Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990
41
Móðir og barn:
Atta konur í húsnæði
á vegum samtakanna
ÁTTA einstæðar mæður með sjö börn á framfæri sínu (ein er þung-
uð) leigja nú hjá samtökunum Móðir og barn. Sljórn samtakanna
gerir ráð fyrir að um mitt árið verði 10 konur komnar í húsnæði á
vegum samtakanna. Móðir og barn niðurgreiða leiguhúsnæði fyrir
einstæðar mæður um 30%, þó að hámarki 8.000 krónur á mánuði
fyrir hveija konu.
Æ\
Tilgangur Móður og barns er fyrst
og fremst að bæta úr erfiðum hús-
næðisaðstæðum einstæðra mæðra
og barna þeirra. Samtökin eru lög-
gild sjálfseignarstofnun með skipu-
lagsskrá, sem staðfest hefur verið
með forsetabréfi.
Í frétt frá samtökunum segir að
leitað hefur verið til einstaklinga,
félaga, fyrirtækja og hins opinbera
um stuðning við þetta hjálparstarf.
Viðtökur manna hingað til hafi ver-
ið forsenda þess hversu langt starf-
ið sé komið áleiðis en frekari stuðn-
ings sé þörf til að tryggja áfram-
hald og eflingu þessarar þjónustu.
Eftir að málefnið hefur verið
kynnt almenningi með viðhlítandi
hætti er fyrirhugað að fara út í
almenna fjársöfnun. Upplýsingar
um samtökin má fá í síma 22275.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Gróðursett fyrir landgræðsluskóga á Vogastapa.
Vogar:
Gróðursett á Vogastapa
Vogum.
ÞRJÚ þúsund trjáplöntur hafa
verið gróðursettar í reit Land-
græðsluskóga á austanverðum
Vogastapa á móts við Fálkaþúfu.
Það eru fimm hópar sem hafa
tekið þátt í verkefninu, Soroptim-
istaklúbbur Suðurnesja, Systrafé-
lag Innri-Njarðvíkurkirkju, Systra-
félag Ytri-Njarðvíkurkrrkju, Lio-
nessuklúbbur Keflavíkur og hópur
íbúa í Vogum og á Vatnsleysu-
strönd.
Megin hluti plantnanna er lerki,
en einnig var víðir gróðursettur á
þessum stað.
- EG
29 sátu inni
í miðri viku
TÖLUVERT annríki var hjá lög-
reglunni í Reykjavík á miðviku-
dagskvöld og aðfaranótt fimmtu-
dags. Alls gistu 29 fangageymsl-
ur lögreglunnar, en sá fjöldi er
óvenjulegur í miðri viku.
Flestir sátu inni fyrir ölvun og
óspektir ýmiss konar. Fimm voru
inni á vegum ávana- og fíkniefna-
deildar, tveir sovéskir sjómenn voru
teknir fyrir að stela úr bílum við
hafnarsvæðið, þrír sátu inni vegna
óspekta eftir landsleik íslands og
Albaníu, einn var handtekinn fyrir
leikinn þegar hann hljóp berstrípað-
ur inn á völlinn, einn fyrir ávísana-
misferli og í hópnum voru að auki
allmargir sem varð að flytja í
geymslur vegna ölvunar.
Alaborg í Danmörku:
íslendingafélagið kynnir ís-
land og íslenska menningu
ÁKVEÐIÐ hefúr verið að vekja athygli á íslandi, íslenskri list og
vörum i Álaborg í Danmörku í september og október. Sett verður
upp sýning á íslenskum munum, sýnd leikrit og islenskir listamenn
flylja tónlist. Þá verður saga landsins og náttúra einnig kynnt í
máli og myndum, svo fátt eitt sé nefiit.
í Álaborg búa um 200 íslending-
ar. íslendingafélagið þar er 25 ára
á þessu ári og af því tilefni gengst
það og menningarmiðstöðin Húsið
fyrir íslandsdögunum í haust. Krist-
inn Kristinsson, formaður félagsins,
sagði að hann hefði oft rekið sig á
að íbúar Álaborgar þekktu lítt til
íslands og hann hefði lengi langað
að standa að einhverri íslandskynn-
ingu. „Upphaflega átti kynningin
aðeins að vera eitt kvöld,“ sagði
Kristinn. „Nú er svo komið að versl-
anir í Álaborg kynna íslenskar vör-
ur í eina viku og allan september-
mánuð verða sýningar í Húsinu,
Listasafni Norður-Jótlands og 2-3
'galleríum í bænum. Við ætlum að
sýna verk eftir Tryggva Ólafsson,
Hauk Dór, Birgittu Jónsdóttur og
ef til vill fleiri. Þá erum við að kanna
hvort Húsavíkurbær, sem er vina-
bær Álaborgar, hefur áhuga á að
taka þátt í þessu, til dæmis með
Athugasemd
ívar Þ Björnsson, Aðalstræti 7
Reykjavík, hafði samband við
Morgunblaðið í gær vegna fréttar
í blaðinu um myntsláttu Bárðar
Jóhannessonar vegna^ heimsóknar
Englandsdrottningar. í fréttinni var
Bárður titlaður leturgrafari, en ívar
segist sjálfur vera eini maðurinn á
íslandi, sem hafi þau réttindi, sem
þarf til að kalla sig leturgrafara.
Frétt Morgunblaðsins var byggð á
fréttatilkynningu frá Bárði Jóhann-
essyni.
kynningu á listamönnum þaðan.“
Kristinn sagði að íslendingafé-
lagið og menningarmiðstöðin Húsið
hefðu fengið stuðning bæjaryfir-
valda í Álaborg. „Við höfum einnig
leitað eftir stuðningi hjá íslenska
menntamálaráðuneytinu og fleir-
um, en ekki fengið nein svör. Að
vísu sendi Ferðamálaráð okkur
bæklinga, en margar myndir sem
prýða þá eru gamlar og upplýsingar
úreltar, svo ég efast um að þeir.
komi að miklu gagni.“
Lars Bang Jensen, fulltrúi frá
Húsinu, var staddur hér á landi
fyrir nokkru til að kynna fyrirhug-
aðar sýningar og leita stuðnings
íslenskra aðila við þær. Hann sagði
að íslandskynningin væri viðamesta
verkefni sem Húsið hefði ráðist í.
„Við vorum eitt sinn með kynningu
á Burma, en hún kemst ekki í hálf-
kvisti við þessa. Við höfum nú 180
þúsund danskar krónur, um 1,8
milljónir íslenskra króna, til umráða
og það gerir,okkur kleift að ráðast
í ýmis verkefni. Við treystum einn-
ig á velvilja ýmissa aðila, sem lið-
sinna okkur endurgjaldslaust.“
Kristinn Kristinsson sagði að
meðal fyrirhugaðra atriða væri
heimsókn íslensks stórmeistara í
skák, sem myndi tefla fjöltefli á
vegum Skákfélags Álaborgar.
„Flugleiðir hafa tekið vel í að
styrkja okkur með afslætti á ferðum
og Eimskip ætlar að flytja sýningar-
muni til Danmerkur endurgjalds-
laust. íslendingar, sem eru í námi
hér, ætla að safna mununum á ís-
landi í sumar og sjá um að senda
þá út. Þá höfum við haft samband
við fjölmarga tónlistarmenn og rit-
höfunda og vonumst til að einhveij-
ir þeirra sjái sér fært að koma og
kynna verk sín. Aðalbókasafnið í
Álaborg ætlar að kynna íslenskar
bókmenntir og þar verða ef til vill
sýnd ljósrit af fornum handritum.
Dagskrá íslandskynningarinnar er
því ekki fullmótuð enn.“
Lars Bang Jensen sagði að ætl-
unin væri að setja upp leiksýningu
í garðinum við Húsið. Thomas Möll-
er, sem kom til íslands í fyrra með
kór Svenstrup skóla, hefur sam-
þykkt að vinna hugmynd að slíkri
sýningu.
Einn liður íslandskynningarinnar
verður sýning á íslenskum hestum
og sagði Kristinn að félag eigenda
íslenskra hesta væri stærsta félagið
innan danska hestasambandsins.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig á 100 ára afmœli mínu 16. maí
meÖ gjöfum, heimsóknum, árnaöaróskum og
geröu mér daginn ógleymanlegan.
Guö blessi ykkur öll.
Guðrún Bergþórsdóttir,
dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi.
yr/a
SU/mRETTIR
TOURJST MENU
Góóur matur
á góðu veréi
hringinn
í kringum iandið
W eitingastaðir víóa um land innan Sambands
veitinga- og gistihúsa bjóóa ísumar sérstakan
matseóil, Sumarrétti SVG, þar sem áhersla er lögó á
Sumarréttamatseöillinn
gildir frá 1. júní til 15. september.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eða súpa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. 750- 900 kr. 1000- 1500 kr.
Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
ASKUR, Suðurlandsbraut 4
ASKUR, Suóurlandsbraut 14
CITY HÓTEL, Ránargötu 4a
FÓGETINN, Aóalstræti 10
GAFL-INN, Dalshrauni, Hafnarfirói
GAUKUR Á STÖNG, Tryggvagötu 22
GULLNI HANINN, Laugavegi 178
HÓTEL ESJA, Suóurlandsbraut 2
HÓTEL HOLIDAY INN, Sigtúni 38
HÓTEL LIND, Rauóarárstíg 18
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurflugvelli
HÓTEL ÓÐINSVÉ, Þórsgötu 1
LAUGA-ÁS, Suóurlandsbraut 2
NAUST, Vesturgötu 6-8
PIZZAHÚSIÐ, Grensásvegi 10
PUNKTUR OG PASTA, Amtmannsstíg 1
ARNARBÆR, Arnarstapa, Snæfellsnesi
BAUTINN, Hafnarstræti 92, Akureyri
GLÓÐIN, Hafnargötu 62, Keflavík
FLUG-HÓTEL, Hafnargötu 57, Keflavík
HÓTEL ÁNING V/SÆMUNDARHLÍÐ, Sauóárkróki
HÓTEL ASKJA, Hólsvegi 4, Eskifirói
HÓTEL BLÁFELL, Breiódalsvík
HÓTEL BORGARNES, Egilsgötu 14-16, Borgarnesi
HÓTEL BÚÐIR, Staóarsveit, Snæfellsnesi
HÓTEL FRAMTÍÐ, Vogalandi 4, Djúpavogi
HÓTEL HÚSAVÍK, Ketilsbraut 22, Húsavík
HÓTEL HÖFN, Höfn, Hornafirói
HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR, Silfurtorgi 1, ísafirói
HÓTEL KEA, SÚLNABERG, Hafnarstræti 89, Akureyri
HÓTEL LJÓSBRÁ, Breióumörk 25, Hveragerói
HÓTEL REYNIHLÍÐ v/Mývatn, S-Þingeyjarsýslu
HÓTEL SELFOSS, Eyrarvegi 2, Selfossi
HÓTEL STYKKISHOLMUR, Stykkishólmi
HÓTEL STEFANÍA, Hafnarstræti 83-85, Akureyri
HÓTEL TANGI, Vopnafirói
HÓTEL VALASKJÁLF v/Skógarströnd, Egilsstöðum
HÓTEL VARMAHLÍÐ, Varmahlíð, Skagafirði
HLÍÐARENDI, Austurvegi 1, Hvolsvelli
HREÐA VA TNSSKÁLI, Borgarfirói
MUNINN, HÓTEL ÞÓRSHAMAR, Vestmannabr. 28, Vestm.
SKÚTINN, Kirkjuvegi 21, Vestmannaeyjum
STAÐARSKÁLI, Staó, Staóarhreppi, V-Húnavatnssýslu.