Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 23

Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 23 Skoðanakannanir í Bretlandi: Dialdsflokkurinn að rétta úr kútnum St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FORYSTA Verkamannaflokksins breska í skoðanakönnunum fer minnkandi. Tillögur flokksins í efnahags- og atvinnumálum, sem lagðar voru fram í síðustu viku, hafa reynzt umdeildar. I tveimur skoðanakönnunum, sem birtar voru um síðustu helgi, kemur fram að forysta Verka- mannaflokksins á íhaldsflokkinn fer minnkandi. í annarri er hún 13%, en var 23% í marz. í hinni var hún 18% og hafði minnkað um 4%_ frá mánuðinum á undan. í síðustu viku lagði Verkamanna- flokkurinn fram drög að nýrri stefnuskrá-. Flokkurinn hefur losað sig við flest af því, sem valdið hef- ur óvinsældum hans síðasta áratug- inn. Vinstrisinnar innan flokksins hafa sakað flokksforystuna um að hafa gefið sósíalisma algerlega upp á bátinn. Talsmenn íhaldsflokksins hafa gagnrýnt tillögurnar í efnahags- og atvinnumálum. Þeir segja aukna áherzlu á félagsmál munu kosta mikið fé, sem sé ávísun á aukna verðbólgu. Þeir segja einnig, að fyrirhugaðar breytingar á löggjöf um verkalýðsfélög, muni lama allt efnahagslífið. Verkamannaflokkurinn kom vel út úr aukakosningunum í Bootle í Liverpool í síðustu viku og bætti við sig fylgi, fékk yfir 70% at- kvæða. Jafnaðarmannaflokkur Davids Owens fékk hins vegar hraksmánarlega útreið. Hann fékk aðeins um 150 atkvæði, en The Monster Raving Loony Party, sem er grínflokkur eins og nafnið bend- ir til, fékk um 480 atkvæði. Talið er næsta víst, að Jafnaðarmanna- flokkurinn lifi ekki af næstu þing- kosningar. Reyklausi dagurinn Allt að 500 milljónir af núlifandi jarðarbúum, eða um það bil einn af hvetjum tíu, munu deyja af völdum reykingasjúkdóma svo sem krabbameina og lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma, þar af þrjár millj- ónir á þessu ári, ef reykingavenjur haldast óbreyttar. Myndin sem hér birtist var tekin á sjúkrahúsi í Manila í tilefni „Reyklausa dags- ins“. Nýburarnir bera borða með áletruninni „Fæddist reyklaus“ til að minna á óskir foreldranna um að stjórnvöld geri eitthvað bita- stætt til að vernda börn fyrir skaðlegum áhrifum tóbaksreykinga. Reuter ♦ BARNAHÚSGÖGN ó HESTAR 9 STÓLAR ð KUBBAR $ HRÚGÖLD 0 SÓFAR $ HJÓLSTÓLASESSUR 0 PÚÐAR Q PULLUR MARGIR VERJA ÞRIÐJUNGIÆVI SINNAR Á LYSTADÚN Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir því að þeir sofa einn þriðja hluta ævi sinnar. En svefn og svefn er ekki það sama. Svefn í rúmi sem ekki hæfir þér getur oröið til þess að þú vaknir þreytt(ur) á hverjum morgni án þess að þú gerir þér grein fyrir því. Hvíldin er jafn naubsynleg og gób hreyfing. Þér finnst sjálfsagt að fara vel með þig, byggja þig upp fyrir átök daglega lífsins og vera í góðu formi. Sumir synda á hverjum morgni, aðrir hlaupa eða stunda leikfimi Allflestir gera sér grein fyrir nauðsyn réttrar hvíldar og góbs mataræðis. Góð vinnuaðstaða, - stólar, borð og tæki eru líka sjálfsagðir hlutir. En hvab þá meb helsta hvíldarstabinn - rúmib þitt? Allir sérfræðingar eru sammála um að rúmið verði að vera sannkallaður hvíldarstaður, en dýnan verður að hæfa þér, þyngd þinni og stærð. Þess vegna er mjög mikilvægt að dýnan þín sé rétt upp byggð og með réttum rúmbotni. Þar kemur LATEX dýnan til hjálpar. LATEX dýnurnar frá Lystadún uppfylla allar þær kröfur sem fólk gerir um góðar dýnur. LATEX er unnið úr náttúrulegum efnum og í LATEX dýnum eru þúsundir holrúma sem gera lofti kleift að leika um þær og halda þannig líkamshita jafnari. LATEX - lausn á tímum endurmats Láttu ekki óheppilega rúmdýnu valda þér óþægindum stóran hluta ævi þinnar. Leggðu þig á LATEX dýnu og farðu vel með þig. Ný viðhorf í heilsu- og heilbrigðis- málum munu stuðla að skynsamlegri lífsháttum og betri heilsu. í því sambandi skiptir góbur svefn á góðri dýnu afar miklu máli. LYSTADÚN Skútuvogi 11, sími 8 46 55 Opiö í sumar mánud. - föstud. frá kl. 09 -18. Utíiúli. SUMARHÚSADÝNÚk ♦ LATEXDÝNUR ‘ö BÁRNADýNUR 4 UNGLINGADYNUR ó VÖGGllDÝNUR~¥~R'ÚMBOTNAR 0 BÍLAGALLERÍ Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga frá kl. 10-16. DaíHatsu Charade TX '88. Ljósblár, 5 gíra, útv/segulb., vindskeið aftan. Ek. 22.000 km. Fallegur bfll. Verð 588.000. Flat Uno 55-S ’85. Ljósblár, 5 glra, útv/segulb., vetr- ar/sumard. Ek. 79.000 km. Verð 230.000. Daihatsu Charade CS ’87. Blár/ljósbl., 4 glra, útv/seg- ulb. Ek. 38.000 km. Verð 420.000. Daihatsu Charade CX '88. Hvítur, 5 gfra, fallegur bfll. Ek. aðelns 16.000 km. Verð 580.000. Volvo 360 GLS '85. Sllfurgr., 5 gfra, útv/segulb. Sflsalistar o.fl. Ek. aðelns 32.000 km. Verð 510.000. Volvo 740 GL '86. Blágrœnn. 5 gfra, vökvast., útv/segulb. Ek. 54.000 km. Verð 1.020.000 sklpti. MMC Lancer QLX ’87. Dökk- grár, 5 gfra, útv/segulb., sum- ar/vetrard. Ek. 42.000 km. Verð 580.000. Fjöldi annarra notaðra úrvals bfla á staðnum og i skrá. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.