Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 23 hafa hótað að segja skilið við hann. Virðist flokkurinn í raun heyja bar- áttu fyrir eigin tilveru.“ í gær og í fyrradag hafa 2.744 fulltrúar kommúnista í rússneska lýðveldinu setið á fundi í Kreml og búið sig undir þátttöku í flokksþing- inu sem hefst 2. júlí. Það var þessi hópur sem ákvað í gær með 2.316 atkvæðum gegn 171 að breyta fundi sínum í stofnfund Kommúrii- staflokks Rússlands. Slíkur flokkur hefur ekki starfað síðan 1925, þeg- ar hann var innlimaður í sovéska flokkinn að skipun Stalíns. Ákvörð- unin um sérstakan rússneskan flokk endurspeglar í senn upplausn- ina og forystuleysið innan sovéska flokksins, þar sem Gorbatsjov er enn aðalritari og leiðtogi, og vilja Rússa til að skapa sér sjálfstæðari stöðu innan Sovétríkjanna. Með upplausn í flokknum og afnámi á alræðisvaldi hans leysist ríkið sjálft einnig upp. Flokksleg uppgjöf í ræðu á fundi rússnesku komm- únistanna á þriðjudag komst Gorb- atsjov þannig að orði, að markaður- inn væri ávöxtur siðmenningar og hvorki uppfinning kapítalista né mótsetning við kommúnismann. Afsökunin sem Gorbatsjov færir fyrir trú sinni á markaðinn, að hann sé ekki „mótsetning við kommún- isrnann" er dæmigerð fyrir þær rökleysur sem þeir standa frammi fyrir er ætla að sameina markaðs- kerfíð, sósíalisma og kommúnisma. Flokkurinn er ekki einungis Gorb- atsjov fjötur um fót heldur tregða hans sjálfs til að standa að nægi- lega róttækum umbótum; þtjóska hans gagnvart Eystrasaltsríkjunum dugar honum ekki til lengdar og hann hefur ekki notað umboðið sem hann fékk 14. mars síðastliðinn til að gera „róttækar“ efnahagsum- bætur með þeim hætti, að hann hafi sameinað menn á bak við sig. Hann sætir bæði gagnrýni umbóta- sinna og harðlínumanna og honum dugar ekki lengur að etja þeim hópum saman; deila og drottna. Því fer fjarri, að á þingi rúss- nesku kommúnistanna hafi allir verið þeirrar skoðunar, að flokkur- inn ætti að gefa eftir eða breyta um stefnu. Strax eftir að Gorbatsj- ov hafði lokið ræðu sinni sté full- trúi að nafni Ivan Osadchi í ræðu- stólinn og var herhvöt hans mun betur tekið en sáttaleið Gor- batsjovs. Osadchi komst meðal ann- ars þannig að orði: „Finna má þá sem vilja binda enda á þetta með sjálfsmorði... Við styðjum komm- únistaflokk á lenínskum grunni.“ Albert Makashov hershöfðingja var einnig vel fagnað, þegar hann sak- aði Gorbatsjov um að opna landið fyrir árás og hét því að sætta sig aldrei við „hugmyndafræðilega uppgjöf". Fregnir berast af því að Gorbatsj- ov eigi undir högg að sækja gagn- vart hemum vegna þess sem hefur verið að gerast í fyrrum fylgiríkjum Sovétríkjanna í Á-Evrópu. Makas- hov staðfesti þetta í ræðu sinni, þegar hann réðst á samkomulagið um brottflutning sovéskra her- manna frá Tékkóslóvakíu og Pól- landi. Hann sagði að ekki mætti gleyma hernum á þessum „erfiðlei- katímum í Sovétríkjunum — þegar það er kallaður sigur utanríkisstefn- unnar að sovéski herinn er rekinn átakalaust á brott úr þeim löndum sem feður okkar frelsuðu undan fasisma.“ Hvergi er því spáð að herinn eigi eftir að fylla tómarúmið eftic flokk- inn í Sovétríkjunum. Tengsl 'flokks og hers hafa hins vegar verið svo mikil, að niðurlæging flokksins skaðar herinn ekki síður en þá Gorbatsjov og Jeltsín. ■ BAGDAD - Um 700 klerkar frá 70 ríkjum múslíma, sem komu saman í Bagdad, lýstu yfir því í gær að „heilagur stríðsmaður“ ír- aks, Saddam Hussein forseti, breytti eftir Kóraninum og yilja Allah með því að framleiða gjöreyð- ingarvopn. Þeir sökuðu Israela, Bandaríkjamenn og Breta um að hafa staðið fyrir lygaherferð í fjöl- miðlum um vopnaframleiðsju íraka og hvöttu alla múslíma til að koma arabaþjóðinni til hjálpar vegna yfír- vofandi árásar ísraela. II DHAKA - Meira en hundrað manns hafa látist af völdum hita- sóttar, sem berst með flugum, í Norður-Bangladesh undanfama daga. Sjúkdómurinn breiddist skyndilega út eftir að fólk hafði verið hvatt til að hætta að nota skordýraeitrið DDT vegna þess að það getur valdið alvarlegri um- hverfismengun. ■ SEOUL - Stjórnvöld í Norð- ur-Kóreu buðust í gær til að taka upp viðræður að nýju við stjóm Suður-Kóreu síðar á árinu. Hér virðist um stefnubreytingu að ræða þar sem Norður-Kóreumenn hafa hingað til hafnað tillögum Suður- Kóreumanna um slíkar viðræður og brugðust ókvæða við fundi Rohs Tae-woos, forseta Suður-Kóreu, og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta fyrr í mánuðinum. ■ WASHINGTON - Banda- rísk yfirvöld birtu í gær skýrslu þar sem sonur George Bush Bandaríkj- aforseta, Neil, er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína sem yfirmaður sparisjóðs í Denver Col- orado-ríki. Gjaldþrot sjóðsins árið 1988 kostaði bandaríska skatt- greiðendur að minnsta kosti milljarð dala, um 60 milljarða ísl. kr.. itf qq mwn, hb | mwm»miii C Innflytjendum býöst nú nýr, öruggur og vandaöur kostur í vöruflutningum til landsins. Skipafélagiö GLÁMA býöur: ■ reglulegar ferðir til og frá GRIMSBY, ROTTERDAM og ESBJERG ■ fullkominn útbúnað til hvers konar flutninga á matvælum og öðrum vörum ■ viðkomu á 5 höfnum innanlands: HAFNARFIRÐI, ÍSAFIRÐI, SKAGASTRÖND, DALVÍK OG NESKAUPSTAÐ ■ 1830 tonna vel búiö frystiskip - JARL ■ trausta flutninga á hagstæöum kjörum til og frá landinu ■ ábyrga og persónulega þjónustu hjá fyrirtæki af Gft-AIVI/V SKIPAFÉLAO HAFNARSTRÆTI 5, RVK, S. 629200, TFAX. 623116 Hefjið veiðiferðina hjá Veiðimanninum Hafnurstneti 5 ■ Símar 1 67 60 og 1 48 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.