Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
49
HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐ llKNATTSPYRNA / BIKARKEPPNIN
Morgunblaðiö/KGA
Landsliðshópurinn sem lék fyrsta landsleikinn fyrir 34 árum. Frá vinstri eru Helga Emilsdóttir, Sigríður Kjartans-
dóttir, Sóley Tómasdóttir, Rut Guðmundsdóttir, Elín Guðmundsdóttir, Geirlaug Karlsdóttir, Sigríður Lúthersdóttir, María
H. Guðmundsdóttir, Guðlaug Kristinsdóttir og Svana Jörgensdóttir. Á myndina vantar Gerðu Jónsdóttur, Elínu Helga-
dóttur og Ingibjörgu Hauksdóttur. Þjálfari liðsins var Stefán Gunnarsson.
Fyrsta landsleiksins minnst
ÍSLEMSKT kvenfólk hefur lengi
haldið upp á 19. júní sem sér-
stakan sjálfstæðisdag ítilefni
þess að þann dag fengu konur
á ísiandi kosningarétt fyrir 75
árum. Handknattleikskonur
hafa aðra ástæðu til þess að
minnast þessa dags sérstak-
iega, því 19 júní 1956 lék
fslenska kvennalandsliðið í
handknattleik sinn fyrsta
landsleik.
Fyrsti kvennalandsleikur Islands
í handknattleik fór fram á Bis-
lett leikvangi í Noregi og þóttu
íslensku stúlkurnar sýna góða
frammistöðu þrátt fyrir 10:7 tap
fyrir gestgjöfunum. Konurnar eru
reyndar á þeirri skoðun að aðalá-
GOLF
LEK-mót hjá GR
Viðmiðunarmót til landsliðs öld-
unga verður haldið á velli GR í
Grafarholti á morgun, föstudag.
Mótið er einnig fyrsta stigamót
öldunga hjá GR.
Ræst verður út frá kl. 14-18 en
skráning fer fram í skála.
stæðan fyrir tapinu hafi verið sú
að leikurinn fór fram á grasi í rign-
ingu. Norska liðið var við öllu búið
og lék á takkaskóm, en þær íslensku
áttu erfitt með að fóta sig á hálu
grasinu í sléttbotna skóm.
Frá Noregi lá leiðin yfir til Finn-
lands þar sem Norðurlandameist-
aramót kvenna fór fram. Þar vann
íslenska liðið sinn fyrsta sigur, sigr-
aði Finna 6:5 og hafnaði í 4. sæti
á mótinu. Það liðu síðan ekki nema
átta ár þar til íslenska liðið vann
Norðurlandameistaratitil. Þá fór
keppnin fram hér á íslandi og í
íslenska liðinu voru nokkrar sem
léku á Bislett 1956.
Konurnar sem skipuðu fyrsta
íslenska kvennalandsliðið halda enn
hópinn 34 árum síðar. Þær hittast
árlega — 19. júní, rifja upp gamlar
minningar og skoða myndaalbúm
og blaðaúrklippur frá þessum tíma.
Framan af var ætlunin að hittast á
5 ára fresti, en það þótti of lítið
og síðustu 10 árin hafa þær hist
árlega.
Stefán Gunnarsson, fijálsíþrótta-
maðurinn góðkunni, þjálfaði liðið.
Hann hafði mikla trú á útihlaupum
og eyddi liðið miklum tíma í Vatns-
mýrinni vikurnar fyrir ferðina.
Leikskipulag íslenska liðsins 1956
var nokkuð frábrugðið því sem nú
þekkist, enda hafa handboltareglur
hafa breyst á þessum tíma. Þá var
t.d. bannað að rekja knöttinn. Leik-
maður mátti einungis taka þijú
skref með hann, stinga niður einu
sinni og taka aftur þijú skref og
þurfti því góða samvinnu í hrað-
aupphlaupum.
HANDKNATTLEIKUR
KA til Sikileyjar
KA-menn taka þátt í handknattleiksmóti á Sikiley í september. Auk
KA taka þátt í mótinu tvö lið frá Ítalíu og tvö sterk júgóslavnesk lið.
KA liðið þarf aðeins að sjá um að koma sér á keppnisstað, annan kostn-
að sjá ítalimir um. Mótið stendur yfir í sex daga.
„Draumadráttur
að fá ÍA austur“
Leikmenn Sindra safna skeggi þar
til þátttöku þeirra lýkur
Sindri frá Höfn í Hornafirði er
eina liðið úr 4. deild, sem
komst í 16-liða úrslit bikarkeppni
KSÍ. Sindri vann 3. deildarlið Ein-
heija 1:0 í fyrrakvöld og í dag verð-
ur svo dregið um framhaldið - en
nú hefja 1. deildarliðin keppni.
„Draumadrátturinn er að fá ÍA
hingað austur,“ sagði Garðar Jóns-
son, þjálfari Sindra við Morgun-
blaðið í gær, en hann er einmitt frá
Akranesi og var í herbúðum ÍA
fyrir nokkrum árum.
•Ijeikmenn Sindra hétu því fyrir
bikarleikinn gegn Þrótti, Neskaup-
stað, fyrir hálfum mánuði að raka
sig ekki fyrr en þátttöku þeirra í
bikarkeppninni væri lokið og eru
því orðnir nokkuð „myndarlegir"
eins og Garðar sagði. Skagamenn
gerðu slíkt hið sama fyrir nokkrum
árum og unnu bikarinn.
• KS og Tindastóll eiga eftir að
leika um hvort liðið kemst úr Norð-
urlandsriðli í 16-liða úrslitin. Dregið
var um hvar skyldi leika og kom
nafn KS úr hattinum. Því verður
leikið á Siglufirði, á þriðjudaginn.
■Liðin sem verða í hattinum í dag,
þegar dregið verður eru: Fram,
Valur, KR, ÍBV, Víkingur, Stjarn-
an, FH, KA, ÍA og Þór úr 1. deild, .
Selfoss, ÍR, ÍBK, Breiðablik og
KS/Tindastóll úr 2. deild og síðan
Sindri úr 4. deild. Ekkert 3. deildar
lið komst því í 16-liða úrslit að
þessu sinni.
Því má bæta við að einn
vantaði inn í stöðu F-riðils 4. deild-
nefndur Garðar 2 og Þrándur Sig-
SIGLINGAR
Landsbankamót
Siglingafélagið Brokey
heldur um í dag og á
morgun Landsbankamót í sigl-
ingum þar sem siglt er á milli
Reykjavíkur og Keflavíkur.
Ætlunin er að halda þetta mót
árlega næstu fimm árin og er
keppt um veglegan farandbik-
ar. í dag er lagt af stað frá
Reykjavík kl. 16.00, en á morg-
un verður lagt upp frá Keflavík
kl. 13.00. Verðlaunaafhending
er áætluð milli 19.00 og 20.00
á laugardagskvöld við bryggj-
una í Reykjavík.
Garðar iónsson þjálfari Sindra 4,
Hornafirði.
Vignisson og er hann nú næst
markahæstur í 4. deild með 8 mörk.
Rétt staða í riðlinum er þannig:
4. DEILD F
NEISTI D. - HÖTTUR ........O: 5
AUSTRI E. - HUGINN .......0:0
SINDRI - VALUR RF.........3:1
Fj.leikja u j T Mörk Stig
HÖTTUR 4 3 0 1 23: 3 9
SINDRI 3 -3 0 0 14: 5 9
HUGINN 3 2 1 0 9: 1 7
VALUR RF. 4 2 0 2 18: 8 6
LEIKNIR F. 3 2 0 1 11:7 6
AUSTRIE. 4 1 1 2 5: 5 4
KSH 2 1 0 1 5: 6 3
NEISTID. 4 O 0 4 3: 19 O
STJARNAN 3 O 0 3 0: 34 O
1.DEILD
M-in vantaði úr
einum leikjanna
Einkunnagjöf vantaði úr einum leik 6.
ferðar í blaðinu i gær, leik Stjömunnar og Kj?
Beðist er velvirðingar á þvi og M-in sem vant-
aði birt:
Steingrímur Birgisson og Þórður Guðjónsson
KA.
Ragnar Gíslason og Magnús Bergs, Stjöm
unni. Haukur Bragason, Bjami Jónsson, Haf-
steinn Jakobsson og Ormarr Örlygsson, KA.
GOLF
HaukurÓskarsson, NK:
Fór par 4 holu
í einu höggi á
Nesvellinum
HINN efnilegi kylfingur Haukur
Óskarsson, NK, vann það afrek
á golfvellinum á Seltjarnarnesi
í síðustu viku að fara holu í
höggi á 8. braut vallarins, sem
er um 250 m löng.
að sérstæða við þetta afrek er
að holan er par 4 og hefur það
ekki áður gerst á Nesvellinum að
leikmaður nái þessu afreki á par 4
holu við eðlilegar aðstæður. Við
höggið notaði Haukur 5-tré.
Aður hefur Jóhann Óli Guð-
mundsson, GR, farið holu í höggi á
4. braut vallarins, en þá var verið
að byggja upp flötina og brautin
því heldur styttri en venjulega og
Magnús Ingi Stefánsson, NK, vann
svipað afrek en lék þá á unglinga-
teigum.
ÆSKUHLAUPIÐ
Haldið á Miklatúni,
sunnudaginn l.júlíkl. 14:00
Aldur Vegalengd Tímasetning
7 ára ÍOOO m. 14:00
8 ára ÍOOO m. 14:20
9 ára ÍOOO m. 14:40
ÍO ára ÍOOO m. 15:00
11 ára ÍOOO m. 15:20
12 ára 1500 m. 15:50
13 ára 1500 m. 16:20
14 ára 1500 m. 17:10
Æskuhlaupið er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 7-14 ára.
Hlaupið er kynskipt og eru stúlkur ræstar á undan í hverjum aldursflokki.
Allir fá litprentuð verólaunaskjöl á nafn fyrir Skráningá: Skrifstofu ÍSÍ sími: 91-83377 Skrifstofu FRÍ sími:9 látttöku -685525 Útvarp FM8 ■11 8J ■!)