), Psakhis
(ísrael), Gelfand og Azmaiparas-
hvili (báðir Sovétríkjunum) 4'/z v.
7.-19. Jón L. Árnason, Chandler
(Englandi), Nikolic (Júgóslavíu),
DeFirmian (Bandaríkjunum), Á.
Sokolov, Beljavsky, Dolmatov, Kha-
lifman, Vaganjan, Dorfman, Chem-
in, Polugajevsky og Eingorn (allir
Sovétríkjunum) 4 v.
20.-27. Jóhann Hjartarson, Sax
(Ungverjalandi), Gulko og Seiraw-
an (báðir Bandaríkjunum), M.
Gurevich, Ivanchuk, Akopjan og
Malanjuk (allir Sovétríkjunum) 3 'U
v.
Athygli vekur að stigahæstu
þátttakendurnir, þeir Vassily Ivan-
chuk og Mikhail Gurevich, eru að-
eins í miðjum hópi þátttakenda og
verða að ná mjög góðum enda-
spretti til að eiga möguleika.
Við skulum líta á vinningsskák
Jóhanns Hjartarsonar á mótinu.
Andstæðingur hans er kunnastur
fyrir að hafa orðið í öðru sæti á
eftir Karpov í heimsmeistarakeppn-
inni í atskák 1988 (hálftímaskák)
og í þessari skák gerir hann þau
mistök að tefla hratt og áætlunar-
laust í miðtaflinu.
Hvítt: Viktor Gavrikov
Svart: Jóhann H(jartarson
Drottningarindversk vörn
l.d4 - Rf6 2. Rf3 - e6 3. c4 -
b6 4. g3 - Ba6 5. Da4 - Bb7
6. Bg2 — c5 7. dxc5 — Bxc5 8.
0-0 - 0-0 9. Rc3 - Be7 10. Bf4
- Ba6 11. Hadl - Rc5 12. Dc2
- Dc8 13. Hd4!?
Bandaríski stórmeistarinn Max
Dlugy hefur dálæti á þessu afbrigði
og þessi undarlegi leikur er runninn
undan rifjum hans.
13. - d5 14. cxd5 - exd5 15.
Hddl - Rce4 16. Be5 - Df5!
Þetta er betra en 16. — De6 17.
Rb5! — Hac8 18. Dbl sem gafst
vel á hvítt í skákinni Dlugy-A.
Ivanov, bandaríska meistaramótinu
í fyrra, en Jóhanni var reyndar
ekki kunnugt um þá skák.
17. b3 - Hfd8 18. Rb5 - Bc5 19.
Rbd4 - Dd7 20. Bf4 - h6 21.
Db5 - Dxb5 22. Rxb5 - a6 23.
Rbd4 - He8 24. Rb3?
Hvítur teflir án áætlunar og eft-
ir þetta leiktap er Jóhann fljótur
að ná frumkvæðinu:
24. - a5 25. Rbd4 - Ba6 26. Hcl
- Had8 27. a3 - Rg4 28.h3
Hvítur vill láta reyna á það hvort
fórnin á f2 standist, endá er ekki
auðvelt að benda á betri leiki í þess-
ari þröngu stöðu.
28. — Rgxfö 29. Hxf2 — Rxf2 30.
Kxf2 - Bxe2 31. Hd2 - Bxf3 32.
Kxf3
Gavrikov hafði yfirsézt að eftir
32. Bxf3 vinnur svartur mann með
hinum skemmtilega leik 32. — Hc8.
32. - Hel 33. Re2 - He8 34.
Hc2 - H8xe2 35. Hxe2 - Hxcl
og svartur er kominn út í endatafl
með tveimur peðum yfir, sem þó
tekur nokkurn tíma að vinna. Gav-
rikov gafst upp í 74. leik.
Frammistaða hins 23ja ára
gamla Sovétmanns Evgeny Bareevs
hefur vakið verðskuldaða athygli
og líklegt að hann nái að taka sæti
af mun frægari löndum sínum. Það
var þó nokkur heppnisbragður á
því hvernig hann komst á toppinn,
en það gerðist með sigri í æsispenn-
andi og skemmtilegri skák í sjöttu
umferð:
Hvítt: Gyula Sax
Svart: Evgeny Bareev
Frönsk vörn
l.e4 - e6 2.d4 - d5 3. Rc3 -
Rf6 4. Bg5 - Be7 5. e5 - Rfd7
6. h4!?
Aljekín-Chatard-árásin sem
kann að öðlast nýjar vinsældir eftir
þessa skák. Það hefur löngum þótt
nokkuð varhugavert að þiggja fórn-
ina og 6. — c5 7. Rb5 hefur verið
algengast..
6. — Bxg5 7. hxg5 — Dxg5 8.
Rh3 - De7 9. Rf4 - g6 10. Bd3
- Rb6
10. — Rf8? 11. Rfxd5 er þekkt
gildra, en nú vinnur hvítur peðið
strax til baka.
11. Bxg6! - Rc6 12. Rce2 - Bd7
13. Bd3 - 0-0-0 14. Dd2 - f6 15.
exf6 - DxfB 16. c3 - e5 17. dxe5
- Rxe5 18. 0-0-0 - h5?!
Hér hefði svartur átt u.þ.b. jafna
stöðu eftir 18. — Rxd3+ 19. Rxd3,
en í staðinn fer hann að leggja of
mikið á stöðuna á kóngsvæng.
19. Bc2 - h4 20. Dd4 - Dg5 21.
Kbl - Bg4?! 22. Rh3! - De7 23.
f3 — c5 24. Df2 - Bxh3 25. Hxh3
- Rbc4 26. f4! - Rc6 27.f5 - R6e5
28. Rf4?
Sax nagðaði sig í handarbökin
eftir skákina fyrir að hafa ekki leik-
ið hinum augljósa og öfluga leik
28. f6! sem vinnur peð. Nú nær
svartur mótspili:
28. - Rg4 29. Df3 - Rge3 30.
Rxd5?
Þessi hörmulegi afleikur í tíma-
hraki kostar hvít skákina. Eini leik-
urinn var 30. Hd3 með tvísýnni
stöðu, því hvítur lifír af eftir 30. —
Rxc2 31. Kxc2 — Re5 32. De3.
30. - Rxd5 31. Hxd5 - Rd2+ 32.
Hxd2 - Hxd2 33. Hhl - De2 34.
Dxe2 - Hxe2 35. g4 - h3 36. f6
— h2 37. f7 — Hg2 og í þessari
vonlausu stöðu féll hvitur á tíma.
Búðardalur:
Efsti maður
Samtíðar
sagði af sér
EFSTI maður af lista Samtíðar í
Búðardal, Kristinn Jónsson K-list-
anum, hefur sagt af sér hrepps-
nefndarsæti sínu í Laxárdals-
hreppi. Þetta gerðist í byrjun vik-
unnar, eftir að kosningaúrslit lágu
fyrir.
Við afsögn efsta mannsins af K-
listanum, riðlast röð annarra manna
á listanum þannig að hver færist upp
um eitt sæti. Efsti maður verður því
Guðrún Konný Pálmadóttir.
K-listinn fékk þrjá menn kjörna í
hreppsnefnd og myndar því meiri-
hluta þar. Af D-lista voru kjörnir
tveir menn.
BibKudagar
Um hvítasunnu gengst Skál-
holtsskóli fyrir biblíudögum. Jón-
as Gíslason, vígslubiskup, mun
ræða efhi postulasögunnar með
þátttakendum. Helgihald fer fi-am
í Skálholtskirkju og messur verða
í umsjá sóknarprests, séra Guð-
mundar Ola Olafssonar.
Biblíudagar eru nýlunda í starfi
skólans. Þeim er ætlað að koma til
móts við þá sem vilja kynna sér efni
biblíunnar. í þetta sinn verður fetað
í fótspor frumkirkjunnar.
Jónas Gíslason vígslubiskup, lætur
nú af störfum sem prófessor í kirkju-
sögu við Háskóla Islands og tekur
brátt við embætti sem vígslubiskup
með aðsetur í Skálholti.
Biblíudagar eru öllum opnir. Þátt-
taka tilkynnist á biskupsstofu í
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
f
Ekki bara
DAGA^
ÍDAGOGÁMORGUN
X0&$eens“, heldur líka f00ffiids“!
Og ítilefni þeirra höldum við PARTÝ í báðum verslunum okkar
Sjáumst
Póstsendum
Allir ^ viðskiptavinir
fá skemmtilegan glaðning beint
frá ^ 0 í Hollandi
'HAT‘5 NE1W?
vorylhlngl
pasonw chan^o
oi4i*o do wo.
nnrzy ohapoa
iiiwtSfihnU,
nd punte. IFor
ave worriors
fld stroct
tronir/ funky
Iripas ot a dif-
*r«nt coiour.
otlds loo.
titgorthanllfo
shirta, ucctofi'
oricfc for all-
mbroiderod
otoils, ab*
Iract aymbot*
weatcr snd
»cKot baiics.
/Ilh tbe Moxx
oon in mlní.
n Ihe ciaes*
oom, on the
leehond. Mlx
hern • motch
hom, mix them
fieln. Thls
priní... Moxx
b ln tho air.