Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 faémR FOLX ■ DORTMUND hefur keypt Thomas Franck frá Mannheim fyrir um tvær milljónir marka. Franck er aðeins 19 ára og talinn einn efnilegasti miðjumaður Vest- ur-Þjóðverja. ■ HSV, sem slapp naumlega við fall, ætlar ekki að láta það endur- taka sig næsta keppnistímabil. Ný- lega keypti liðið Júgóslavann, Valdimar Natysik, frá Zadrze fyrir 350 þúsund mörk. Natysik lék 'fneð Auxerre í Frakklandi í vet- ur. Hann er af þýskum ættu og telst því ekki útlendingur í vestur- þýsku deildinni. ■ GENGLERBERLIGI, semAtU Eðvaldsson lék með í Tyrklandi, hefur ráðið til sín tékkneska þjálfar- ann Jarabinsky. Hann ætlar að koma með tvo tékkneska leikmenn með sér til Tyrklands; Julius Bil- ek, sem leikur með Sþarta Prag og Miroslav Kadlec frá Vitkovice. ■ IVAN Hasek, fyrirliði tékk- neska landsliðsins, leikur með Strassborg í Frakklandi eftir HM. ■ FRANSKA liðið Montpellier hefur lýst áhuga á að kaupa Eike Tmmel markvörð frá Stuttgart. Xíklegt er að Þjóðverjarnir séu tilbúnir að selja hann, því vara- manninum Trautner er treyst til að gæta marksins næstu árin. ■ OLEG Blokhin, hinn kunni knattspyrnumaður frá Sovétríkj- unum, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Olympikus Pireus í Grikk- landi. ■ BERND Schuster er á förum frá Real Madrid — sögur herma að hann fái um 2,5 milljónir marka (um 875 milljónir ísl. kr.) fyrir að "'fara ári áður en samningur hans rennur út. Að auki fær hann sjálfur allt kaupverðið í vasann ef hann semur við annað félag! FATLAÐIR Erlingur og Stefán þjálfa jandsliðin Iþróttasamband fatlaðra hefur gengið frá ráðningu Erlings Jó- hannssonar og Stefáns Jóhannsson- ar sem þjálfara landsliðs fatlaðra í fijálsum íþróttum og sundi. Hlut- verk þeirra verður að hafa umsjón með þjálfun fatlaðra keppnismanna og leggja fram tillögur til stjórnar ÍF um æfingabúðir og keppendur á mót erlendis. Þetta er í fyrsta sinn sem ÍF ræður landsliðsþjálfara og eru þeir aðeins ráðnir til 1. september nk. Þá verður staðan metin og ákvörð- un tekin um framhaldið. Búið er að ákveða hvaða íslend- ingar taka þátt í heimsleikum fatl- aðra sem fara fram í Assen í lloilandi 14.-26. júlí. HaukurGunn- arsson keppir í frjálsum íþróttum en í sundi keppa Lilja M. Snorra- dóttir, Geir Sverrisson, Ólafur Eiríksson, Sigrún Pétursdóttir, Kristín R. Hákonardóttir, Halldór Guðbergsson og Rut Sverrisdóttir. HANDBOLTI Víkingsfundur Aðalfundur handknattleiksdeild- ar Víkings verður haldinn fimmtu- 4 ílaginn 21. júní. Fundurinn verður í safnaðarheimili Bústaðarkirkju og hefst kl. 21.00 Aðalfundur HKRR Aðalfundur Handknattleiksráðs Reykjavíkur, HKRR, verður haldinn fimmtudaginn 28. júní nk. á Holiday Inn og hefst kl. 20. Auk -•venjulegra aðalfundarstarfa verður tekin fyrir á fundinum tillaga um breytingar á starfsreglum HKRR. IÞROTTAHATIÐ ISI / ALÞJOÐASUNDMOT ÆGIS Fjórtán eriendir keppendur - frá Austur- og Vestur-Þýskalandi, auk 100 íslenskra keppenda SUNDFÉLAGIÐ Ægir heldur nú um helgina í annað sinn alþjóðlegt sundmót, sem að þessu sjnni er hluti af íþrótta- hátíð ÍSÍ. Mótið fer fram í Laugardalslaug og hefst ann- að kvöld og stendur fram á sunnudag. Fjórtán erlendir keppendur taka þátt í mótinu auk þess sem nærri allt besta sundfólk íslands verður með. Erlenda sundfólkið kemur frá Austur- og Vestur-Þýska- iandi. Sundfélagið Ægir bauð sérstakiega tveimur austur-þýsk- um'sundmönnum ásamt þjálfara. Þau eru Diana Block, 17 ára sund- kona og Marcel Háckel, 19 ára * f Háckel Block gamall sundmaður. Diana sér- hæfir sig í fjórsundi. Hún keppir í 200 og 400 m fjórsundi, auk 100 og 200 metra bringusunds, sem eru aukagreinar. Diana á eftir- tektarverðan tíma í 400 m fjór- sundi, hefur synt á 4.55,27 mín. Til samanburðar er íslandsmet Ragnheiðar í greininni, 5.14,27 mín. Marcel er bringusundsmað- ur, sem hefur synt 100 og 200 m bringusund á svipuðum tímum og íslandsmetin eru og mun hann keppa í þeim greinum. Flestir bestu íslendingarnir Tólf sundmenn, sex stúlkur og sex drengir, koma frá Vestfaliu- fylki í Vestur-Þýskalandi. Stúlk- urnar eru á aldrinum 16-18 ára og strákarnir allir 19 og 20 ára. Af þeim tímum, sem sundfólkið er skráð á til keppninnar, er það af svipaðri getu og flest besta sundfólk Islands og í nokkrum tilfellum heldur betur. Nærri allt besta sundfólk Is- lands tekur þátt í mótinu, þ.á.m. Eðvarð Þór Eðvarðsson, Magnús Már Ólafsson, Bryndís Ólafsdóttir og Helga Sigurðardóttir. Þrír úr A-afrekshópi SSÍ geta ekki tekið þátt vegna verkefna erlendis, en það eru þau Ragnheiður Runólfs- dóttir, Arnþór Ragnarsson og Ragnar Guðmundsson. Þjálfarafundur Á laugardag býður sundfélagið Ægir þjálfurum og forráðamönn- um þeirra félaga sem taka þátt í mótinu til óformlegs þjálfarafund- ar með erlendu þjálfurunum. IÞROTTAHATIÐ ISI Mikill áhugi fyrir Kvennahlaupinu Hlaupið samtímis á sex stöðum á landinu Mikill áhugi er fyrir Kvennahlaupinu sem fer f ram laugardaginn 30. júní á vegum Íþróttahátíðar ÍSÍ. Nú er Ijóst að það verður hlaupið á sex stöðum á landinu; Garðabæ, Akureyri, ísafirði, Grundarfirði, Egilsstöðum og Laugum. Hlaupið er fyrir konur á öllum aldri og verður ekki keppt um verðlaunasæti. Allir þátttak- endur fá bol og verðlaunapening. Lovísa Einarsdóttir, sem á sæti í framkvæmdastjórn íþróttahá- tíðar og fylgst hefur með undirbún- ingi Kvennahlaupsins, segist búast við mikilli þátttöku í hlaupinu. „Við erum háð veðri og það skiptir miklu máli um hvernig þátttakan verður. Markmiðið með hlaupinu er fyrst og fremst að fá konur til að hreyfa sig meira en þær hafa gert hingað til og tileinki sér hollari lífshætti sem hægt er fá í gegnum þátttöku í íþróttum." Hugmyndin um kvennahlaup kemur frá Finnlandi þar sem kvennahlaup hefur verið haldið síðan 1985. „Það sem fékk Finna til að halda sérstakt kvennahlaup var það kynjamisrétti sem hefur verið í íþróttunum undanfarin ár. Tíu þúsund þátttakendur voru í fyrsta hlaupinu þar í landi, en í fyrra tóku þijátíu þúsund konur þátt í hlaupinu, Áhugi kvenna á almenningsíþróttum á Islandi hefur aukist mikið síðustu ár, en betur má ef duga skal. Við viljum því hvetja allar konur til þátttöku í hlaupinu og sýna þannig samstöðu. Við leggjum áherslu á að konur hlaupi, skokki eða jafnvel gangi, miðað við líkamsástand hvers og eins,“ sagði Lovísa. Fjölmennasta hlaupið verður haldið í Garðabæ laugardaginn 30. júní og hefst kl. 14.00. Á sama tíma verður hlaupið á Akureyri, ísafirði, Grundarfirði, Egilsstöðum og að Laugum. Lovísa sagði að margar konur hafí hringt í sig utan að landi og vildu fá að hlaupa. Það mætti því búast við að fleiri staðir bætt- ust í hópinn. Hlaupaleiðin verður mjög þægi- leg, engar brekkur. Á undan og eftir hlaupinu verða gerðar upphit- unaræfíngar og teygjur. Hægt er að velja um tvær vegalengdir; 2 km og 5 km. Þátttakeúdum gefst kost- ur á að fara ókeypis í sund eftir hlaupið á hveijum stað. Hilmar Björnsson KR(1) Steingrfmur Birgisson KA (2) Einar Páll Tðmasson Val (1) LIÐ 6. UMFERÐAR Morgunblaðsliðið er nú valið í sjötta sinn á keppnistímabilinu. Sext- án mörk voru gerð í sjöttu umferðinni, og er liðið því sókndjarft að þessu sinni. Þrír í vörn auk markmanns, fimm á miðjunni og tveir í framlínu. Svo skemmtilega vill til að framheijarnir tveir eru þeir sömu og í liði 5. umferðar. Leikirnir sem eru til hliðsjónar á vali liðsins eru: Fram-Víkingur 0:1, Stjarnan-KA 1:3, Þór-Valur 1:2, KR-FH 3:2 og ÍBV-ÍA 2:1. HANDKNATTLEIKUR Landsliðshópur Þorbergs Morgunblaðið/Sverrir íslenska landsliðið í handknattleik mætir Norðmönnum, Dönum og Kuwait á alþjóðlegu handknattleiksmóti, sem er liður í Íþróttahátíð ÍSÍ, og fram fer í Hafnar- fírði dagana 28. júní til 1. júlí. Þetta verða fyrstu opinberu landsleikir Þorbergs Aðalsteinssonar, sem þjálfara. Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Davíð Sigurðsson, liðsstjóri, Einar Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari, Óskar Ármannsson, Ólafur Gylfason, Gunnar Gunnarsson, Sigurður Bjarnason, Jakob Sigurðsson, Gunnar Beinteinsson, Einar Sigurðsson, Páll Guðnason, Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari og Bjarki Sigurðsson. í fremri röð frá vinstri: Magnús Sigurðs- son, Birgir Sigurðsson, Héðinn Gilsson, Guðmundur Hrafnkelsson, Hrafn Margeirsson, Konráð Olavson, Bergsveinn Bergsveinsson og Valdimar Grímsson. Fjar- verandi voru Leifur Dagfinnsson, Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.