Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 7 Tveir dyraverðir Hressó handteknir Erling KE 45 kemur til hafnar með Búrfell KE 140 á síðunni. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Dregið til haftiar með trollið í skrúftmni Paraiso de Alcudia Skagaströnd. BÚRFELL KE 140 var dregið til skáru síðan trollið úr skrúfunni en stýrinu við óhappið. hafnar á Skagaströnd nú nýverið engar skemmdir urðu á henni né þar sem skipið hafði fengið rækjutrollið í skrúfuna. Erling KE 45 dró Búrfellið til hafnar en Búrfellið hafði verið á veiðum á Húnaflóadjúpi þegar ann- ar vængurinn á rækjutrollinu fór i skrúfuna. Ferðin af miðunum tók um fimm og hálfa klukkustund í góðu veðri. Kafarar á Skagaströnd Þröstur vann alþjóðlegt skákmót ÞRÖSTUR Þórhallsson varð í efsta sæti á alþjóðlegu skákmóti í Danmörku í byrjun júní. Hann- es Hlífar Stefánsson varð í 7-8. sæti á sama móti. - ÓB. Tveir lögreglumenn á gangi í Austurstræti veittu athygli að nokkur mannijöldi var á veitinga- húsinu og þaðan barst tónlist um það bil hálftíma eftir að samkomu- haldi átti eftir að verðalokið. Þeir ræddu við dyravörð sem stóð í dyr- um staðarins og þegar þeir fóru þess á leit við hann að koma inn á staðinn fengu þeir þvert nei og þurftu að beita valdi til að komast inn. Þar var fyrir yfirdyravörður staðarins sem einnig vildi meina lögreglunni aðgang. Lögreglumenn kölluðu eftir liðsauka, handtóku dyraverðina tvo og sáu um að skemmtanahald væri stöðvað. Dyraverðirnir voru færðir til við- ræðna á lögreglustöð, þar sem í ljós kom að þeir bjuggu yfir lítilli þekk- ingu á þeim reglum sem gilda um starfa þeirra, að sögn lögreglu. Að því loknu voru þeir fijálsir ferða sinna. Aðfaranótt laugardagsins höfðu eftirlitsmenn talið fjölda gesta út úr Café Hressó og reyndust þeir þá vera 38% fleiri en heimilt var. Vegna þess hefur lögreglustjóri þegar ákveðið að áfengissala sé óheimil á veitingastaðnum á morg- un, föstudag. LÖGREGLA handtók tvo dyraverði veitingahússins Café Hressó í Reykjavík aðfaranótt mánudagsins eftir að þeir höfðu neitað einkenn- isklæddum lögreglumönnum um aðgang að staðnum um klukkan hálftvö að nóttu en þá stóð skemmtanahald enn yfir. Yfirheyrslum yfir mönnunum er ekki lokið en malið verður sent saksóknara innan tíðar. Vegna þessa atviks hefúr lögreglusljóri ákveðið áð skírskota til heimildar í reglugerð og áskilja samþykki sitt á því hveijir verði ráðnir til að gæta dyra staðarins. Þröstur fékk ö'A vinning af .9 mögulegum ásamt Björn Brinck- Claussen frá Danmörku og Pavlovic frá Júgóslavíu. Hannes fékk 5 vinninga. Varp gengur vel: Sumsstaðar seinkaði fúgl- um á hreiður vegna veðurs „Varp hefúr almennt gengið mjög vel í vor. Tíðin hefúr verið einmuna góð og ekki hafa orðið nein áföll," sagði Arnór Garðarsson, fúglafiræðingur í samtali við Morgunblaðið í vikunni. Arnór sagðist aðallega hafa fylgst með varpi við Mývatn en það hafi gengið vel það sem af er sumri. Hann benti á að alltaf væri einhver munur á varpi eftir tegundum og veður- fari á landinu. Hjá Valdimari Gíslasyni á Mýrum í Dýrafirði fengust þær fréttir að þar hefði varp ekki hafist fyrr en um miðjan maí og er það hálfum mánuði seinna en í meðalári. „Það var hörkuvetur hér fram til 1. maí,“ sagði Valdimar „Og snjóa leysti ekki fyrr en um miðjan mánuðinn. Fuglinn ein- faldlega komst ekki að fyrr en þá. Síðan hefur verið alveg Öndvegis tíð.“ I Vestmannaeyjum sagði Oskar J. Sigurðsson í Stór- höfða að varp hefði gengið vel. „Ég hef ekki orðið var við að það sé seinna á ferðinni en venja er,“ sagði Oskar. „Ef eitthvað er þá er það fyrr“. Tryggóu þér glæsilegan nýjan gistístaó á Mallorka á frábæru Zt. 36.700, 2 í íbúð kr. 54.300,- Við höfum nú fengið viðbótargistingu á Mallorka þann 3. júlí og bjóðum þennan glæsilega, nýja gististað, sem er staðsettur á ströndinni og með frábærri aðstöðu fyrir gesti. Aðeins er um 10 íbúðir að ræða í þessa brottför. Allar upplýsingar hjá söluskrifstofu Veraldar í Austurstræti og umboðsmönnum. AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK , SÍMI: (91) 622 011 & 62 22 00 *Verð m.v. hjón með 2 börn 2-5 ára 2 vikur 3. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.