Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 Viðræður EFTA og EB hafiiar: Tenging fríverslunar við aðgang að miðum gegn hagsmunum EFTA FORMAÐUR viðræðunefhdar EFTA, Svíinn Ulf Dinkelspiel, lagði á það áherslu, á fyrsta fundi viðræðna EFTA við Evrópubandalagið um sam- eiginlegt evrópskt efnahagssvæði, EES, í Brussel í gær, að EFTA krefð- ist fríverslunar með físk og að tenging á aðgangi að markaði við að- gang að fiskimiðum væri andstætt þjóðarhagsmunum EFTA-ríkjanna. Hannes Hafstein, aðalsamninga- maður íslands hjá EFTA, sagði við Morgunbiaðið að á fundinum í gær hefðu fulltrúar EB einnig grein fyrir áherslum bandalagsins í viðræðun- um. Samningsumboð framkvæmda- stjómar EB hefur verið víða túlkað sem mjög óaðgengilegt fyrir EFTA- ríkin, og að þar sé hurðum skellt í lás hvað varðar undanþágukröfur EFTA. Hannes sagði að þetta væru þau sjónarmið sem Evrópubandalag- ið setti fram í upphafi viðræðnanna. »Ég geri ráð fyrir því að hvorki Atviimumál skólafólks: RHdsstofimn- ir fa fyrirmæli áföstudaginn RÍKISSTJÓRNIN tekur í dag fyrir tillögur samstarfshóps ráðuneyta um aðgerðir ríkisins til að bæta úr atvinnuleysi skóla- fólks. Efni tillagnanna fékkst ekki uppgefið í gærkvöldi, þar sem þær voru þá ekki fullunnar, að sögn Grétars J. Guðmundsson- ar, aðstoðarmanns félagsmála- ráðherra. Víða út um land, þar sem tregt er um vinnu fyrir skólafólk, hafa bæjarfélög farið út í sérstakar að- gerðir, á borð við þær sem borgar- stjórnin í Reykjavík hefur ákveðið. Mismunandi er hvort ástandið er verra hjá unglingum á grunnskóla- aldri eða framhaldsskólanemum. Þar sem nemendum á aldrinum 13-15 ára hefur gengið illa að fá vinnu hefur til dæmis verið gripið til þess að fjölga í vinnuskólum, en stytta vinnutímann. Mörgum ung- mennum er komið í vinnu við um- hverfisvernd og fegrun, og sums staðar leita bæjarfélög samstarfs við félagasamtök, um að þau ráði unglinga í ýmis verkefni, en bærinn taki þátt í launakostnaði. Forsvarsmenn í bæjarfélögum, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, Iétu í Ijós vonbrigði með þátt ríkis- ins í því að leysa vanda skólafólks. Sumir voru óánægðir með að ekk- ert hefði heyrzt frá ríkisstofnunum úti á landi, þrátt fyrir fregnir um tilmæli ríkisstjórnarinnar til þeirra að ráða aukafólk. Um þetta segir Grétar Guðmundsson að í raun hafi ríkisstofnanir ekki fengið nein til- mæli um að ráða aukafólk en spurst hafi verið fyrir um möguleika. Sjá lrétt á miðopnu. þeirra samningsumboð, né allir þætt- ir í upphaflegri EFTA stöðu vérði niðurstaða samninganna," sagði Hannes. Á fyrsta fundi viðræðnanna í gær var ákveðið að hafa sama form á viðræðum bandalaganna um EES og var á undirbúningsviðræðunum á síðasta ári. Yfirsamninganefndin verður skipuð þeim sömu og voru í stjómamefnd undirbúningsviðræðn- anna. Auk hennar fjalla 5 samninga- hópar um helstu svið samninganna, og sjötti hópurinn á að samræma niðurstöður hinna. Fyrstu fundirnir í hópunum verða í júlí og aðalsamn- inganefndin kemur aftur saman 24. júlí til að fara yfir fyrstu niðurstöður og ákveða framhald á viðræðum eft- ir sumarleyfi í ágúst. Af íslands hálfu taka væntanlega þátt í viðræðunum, auk Hannesar, Bjöm Friðfinnson ráðuneytisstjóri, Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytis- stjóri, Sólrún Jensdóttir skrifstofu- stjóri og Lilja Ólafsdóttir deildar- stjóri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Flugvélin stórskemmd í mýrinni skammt utan vegar á Öxnadalsheiði. • • Oxnadalsheiði: Rak flugvélarvæng í flallshlíð Þrír menn í vélinni sluppu ómeiddir ÞRÍR ungir menn sluppu ómeiddir er tveggja hreyfla flugvél skall til jarðar skammt frá Sesseljubúð á Öxnadalsheiði í gær. Félagamir þrír voru á leið frá Reykjavík til Akureyrar og er þeir flugu yfir Öxnadalsheiðina var komin talsverð þoka þannig að vélinni var snúið við, en enn var bjart vestan til í heiðinni. Er vélinni var snúið vildi það til að annar vængur hennar rakst í jörð- ina og skall hún því til jarðar. Þar sem vélin kom niður er mýrlendi. Vélin er mikið skemmd, en hún er af gerðinni PA-23 og ber ein- kennisstafina TF-REF. Um er að ræða fímm manna vél, en þrír voru í henni. Félagamir þrír komu á puttanum til Akureyrar síðdegis í gær og héldu suður til Reykjavík- ur með áætlunarflugi um kvöld- matarleytið. Til greina kemur að Sambandið yfirtaki Miklagarð: KRON hefur nú safiiað 10 milljónum af 100 í hlutafé STJÓRN Miklagarðs hf. komst ekki að neinni niðurstöðu um framtíðarrekstrarfyrirkomulag Miklagarðs á Iöngum fundi í gær. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst, var fundi frestað um nokkra daga, en ekki var gefið svar við ósk KRON-fiilltrúanna um að þeir fengju enn mánaðar frest til þess að afla hlutafjárins sem á skortir, eða liðlega 90 milljóna króna af þeim 102 millj- ónum sem fyrirhugað er að safna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins verður haldinn annar fundur í stjórn Miklagarðs innan fárra daga. Þegar verslunarrekstur Mikla- garðs og KRON var sameinaður þann 1. mars sl. í fyrirtækinu Mikli- garður hf. og bráðabirgðastjórn fyrirtækisins kjörin, var ákveðið að Samband íslenskra samvinnufélaga legði til liðlega 102 milljónir króna í hlutafé í hið nýja fyrirtæki, Mikla- garð hf., eða allt að helming og að KRON (Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis) hefði milligöngu um hlutafjárútboð um aðra eins upp- hæð, og jafnvel 150 milljónir króna. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að nú komi til greina að Sam- bandið beiti sér fyrir yfirtöku á rekstri Miklagarðs, þar sem tilraun- ir KRON til þess að safna hlutafjár- loforðum frá lífeyrissjóðum verka- lýðshreyfingarinnar hafi ekki geng- ið sem skyldi og innan við 10 millj- ónir safnast í hlutafjárloforðum lífeyrissjóðanna. Sambandsmenn rifja upp að fyrst hafi verið ákveðið að hlutafjársöfn- un lyki í lok mars. Þá hafi verið gefinn frestur til loka aprílmánaðar og annar frestur gefinn til maíloka. Loks hafi frestur verið gefínn til að afla tiltekins hlutafjár til miðs júnímánaðar, en enn bendi ekkert til þess _að þessi hlutafjársöfnun takist. Ákveðnir Sambandsmenn segja því sem svo, að sé staðan sú, að Sambandið leggi fram 102 millj- ónir króna en aðrir innan við 10 milljónir króna, hljóti að koma að þvi að Sambandið yfirtaki rekstur- inn. Því telja þeir að beinast liggi við að framhaldsaðalfundur Mikla- garðs hf. verði haldinn hið fyrsta og þessu máli verði lokið með kjöri nýrrar stjórnar fyrirtækisins. Verðbréfaþing Islands: Olís hf. sækir um að skrá hlutabréf OLIS hf. varð fyrsta fyrirtækið til að sækja um skráningu hluta- bréfa sinna á Verðbréfaþingi Islands í gær. Reglur um skráningu hlutabréfa á Verðbréfaþingi tóku gildi fyrir rúmum tveimur árum en hlutafélög hafa til þessa ekki sóst eftir skráningu heldur látið nægja að skrá hlutabréf sín hjá verðbréfafyrirtækjum. Olís býður frá og með deginum í dag hlutabréf til kaups með almennu hlutafjár- útboði að fjárhæð 50 milljónir. Beðið eftir Bob Dylan Morgunblaðið/Þorkell Löng biðröð myndaðist við Laugardalshöllina í gær, áður en miðasalan á hljómleika Bobs Dylans hófst klukkan 16. Þeir fremstu í röðinni hófu biðina um klukkan 8. Sú langa bið reyndist þó vera óþörf, því um klukkan 21 í gærkvöldi var biðröðin horfín en þriðjungur miðanna enn óseldur, samkvæmt upplýsing- um-frá.miðasölunni.......... ................................................................. Aðaleigandi Olís, Óli Kr. Sigurðs- son, stjórnarformaður, á um 63% hlutafjár í fyrirtækinu á móti bandaríska olíufélaginu Texaco sem keypti 30% hlut fyrir skömmu. Óli hefur ákveðið að minnka eignarhlut sinn og stefnir að því að verða í minnihluta í Olís. Hlutaíjárútboðið sem hófst í gær er fyrsta skrefið í viðameiri hluta- fjáraukningu en ákveðið hefur verið að auka hlutafé Olís um tæpar 160 milljónir. Sölugengi bréfanna verð- ur 1,6 í upphafi. Verðbréfafyrirtæki Landsbankans, Landsbréf hf., ann- ast hlutafjárútboðið og verður við- skiptavaki bréfanna. Sjá nánar viðskiptablað, 1B. Keflavík: Óbreytt niðurstaða í endurtalningu Yfirkjörstjórn í Keflavík end- urtaldi í gær atkvæðin firá síðustu b;ejarstjórnarkosningum vegna kæru fulltrúa Alþýðubandalags- ins um vafaatkvæði, en bæjar- fógeti hafði skipað þriggja manna nefnd í málinu og úr- skurðaði hún að endurtalning skyldi fara firam. Niðurstaða yfir- kjörstjórnar var sú að fyrri taln- "uíg síæði, éndá bar* tðlunt sanjítfi "' að sögn Sveins Sæmundssonar formanns yfirkjörstjórnar. Fulltrúar allra flokka voru við- staddir endurtalninguna og gerði enginn athugasemd nema fulltrúar Alþýðubandalagsins sem hyggjast kæra til fógeta niðurstöðu kjör- nefndar varðandi 122 atkvæði. Þau atkvæði hafði kjörstjórn úrskurðað gjld L fyrri talningu og staðfesti niðurstöftnna-f'éTTdurtalningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.