Morgunblaðið - 01.06.1990, Qupperneq 48
EINKAREIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM0,
FOSTUDAGUR 1. JUNI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Féll 10 metra
af vinnupalli
og slasaðist
Mvarlega
MAÐUR um fimmtugt slasaðist
alvarlega þegar hann féll 4
hæðir, um 10 metra, til jarðar
af vinnupalli við Skúlagötu
síðdegis í gær.
Maðurinn var að lagfæra
glugga á fjórðu hæð Skúlagötu
56. Hann var einn við vinnuna,
sem hann vann sem verktaki.
Komið hafði verið upp palli undir
glugganum á íjórðu hæð, þannig
að tveir þríhyrningar, sem festir
voru á húsvegginn mynduðu
b.úkka sem stutt var við með stoð-
úm frá svölum á þriðju hæð. Milli
þríhyminganna vom lagðir 6
plankar, þrír negldir niður en þrír
ónegldir. Sumir plankanna stóðu
allt að 1,8 metra út fyrir þríhyrn-
ingana. Talið er að maðurinn hafi
fallið við það að einn plankanna
sporðreistist undir honum.
Maðurinn lenti á grasflöt á lóð
hússins. Hann var fluttur þungt
haldinn á sjúkrahús. Að sögn lög-
reglu var óttast að hann hefði
fiálsbrotnað.
Þjóðhagsstofiiun:
^ , Morgunblaðið/Charles Egill Hirt
Útsýnisbíll bíður skráningar
Sæmundur Sigmundsson sérleyfishafi í Borgarnesi hefur fest kaup á þessum 75 sæta útsýnisbíl. Bíllinn,
sem er af gerðinni Setra, árgerð 1983, fæst ekki skráður fyrir þennan farþegafjölda vegna reglna um
öxulþyngd. Bílar af þessu tagi hafa sést hér áður, meðal annars munu tveir slíkir hafa komið hingað með
Norrænu í fyrra og ekið um landið með farþega.
Nýr búvörusamningur:
Hugmyndir
um uppboðs-
markað á í’ull-
virðisrétti
í VIÐRÆÐUM um nýjan búvöru-
samning hafa komið fram hug-
myndir um að stofna sérstakan
uppboðsmarkað á fullvirðisrétti,
þar sem menn geti lagt rétt sinn
inn og selt hæstbjóðanda.
Á fundum viðræðunefnda Stéttar-
sambandsins og landbúnaðarráðu-
neytisins hefur samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins aðallega verið
rætt um mismunandi hugmyndir
varðandi meðferð fullvirðisréttar og
reiknað út hvaða áhrif þær hefðu,
en hvorugur aðili hefur þó sett fram
neinar ákveðnar hugmyndir sem
sínar. Rætt hefur verið um að full-
virðisrétturinn geti færst milli
manna, sem nú er óleyfilegt, og
hafa ýmsar hugmyndir komið upp
um hvernig færa ætti réttinn á
milii. Auk hugmyndar um að menn
geti keypt fullvirðisrétt eins og leyfi-
legt var á tímabili, og þá hugsanlega
á uppboðsmarkaði, hefur verið rætt
um að sérstakar nefndir úthluti full-
virðsiréttinum.
Framfærsluvísitala hækkar
um 6% í sumar í stað 3,5%
Forsætisráðherra á fund með fulltrúum vinnumarkaðarins
í ÚTTEKT sem Þjóðhagsstofnun hefur unnið fyrir ríkisstjórnina
og afhent var forsætisráðherra í gær, kemur fram að áætlað er
að framfærsluvísitala hækki á fjórum mánuðum, frá 1. maí til 1.
september, um 6% á ársmælikvarða í stað 3,5% hækkunar sem
voru forsendur þeirra kjarasamninga sem gerðir voru þann 1.
febrúar sl. Þjóðhagsstofnun tekur það sérstaklega fram að þessi
áætlun miðist við það að ekkert verði að gert.
Morgunblaðið/Bjarni
Frá slysstaðnum við Skúlagötu.
Pallurinn sem maðurinn var við
vinnu á sést milli þriðju og fjórðu
h'æðar.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði í samtáli við
Morgunblaðið í gærkveldi: „Þeir
segja að ef ekkert verður að gert
og allar hækkanir látnar ganga
fram, þá gæti hækkunin orðið
þessi. Ég get á þessari stundu
ekki sagt til um það hvað gert
verður, en ég er búinn að eiga
fundi með VSI og ASÍ um málið.
Vissulega er þetta áhyggjuefni,
en við munum hafa fullt samráð
um hvaða mótstöðu er hægt að
veita.“
Aðspurður hvaða tæki stjórn-
völd hefðu til þess að afstýra því
að þróunin yrði í samræmi við
úttekt Þjóðhagsstofnunar sagði
forsætisráðherra: „Vitanlega hafa
menn tæki, hvort sem þeir vilja
beita þeim eða ekki. Það er til
dæmis hægt að hækka gengið, en
ég er því ekki hlynntur. Það er
beinasta leiðin til þess að lækka
verðlag, en ég tel mjög ólíklegt
að slíku tæki verði beitt. Þær leið-
ir sem hægt er að fara eru: Það
er hægt að hækka gengið, setja á
verðstöðvun, herða verðlagseftir-
lit, draga úr opinberum hækkun-
um, þó það kosti að draga úr opin-
berum framkvæmdum. Mikilvæg-
ast er þó ef til vill að almenningur
standi sig í verðlagseftirlitinu og
hafni þeim vörum sem hækka
óeðlilega. Loks tel ég að þeir at-
vinnurekendur sem nú eru að
ákveða hækkanir á vöru sinni og
þjónustu ættu að athuga það að
slíkar hækkanir gætu komið beint
í bakið á þeim.“
Steingrímur sagði að á næst-
unni myndi ríkisstjórnin taka
ákvarðanir um til hvaða ráðstaf-
ana verði gripið.
Atli Eðvalds-
son fer í KR
ATLI Eðvaldsson, fyrirliði lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur
ákvéðið að ganga til liðs við KR
og verður löglegur með félaginu
13. júní nk.
Atli, sem lék með Val á sínum
yngri árum, hefur verið atvinnu-
maður í íþróttinni meira og minna
í rúmlega áratug. Atli, sem er 34
ára, lék í Tyrklandi í vetur. Fyrsti
leikur hans með KR verður væntan-
lega 19. júní gegn FH.
Sjá bls. 47.
Þorskblokk liefiir hækkað
um 20% í Bandaríkjunum
VERÐ á þorskblokk hefur hækkað um 20% á Bándaríkjamark-
aði á þessu ári. Verðið er nú komið í 1,90 til 1,95 dollara pund-
ið, en var í 1,60 til 1,65 dollurum í byrjun ársins. Þá hefur
Iceland Seafood Corp. hækkað þorskflök í fimm punda pakkn-
ingum úr 2,30 í 2,50 doilara pundið, en hjá Coldwater Seafood
Corp. er verðið á flökum áfram 2,30 dollarar pundið.
Magnús Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Corp., telur að framboð á fiski
aukist á næstunni þegar vertíðin
í Kanada hefst og verðið jafnist.
Hann á þó ekki von á að verðið
lækki verulega, eins og varð
1988 í kjölfar verðhækkana á
árinu 1987, vegna þess að nú
eru litlar birgðir af fiski til í
Bandaríkjunum.
Magnús Gústafsson, fram-
kvæmdastjóri Coldwater Sea-
food Coip., sagði, að hjá þeim
hefði verið lítil breyting á verði
á þorskflökum, þar sem salan
hefði ekki gefið tilefni til ann-
ars. En menn sæju vaxandi sam-
keppni í aukinni eftirspurr. frá
Evrópu. Um þorskblokkina sagði
Magnús Gústafsson að hún væri
12-15% af verðmæti þess sem
Coldwater keypti frá íslandi.
Mest væri hún notuð í verk-
smiðjuframleidda vörur, sem
væru nú heldur á undanhaldi.
Menn skyldu líka muna reynsl-
una frá 86 og 87, sem hefði
kennt mönnum að ganga ekki
of harkalega fram gegn við-
skiptavininum með verðhækkan-
ir. •
Magnús Friðgeirsson sagði að
lítið framboð af fiski gerði það
að verkum að markaðirnir, eink-
um Evrópa og Bandaríkin, væru
í mikilli samkeppni um fram-
leiðsluna. Framleiðendurnir
framleiddu fyrir þann markað
sem gæfi besta verðið og því
væri mikið framleitt fyrir Evr-
ópumarkað. Sölufyrirtækin í
Bandaríkjunum hefðu því orðið
að hækka verðið til að ná at-
hygli framleiðendanna.
Verð á þorskblokk er nú Iitlu
lægra en verðið var þegar það
náði hámarki á árinu 1987. Þá
fór þorskblokkin í 2,05 dollara
pundið en hrundi á næsta ári
niður í 1,25 dollara. Verðið
hækkaði lítillega á síðasta ári
en hefur hækkað verulega í ár.
Magnús sagðist ekki eiga von á
verðhruni í framhaldi af hækk-
unum að undanförnu. Á árinu
-1987 hefðu verið meiri fiskbirgð-
ir en nú og meira framboð af
fiski. Taldi Magnús að heildar-
veiði á þorski úr Norður-Atlants-
hafi myndi minnka um 20% í ár.
Markaðurinn þyrfti mikið af fiski
nú til að anna eftirspurn og
byggja upp eðlilega birgðastöðu.