Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 16
ORKIN/SIA 16 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. JUNI 1990 T Flymo ■ ■ SVIFNOKKVINN FLJÚGANDI létt og skemmtileg sláttuvél L47 Sláttubr. 47cm Tvíg.mótor98cc L38 Sláttubr. 38cm Tvíg.mótor 98cc E38 Sláttubr. 38cm Rafmótor Electrolux 500m2 I E 30 Sláttubr. 30cm Rafmótor Electrolux XE 30 Sláttubr. 30cm " m/safnara RE 30 Sláttubr. 30cm Rafmótor Electrolux RE 42 Sláttubr. 42cm Rafmótor Electrolux 1000m2| Við aðstoðum við rétt val á sláttuvél sem hentar þér og þínum garði. Viðgerðaþjónusta Opið Laugardaga kl. 10-16. CAP Raögreiöslur G.Á. Pétursson hf SláMuwéla anarkallurlnai Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 Ljósmynd/Ásgeir Núpan Ágústsson Loftmynd af Suðurfjörutanga þar sem verið er að fylla upp í skarðið. í bakgrunni hægra megin sést í Einholtskletta. Hornafj arðarós: Stöðug barátta náttúru- aflanna um mótun landsins HÖFN í Hornafirði hefur á síðastliðnum áratugum byggst upp í kringum höfiiina sem þar er og eru íbúarnir nú um 1.600 talsins. Bærinn er í nábýli við tvær af höfuðskepnunum, hafið og jökulinn. Náttúruöflin eiga í stöðugri baráttu um að móta landið og innsigling- una í Hornafirði. Hornafjarðará ber fram möl og leir í ósinn og úthafsaldan brotnar á töngunum, Suðuríjöru- og Austurfjörutanga, sem gera Hornafjarðarhöfn að einhverri skjólbestu höfh hér á landi. Fyrir kemur að landið .lætur und- an ofurþunga þessara tveggja krafta og það fengu hornfirskir sæfarendur að reyna síðastliðinn vetur. í flóðaveðrinu 9. mars síðast- liðinn bar brimaldan jarðveg úr Suðurfjörutanga inn í innsiglingar- rennuna svo að hún tepptist. I lok mars gerði síðan annað áhlaup og Iét tanginn þá undan brimþunga Atlantshafsöldunnar og opnaðist í hann 200 metra geil. Efnið úr tang- anum barst inn í innsiglinguna og um miðjan maí hafði sanddæluskip- ið Perlan dældt um 60 þúsund rúm- metrum af jarðvegi úr rennunni upp á fast land. Skipsströnd hafa verið tíð í innsiglingunni og er þess skemmst að minnast er þijú skip strönduðu á einum sólarhring í apríl síðastliðnum. Þá sökk lóðsbátur Hornfirðinga er hann reyndi að draga togarann Þórhall Daníelsson af strandstað á Faxeyri. Síðan þá hafa Hornfirðingar notað gúmbát björgunarsveitarinnar á Hornafirði en að sögn Sigfúsar Harðarsonar verða útboð opnuð í smíði nýs lóðs- báts 10. júlí næstkomandi og gerir hann ráð fyrir að báturinn verði kominn í gagnið næsta vor. Til liðs við náttúruöfíin 1948 opnaðist skarð í Suður- fjörutanga með svipuðum hætti. Þá sá brimaldan sjálf um að fylla upp í skarðið og það er einnig að ger- ast núna. Hins vegar ákváðu bæjar- yfirvöld nú að flýta fyrir þessum gangi náttúrunnar og undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að setja tveggja tonna sandsekki í skarðið, alls um 1.000 sekki. Kjart- an Jónsson, verkstjóri hjá bænum, hefur stjórnað verkinu, en auk hans hafa fjórir starfsmenn bæjarins verið við störf á Suðurfjörutanga að staðaldri síðustu fjórar vikur. Kjartan sagði að hver sekkur sem þannig er sökkt í hafið kosti 1.700 krónur, en þeir eru aðallega fengn- ir frá fiskvinnslustöðvum í bænum. Enn er um 50 metra skarð á milli Hvanneyjar og Suðurfjörutanga og er unnið að því að fylla það þessa dagana. Ráðstefiia um ósinn Dagana 8.-9. júní næstkomandi verður haldin opin ráðstefna um Hörnafjarðarós á vegum bæjaryfir- valda með þátttöku helstu vísinda- manna á sviði hafnarmannvirkja- gerðar, stjórnmálamanna og ann- arra. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu eru nokkrar hug- myndir uppi varðandi úrbætur við Hornafjarðarós, meðal annars Á tölvuskjánum geta sjómenn séð ölduhæðina við innsiglinguna áður en þeir halda til róðra. Það er býsna mikið öryggisatriði eins og málum er háttað í Horna- Qarðarósi. bygging öldu- og flóðavarnar á Suðurfjörutanga og bygging leiði- garðs út frá Austurfjörutanga. Þá hefur borið á góma þá hugmynd að byggja garð frá Suðurtanga út í Einholtskletta, sem liggja um 300 metra suður af Hvanney, austasta tanga Suðurfjörutanga, en hug- Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Kjartan Jónsson, verkstjóri, kannar dýptina í geilinni sem myndaðist í Suðurfjörutanga. I baksýn er Hvanney. Straumþunginn eykst eftir því sem skarðið minnkar og seinna gengur því að fylla það með sandsekkjum. ■ SIGURÐUR Sólmundsson mun opna sýningu um hvítasunn- una á Hótel Selfossi. Þetta er 12. einkasýning Sigurðar með 20 nýj- um myndum sem unnar eru á síðasta ári og það sem af er þessu. Myndirnar eru unnar úr gijóti, timbri, járni, mosa og fleirum lífrænum efnum. Sigurður er að mestu sjálfmenntaður og hefur ferðast víða um landið í leit að efni í myndirnar, t.d. til Borgarfjarðar eystri og á Strandirnar. Sýningin hefst Iaugardaginn 2. júní kl. 14 og lýkur sunnudaginn 10. júní kl. 22. 1 tilefni sýningarinnar verður kaffihlaðborð frá kl. 15—17, laug- ardaginn 2. júní, sunnudaginn 3. júní og mánudaginn 4. júní. Einnig verður sérstakur matseðill í gangi laugardag og sunnudag í norðursal og mun Karl Sighvatsson Ieika á flygil undir borðhaldi. Hann leikur einnig við opnun sýningarinnar á laugardag. Sigurður Sólmundsson opnar sýningu á Hótel Selfossi á morg- un, laugardag. 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.