Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JUNI 1990
• •
Orlygur Hálfdanarson
kjörinn forseti SYFI
Tvær af myndum Vigfúsar Sigurgcirssonar.
Jónshús í Kaupmannahöfíi:
Sýning á ljósmyndum
Vigíusar Sigurgeirssonar
SÝNING á um 90 ljósmyndum eftir Vigfus Sigurgeirsson verður í
Jónshúsi í Kaupmannahöfn nú í júní. Gunnar G. Vigfusson ljósmynd-
ari, sonur Vigíúsar, vann myndirnar og setti sýninguna upp.
Vigfús Sigurgeirsson fæddist árið
1900. Hann nam ljósmyndaiðn hjá
Hallgrími Einarssyni ljósmyndara á
Akureyri og rak eigin ljósmynda-
stofu þar frá 1923-1935. Hann fór
til frekara náms í ljósmyndun og
kvikmyndagerð til Þýskalands árið
1935 og dvaldi þar tvo vetur. Árið
1936 flutti hann til Reykjavíkur og
opnaði ljósmyndastofu sína sem
hann rak til æviloka árið 1984.
Myndirnar á sýningunni voru
teknar á árunum 1925-1969 á ýms-
um stöðum á landinu, m.a. í
Reykjavík, Siglufirði, Sauðárkróki,
Simgið fyr-
ir safiiað-
arheimili
NÚ ER verið að ljúka við endur-
byggingu gamla Iðnskólans á
horni Lækjargötu og Vonarstræt-
is sem verða á safnaðarheimili
Dómkirkjunnar. Reykjavíkurborg
hefúr sýnt Dómkirkjusöfhuðinum
mikið vinarbragð með því að láta
honum eftir þetta merka hús til
starfsemi sinnar.
Starfsmenn ís-
taks hafa unnið í I
allan vetur að end-
urbyggingu húss-
ins og er markmið-
ið að þetta glæsi-
lega hús verði end-
urreist til sinnar
fyrri prýði og gert
þénarílegt til safn-
aðarstarfs sam-
kvæmt uppdrátt-
um Leifs Blumen-
stein og Þorgeirs
Jónssonar.
Undirbúningur endurbyggingar-
innar hefur staðið til um hríð enda
í mikið ráðist og kostnaður eftir
því. Liðs er því þörf svo hægt sé að
reka húsið frá byrjun af krafti og
er nú leitað um fjárstuðning til safn-
aðarfólks og annarra veiunnara
Dómkirkjunnar vegna þessa stór-
átaks.
Á næstu dögum mun sóknarbörn-
um berast Safnaðarblað Dómkirkj-
unnar. Með því fylgir sérstök beiðni
um stuðning en jafnframt er velunn-
urum safnaðarins bent á ávísana-
reikning nr. 740 í Islandsbanka,
Lækjargötu.
Söfnuður Krists er kallaður til
guðsþjónustu. Okkur er, þegar svo
er tekið til orða, tamast að hugsa
til helgiathafna í okkar öldnu Dóm-
kirkju. Þar hefur margur borið fram
lofgjörð sína og bæn. En við þjónum
Guði einnig með öðrum hætti. Við
þjónum honum í góðum verkum. Til
þeirrar þjónustu höfum við m.a.
safnaðarheimilin. Þar komum við
saman til samráðs og uppbyggingar
og þar sinnum við ýmsum þjónustu-
verkefnum.
Til að vekja athygli á þessu söfn-
unarátaki og til að kynna hið nýja
safnaðarheimili mun Dómkórinn
syngja utan við húsið í hádeginu í
dag, föstudag. Fólk er hvatt til þess
að koma niður að Tjörn og sjá og
heyra.
(Frcttatilkynning)
Úo3tH hliíj ,c f; t,ti If iíf ic!
Akureyri og Húsavík. Myndefnið er
margvíslegt; þær sýna mannlíf,
ýmsa merka atburði, s.s. Alþingis-
hátíðina, þar eru atvinnulífsmyndir
frá Siglufirði og þjóðlífsmyndir úr
Mývatnssveit svo fátt eitt sé nefnt.
Sýningin í Jónshúsi verður opnuð
laugardaginn 2. júní og stendur til
29. júní.
SLYSAVARNAFELAG Islands
kaus sér nýjan forseta og stjórn
á aðalfundi nýlega. Haraldur
Henrysson, fráfarandi forseti,
baðst undan endurkjöri og var
Örlygur Hálfdanarson kjörin í
hans stað.
Aðrir í aðalstjóm eru: Gunnar
Tomasson, Grindavík, Garðar
Eiríksson, Selfossi, Einar Sigur-
jónsson, Hafnarfirði, Sigurður H.
Guðjónsson, Sandgerði, Lára
Helgadóttir, ísafirði og Svala Hall-
dórsdóttir, Akureyri.
í varastjórn voru kjörin Engel-
hart Björnsson, Mosfellsbæ, Birna
Björnsdóttir, Reykjavík, Jóhannes
Briem, Reykjavík og Ragnar
Björnsson, Mosfellsbæ.
Fulltrúar landshluta era:
Örlygur Hálfdanarson.
Vesturland: Ingi Hans Jonsson,
Grundarfirði.
Vestfirðir: Barði Sæmundsson,
Patreksfirði.
Norðuriand: Þóranna Hansen,
Dalvík.
Austurland: Hrólfur Hraundal,
Nesskaupstað. _
Suðurland: Ólafur íshólm Jóns-
son, Selfossi.
Fulltrúar landshluta í varastjórn
eru:
Vesturland: Guðmundur Wa-
age, Borgarnesi.
Vestfirðir: Katrín Jónsdóttir,
ísafirði.
Norðurland: Gunnar Sigurðs-
son, Blöndósi.
Austurland: Ólafur Sigurðsson,
Öræfum.
Suðurland: Oktavía Andersen,
Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Reynir
„Æ, það var ekki pláss fyrir hann annarsstaðar en í svefnherberginu,“ segir Einar um staðsetn-
ingu jarðskjálftamælisins.
Tók jarðslgálftamælinn
með sér á elliheimilið
EINAR H. Einarsson, fyrrum
bóndi á Skammadalshóli í
Mýrdal, er um margt merki-
iegur maður. Nema það teljist
eðlilegt og sjálfsagt að hafa
jarðskjállitamæli í svefhher-
berginu hjá sér en Einar hefúr
umsjón með einum mæla Veð-
urstofúnnar. Hann hefúr
brennandi áhuga á jarðfræði
og reyndar öllu því sem við-
kemur náttúrunni, hvort sem
það eru bergtegundir, fuglar
eða grös. Hann hefúr viðað að
sér mikilli þekkingu um
áhugamál sín og skrifað fjölda
greina um þau samhliða bú-
skapnum. Nú er hann sestur
í helgan stein á elliheimilinu
Hjallatúni í Vík í Mýrdal ásamt
konu sinni, Steinunni Stefáns-
dóttur. Einar hafði þó með sér
jarðskjálftamælinn, að ósk
Raunvísindastofhunar.
„Loksins þegar mér gefst
nægur tími til að sinna áhuga-
málunum er ég orðinn allt of
lélegur til heilsunnar. Svo er ég
svo værukær og latur hér, það
er dekstrað við mig ,“ segir Ein-
ar, sem nú er 78 ára gamall.
.
Það er þröngt um jarðskjálftamælinn í svefnherberginu.
Hann sinnir þó enn mælinum
góða, sem hann hefur haft um-
sjón með frá 1971. „Æ, það var
ekki pláss fyrir hann annarsstað-
ar en í svefnherberginu. Nu og
svo kann ég ósköp vel við að
hafa hann hjá mér,“ segir Einar,
þegar hann er inntur eftir sér-
kennilegri staðsetningu mælis-
ins. „Hann Ragnar minn Skjálfti
vildi endilega að ég hefði með
mér jarðskálftamælinn þegar ég
flutti hingað og mér skilst að
íbúamir hér hafi einnig haft
mikinn áhuga á að ég kæmi með
hannn. En þetta er langtum verri
staðsetning en á Skammadals-
hóli. Mælirinn er ekki eins næm-
ur og hér er svo stutt á haf út,
að brimið vill koma fram á hon-
um.“
Og það hefur ýmislegt komið
fram á mælinum hjá Einari; hann
hefur fylgst með kjarnorku-
sprengingum Sovétmanna við
Novaja Zemlja, Vestmannaeyja-
gosinu, og að sjálfsögðu öllum
stærri jarðhræringum og eldgos-
um hérlendis.
Einar fékk ungur áhuga á
flestu því sem við víkur náttúr-
unni; hann var ellefu ára þegar
hann gróðursetti fyrst plöntu og
segist hafa fengist nokkuð við
skógrækt síðan; hann hefur
áhuga á fuglum og grösum, að
ógleymdri jarðfræðinni, þá helst
bergmyndun. Hann hefur skrifað
fjölda greina um jarð- og nátt-
úrufræði og samdi árbók Férða-
félagsins um Myrdalinn. Einar
hefur einnig viðað að sér mikilli
þekkingu á þjóðfræði og skrifað
um hana fjölda greina, upphaf-
lega að áeggjan Kristjáns Eld-
járn.
En vitneskjunnar hefur Einar
ekki aflað sér á skólabekk, held-
ur hefur hann nýtt sér frítímann
til að lesa sér til um hugðarefni
sín. Það hefur oft rekist á við
skyldur bóndans og Einar segist
oft hafa óskað þess að hann
hefði meiri tíma til að sinna
áhugamálunum.
Mælirinn hjá Einari er einn
hlekkurinn úr „Kötlunetinu" svo-
kallaða, sem m.a. er ætlað að
spá fyrir um Kötlugós. Hann er
nú á vegum Veðurstofunnar. Það
var Páll Einarsson jarðfræðingur
sem bað Einar um að hafa mæl-
inn hjá sér. Einar hefur haft
kynni af mörgum jarðfræðingum
um dagana, hann vann m.a. að
náttúru- og jarðvegsrannsóknum
með Sigurði Þórarinssyni og með
Jóhannesi Áskelssyni að athug-
unum á steingeivingum, en Sig-
urður og Jóhannes eru nú báðir
látnir.
Þegar Einar er spurður hvort
hann sé forspár, svarar hann því
til að hann sé jarðbundinn maður
og byggi sínar spár eingöngu á
því sem hann sjái á mælinum.
„Það er ekki um það að ræða
að ég finni á mér þegar eitthvað
mikið er í aðsigi enda sér mælir-
inn um það. Hann flautar ef
nálægur skjálfti mælist yfir 3
stig á Richter. Mælirinn lét síðast
í sér heyra í vetur þegar skjálft-
inn varð hjá Kleifarvatni."
Einar hefur ferðast um Suður-
land þvert og endilangt vegna
jarðfræðiáhuga síns og rann-
sókna. Hann segist ekki eins
kunnugur öðrum landshlutum þó
hann hafi vissulega víða komið.
En hefur hann farið til útlanda?
„Nei en mig hefur alltaf langað
til Grænlands þó aldrei hafi orð-
ið neitt úr því. Ég á ekki von á
að það gerist héðan af.“