Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Jóhann Hjálmars- son - Kveðjuorð Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blðð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (H. Pétursson.) Með nokkrum og fátæklegum orðum langar mig að minnast Jó- hanns frænda míns Hjálmarssonar, fyrrum bónda og síðar húsvarðar í Menntaskólanum við Hamrahlíð, sem lést í Landspítalanum þriðju- daginn 22. maí sl. Jóhann Hjálmarsson fæddist 27. nóvember 1919 á Grímsstöðum í Svartárdal. Hann var sonur hjón- anna Guðrúnar Jónsdóttur frá Hömrum í Lýtingsstaðahreppi og Hjálmars Jóhannessonar bónda á Grímsstöðum í Svartárdal. Guðrún, móðir Jóhanns, var systir Friðriks afa míns, þannig að við vorum skyldir að öðrum og þriðja. Guðrún og Hjálmar eignuðust ellefu börn sem komust á legg og var Jóhann níundi í röðinni. Jóhann hóf búskap í Brekkukoti en bjó síðan iengi á Ljósalandi hjá Skíðastöðum. Þrátt fyrir náinn skyldleika kynntist ég Jóhanni ekki fyrr en ég hóf nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð haustið 1976. Jóhann og María, kona hans Benediktsdótt- ir frá Skálholtsvík í Strandasýslu, voru þá húsvarðarhjón við skólann og bjuggu í lítilli íbúð í skólanum. Á menntaskólaárunum átti ég þess kost að vera tíður gestur á heimili þeirra, meðal annars vegna tölu- verðra afskipta af félagsmálum námsmanna, sem höfðu 'i för með sér mikil samskipti við húsvarðar- hjónin. Þannig skapaðist vinátta sem leiddi mig oft í heimsókn tii þeirra hjóna í Hamrahlíðarskólan- um, einnig eftir að stúdentspróf var í höfn og eins þegar ég kom heim í fríum meðan á námsárum erlendis stóð. Þá voru tíðum sagðar sögur af fólki og fénaði af heimaslóðum í Skagafirði, en frásagnarlistina kunni Johann með miklum ágætum. Þeir sem til hans leituðu mættu ávallt mikilli hjálpsemi og átti það ekki síst við um nemendur í skólan- um sem iðulega þurftu á aðstoð húsvarðanna að halda. Jóhann var sérstakt ljúfmenni er átti auðvelt með að öðlast traust gáskafullrar æsku, sem síst var gefin fyrir að láta eldri kynslóðina segja sér hvað væri rétt og rangt. Með hlýju við- móti laðaði hann að sér unga fólkið og naut virðingar hinna eldri. Sjálf- ur sat ég í stjórn skólans um tíma og veit af starfi mínu þar að Jó- hann þótti leysa starf sitt af natni og kostgæfni. Heimsóknirnar til Johanns og Maríu voru lærdómsrík- ar en ekki síður mikil upplyfting sem seint verður fullþakkað. Jóhann og María eignuðust átta syni, þar af tvenna tvíbura. Söknuð- ur þeirra er mikill, en ljúfar minn- ingar mega vera huggun harmi gegn. Eg kveð Jóhann Hjálmarsson frá Ljósalandi með virðingu og sendi Maríu mínar innilegustu samúðar- kveðjur, sem og sonum þeirra, tengdadætrum og barnabörnum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Árni Þór Sigurðsson Hinn 22. þ.m. andaðist á Borg- arspítalanum Jóhann Hjálmarsson fyrrverandi bóndi og síðar húsvörð- ur Menntaskólans við Hamrahlíð. Við sem störfuðum í skólanum við ræstingarstörf kynntumst því fljótt að Jóhann var mikill mannkosta- maður og næmur á hinn mannlega þátt lífsins. Þess naut hann ríkulega í starfi sínu og tel ég að nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð og starfsfólk allt hafi metið störf hans þar að verðleikum því vandfundið verður annað eins lipurmenni og Jóhann var. Hann vildi livers manns götu greiða og átti auðvelt með að umgangast alla aldurshópa, þar var ekkert kynslóðabil. Þessi aðlögunarhæfni Jóhanns var honum mjög eðlislæg. Tel ég að þar hafí komið til hans skarpa greind og hið mikla víðsýni sem hann hafði í mannlegum samskipt- um. Ég minnist þess að Jóhann taldi sig mikinn gæfumann að hafa átt þess kost að umgangast allt þetta unga og upprennandi æskufólk og ekki síst var honum hugstætt hvað mörg ungmenni héldu áfram á menntabraut og hversu vel þeim vegnaði. Ég veit að hann hugsaði oft til þeirra eins og hann ætti þau öll, þannig var hann Jóhann og við- mót hans við alla. Ég vil með þessum örfáu línum þakka Jóhanni samstarfið á annan áratug, sem aldrei bar skugga á. Við hjónin sendum Maríu og nán- ustu aðstandendum samúðarkveðj- ur. Guð blessi ykkur minningar á erfiðri skilnaðarstund. Silla Ástkær tengdafaðir minn, Jór hann Hjálmarsson frá Ljósalandi í Skagafirði, lést í Borgarspítalanum í Reykjavík 22. maí sl. Hann fæddist á Grímsstöðum í Svartárdal þann 27. nóvember 1919. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir og Hjálmar Jóhannesson en þau eignuðust alls 11 börn. Hjálmar dó aðeins 47 ára gamall og var þá flestum börnunum komið fyrir hjá vandafólki. Þá var Jóhann þriggja ára og fór hann að Mæli- fellsá á Efribyggð og ólst upp hjá Jóhanni Magnússyni frá Gilhaga og konu hans, Lovísu Sveinsdóttur. Árið 1940 stofnaði Jóhann til hjú- skapar með eftirlifandi konu sinni, Maríu Benediktsdóttur frá Óspaks- eyri í Strandasýslu. Þau bjuggu fyrst á Hvíteyrum í Tungusveit í eitt ár en síðan í Brekkukoti á Efri- byggð í þijú ár uns þau reistu nýbýl- ið Ljósaland, úr Skíðastaðalandi, á Neðribyggð. Þar bjuggu þau til árs- ins 1973 er þau seldu jörðina og fluttust til Reykjavíkur og tóku við húsvörslu í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þau létu af störfum árið 1988. Jóhann og María eignuðust átta drengi, þar af tvenna tvíbura. Þeir eru: Sigurgeir Jens, f. 1940, bif- reiðastjóri hjá Bílanausti í Reykjavík; Jóhann Pétur, f. 1943, starfsmaður Hagkaupa; Snorri, f. 1945, starfar við byggingariðnað í Reykjavík; Ingimar, f. 1949, tré- smiður, forstöðumaður trygginga- félagsins Sjóvá-Almennar á Sauð- árkróki; Frosti Fífíll, f. 1952, þjóð- háttafræðingur, ritstjóri bóka- flokksins íslensk þjóðmenning; Jök- ull Smári, f. 1952, trésmiður, bif- reiðastjóri f Uppsölum í Svíþjóð; Hjálmar Rúnar, f. 1959, trésmiður, starfsmaður Byko í Hafnarfirði; Benedikt Emil,'f. 1959, húsasmíða- meistari í Reykjavík. Barnabörnin eru 21 en barnabarnabörn 6. Ég kynntist Jóhanni fyrst sumar- ið 1977, en þá vorum við Frosti bæði í námi í Uppsölum. Eins og oft er venja komu námsmenn heim í námshléum og var þá gott að eiga einhveija að sem gátu boðið gist- ingu. Jóhann og María voru þá húsverðir í Menntaskólanum í Hamrahlíð og fengum við alltaf hlýjar móttökur hjá þeim. Ég varð einnig fljótt vör við þær vinsældir sem þau hjónin nutu meðal nem- enda og starfsfólks skólans, enda sinntu þau húsvarðarstarfínu af einurð og lipurð. Jóhann hafði sér- staka hæfíleika til að umgangast nemendurna og skynjaði vel þarfír þeirra og væntingar. Vissulega var um krefjandi starf að ræða, þar sem margs er að gæta, en eitt er víst að þessi ár í Hamrahlíðinni veittu þeim hjónum mikla lífsfyllingu, sem birtist í hlýrri frásögn þeirra af þessu tímaskeiði í ævi þeirra. Ég átti góða stund með Jóhanni kvöldið áður en hann kvaddi hið jarðneska líf. Þrátt fyrir mæðina, sem ég vissi að stafaði af þeim sjúk- dómi sem bar hann ofurliði, rædd- um við um margt-. Hugsun hans var skýr og mér var ljóst að hann var að riíja upp farinn veg. Það virtist honum minnisstætt er hann þriggja ára gamall missti föður sinn og börnin ellefu tvístruðust í ýmsar áttir. Þessi atburður virtist hafa haft mikil áhrif á hann og kom oft fram sú skoðun hans að það væri mikilsvert að systkini fengju að al- ast upp saman. Jóhann var eðlisgreindur og hlý- legur í viðmóti. Hann var opinskár og taldi sig hafa lært margt af kynnum sínum við skólafólkið. Hann var mjög áhugasamur um hvers kyns þjóðmál og fylgdist vel með íjölmiðlum. Hann var eins og margir bændur af hans kynslóð ein- lægur framsóknarmaður, en þrátt fyrir ákveðnar flokkspólitískar skoðanir var honum lagið að leggja hlutlægt mat á menn og málefni og hafði sterka réttlætiskennd. Á búskaparárum sínum vann hann töluvert að félagsmálum fyrir sveit sína. Hann sat um skeið í hrepps- nefnd Lýtingsstaðahrepps, var for- maður skólanefndar Steinsstaða- skóla ogátti einnig sæti í sóknar- nefnd Reykjakirkju. Jóhann var ræðinn mjög og lét sér ekkert óviðkomandi, hvort sem um var að ræða stjórnmál, mennta- mál, heilbrigðismál eða barnaupp- eldi. Hann var barngóður og bömin okkar hændust mjög að honum. Hann var næmur á eiginleika þeirra, sem jú oft eru ólíkir, en kunni alltaf að draga fram hið góða í öllum. Það er erfitt að vera fjarri ís- landi þessa dagana, en sorgin og söknuðurinn hafa engin landamæri. Ég og íjölskylda mín minnumst Jóhanns af miklum hlýhug um leið og við vottum Maríu og nánustu aðstandendum okkar dýpstu sam- úð. Megi Guð styrkja ykkur á erf- iðri stundu. Steinunn Þann 31. maí var til moldar bor- inn góðvinur minn og fyrmm ná- granni, Jóhann Hjálmarsson, frá Ljósalandi í Skagafirði. Þegar konan hans, María Bene- diktsdóttir, hringdi í mig að kvöldi 22. sl. og tilkynnti mér að hann hefði látist þá um morguninn, kom það mér á óvart jafnvel þótt mér væri fullljóst að hann gekk ekki heill til skógar nú um nokkurra ára skeið. Hann var alltaf svo hress og glaður á að hitta með heiðríkju í svip og framkomu og það ljómaði alltaf af honum góðvildin. Jóhann var fæddur 27. nóvember 1919 og því rúmlega sjötugur er hann lést. Þegar hann var 3ja ára gamall missti hann föður sinn og stóð þá móðir hans uppi með stóran barnahóp sem varð að tvístra og láta í fóstur til vandalausra. Jóhann var tekinn í fóstur af nafna sínum, Jóhanni Magnússyni frá Gilhaga, og konu hans, Lovísu Sveinsdóttur frá Mælifellsá, en þau höfðu þá nýlega byijað búskap á Mælifellsá og áttu einn son, Gunnar, sem var 2 árum yngri en Jóhann. Nærri má geta að erfitt hefur verið fyrir litla drenginn að skilja við móður sína og stóra systkinahópinn og fara til ókunnugra á nýjan stað, en fljótlega mun hafa orðið mjög náið og gott samband milli þeirra nafna og hélst það alla tíð síðan meðan báðir lifðu. Jóhann og Lovísa eign- uðust seinna þijú börn, tvær dæt- ur, sem báðar létust í æsku og annan son, Svein. Nú er öll þessi Ijölskyida farin yfír landamærin miklu. Ég kynntist Jóhanni fyrst þegar ég var 10 ára gömul og fluttist með foreldrum mínum að Hamars- gerði, sem var næsti bær við Mæli- fellsá. Við vorum saman í barna- skóla og urðum góðir vinir og hélst sú vinátta alltaf síðan. Vorið 1939 kom ung stúlka, María Benedikts- dóttir, sem kaupakona að Mæli- fellsá. Þar hitti Jóhann sinn ágæta lífsförunaut og saman hafa spor þeirra legið í rúm 50 ár. Þau gengu í hjónaband 12. janúar 1941 og var þá elsti sonurinn skírður. Synir þeirra eru alls átta, þar af tvennir tvíburar. Fyrstu árin bjuggu Jóhann og María á parti af Mælifellsá og síðan á Hvíteyrum og Brekkukoti. Vorið 1946 fluttu þau að Ljósa- landi, sem var nýbýli sem þau byggðu og áttu þau þar sitt fyrir- myndarheimili í 27 ár eða þar til þau brugðu búi og fluttust til Reykjavíkur þar sem Jóhann gerð- ist húsvörður við Menntaskólann í Hamrahlíð. Þegar Jóhann og María fluttu að Ljósalandi urðum við aftur ná- grannar þar sem við Gunnar, upp- eldisbróðir Jóhanns, höfðum tveim árum áður byggt og hafíð búskap að Varmalæk við Skíðastaðalaug. Þarna myndaðist smáþorp þar sem hægt var að nýta jarðvarmann til upphitunar. Nábýlið við þau Jóhann og Maríu var gott og man ég aldr- ei eftir að í odda skærist vegna barnanna okkar, en þeim fjölgaði ört á þessum árum, drengirnir þeirra voru orðnir 6 en 5 hjá okkur og 1 telpa er við fluttumst til Reykjavíkur eftir 10 ára búskap á Varmalæk. Því miður fækkaði sam- fundum okkar við þetta en alltaf fannst mér jafn ánægjulegt að hitta þau hjónin á góðum stundum, norð- an og sunnan heiða. Jóhann var á jafnan ræðinn og skemmtilegur, áhugasamur um menn og málefni og laðaði mann að sér með ljúf- mennsku sinni. Sambúð þeirra hjóna hýgg ég að hafí verið með miklum ágætum, sem einkenndist af hve samhent þau voru í að halda vel á hlutunum til að geta framfleytt svo stórri Ijöl- skyldu af fremur litlu búi. Heimilið bar ætíð vott um reisn og myndar- skap þeirra. Nú þegar Jóhann er allur koma minningarnar fram í hugann, hver af annarri, allar ljúfar og skemmti- legar. Það er mikils virði fyrir mig að hafa kynnst svo góðu og já- kvæðu fólki, sem skilur eftir sig birtu og yl og mér finnst einmitt hafa einkennt lífshlaup Jóhanns Hjálmarssonar. Að loknum þessum fátæklegu orðum bið ég Maríu og sonum henn- ar og fjölskyldum þeirra Guðs bless- unar og megi minningin um elsku- legan eiginmann, föður og afa ylja ykkur um ókomna tíð. Minningar um mætan vin mun í huga geyma, leiftra eins og logaskin lýsa dulda heima. Þuríður Kristjánsdóttir t Hjartkær eiginkona mín, ÁSA GUIMNARSDÓTTIR Skógargerði 3, Reykjavík, andaðist í Landsspítalanum 31. maí. Baldvin Árnason t Bróðir okkar og frændi, ÞORMÓÐUR BENEDIKTSSON, Höfðahlíð 2, Akureyri, lést í Landspítalanum þann 31. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Ragna Benediktsdóttir, Hallgrímur Benediktsson, Kristín Kristjánsdóttir, Hólmfriður Breiðfjörð. t Útför systur okkar, VIGDÍSAR KRISTDÓRSDÓTTUR frá Sævarlandi, Þistilfirði, fer fram í dag, föstudaginn 1. júní, frá Fossvogskapellu kl. 13.30. Lilja Krístdórsdóttír, Hólmfríður Kristdórsdóttir, Guðrún Kristdórsdóttir. t Bróðir minn, ÞÓRÐUR ÞORSTEINSSON fyrrverandi póstþjónn frá Meiritungu, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í Holtum laugardaginn 2. júní kl. 13.30. Þórdís Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.