Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Hryðjuverk í skjóli sósíalismans Síðustu daga og vikur hef- ur hver hryðjuverkamað- urinn á fætur öðrum verið handtekinn í A-Þýzkalandi. Samtals hafa að undanförnu verið handteknir átta hryðju- verkamenn, sem hafa staðið fyrir ýmsum óhugnanlegum morðum á þekktum athafna- mönnum í Vestur-Þýzkalandi. Það er nú komið í ljós, að þessir hryðjuverkamenn, sem hafa verið athafnasamir í V-Þýzkalandi a.m.k. tvo síðustu áratugi, hafa starfað í skjóli sósíalismans í A- Þýzkalandi. Engan þarf að undra, að vestur-þýzk yfirvöld hafi átt í erfiðleikum með að hand- taka hryðjuverkamennina þar í landi, úr því að þeir hafa átt öruggt hæli í Austur- Þýzkalandi. Þegar umsvif Rauðu herdeildanna voru sem mest í Vestur-Þýzkalandi, á Ítalíu og víðar, voru uppi kenningar um, að starfsemi þeirra væri þáttur í víðtæku samsæri, sem kommúnista- stjórnir í Austur-Evrópu og ákveðnar ríkisstjórnir í araba- löndum ættu aðild að. Margir áttu erfitt með að trúa því að þetta gæti verið rétt. Nú er komið í ljós, að þessar kenningar hafa átt við rök að styðjast a.m.k. að ein- hverju leyti. Úr því hryðjuverkamenn- irnir hafa átt öruggt hæli í Austur-Þýzkalandi vakna auðvitað spurningar um, hvort þeir hafi ef til vill notið þjálfunar þar og hvort vopna- búnaður þeirra sé þaðan kom- inn. Hafi svo verið hljóta menn að líta á hryðjuverka- mennina, sem útsenda skæru- liða kommúnistastjórna fyrir austan járntjald. Ríki sósíalismans í Austur-Evrópu hafa ýmislegt á samvizkunni. A dögum sós- íalismans í—þessum löndum var fólk kúgað á margan hátt, sett í fangelsi og vinnubúðir fyrir skoðanir sínar og í sum- um tilvikum varð alþýða manna fyrir árásum vopnaðra sveita og skriðdreka. En á þessum árum höfðu menn tæpast hugmyndaflug til þess að láta sér detta í hug í al- vöru, að ríkisstjórnir þessara landa sendu hryðjuverka- menn til Vestur-Evrópu til þess að myrða þekkta stjórn- málamenn, athafnamenn og aðra áhrifamenn eða að þær mundu leggja blessun sína yfir starfsemi þeirra með því að veita þeim öruggt skjól. Nú er það komið í ljós. Þetta er einhver svartasti bletturinn á ríkjum sósíalism- ans í Austur-Evrópu. Því verður tæpast trúað, að sá sósíalisti sé til, sem er reiðu- búinn til að mæla stjórnarfar- inu í þessum ríkjum bót, eftir að þessar upplýsingar liggja fyrir. Athafnir sósíalista- stjórna í Austur-Evrópu hafa bersýnilega verið svívirðilegri en jafnvel hörðustu andstæð- ingar gátu látið sér detta í hug. Og sennilega á ýmislegt eftir að koma fram í dagsljós- ið, sem fólki kemur á óvart. Ríkiog Reykjavík- urborg eykjavíkurborg hefur lagt fram fjármuni á þessu sumri til þess að skapa sumarvinnu fyrir 3.000 skóla- nemendur. Borgin hefur tvívegis tekið ákvörðun um að leggja fram aukna fjár- muni í þessu skyni og hefur nánast hreinsað upp biðlista hjá Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar. Ríicisstjórnin hefur enn engar raunverulegar ráðstaf- anir gert til þess að leggja sitt af mörkum í þessu skyni. Ráðherrar ræða málið og skipa nefndir, sem koma sam- an til fundar til þess að ræða vandamálið en ekkert gerist. Sá munur, sem er á stjórnar- háttum hjá ríki og Reykjavík- urborg hefur komið glögglega í ljós í þessu máli. En ríkis- stjórnin getur ekki verið þekkt fyrir að draga ákvarð- anir öllu lengur. Fátt er verra en að skólafólk gangi at- vinnulaust á sumrin og verði hugsanlega að hrökklast frá námi vegna þess, að það hef- ur ekki haft tækifæri til að afla sér tekna yfir sumarið. Morgunblaðið/KGA. Arna Antonsdóttir varaformaður, og Marta Hjálmarsdóttir formaður Meinatæknafélags íslands með Páli Halldórssyni formanni BHMR og Birgi Birni Sigurjónssyni hagfræðingi BHMR. Meinatæknar ganga í BHMR Meinatæknafélag íslands hefur fengið aðild að Banda- lagi háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna frá næstu ára- mótum að telja. Fram að þeim tíma mun félagið eiga fulltrúa með málfrelsi og tillögurrétt á fundum launamálaráðs BHMR. Meinatæknafélag ísland var áður í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja en sótti nýlega um aðild að BHMR. í félaginu, sem verður 24. aðildarfélag BHMR, eru um 250 félagsmenn starf- andi hjá ríki, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum. Félagið hefur starfað sem stéttarfélag frá 1988 og gerði fyrsta kjara- samning sinn 1989. Fyrsti fimdur nýkjörinnar borgarstj órnar: Hlutkesti ræður valdahlut- föllum í nefhdum og ráðum „Það var okkar ósk að verklags- reglum yrði fylgt og auglýst foival til að velja úr aðila sem við teldum að hefðu bolmagn til að leysa verk- efnið,“ sagði hann. Hermann sagði að samkvæmt hafnarlögum væru framkvæmdir við hafnir á ábyrgð eigenda þeirra, viðkomandi sveitar- félaga, og að frumkvæði þeirra. í þessu tilfelli greiði Akurnesingar Sandvíkurheiði: Lægsta tilboð 53% af áætlun LÆGSTA tilboð í lagningu 2,5 km kafla á Norðausturvegi á Sandvík- urheiði var 52,9% af kostnaðará- ætlun Vegagerðarinnar. Tilboðið er frá Jóni Gunnþórssyni verk- taka og fleirum, 9,9 milljónir, en kostnaðaráætlun var 18,7 milljón- ir. Átta aðrir verktakar buðu. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða bauð 11,5 milljónir í 4 km á Þorlákshafnarvegi, frá Núpum að Bakka. Ertilboð fyrirtækisins 70,6% af kostnaðaráætlun. Sex aðrir buðu, allir undir áætlun. Hlaðbær Colas hf. bauð best í malbikun Reykjanesbrautar í sumar, tæpar 30 milljónir sem er 79,1% af kostnaðaráætlun. Vinnuvélar Jó- hanns Bjarnasonar buðu 9,6 milljón- ir í Landveg um Laugaland og Mar- teinstungu, um 2 km veg. Kostnað- arátælun var 12,4 milljónir. Klukkan 9 fyrir hádegi verður safnast saman í Templarahöllinni við Eiríksgötu 5. Kröfuganga fer þaðan klukkan hálf tólf að loknu ávarpi göngustjóra, Gísla Sigur- þórssonar frá Hinu íslenska kenn- arafélagi. Gengið verður um Eiríks- götu, Njarðargötu, Skólavörðustíg, 45% kostnaðarins. „Við eigum að hins vegar að sjá um að fram- kvæmdir séu tæknilega vel útfærð- ar og sinna fjárhagslegum hags- munum ríkissjóðs en lögin gefa okkur ekki það vald að setja hnef- ann í borðið. Við höfðum komið óskum okkar á framfæri og stóðum fram á mánudag í þeirri trú að framkvæmt yrði forval en Akurnes- ingar völdu hinn kostinn.“ Hafnamálstjóri sagði að lögum samkvæmt væru útboð, samningar og efniskaup í sameiginlegum hafn- arbótum ríkis og sveitarfélags háð samþykki stofnunarinnar og for- senda þess að verk teldist stykr- hæft úr ríkissjóði en hins vegar taki hafnarstjórn sveitarfélags end- anlega ákvörðun um val tilboðs að fenginni umsögn stofnunarinnar en ákveði hafnarstjórn hins vegar að taka hærra tilboði úr flokki hæfra tilboða en því sem Hafnamálasofn- un mæli með skuli sveitarfélagið standa straum af þeim kostnaðar- auka sem af hljótist. Um framhald þessa máls sagðist hafnarstjóri ekki reikna með nein- um. sérstökum aðgerðum eða inn- gripi af opinberri háflu en sagði óhjákvæmilegt að viðurkenna að vinnubrögðin hefðu ekki verið með þeim hætti sem æskilegt hefði verið og ekki til fyrirmyndar. Hins vegar vildi hann gjarnan í ljósi þessar reynslu endurskoða vinnureglur um þetta efni. Bankastræti og endað á Lækjar- torgi, þar sem verður haldinn úti- fundur í hádeginu. Ávörp flytja Broddi Broddason, Félagi frétta- manna, Júlíus K. Björnsson, Sál- fræðingafélagi íslands, Elna K. Jónsdóttir, Hinu_ íslenska kennara- félagi, Oskar ísfeld Sigurðsson, FYRSTI fundur nýkjörinnar borgarstjórnar Reykjavíkur verður í kvöld, en þar verður kosið í nefiidir og ráð borgar- innar. Við kosningar í fimm Félagi íslenskra náttúrufræðinga, og Páll Halldórsson, formaður BHMR. Fundarstjóri verður Wincie Jóhannsdóttir. Að loknum útifundinum munu formenn aðildarfélaga BHMR af- henda forsætisráðherra og starf- andi fjármálaráðherra mótmæla- yfirlýsingu frá stjórnum félaganna og síðan verður fundur í Templara- höllinni um aðgerðir dagsins og framhald þeirra. manna nefiidir eiga sjálfstæðis- menn þrjá fulltrúa vísa en minnihlutaflokkarnir einn. Hlutkesti mun síðan ráða því hvort Qórði sjálfstæðismaðurinn eða annar fulltrúi minnihlutans fær sæti í ncfndinni. Minnihlutaflokkarnir í borgar- stjórn, Alþýðubandalag, Fram- sóknarflokkur, Kvennalisti og Nýr vettvangur, hafa náð samkomu- lagi um skiptingu nefndarsæta. Samkvæmt því fær Nýr vettvang- ur níu örugg nefndarsæti en hinir flokkarnir sjö hver. Þau sæti, sem hlutkesti verður um, munu skipt- ast á svipaðan hátt, nema hvað hlutur Nýs vettvangs verður örlítið meiri. Samkvæmt samkomulaginu munu minnihlutaflokkarnir skipta setu í borgarráði jafnt á milli sín, þannig að hver þeirra fær þar ör- uggt sæti í eitt ár á kjörtímabil- inu. Fulltrúi Alþýðubandalags mun sitja þar fyrsta árið, þá full- trúi Framsóknarflokks, síðan full- trúi Nýs dlvettvangs og að lokum fulltrúi maKvennalista. Fyrsta árið verður valið milli íjórða borgarráðsmanns sjálfstæð- ismanna og fulltrúa Nýs vettvangs með hlutkesti, annað árið milli sjálfstæðismannsins og fulltrúa Kvennalista, þriðja árið tekur full- trúi Alþýðubandalags þátt í hlut- kestinu og fulltrúi Framsóknar- flokksins fjórða árið. Kosið er í borgarráð árlega, þannig að hlut- kesti mun fara fram á hverju ári. Á fundi borgarstjórnar í kvöld' verður einnig gengið til kosninga um forseta borgarstjórnar til eins árs og um borgarstjóra til fjögurra ára. Utífundur og kröfuganga BHMR í dag BANDAL AG háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna stendur fyrir kröfu- göngu og útifúndi í dag til að mótmæla frestun á framkvæmd ákvæða síðasta kjarasamnings þeirra, sem ríkisstjórnin hefúr ákveðið. Að.- gerðirnar hefjast klukkan 9 og lýkur klukkan 16. Hafhamálaslj órí um hafnarbætur á Akranesi: Morgunblaðið/Einar Falur Séð yfir pallinn við gönguíeiðina á Lögberg en á innfelldu myndinni sjást Jónas Gíslason yfir- smiður, Guðmundur Ól- afsson fornleifafræðing- ur og Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður bera saman bækur sínar á göngubrautinni á Lög- bergi. Göngubraut á Lögbergi verður vígð á sunnudag NÆSTKOMANDI sunnudag verður vígð 135 metra löng göngubraut úr timbri á Lögbergi, sem að sögn Heimis Steinssonar, þjóðgarðsvarð- ar, hefúr verið smíðuð í því skyni að hlífa gróðri og minjum á staðn- um og auðvelda fólki að komast um á Lögbergi. Göngubrautin er fyrsti hluti af deiliskipulagi Þingvalla, sem landslagsarkitektarnir Reynir Vilhjálmsson og Einar E. Sæmundsen hafa gert, og er áætlað- ur kostnaður við smíði hennar 2,5 - 3 milljónir króna. Göngubrautin verður formlega tekin í notkun á sunnudaginn kl. 13, en þá mun Ólafur G. Einarsson alþingismaður, formaður Þingvalla- nefndar, lýsa hana opnaða. Sérstak- ir gestir við þá athöfn verða félagar úr Sjálfsbjörg, sem reyna munu nýju brautina, en hún gerir fötluð- um kleift að komast með auðveldu móti á Lögberg í fyrsta sinn. Heimir sagði að gróður á Lög- bergi hefði verið traðkaður illa nið- ur, enda færu þar um hundruð þús- unda manna á ári hveiju. Þegar gestahópar hefðu verið á ferð í rign- ingu hefði svæðið allt verið í svaði, og menn jafnvel hnotið og meitt sig í for og gijóti. „Að standa hér við slíkar aðstæð- ur, og lýsa því jafnframt yfir að þetta sé mesti sögustaður á íslandi og helgistaður allra landsmanna, hefur því oft og einatt virkað held- ur afkáralega á gesti. Hér er því svo sannarlega verið að greiða fyr- ir gestum. Ég hef kallað þetta til- raun til að leysa þann vanda sem verið hefur, en það var engan vegin einsýnt hvað gera skyldi. Allir voru þó sammála um að eitthvað þyrfti að gera í þessu máli vegna gróðurs- ins, og þetta timburvirki er þess eðlis að ef mönnum sýnist svo, þá er auðveldara að taka það ofan en mannvirki úr öðru efni. Með þess- ari braut verður einnig miklu auð- veldara að ganga um á Lögbergi heldur en áður var, og vonandi komast menn nú hér um í hjólastól- um, sem ekki hefur verið hægt áður,“ sagði hann. Heimir sagði að uppsetning göngubrautarinnar hefði verið unn- in í nánasta samráði við Guðmund Ólafsson fomleifafræðing, for- stöðumann fomleifadeildar Þjóð- minjasafnsins, og Mjöll Snæsdóttur samverkamann hans, og gagngert hefði verið unnið að verkinu með það í huga að gæta fyllstu aðgátar varðandi fornminjar á staðnum. Átta manna brúarvinnuflokkur frá Vegagerð ríkisins vann að uppsetn- ingu göngubrautarinnar undir stjórn Jónasar Gíslasonar yfirsmiðs. Óskuðum eftir forvali en framkvæmdir eru á ábyrgð sveitarfélags HERMANN Guðjónsson hafiiamálastjóri segir að samkvæmt verk- lagsreglum stofnaua samgönguráðuneytisins hefði átt að beita forv- ali verktaka í lokuðu útboði vegna hafiiarbóta á Akranesi en hins vegar sé ljóst samkvæmt orðalagi reglnanna að þær eigi aðeins við um Hafnamálastofnun þegar verk séu alfarið kostuð úr ríkissjóði. Atvinnuleysi námsmanna á landsbyggðinni: Bæjaryfírvöld grípa til aðgerða Bæjaryfirvöld í ýmsum bæjum, þar sem tregt hefiir verið um vinnu í vor, hafa gripið til sérstakra aðgerða til að skapa skólafólki at- vinnu yfir sumarið. Morgunblaðið ræddi í gær við nokkra forsvars- menn í bæjarfélögum úti á landi, þar sem menn eru hættir að bíða eftir aðgerðum af hálfú ríkisvaldsins og reyna að Ieysa vandann á kostnað bæjarsjóðs. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi sagði atvinnuástand skólafólks álíka slæmt og verið hefði í fyrra. Reynt væri að ráða í vinnuskóla alla unglinga undir 16 ára aldri, en á milli 40 og 50 af nemendum yfir 16 ára aldri vantaði vinnu, og ekki væri útlit fyrir að það lagaðist nema með sérstökum aðgerðum. Bærinn auglýsir í dag í Skagablaðinu að hann muni styrkja félagasamtök, sem standa í sérstök- um verkefnum, meðal annars íþróttahreyfinguna, gegn því að þau taki unglinga í vinnu. „Það gerum við án þess að hafa fengið nokkur svör frá ríkinu. Það er greinilegt að menn ætla að velta þessu, eins og mörgu öðru, yfir á sveitarfélög- in,“ sagði Gísli. Hann sagði að vissulega brynni vandi skólafólksins mest á sveitarfélögunum, en menn teldu óeðlilegt að sveitarsjóðimir tækju alla byrðina á sig. Þeir væru víða illa staddir og hefðu þegar teygt sig nokkuð langt í því að. veita unglingum vinnu. „Við stóðum meðal annarra að því að skora á félagsmálaráðuneyt- ið að standa fyrir sérstöku átaki í atvinnumálum skólafólks eins og gert var í fyrra, og við myndum vera fúsir að taka þátt í því,“ sagði Gísli. „Síðan heyrðum við eins og aðrir að ríkisstjómin hefði beint því til ríkisstofnana að þær tækju til sín fleiri námsmenn. Við könnumst hins vegar ekki við að forsvarsmenn ráðuneyta hafi haft samband við ríkisstofnanir á Akranesi eða víða annars staðar, þannig að við höfum ekki séð hvað út úr því á að koma. Við gerum okkur engar vonir um að það hafi nokkurn skapaðan hlut upp á sig.“ Aukafjárveiting á Akureyri Valgarður Baldvinsson, bæjarrit- ari á Akureyri, sagði að þar væri ástandið verst hjá unglingum 13 til 16 ára, en þeir sem eldri væru virt- ust betur geta bjargað sér um vinnu. Mun fleiri unglingar á aldrin- um 13-15 ára hefðu sótt um vinnu- skólann en undanfarin ár. Til þess að unnt reyndist að ráða alla hefði bæjarstjórn veitt 10 milljónir króna til vinnuskólans aukalega, og einnig hefði vinnudagur elzta árgangsins verið skorinn niður, þannig að allir unglingarnir fengju nú aðeins hálfs dags vinnu. Reynt hefði verið að koma 16 ára unglingum í vinnu hjá ýmsum bæjarstofnunum. Þá hafa Akureyringar gripið til þess ráðs að leita samstarfs við félagasamtök um að þau ráði unglinga í vinnu og bærinn taki þátt í launagreiðsl- um. Valgarður sagði að menn hefðu orðið fyrir vonbrigðum með að heyra ekkert frá ríkisstjórninni um aðgerðir til að ráða bót á vanda skólafólksins. Sérátak upp á 17 milljónir Þorvaldur Jóhannsson, bæjar- stjóri á Seyðisfirði, sagði að búið væri að útvega um 35 námsmönn- um, eldri en 16 ára, vinnu hjá bæn- um, en það væri hluti af stærra átaki, sem bærinn stæði nú fyrir vegna mjög bágs atvinnuástands almennt á staðnum. Auk þess væru yngri skólakrakkar teknir í ungl- ingavinnu. „Skólanemendur hafa alltaf gengið að vinnu sinni vísri hjá fiskvinnslunni, sem hér hefur verið til staðar,“ sagði Þorvaldur. „Nú hefur hér engin fiskvinnsla verið í tæpt ár.“ Hann sagði að alls hefði bærinn tekið í vinnu 115 manns, bæði þá sem verið hefðu á almennri atvinnu- leysisskrá, og svo skólafólk, en þessi hópur væri líklega um fjórð- ungur vinnuafls í bænum. í þetta verkefni eyddi bærinn 1,3 milljón- um króna á viku. Vonast væri til að hægt yrði að halda því úti í tólf vikur alls. Kostnaður bæjarins af þessu átaki yrði því líklega um 17 milljónir króna. Verst ástand hjá yngri hópnum Hjörtur Hjartarson, félagsmála- stjóri á Siglufirði, sagði að atvinnu- ástand væri sæmilegt hjá skólafólki eldra en 16 ára og ekki þyrfti að fara út í sérstakt átak vegna þess hóps, eins og gert var í fyrra. Verra væri ástandið hins vegar hjá yngri krökkum, á aldrinum 13-16 ára. „Fyrirtækin hér hafa ekki tekið í sama mæli á móti þessum krökkum og undanfarin ár. Þetta breyttist í fyrra, og nú er ástandið svipað," sagði Hjörtur. Hann sagði að reynt væri að ráða bót á þessum vanda með því að taka sem flesta skóla- krakka á þessum aldri í unglinga- vinnuna, en stytta vinnutímann á móti. Unglingarnir fá ekki vinnu nema í átta vikur. „Það er alveg ljóst að það eru ekki sömu uppgrip hjá þessum krökkum og var, þar er gífurlegur munur á,“ sagði Hjört- ur. „Þetta er eitthvað, sem er kom- ið til að vera.“ Hjörtur sagði að bæjaryfirvöld á Siglufirði hefðu verið að hlusta eft- ir því hvort ríkisstjórnin myndi hlaupa undir bagga vegna atvinnu- leysis skólafólks. „Mér skildist að það væri ekkert þar að hafa, enda er það í Reykjavík og á Suð-vestur- horninu, sem þetta lendir allt. Þeg- ar aukafjárveitingunni var skipt í fyrra skilst mér að lítið sem ekkert hafi farið út á land,“ sagði hann. Námsmenn í gróðurvernd Guðmundur Níelsson, bæjarritari á Húsavík, sagði að 21 skólanemi hefði verið á atvinnuleysisskrá þar í bæ í síðustu viku. „Þá var ákveð- ið að taka þetta fólk í vinnu í sérs- takt gróðurverndarverkefni, til að byrja með í þrjár vikur til mánuð. Núna er verið að vinna í því að hafa samband við þetta fólk, þann- ig að eftir það á ekki að verða neinn atvinnulaus skólaunglingur á skrá,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að ekki væri ljóst hvað tæki við þegar þessu verkefni á vegum bæjarins lyki. Menn hefðu ákveðið að bíða og sjá til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.