Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 44

Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 // I4'á erum eJckri aé reyna aJ fe/ja hxKÍd' þiCt _ i/ié £rum a& eelja, p/ánetam." næmi fyrir minkapelsum. Mæti hún pelsklæddri kunn- ingjakonu fær hún höfuð- verk ... 523 • POLLUX Hér kann bersýnilega eng- inn að meta tónlist... HOGNI HREKKVISI Armbaugar ættu að íast í apótekum Til Velvakanda. Það hefur verið deilt um það í Morgunblaðinu að undanförnu hvor séu upprunaleg eða hvor séu eftirlíkingar, annars vegar segul- armböndin „Bio-Ray“ frá Mall- orku og hins vegar rMondial“ frá Hollandi. Örnólfur Arnason tekur á beinið konuna sem selur Mon- dial-armböndin, í grein síðastliðinn laugardag og gerir gys að því að þau ,séu framleidd skv. einkaleyfi frá Taiwan. En mér finnst ekki skipta neinu máli hver hefur verið á undan að framleiða þessi segularmbönd. Aðalatriðið er hvort þau gera gagn. Ef fundin er upp aðferð til að losa fólk við vanlíðan, auka jafnvægi og koma í veg fyrir streitu og svefnleysi, ætti enginn að hafa einkaleyfi á því heldur ætti öllum að vera fijálst að fram- leiða svoleiðis gripi, jafnvel þeim á Taiwan. Auðvitað þarf samt að gæta þess að það sé ekki bara útlitið sem hermt er eftir heldur að gæðin og virknin séu jafngóð og '\ upprunalega armbandinu. Ég þekki ekki persónulega neinn sem á Mondial-armband en ég veit að einhverjir ganga með þau og fólk mundi varla gera það ef það fyndi ekki einhver jákvæð áhrif. Alla vega hefur maður ekki orðið var við kvartanir. Hins vegar á ég sjálf Bio-Ray- armbaug eða lífseguljafnara frá Heilsuhúsinu og ég er í sjöunda himni yfir honum. Hann hefur al- veg losað mig við hnakka- og axla- verki sem ég átti vanda til að fá hvenær sem ég þurfti, t.d. að sitja lengi við vinnu og eins þegar ég var haldin streitu og kvíða. Síðan ég byijaði að ganga með armbaug- inn frá Mallorku hefur þetta horf- ið eins og dögg fyrir sólu. Og ekki bara verkirnir heldur líka streitan og kvíðinn, svei mér þá. Ég trúi því ekki að þetta sé eintóm ímynd- un og sjálfsblekking, til þess er þetta búið að standa of lengi, a.m.k. átta vikur. Ég þekki fleiri sem hafa góðar sögur að segja um reynslu sína af Bio-Ray-armbaugunum, meira að segja konu sem fullyrðir að ekkert hafi gagnað sér eins vel til að lina liðagiktarkvalir. í mínu til- felli var ekki um svo alvarlegan sjúkdóm að ræða heldur dæmi- gerðan kvilla sem hijáir mann án þess að maður telji ástæðu til að leita læknis. Og ég er sannfærð um að armbaugarnir eru alveg magnaðir (segulmagnaðir) gegn svoleiðis óþægindum. Mér finnst sjálfsagt að reyna að kynna þessa ágætu armbauga vel því að þörfin fyrir þá er sannar- lega fyrir hendi. Ég held ég þekki varla nokkra manneskju sem ekki hefði gott af að fá ,jafnara“ á úlnliðinn. Eðlilegast þætti mér að selja armbaugana í apótekum um allt land. Það er áreiðanlegt að í lyfjabúðum fæst ýmislegt sem gerir minna gagn en þeir. Adda Víkverji skrifar Eftirfarandi bréf barst Vík- verja frá Jóni Skafta- syni; yfirborgarfógeta: „Ég les gjarnan pistla þína í Morgunblaðinu. því að þeir eru oft athyglisverðir. í blaðinu 17. maí, rekur þú píslargöngu eins kunn- ingja þíns í kerfinu, sem selt hafði íbúð sína og þurfti að flytja veð af henni yfir á nýja íbúð er hann keypti. Þú víkur m.a. að viðskiptum hans við starfsfólk þinglýsingar- deiidar, á vingjarnlegan hátt og fyrir það vil ég þakka. En þetta mál hefur fleiri hliðar eins og öll önnur og langar mig til þess að víkja að einni þeirra af þessu gefna tilefni. Ég vil þá fyrst taka undir með þér, þegar þú ritar, að þú neitir staðfastlega að trúa því, að á tækni- og tölvuöld þurfi að gilda jafn flókið kerfi og tímafrekt við einfaldan veðflutning eins og þú ert að lýsa. Hinsvegar finnst mér gæta hjá þér misskilnings, ef þú heldur að það sé tiltölulega auðvelt og létt verk að skrá innihald þinglýsinga- bóka Reykjavíkur í tölvu. Því miður er reynsla mín önnur og langar mig til þess að skýra hana fyrir þér og öðrum lesendum pistla þinna, þar sem þið eigið allan rétt á að þekkja málavöxtu um þýðingarmikinn þátt opinberrar þjónustu við borgarbúa. xxx Eg hóf starf mitt við embættið 1. sept. 1979. Fljótlega varð mér ljóst, að þjónusta við viðskipta- menn þinglýsingardeildar var of tafsöm og dýr við óbreytt kerfi. Mér fannst liggja í augum uppi að svarið við þessu væri tölvan. Ég fékk því komið á starfshópi í ársbyijun 1980 frá þinglýsingar- deild embættisins og Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar, er átti að gera tillögur um tölvukerfi fyrir þinglýsingar. Þann 12. okt. 1981 sendi ég síð- an þessar tillögur dómsmálaráðu- neytinu ásamt kostnaðaráætlun með eindreginni ósk um, að ráðu- neytið ákvæði að tölvutækni mætti nota við skráningu þinglýsingar- bóka. Samkvæmt þinglýsingarlög- um var valdið hjá dómsmálaráðu- neytinu og því einu til þess að taka ■þéssír úkvövðiin: í:"f' ? * ’ ? *? f að var svo fyrst með bréfi ráðu- neytisins dags. 26. júní 1984, að mér var tilkynnt, að það myndi beita sér fyrir fjárveitingu á fjárlög- um 1985 til þess að tölvuvæða þing- lýsingar í Reykjavík, en það kostar margar milljónir. Allar götur síðan að fjárveiting fékkst hefur verið unnið að þessu verkefni eftir því sem fjármagn og aðrar aðstæður leyfa. Verkefnið er hinsvegar mjög stórt og krefst nákvæmni. Um 45.000 fasteignir eru á blaði í Reykjavík auk þúsunda bifreiða, skipa og flugvéla. Sumar fast- eignanna taka margar blaðsíður vegna veðskulda og allskyns kvaða og allt er handskrifað og margt útkrotað. í árslok 1985 lauk skráningu allra bifreiða í Reykjavík og er áætlað, að einungis 10% þeirra, sem selja eða kaupa bíla þurfi að heim- sækja þinglýsingardeildina. Þökk sé tölvunni. Hinsvegar á skráning fasteigna talsvert langt í land ennþá. Áætla ég að um 50-60% verksins sé lokið og unnið er að því að .ljúka því eins fljótt og mögulegt er. Ég vil í þessu sambandi fullvissa þig um, að engir verða fegnari verk- lokum, en starfsmenn þinglýsingar- deildar. Á þeim brennur eldurinn heitast því að þeir fá skammirnar fyrst og fremst, ef viðskiptamenn eru óánægðir með þjónustuna, eins og brenna vill við, þar sem mikið er að gera. Við sem hér störfum myndum gjarnan vilja afgreiða viðskipta- menn strax og þeir koma. En slíkt er ekki framkvæmanlegt m.a. vegna þess að lög leyfa ekki, að þinglesa skjali sama dag og það er lagt inn. Þá verður að gæta þess, að lán- veitendur eiga rétt á því, að gengið sé sómasamlega frá tryggingum þeirra lána, er þeir veita. neytisins til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar til þess að kynna sér tölvuvæðingu þinglýsinga í þessum löndum. Heimkomnir skiluðu þeir skýrslu um árangur þessara athugana. Þar segir m.a. „Við næstum A hluta embætta í Noregi (1974) _tók þinglýsing meira en 60 daga. í desember 1981 var biðtíminn skemmri en 15 dagar við 85 embætti, 16-20 dagar við 5 embætti, 21-30 dagar við 4 emb- ætti, 31-40 dagar við 3 embætti og 41-49 dagar við 2 embætti." Hér er það undantekning ef biðtím- inn fer yfir viku. Mér var ennfremur skýrt frá því, af þessum mönnum, að þingles- in skjöl í Kaupmannahöfn væru lít- ið fleiri en í Reykjavík og þótti mér það allundarlegt. Á síðustu 5 árum hefur 45.000- 52.000 skjölum verið þinglýst hér árlega, 22.000-26.000 aflýst og 26.000-31.000 veðbókarvottorð af- greidd. Að baki þessu liggur mikil vinna. Við höfum mikil óþægindi vegna þess að ótrúlega oft eru þinglýsing- arskjöl ekki rétt útbúin og þarf þá að endursenda þau til lagfæringar. Þú nefnir dæmi um fjölda ferða kunningja þíns vegna veðflutnings og veðbandslausnar í sambandi við íbúðarkaupin. En vel hefði mátt fækka ferðum þessum um helming með því að hafa báða þessa löggern- inga á eina og sama skjalinu. Svona mætti áfram telja, en skal ekki gert. Að endingu þetta. Ég er þér al- gjörlega sammála um, að núverandi kerfi við þinglýsingar er alltof þunglamalegt. xxx xxx að er útbreiddur misskilningur, að biðtími eftir að fá skjali þinglýst sé óvenju langur hér. Sum- arið 1983 fóru tveir menn á vegum ’? ’þéssa •feWbáÁti's' ög' dóúfShfiárdVáðli- * Eg er þér einnig sammála um að tölvan á að gera það mögu- legt að einfalda kerfið. En slík breyting verður ekki hrist fram úr erminni á einni nóttu. Bæði þarf fjármagn, vinnukraft og starfsað- stöðu til þess að ljúka þessu og að undanförnu hefur allt þetta verið ■ * af "skwrhiihi skammti hér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.